Morgunblaðið - 28.04.1989, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag er komið að umfjöllun
um ástarlíf Vogarinnar (23.
september — 22. október) og
Sporðdrekans (23. október —
21. nóvember). Einungis er
Qallað um hið dæmigerða fyr-
ir sólarmerkið og einnig má
taka mið af stöðu Venusar
og Mars í merkjum í korti
okkar.
Tillitssemi
Vogin er tilfinningalega opin
og jákvæð og jafnframt ljúf
og vingjamleg. Hún er þægi-
leg í samstarfi og fellur vel
að elska og er tillitssöm í
ást Vogin reynir alltaf að
skilja þarfír ástvinar síns og
móta útfrá því sameiginlegan
grunn sem bæði geta sætt sig
við.
Fágun
Vogin laðast að fegurð og
vill jafnvægi í líf sitt. Hún
hrífst því af fáguðu fólki, af
þeim sem eru menningarlega
sinnaðir, hugmyndaríkir og
félagslega þroskaðir. Hún
hrífst oft af hugsun fólks og
hugmyndum eða af sérstakri
fegurð. Eitt ráð til að vekja
áhuga Vogarinnar er að segja
henni frá öllu fólkinu sem við
þekkjum og að bjóða henni í
fjölmenn samkvæmi. Hún er
félagslynd og þrífst þvi best
í sambandi sem lokar ekki á
félagsþörf hennar.
Rómantík
Vogin er rómantísk í ástum.
Umhverfi ástarleikja þarf að
vera aðlaðandi. Kertaljós, rétt
lýsing, tónlist, góður ilmur,
fegurð og mýkt þurfa að vera
ráðandi. Góðar samræður
skipta einnig miklu og mikil-
vægt er að vera kurteis, já-
kvæður og fágaður í hegðun.
Henni er illa við vandamál,
grófleika, óréttlæti og óhefl-
aða framkomu.
Frœgur elskhugi
Sporðdrekinn er frægur fyrir
sterka kynorku og heitar
ástríður og er stundum sagt
hann sé öðrum merkjum
fremri og skemmtilegri sem
ástarfélagi. Sjálfsagt er þetta
einstaklingsbundið eins og
gengur en er rétt að því leyti
að Sporðdrekinn hefur sterk-
ar tilfinningar og hefur tölu-
verðan áhuga á kynlífí og því
að ná djúpum tengslum við
annað fólk.
Erótik
Þegar talað er um kynlif og
Sporðdrekann er rétt að taka
eitt fram. Sporðdrekinn er
tilfinningamerki og áhugi
hans beinist fyrst og fremst
að því að ná djúpu sálrænu
sambandi við aðra mannveru.
Hið líkamlega situr ekki alltaf
í fyrsta sæti. Það er t.d. frek-
ar Nautið sem leggur áherslu
á hreina líkamlega ást. Sporð-
drekinn hefur áhuga á því
sem við getum kallað erótík.
Á dulúð, á sálrænum straum-
um, tálbrögðum og því að ást
leiði til umbreytingar. Hann
vill tapa sjálfinu í ástinni og
umbreytast, eða öðlast auk-
inn þroska.
Hulin eldur
Þó það sé rétt að Sporðdrek-
inn geti verið heitur í návígi,
er hann jafnframt dulur og
oft á tíðum bældur. Það getur
því verið erfitt að komast nið-
ur á eldfjallið sem kraumar
undir jökulbreiðunni. Sporð-
drekinn hleypir öðrum ekki
nálægt sér nema hann treysti
viðkomandi og tilfínninga-
legu andrúmslofti umhverfís-
ins. Það þarf því oft að gera
ákveðnar tilfæringar til að
kveikja í honum. Erótísk föt,
dulúð, rétt augnatillit og hálf-
kveðnar vísur gera þar sitt
gagn. Ailt sem höfðar til
áhuga hans á því dularfulla
er hvetjandi. Sem elskhugi
er Sporðdreki næmur, heitur
og skilningsríkur.
GARPUR
ETBRM/4 Efi / HyETTU ÓG ÚS
EFZMÁTTLAVS.
EG SfZ AB UEH.BA ALGTO/Z
AUMINGI/
EU V/Ð VERBUM STRAX £Ð SETJA
STRAHJCX3AESLULIÐIÐ l'VARBSTÓÐU.
áS GEP
GRETTIR
BRENDA STARR
SEG-B>UMdfi MO/CHUB, DUDLET, Ar
HVEfZJU HáLSTUAD
V/O SP/N VÆ&UM
SAAAAU? /að éGSAGBl HW-
UM ÞAO.
VEGMA pESS
éG
bó ?EN é(3 \ SVIK
T/ZEyST! Þá&, | FyLGJA
HAPPI'HVEEfHG) -SV/KUAA,
GAsKrjV/K/B L. AAANPfiED.
AVG?
Í1
H'ETTVAU VO&K&tJNA SjAlfOAI
þEK, L OÚFU/Z. SEGBU/HáR AD
LOKUM E-iTT- EFSPIS/SKHlFAD)
EKk! þETTA 'A STA&VELLUBRÚF~ ■
SEM ÉG t=AH A/ [ SORP-
TUHNUb/MI, HVER
-W'
e 1-22, X ■ 1 /% O 1/ A
LJOSKA
FERDINAND
zvnwMtijm—i III 1 1 w i,ii,, ii/ii ihinirrin:i, i, / i., „ir/mm
PlB copenhagen ^
l'mi
SMÁFÓLK
Af hveiju fórstu ekki í sumarbúðir i ár?
Áttu við að maður þurfí að hafa einhverja ástæðu?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það runnu tvær grímur á
keppendur í sæti suðurs á ís-
landsmótinu í tvímenningi um
síðustu helgi, þegar austur tók
upp á því að melda hjarta, utan
hættu með passaðan makker.
Vesturgefur, enginn á hættu.
Norður
♦ Á865
Vestur
♦ D9
V65
♦ D109543
♦ D42
V-
♦ ÁKG8
+ K108^ustur
♦ KG2
♦ G10432
♦ 762
♦ ÁG
Suður
♦ 10743
♦ ÁKD987
♦ -
♦ 953
Eftir pass vesturs í upphafi
opnaði norður ýmist á tígli eða
laufi og mjög víða ströglaði aust-
ur á hjarta. Suður hefur fulla
ástæðu til að tortryggja þá sögn,
en gerir samt best í því að passa.
Norður á klæðskerasaumað dobl
í íjórðu hendinni og því var það
ekki óalgeng niðurstaða að aust-
ur spilaði 1 hjarta doblað. Þann-
ig afgreiddu íslandsmeistaram-
ir, Aðalsteinn Jörgensen og
Ragnar Magnússon, spilið. Út
kom lauf og eftir þá byijun fær
sagnhafi alltaf 5 slagi. En 300
í NS var all góð tala, því marg-
ir töpuðu 4 spöðum eða hjörtum
á spil NS.
Á einu borði ákvað norður
frekar að segja 1 spaða en dobla
með norðurspilin. Við því stökk
suður í 4 hjörtu, enda líklegt að
4 spaðar væru verra spil ef hjart-
að lægi illa. Útspilið var heppi-
legt, eða tígulnía. Með því að
svína gosanum var hægt að
henda niður laufunum þremur
heima og síðan tvístytta suður
í trompinu. Með því að spila
austur upp í GlOxxx í trompi
mátti síðan tryggja 10. slaginn
á hjartaníuna.
Umsjón Margeir
Pétursson
Leikjavíxlun eða gleymska í
byijun skákar getur hent sterk-
ustu stórmeistara eins og þessi
skák frá heimsbikarmótinu í Barc-
elona sýnir. Hvítt: Ribli, Svart:
Be(javsky, Drottningarbragð, 1.
c4 - e6, 2. Rc3 - d5, 3. d4 -
Rf6, 4. Rf3 - dxc4, 5. e4 - Bb4,
6. Bg5 - c5, 7. Bxc4 - cxd4, 8.
Rxd4 - Bxc3+, 9. bxc3 - Da5,
10. Bxf6 - Dxc3+, 11. Kfl -
gxf6, 12. Hcl - Db4? (Hér er
nauðsynlegt að leika 12. - Da5,
en þannig hafa tugir eða hundruð
skáka teflst siðustu tvö árin.)
Stöðumynd
13. Bxe6! (Hvítur vinnur nú peðið
til baka með yfírburðastöðu) 13.
- Rc6, 14. Rxc6 - bxc6, 15.
Bxc8 - Hxc8, 16. h4 - 0-0, 17.
Dg4+ - Kh8, 18. Hh3 - c5, 19.
Hhc3 - c4, 20. Kgl - Hfd8, 21.
Df5 - Dd6, 22. Hxc4 - Hxc4,
23. Hxc4. Hvitur er inú orðinn
peði yfír og vann skákina í 41
leik. Þetta er eina vinningsskák
Riblis á mótinu. Aðrir andstæð-
ingar hans hafa sennilega munað
teóríuna rétt.