Morgunblaðið - 28.04.1989, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28, APRÍL 1989
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
GUÐLAUGUR VIGFÚSSON,
Kjarrvegi 15,
lést í Landakotsspítala þann 27. apríl.
Jóhanna Kristjánsdóttir
og börn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA STEFÁNSDÓTTIR,
Þrándarstöðum,
Eiðaþinghá,
andaðist 26. apríl í Landspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Valdórsson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SÓLVEIG ÞORLEIFSDÓTTIR,
Grýtubakka 8,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 2. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Hjartavernd.
Magnús Helgason,
Helga Magnúsdóttir, Björn Ólafsson,
Jóhanna Magnúsdóttlr, Páll Þ. Pálsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR,
Hafnarbraut 49,
Höfn I Hornafirði,
sem lést í Landspítalanum 20. apríl sl., verður jarðsungin frá
Hafnarkirkju í Hornafirði laugardaginn 29. apríl 1989 kl. 14.00.
Einar Björn Einarsson,
Ólafur Einarsson, Anna Benidiktsdóttir,
Einar B. Einarsson, Sigrún B. Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVI KRISTJÁN EINARSSON
frá Bjarnastöðum,
vistmaður Garðvangi, Garði,
verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 29. apríl kl.
14.00.
Einar Tryggvason,
Helga T rygg vadótti r,
Kristín Trygg vadóttir,
Ólafur Tyrggvason,
Tryggvi Björn Tryggvason,
Finna Pálmadóttir,
Eyjólfur Gfslason,
Bjarni Böðvarsson,
Berta Jakobsdóttir,
Karitas Sigurvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEFANÍA S. GUÐLAUGSDÓTTIR,
Túngötul,
Grindavfk,
lést 22. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Þökkum sýnda samúð og vinarhug.
Sfmon Þorsteinsson,
Erla Delberts, Jón Nikolaison,
Bergþóra Sfmonardóttir, C.T. Pang,
Hildur Sfmonardóttir,
Þorsteinn Sfmonarson, Bryndfs Guðbrandsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
móður minnar,
GUÐRÚNAR KRISTJÖNU OLGEIRSSON.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfiröi.
Jón Olgeirsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
SIGURGEIRS GUÐBRANDSSONAR
á Heydalsá.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki deildar 11 E
á Landspítalanum fyrir frábæra umönnun og aðhlynningu.
Halldóra Guðjónsdóttir,
synir og systkini hins látna.
Guðmundur Rósin-
karsson - Minning
Vorsins gyðja faðmar ijallahlíð,
ptrar bresta, lifnar jarðarblómi,
fógur engi, bændabýlin frið,
birkihlíðar, ár með fossarómi.
Syngja fuglar sumarlanga tið
silfurskærum þúsundradda-hljómi.
Þegar indæl, sólbjört sumarkvöld
senda kveðju hæstu tindum fjalla
eða morguns gullin geislavöld
gylla fólvan Drangajökulsskalla.
Hljóðabungu roðnar kinnin köld,
kaiin tár af brúnum hennar falla.
Fyrrum hér við dula drafnar braut
drenginn snjalla syrgði mærin friða.
Og við Lónið eins í sæld og þraut
ennþá lifir minning fomra tíða.
Ennþá svanir innst við jökulskraut
ástarklökkvir hefja róminn blíða.
(Árbók Barðastrandarsýslu, Lárus Þórðar-
son)
Þessi erindi úr kvæðinu Við
Kaldalón koma okkur í hug, er við
nú kveðjum mág okkar og tengda-
bróður, Guðmund Rósinkarsson,
hinstu kveðju, en hann lést í Landa-
kotsspítala þann 19. apríl sl., eftir
þungbær veikindi undanfama mán-
uði.
Guðmundur var fæddur þann 27.
janúar 1924 að Snætjöllum við ísa-
fjarðardjúp, sonur hjónanna, Rós-
inkars Kolbeinssonar og Jakobínu
Gísladóttur, en þau em látin. Var
hann þriðji elstur 10 systkina og
era nú 8 á lífi.
Kvæntur var hann Sigurlínu Sig-
urðardóttur, Siguijónssonar sem er
látinn og Ingibjargar Jónsdóttur,
bændum á Marbæli í Skagafirði.
Þeim varð þriggja bama auðið sem
era: Ingibjörg Rósa, heitbundin
Aðalsteini Ólafssyni og eiga þau
einn son, Guðmund Frey, Sigurborg
Sólveig, nemi í Verslunarskóla ís-
lands og Auðunn Már, nemi í
Menntaskóla Kópavogs. Aður hafði
hann gengið systursyni sínum,
Hreini, í föðurstað.
Guðmundur var menntaður vél-
virki og vann að þeirri iðn lengst
af. Um árabil var hann verkstjóri
í Vélsmiðjunni Héðni og þar vann
hann á meðan heilsan leyfði.
Við sem þekktum Guðmund,
þurfum ekki í löngu máli að lýsa
kostum hans, þeir urðu öllum sem
honum kynntust augljósir, enda
vora upptalningar um eigið ágæti
honum lítt að skapi. Þó getum við
ekki á kveðjustund látið hjá líða að
þakka honum fyrir framgöngu hans
við byggingu á sumarhúsi fjölskyld-
unnar á Marbæli, en þar fór hann
fyrir eins og ávallt, þegar fjölskyld-
Jónína H. Jóhanns-
dóttir — Minning
Fædd 4. nóvember 1900
Dáin 15. apríl 1989
Ástkær systir okkar, Jónína
Hólmfríður Jóhannsdóttir, andaðist
á Borgarspítalanum 15. apríl síðast-
liðinn.
Jónína var fædd 4. nóvember
1900, dóttir hjónanna Sigríðar
Jónsdóttur, fædd 1877, frá Helgu-
stöðum í Fljótum í Skagafirði og
Jóhanns Baldvins Sigurðssonar,
fæddur 1880, frá Skógum á Þela-
mörk í Eyjaljarðarsýslu. Jónína ólst
upp hjá foreldram sínum sem
bjuggu lengst af í Fjörðu í Þorgeirs-
firði í Suður-Þingeyjarsýslu. Jónína
var elst af stóram systkinahópi,
alls 10 að tölu. Ein systirin er látin
fyrir tæpu ári og eftir lifa 6 bræður
og 2 systur.
Jónína yfirgaf æskuheimili sitt
árið 1924, og gerðist kaupakona á
ýmsum stórbýlum í Höfðahverfi.
Árið 1930 giftist hún Jóel Sig-
urðssyni frá Hvoli í Skaftafellssýslu
og bjuggu þau hjónin þar í nokkur
ár ásamt foreldram hans. Eignuð-
ust þau 4 böm sem öll era á lífi.
Fluttu þau til Reykjavíkur þa sem
maður hennar var verkstjóri hjá
Sláturfélagi Suðurlands. Jónína
vann þar einnig um 40 ára skeið,
*
Asdís Þorgilsdótt-
ir - Kveðjuorð
Fædd 28. janúar 1934
Dáin 9. apríl 1989
Eg vil með örfáum orðum minn-
ast hins bjarta, prúða og hlýlega
unglings, sem dvaldi á heimili mínu
um nokkurra ára skeið, en er nú
horfín frá okkur langt um aldur
fram.
Ásdís Þorgilsdóttir, þessi bjart-
leita stúlka, var sá efniviður sem
ávallt hélt vöku sinni, var fylgin sér
og einörð við þau viðfangsefni sem
hún tók að sér. Hún var mjög vel
fær, sérstaklega heiðarleg og orð-
heldin og tryggur vinur vina sinna.
Það er bjart yfir minningu minni
um Dísu eins og við kölluðum hana.
Hún var góð mínum bömum sem
era mun yngri en hún og hefur æ
síðan fylgst með þeim og viljað veg
þeirra sem bestan.
Ásdís er af þekktum bændaætt-
um komin, faðir hennar úr Rangár-
þingi en móðir hennar úr Húna-
þingi. Ég átti því láni að fagna að
dvelja á heimili foreldra hennar
stuttan tíma er ég var unglingur.
Þar var gnægð góðra bóka á þess
tíma mælikvarða og þótt Ásdís
gengi ekki langskólaleiðina var hún
alltaf áhugasöm og opin fyrir því
að afla sér þekkingar enda ber
starfsferill hennar hjá þekktum fyr-
irtækjum þess gleggstan vott.
Ég, böm mín og eiginmaður
kveðjum Dísu með söknuði og þökk.
Vottum eiginmanni hennar, Steini
Magnússyni, og syni hennar, Steini
Kára Steinssyni, innilega samúð.
Gyða Þorsteinsdóttir
Lokað
Vegna jarðarfarar HÁKONAR BJARNASONAR, fyrrver-
andi skógræktarstjóra, verða skrifstofur Skógræktar
ríkisins og Skógræktarfélags íslands, Ránargötu 18,
lokaðar föstudaginn 28. apríl frá kl. 9-13.
an þurfti að sameinast um eitthvað
sem gera þurfti. Nú sakna margir
vinar í stað og skarð er fyrir skildi.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjalfr it sama;
en orðstírr
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getr.
Elsku Sigurlína og böm, megi
minningin um elskulegan eigin-
mann og föður verða ykkur til
styrktar í þeirri þungbæra sorg,
sem þið nú megið þola. Guð blessi
ykkur og minningu hans.
H.G.
þessi góða og mikilhæfa kona var
dáð og virt af öllum sem hana
þekktu.
Við systurnar áttum margar
minnisstæðar samverastundir sam-
an. Minnisstæðast er mér þó ferða-
lag sem farið var austur um alla
fírði með þeim hjónum, og mörg
spilakvöld hjá þeim í Hraunbænum.
Við systkinin viljum öll þakka
þessari góðu og mikilhæfu konu
allt sem hún hefur lagt á sig, sem
elsta systirin, okkar vegna.
Síðastliðin 3 ár hefur hún legið
á Borgarspítalanum bæði vegna
meiðsla og öldranar, nú hefur hún
hlotið hvíld og senn líður að ævi-
kvöldi okkar hinna systkinanna sem
öll eram orðin háöldrað, yngsta
verður 70 ára í haust.
Ég vil þakka öllu starfsfólki og
læknum á Borgarspítalanum alla
þá hjúkran og umönnun sem henni
var veitt þessi síðustu ár.
Við systkinin vottum börnum
hennar og fjölskyldum þeirra samúð
okkar og óskum þess að hinn eilífi
guð lýsi henni á þeirri leið sem hún
hefur nú lagt út á.
Blessuð sé minniiíg hennar.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Lína féll niður
í afmæliskveðju Leós Löve til
Odds Ólafssonar á Reykjalundi, í
blaðinu á miðvikudag, féll niður ein
lína í málsgrein. Því til Ieiðréttingar
er málsgreinin birt hér. Hún átti
að vera á þessa leið:
Það er ekki skrýtið þótt allir
þeir sem starfa með Oddi Ólafssyni
hrífist með og virði þennan dóttur-
son og nafna mannsins sem hvað
mestan þátt átti í að Slysavamafé-
lagið var stofnað, en átti síðar sjálf-
ur mikinn þátt í stofnun og vel-
gengni SÍBS og var framkvöðull
að stofnun Öryrkjabandalagsins.