Morgunblaðið - 06.05.1989, Síða 15

Morgunblaðið - 06.05.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989 15 ið og setja í gang stórkostlegt átak í vegamálum. Fram að aldamótum verða 700-800 milj. n.kr. settar í vegakerfið í Osló á ári hverju. Ef tekið er mið af fólksfjölda lætur nærri að þetta svari til 1000 millj. á ári í Reykjavík. Margir hafa viljað draga af þess- um vandamálum stórborga þær ályktanir að takmarka þurfi bílaum- ferð í Reykjavík. Ég tel svo ekki vera, höfuðborgarsvæðið er ekki það fjölmennt, og nágranni þess það strjálbýlt að við eigum að geta leyst þessi mál með viðunandi hætti. Það sýna okkar áætlanir og spár einnig. Til þess þarf að vísu átak í upp- byggingu stofnbrauta, en hlutfalls- lega mun minna en í Ósló — og stað- an er ekki sú sama og þar, sem sé að hætta sé á að uppbyggingin dugi ekki til. Hér miða ég við, að lokið verði við stofnbrautakerfi eins og lýst er í aðalskipulagi Reykjavíkur og nágrannabyggða. Sé þetta átak ekki gert — eða því ekki lokið, því það er í fullum gangi í Reykjavík — verður umferð hér mjög hæg eftir nokkur ár, tafir miklar og kerfið viðkvæmt fýrir truflunum sem geta valdið miklum stoppum. í miðbænum mun Sætún og Geirs- gata duga að norðan, Geirsgata ef til vill í göngum, en Hringbraut að sunnan í framhaldi af Bústaðavegi og Hlíðarfæti sem aðal aðkomuleið- ir. Aðrar götur verða eins og þær eru í dag eða gerðar á forsendum gamla bæjarins. Menn gleyma því oft að margar Evrópuborgir hafa fyrir löngu byggt 60-80% af hugmyndum 7. áratugar- ins. Fossvogsbraut var vissulega barn þess tíma en á að fá að lifa. Aðrar hugmyndir hins gamla stór- hugar urðu að víkja, s.s. gerð Suður- götu gegnum Gijótaþorp og fleiri umferðarmannvirki í miðbænum. Aðlögun vegar að aðstæðum Mikill hluti vegagerðar byggir á verkfræðilegri þekkingu, eða að leggja veg í landslag eða aðlaga hann sérstökum aðstæðum er miklu nær því að vera list — einu sinni var talað um „ingeniörkunst". Vegagerð ríkisins hefur víða tekist n\jög vel til í þessu efni, þó eflaust megi finna dæmi um hið gagnstæða. Oft er áformuðum framkvæmdum mótmælt af því að menn sjá fyrir sér slæma lausn. Mikið var mót- mælt veginum um gróðurbelti skóg- ræktarmanna í Vaðlaheiði austan við Akureyrarpoll. En þegar hann var fullgerður sjá menn fallegan veg í fögru umhverfi, miklu fleiri sjá skóginn en áður, miklu fleiri fara í skóginn en áður, áningarstaðir eru n\jög fagrir og ekki verður betur séð en vel hafí til tekist. Sama má segja um brúna yfir Elliðaár sem mikið var deilt um á sínum tíma. Borgarskipulag hefur gert tillögu- uppdrætti sem sýna Fossvogsbraut niðurgrafna, með hljóðmúrum á báða vegu, og að hluta til yfir- byggða. Um 30% af lengd brautar- innar er þá hugsaður með yfírbygg- ingu í einhveiju formi. Talið er að brautin þannig gerð en án yfirbygg- ingar muni kosta um 400 millj. kr. að meðtöldum gatnamótum í báðum endum að hálfu, en að meðtaldri yfírbyggingu eins eins og hér var lýst um 750 millj. Tillagan er ekki ftillunnin eða hönnuð, einungis út- spil. Við Kópavog hefur ekkert sam- starf tekist sem væri eðlilegt til að þróa slíka hugmynd frekar. Verði nú Fossvogsbraut ekki gerð hljóta allir að sjá hvað markalína sveitarfélaganna eyðileggur skipu- lag dalsins. Auðvitað ætti Víkingur að fá svæðið yfir í Kópavogsland og völlur íþróttafélags Kópavogs að ná yfír í Reykjavík, ef menn á annað borð vilja hafa íþróttavelli í dalnum. Sama gildir ef brautin kemur, eink- um ef hún er yfirbyggð að hluta. Þetta þarf að pijóna saman. Reyndar átti ég ekki von á hug- mynd um íþróttavöll eftir tal bæjar- stjórnarmanna undanfarin ár um útivistarsvæði. íþróttavellir eru ekki opnir almenningi, þeir eru fyrir félög til æfinga og keppni. Ég átti von á hugmynd um almenningsgarð. í slíkum görðum erlendis eru oft ak- vegir fyrir bíla, að vísu ekki hrað- brautir. En íþróttavellir koma til álita að mínu viti, ef þeir ekki loka göngu- og hlaupaleiðum. Sannleik- urinn er sá að í dalnum má auðveld- lega teikna Fossvogsbraut með 4 akreinum, niðurgrafna með hljóðm- úrum og skógarbeltum, yfírbyggða að hluta, knattspyrnuvöll, skauta- svell, sundlaug, göngustíga og al- mennt útivistarsvæði. Samt þarf að huga að friðsæld á lóðum þess fólks sem þegar býr í dalnum, því ekkert síður gæti það truflast af knatt- spymukappleik eða bílaumferð. Hvenær þarf að taka ákvörðun? Ef eingöngu er litið til fram- kvæmdaáætlana í Reykjavík kemur að Fossvogsbraut einhvern tíma eft- ir 1995. Nægilegt er að ákveða slíka framkvæmd með 2ja ára fyrirvara og er því nægur tími til stefnu. Hins vegar er ástæðulaust að bíða svo lengi með forvinnu og þess vegna ætti nú að hefja vinnu við þá hlut- lausu könnun sem skipulagsstjóm ríkisins lagði til að yrði gerð. Jafn- framt ætti að gera samræmd kort og teikningar sem sýndu Fossvogs- braut og nýtingu á dalnum að öðru leyti til útivistar til að slík hönnun lægi til gmndvallar hinu hlutlausa mati sérfræðinga. Eðlilegt er að ætla þessari vinnu 2 ár. Höfundur er aðstoðarborgarverk- fræðingur. BORG Listmunir-Sýningar-Uppboð Pósthússtræti 9, Austurstræti 10,101 Reykjavík Sími: 24211, P.O.Box 121-1566 UPPBOÐ - UPPBOÐ - UPPBOÐ Gallerí Borg heldur sitt 20. listmunauppboð í samvinnu við Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar hf. á Hótel Borg á morgun, sunnudaginn 7. maí 1989, og hefst það kl. 16.30 stundvíslega. Verkin hafa verið sýnd í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, fimmtudag og föstudag sl., og verða sýnd í dag, laugardag, milli kl. 14.00 og 18.00. Boðin verða upp 63 verk á skrá. Meðal verka sem boðin verða eru: 37. Sigurður Sigurðsson 38. Ólafur Túbals 39. Karl Kvaran 40. Benedikt Gunnarsson 41. Gunnar Örn 42. Pétur Friðrik 43. Kári Eiríksson 44. Sverrir Haraldsson 45. Jón Jónsson 46. Gunnlaugur Blöndal 47. Valtýr Pétursson 48. Karl Kvaran 49. Pétur Friörik 50. Gunnar Örn 51. Sveinn Þórarinsson Uppstilling. Pastel. 33x43 cm. Merkt: Sigurður. Úr hlíðinni. Vatnslitur. 46x59 cm. Merkt: Ól Túbals. Húm. Gvass. 85x66 cm. Merkt: K. Kvaran. Skipasmíðastöðin.. Olía á striga. 60x60 cm. Merkt: Ben.G. Fígúra. Olía á striga 1982. 35x30 cm. Merkt: G. Örn '82. Keilir. Vatnslitur 1954. 55x76 cm. Merkt: Pétur Friðrik 1954. Við ströndina. Olía á striga 1963.80x125 cm. Merkt: Kári '63. Fantasía. Olía á spjald 1963. 37x24,5 cm. Merkt: S.H. '63. Þingvellir. Olía á striga 1973. 65x80 cm. Merkt: Jón Jónsson 1973. Tvær konur. Penni og blýantur. 30x37 cm. Merkt: G. Blöndal. „Abstraktion". Olía á striga 1971.70x70 cm. Merkt: Valtýr 71. Snerting. Gvass. 106x71 cm. Merkt: K. Kvaran. Arnarfell. Olía á striga 1983. 80x100 cm. Merkt: Pétur Friörik '83. Jens August Schade. Olía á striga 1976. 130x145 cm. Merkt: G. örn 76. í Kelduhverfi. Olía á striga. 69x96 cm. Merkt: S.Þ. 52. Sverrir Haraldsson 53. Eiríkur Smith 54. Jón Jónsson 55. Valtýr Pétursson 56. Karl Kvaran 57. Brynjólfur Þórðarson 58. Gunnlaugur Scheving 59. Gunnlaugur Blöndal 60. Ásgrímur Jónsson 61. Gunnlaugur Blöndal 62. Jóhannes S. Kjarval 63. Ásgrímur Jónsson Uppstilling. Vatnslitur 1945. 24,5x24,5 cm. Merkt: S.H. '45. Rökkursaga. Olia á striga 1966. 65x60 cm. Merkt: Eiríkur Smith '66. Hekla. Olía á striga 1954. 65x80 cm. Merkt: Jón Jónsson 1954. „Abstraktion". Olía á striga 1962.100x40 cm. Merkt: Valtýr '62. Línuspil. Olía á striga 1988. 102x92 cm. Merkt: K.K. '88 á baki. Frá Mývatni. Vatnslitur 1918. 24x32 cm. Merkt: B.Þ. Úr Mýrdal. Vatnslitur. 33x46 cm. Merkt: Scheving. Á listaskólanum. Penni og túss 1924. 23x34 cm. Merkt: G. Blöndal-París 1924. Er á bls. 104 í bók um Gunnlaug Blöndal, útg. Helgafell. Tröllið og prinsessan. Penni og blýantur 1954. 26x35 cm. Merkt: Ásgrímur J. 29. júní 1954. Þingvellir. Vatnslitur. 53x73 cm. Merkt: G. Blöndal. Móskarðshnjúkar. Olía á striga. Ca. 1920-'30. 45x60 cm. Merkt Jóh. S. Kjarval. Frá Húsafelli. Vatnslitur. 55x69 cm. Merkt: Ásgrímur J. Við minnum á að uppboðið hefst kl. 4.30 og ráðlegt er að panta borð hjá þjónum á Hótel Borg. Þeir sem ekki komast á uppboðið eru minntir á forboðin, sem starfsmenn Gallerí Borgar annast fýrir þá, sem vilja bjóða í myndir en verða fjarverandi á meðan uppboðið fer fram. BORG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.