Morgunblaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAI 1989
Jilpöóur
á morgun
Borgarneskirkja
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Ath. breyttan
messutíma. Vorferð kirkjuskól-
ans í Grafarvogshverfi og sunnu-
dagaskólans í Árbæ til Þorláks-
hafnar verður farin eftir hádegi
sama dag. Börnin mæta í Folda-
skóla kl. 13 og lagt verður af
stað frá Árbæjarkirkju kl. 13.30.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga.
Organisti Sigríður Jónsdóttir.
Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta
kl. 18.15. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Prestur sr. Ólaf-
ur Jens Sigurðsson. Félagsstarf
aldraðra miðvikudag kl.
13.30—17. Sóknarnefndin.
DIGRANESPRESTAKALL:
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Gideonfélagar kynna starf sitt.
Sr. Lárus Halldórsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Qrganisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Magnús Björnsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Laug-
ardag 6. maí: Vorferðalag sunnu-
dagaskólans. Farið verður suður
með sjó. Lagt af stað kl. 11.
Ragnheiður og Guðmundur.
Sunnudag: Guðsþjónusta kl. 11.
Einsöngur: Ragnheiður Guð-
mundsdóttir. Trompetleikur: Jón
Sigurðsson og Ásgeir Stein-
grímsson. Prestur Guðmundur
Karl Ágústsson. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Fermin'g-
arguðsþjónusta kl. 16.30.
Fermdur verður Hannes Jón Lár-
usson, Þýskalandi. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Fundur í æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld 26. sept. kl.
20.30. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Dagur
aldraðra í söfnuðinum. Sunnu-
dag 7. maí: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Öldr-
uðum safnaðarfélögum sérstak-
lega boðið til guðsþjónustunnar.
Einsöng við guðsþjónustuna
syngur Guðlaugur Tryggvi Karls-
son. Kvenfélagið býður til kaffi-
dr/kkju að guðsþjónustunni lok-
inni. Undir borðum verða sungin
sumarlög með aðstoð organist-
ans, Pavel Smid, og félaga úr kór
kirkjunnar. Þeir, sem óska eftir
akstri til kirkju (og frá), eru beðn-
ir að hafa samband í síma 14579
kl. 10—11 að morgni sunnudags-
ins. Cecil Haraldsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Halldór S. Gröndal prédikar.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Ath. breyttan messutíma. Kaffi-
sala kvenfélagsins kl. 15. Mánu-
dag: Fundur kvenfélagsins kl.
20.30. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Dómprófastur sr.
Ólafur Skúlason prédikar. Kirkja
heyrnarlausra: Guðsþjónusta
verður í Garðakirkju kl. 14. Mánu-
dag: Orgeltónleikar kl. 12.15.
Aftansöngur(Vesper) kl. 18. „Þrír
einþáttungar" eftir dr. Jakob
Jónsson. Frumsýning kl. 20.30.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum.
Orgeltónleikar kl. 12. Miðviku-
dag: Orgeltónleikar kl. 14. Aftan-
söngur (Vesper) á ensku. „Þrír
einþáttungar" sýning kl. 20.30.
Fimmtudag: Orgeltónleikar kl.
12.15. Föstudag: Orgeltónleikar
kl. 12.15 og „Þrír einþáttungar"
kl. 20.30. Laugardag: Mozart-
tónleikar kl. 15. „Þrír einþátt-
ungar" kl. 20.30.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 14.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
HJALLAPRESTAKALL í Kópa-
Guðspjall dagsins:
Jóh. 15.:
Þegar huggarinn kemur.
vogi: Almenn guðsþjónusta kl.
11 í messuheimili Hjallasóknar,
Digranesskóla. Aðalsafnaðar-
fundur Hjallaprestakalls strax að
lokinni guðsþjónustu kl. 12 á
sama stað. Sóknarfólk hvatt til
þátttöku. Sóknarnefndin.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla-
delfía: Safnaðarguðsþjónusta kl.
14. Ræðumaður Guðni Einars-
son. Almenn guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Sam Daniel
Glad.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 14. Ræðuefni: Græðum
ísland. Island græðist. Organisti
Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig-
urður Haukur Guðjónsson. Kl.
15.00: Fjáröflunarkaffi minning-
arsjóðs frú Ingibjargar Þórðar-
dóttur. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Engin
messa sunnudag. Þriðjudag:
Opið hús hjá Samtökunum um
sorg og sorgarviðbrögð kl.
20—22 í safnaðarheimilinu.
Helgistund í kirkjunni kl. 22.
Fimmtudag: Kyrrðarstund í há-
deginu. Orgelleikur frá kl. 12.
Altarisganga og bænastund kl.
12.10. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu kl. 12.30.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Org-
el- og kórstjórn Reynir Jónasson.
Þriðjudag: Öpið hús fyrir aldraða
kl. 13—17. Miðvikudag: Fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Altarisganga. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Sóknarprestur.
Föstudag: Fyrirbænasamvera kl.
22.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Laugardag 6. maí: Vorferðalag
barnastarfsins. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 13 suður á Reykja-
nes. Helgistund verður í Hvals-
neskirkju. Foreldrar velkomnir
með. Sunnudag: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Sighvatur Jónas-
son. Prestur sr. Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Æskulýðsfund-
ur mánudagskvöld kl. 20.30.
Sóknarprestur.
VÍÐISTAÐASÓKN: Messa í
Víðstaðakirkju kl. 11. Kór Víði-
staðakirkju syngur. Organisti
Kristín Jóhannesdóttir. Ferð
Kirkjukórsins verður farin frá
Víðistaðakirkju kl. 13. Sr. Guð-
mundur Örn Ragnarsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga er lágmessa kl. 18 nema á
laugardögum, þá kl. 14. Á laugar-
dögum er lesin ensk messa kl.
20.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Útisamkoma á
Lækjartorgi kl. 16, hin fyrsta á
sumrinu, ef veður leyfir. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20.30. Flokks-
foringjarnir stjórna og tala.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messað á Mosfelli kl. 14. Sr.
Birgir Ásgeirsson.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Söfnuður heyrnleysingja
kemur í heimsókn. Prestur hans,
sr. Miyako Þórðarson, og sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjóna.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Messa í Víði-
staðakirkju kl. 11. Kór kirkjunnar
syngur. Organisti Kristín Jó-
hannsdóttir. Ferð kirkjuskólans
verður farin frá Víðistaðakirkju
kl. 13. Sr. Guðmundur Örn Ragn-
arsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Ferðalag sunnudagaskólans kl.
10.30. Munið skólabílinn. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Helgi
Bragason. Sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLA St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga er
messa kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Aðalsafnaðarfundur
í Kirkjulundi eftir messu. Sóknar-
prestur.
KAPELLA kaþólskra, Keflavík:
Messað á sunnudögum kl. 16.
EYRARBAKKAKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónusta kl. 13. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
40 ára fermingarbörn taka þátt
í guðsþjónustunni. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn
Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: í tilefni
30 ára vígsluafmælis Borgarnes-
kirkju, verður haldin hátíðar-
messa sunnudaginn 7. maí kl.
14. Að messu lokinni verður
kirkjugestum boðið í messukaffi.
Borgarneskirkja var vígð á upp-
stigningardag 7. maí 1959 af
Ásmundi Guðmundssyni biskupi.
Arkitekt kirkjunnar er Halldór
Jónsson. Af sama tilefni var hald-
in tónlistarstund í kirkjunni 4.
maí sl. þar sem þeir Jón Þ.
Björnsson organisti Borgarnes-
kirkju og Jón Ólafur Sigurðsson
organisti Akraneskirkju fluttu
verk eftir Buxtehude, Bach og
Hándel, ásamt þeim Laufeyju H.
Geirsdóttur sópran, Erlu Gígju
Garðarsdóttur sópran, Sigurði
P. Bragasyni baríton, Tim Knapp-
ett organleikara, Rögnu Krist-
mundsdóttur sópran, Unni H.
Arnardóttur alt og Ólafi H. Flosa-
syni óbóleikara. Einnig söng
kirkjukór Borgarneskirkju undir
stjórn Jóns Þ. Björnssonar. Séra
Þorbjörn Hlynur Árnason.
Minning:
Hulda Stefánsdóttir
Þrándarstöðum
Fædd 26. nóvember 1920
Dáin 26. apríl 1989
í dag er kvödd í Egilsstaðakirkju
Hulda Stefánsdóttir húsfreyja frá
Þrándarstöðum í Eiðaþinghá, jarð-
sett verður á Eiðum.
Hulda var fædd í Stakkahlíð í
Loðmundarfirði 26. nóvember
1920. Að henni stóðu sterkir stofn-
ar. Foreldrar hennar voru hjónin
Stefán Baldvinsson, kominn af
kunnum ættum austan iands og
norðan og Ólafía Ólafsdóttir bónda
á Rauðasandi vestur, systir Sigur-
jóns A. Ólafssonar alþingismanns,
sem einnig var kunnur baráttumað-
ur í samtökum sjómanna og verka-
lýðs.
Systkinin í Stakkahlið voru sjö
og heimilið þar mannmargt á upp-
vaxtarárum Huldu, fastmótað
menningarheimili og traust. Hún
naut bamafræðslu í Loðmundarfirði
og sótti námskeið við Húsmæðra-
skólann að Hallormsstað. Góðar
gáfur og styrk skaphöfn nýttust
henni vel í stóru hlutverki húsfreyju
í sveit og ellefu bama móður.
Árið 1942 giftist Hulda Stefáns-
dóttir eftirlifandi eiginmanni sínum,
Jóhanni Valdórssyni á Þrándarstöð-
um. 0g þar byijuðu þau búskapinn.
En eftir fyrsta hjúskaparár sitt fóru
þau niður í Loðmundarfjörð að
Stakkahlíð og bjuggu í sambýli með
ættfólki Huldu um fimm ára skeið.
Næst er þess að geta að vorið
1948 fluttu ungu hjónin upp í Þánd-
arstaði á ný. Þar beið þeirra mikið
starf. Taka varð til hendi við rækt-
un og húsabætur auk „fastra liða“,
svo sem fóðuröflunar, heimilishalds,
bamagæslu og hirðingu búljárins
svo dæmi séu nefnd um hin daglegu
störf á stóru sveitaheimili. En fjöl-
skyldan stækkaði nú ört.
Vinnan er af hinu góða og mikil
vinna meðan fólk er hraust. En nú
fóru að stórfelldir erfiðleikar og
ófyrirséðir og röskuðu mjög högum
margra. Árferði í kringum 1950 var
eitt hið versta á þessari öld. Ný
harðindi með grasbresti gengu yfir
á sjöunda áratug aldarinnar. Bú-
fjársjúkdómar ollu og þungum bú-
siljum.
Húsbóndinn á Þrándarstöðum
mætti þessari vá með mikilli vinnu
utan heimilis og bæði til sjós og í
landi. Og hann settist á skólabekk
og lauk sveinsprófi múrara fimm-
tugur. Þetta létti vitanlega ekki
störf húsfreyju heima fyrir, en hún
lét ekki sinn hlut eftir liggja.
Nú urðu þau ótíðindi að íbúðar-
hús Jóhanns og Huldu brann til
kaldra kola 1972. Fluttust þau þá
niður á Seyðisfjörð og bjuggu þar
í átta ár. Nóg var að gera, enda
er Jóhann fjölhæfur og afkastamik-
ill starfsmaður.
Áður en þetta gerðist hafði Stef-
án, sonur þeirra hjóna, reist fjöl-
skyldu sinni hús á Þrándarstöðum
og bjó þar búi sínu. Og þangað leit-
aði hugur, ég held, allrar fjölskyld-
unnar. Því er það að 1980 færðu
þau sig í áttina, Hulda og Jóhann,
og settust að í Egilsstaðakauptúni
á meðan Jóhann byggði þeim nýtt
hús heima á Þrándarstöðum. Teikn-
aði hann það sjálfur og fór ekki að
öllu troðnar slóðir. Bygging þess
tókst vel og þar hafa þau átt heima
síðan.
Undanfarin ár átti Hulda Stef-
ánsdóttir við erfiðan sjúkdóm að
stríða. Nú hefur hún lotið lægra
haldi og jafnframt hlotnast hvíld.
Að baki er starfsöm og viðburðarík
ævi húsfreyju og móður, sem borið
hefur undir belti og fætt ellefu börn
og síðan stutt þau fram á veginn.
Og þessi kona hefur séð kynslóðir
vaxa úr grasi og hasla sér völl mitt
í gróskumiklu mannlífi samtíðar,
en einnig staðið andspænis þung-
bærum örlögum þegar tveir mann-
vænlegir synir hennar létust, langt
fyrir aldur fram.
Mig langar til þess að geta hér
barna Huldu og Jóhanns á Þrándar-
stöðum. Þau tíu er upp komust
hafa öll stofnað heimili. Þrjú hafa
byggt á Þrándarstöðum, fjögur búa
í þéttbýlinu við Lagarfljót og tvö
syðra.
Eðvald er elstur systkinanna,
fæddur 1943, bifreiðastjóri og nú
sölustjóri á Egilsstöðum, kona hans
Vilborg Vilhjálmsdóttir. Ólafía Her-
borg, skrifstofumaður í Fellabæ, er
fædd í Stakkahlíð 1945, maður
hennar Jón Þórarinsson. Stefán
Hlíðar 1949, fyrr bóndi, nú smiður
á Þrándarstöðum, kona Guðrún
Benediktsdóttir. Þorleifur fæddist
1951, bifvélavirki og framkvæmda-
stjóri Ræktunarsambands Austur-
lands, kona Auður Garðarsdóttir og
byggðu á Þrándarstöðum. Hann
lést 1979. Ásdís 1952, bankamaður
á Egilsstöðum, maður Ragnar Þor-
steinssons. Valdór 1954, iðnaðar-
maður á Egilsstöðum, fráskilinn.
Jóhann Viðar 1955, starfsmaður
verktaka í Keflavík, kona Ósk
Traustadóttir. Vilhjálmur Karl
1957, bóndi á Þrándarstöðum, kona
hans Svanfríður Drífa Ólafsdóttir.
Kári, fæddur 1959, dáinn 1961.
Kári Rúnar, fæddur 1961, nemur
bifvélavirkjun, kona Anna Gyða
Reynisdóttir, búsett á Þrándarstöð-
um. Ingibjörg Ósk 1965, verslunar-
maður í Reykjavík, maður Heimir
Hafsteinn Edvarðsson.
Já, Þrándarstaðafjölskyldan er
þegar orðin stór, systkinin níu á
lífi sem fyrr getur, tengdabörn, 28
barnabörn — og þijú af þriðja ætt-
lið, að fjölskylduföðurnum ógleymd-
um. Samheldni þessa hróps er rík
og um jólin koma allir saman á ein-
um stað — á fjölskylduhátíð — sé
þess nokkur kostur.
Kynni mín af Huldu frændkonu
minni og fjölskyldu hennar eru
vissulega orðin nokkuð löng, en
mjög í hátt við flugstraum þann
og iðuköst sem auðkenna líf okkar
margra. Að heilsast og kveðjast,
hittast og gleðjast örskotsstund,
þannig voru okkar samfundir. Frá
þeim á ég nú samt fjarska góðar
endurminningar og fullvissu um að
Hulda á Þrándarstöðum var mikil-
hæf kona og kærleiksrík móðir
barna sinna. Já, stórt er framlag
slíkra kvenna, til samfélagsins og
til niðjanna, sem geyma í þakklát-
um huga mynd þeirra og minningu.
Við Margrét vottum Jóhanni á
Þrándarstöðum, börnum þeirra
Huldu og öðrum ástvinum þeirra
innilega samúð.
Vilhjálmur Hjálmarsson