Morgunblaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989 Lauc jardag |ur kl. 13:45 18. LEIKVlí <Á- 6. MA Í1989 1 ■ m Leikur 1 Charlton - Wimbledon Leikur 2 Derby - Aston Villa Leikur 3 Middlesbro - Arsenal Leikur 4 Newcastle - Millwall Leikur 5 Norwich - Everton Leikur 6 Southampton - Man. Utd. Leikur 7 West Ham - Luton Leikur 8 Barnsley - Portsmouth Leikur 9 Brigton - Ipswich Leikur 10 Leicester - C. Palace Leikur 11 Swindon - Stoke Leikur 12 W.B.A. - Sunderland Símsvari hjá getraunum á Ungfrúin góða og húsið Myndskreytingar eftir Siri Derkert í Norræna húsinu LAUGARDAGINN 6. maí kl. 15 verður opnuð sýning í anddyri Norr- æna hússins á myndum eftir sænsku listakonuna Siri Derkert, sem hún gerði við sögu Halldórs Laxness „Úngfrúna góðu og húsið“. Auk bess eru á sýningunni tíu litlar myndir í Iit, sem teiknaðar voru á íslandi 1949. Sonur Siri, Carlo Derkert list- fræðingur, heldur fyrirlestur í fund- arsal Norræna hússins á laugardag kl. 16 og nefndir Siri Derkert og íslands. Umsjónarmaður sýningar- innar, Annika Öhmer, kemur einnig til landsins í sambandi við sýning- una. Siri Derkert fæddist 1888 í Sví- þjóð og lést 1973. Hún hóf listanám við málaraskóla Althins og síðar nam hún við Listaháskólann í Stokkhólmi, en hélt 1913 til Parísar þar sem hún varð fyrir miklum áhrifum að kúbismanum. Einnig bjó hún á Ítálíu um skeið og málaði. Á árunum 1910—20 var list hennar mikilvægur þáttur í róttækri ný- stefnu þess tíma. Siri Derkert kom til íslands 1949 og dvaldist hér í átta mánuði og kynntist mörgum íslendingum. ís- land hafði mikil áhrif á hana, bæði land og þjóð. Hún kynntist bókum Halldórs Laxness og hreifst mjög af þeim. Hún gerði þessar myndir við „Úngfrúna góðu og húsið“ árið 1953 og var sagan fyrst gefín út á sænsku með myndskreytingum Siri Derkert í tímaritinu „VI“, blaði sænsku samvinnuhreyfingarinnar 1954. \ Ný útgáfa smásögunnar með myndunum kemur út í sambandi við þessa sýningu hjá Alfabeta- bókaútgáfunni í Stokkhólmi. Stór yfirlitssýning á verkum Siri Derkert var haldin í Norræna húsinu 1976 á vegur Rikisutstállningar í Svíþjóð. Sýningin stendur til 4. júlí og er opin kl. 9—19 nema sunnudaga ki. 12—19. Aðgangur er ókeypis. (Fréttatilkynning) PORT STÆKKAR! ■ 117 söluaðilar á líflegu og manneskjulegu markaðstorgi I dag kl. 10—16. ■ Barnatívolí með klessubílum. ■ Skemmtilegar uppákomur um allt Kolaportið. ■ Hlustið á beint útvarp úr Kolaportinu á Útvarp Rót, FM 106,8. ■ Næg ókeypis bílastæði á Bakkastæði. Vinsamlegast notið lögleg bílastæði. KOLAPORTIÐ NUmKaÐStO£‘T undir seðlabunkanum Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Piltur ók á biðskýli Piltur, sem ók mótorhjóli, slasað- ist þegar hann ók á biðskýli við Vesturlandsveg, nálægt Skála- túni, um klukkan 18.30 á fimmtu- dag. Pilturinn var fluttur á slysa- deild, en er ekki talinn alvaríega slasaður. Hjólið er mikið skemmt. Lokasýningar í Iðnó NÚ um helgina verða síðustu sýn- ingar á leikritinu um samföstu bræðurna Sjang og Eng, eftir Yngstu nem- arnir sýna NEMENDUR á barna- og ungl- inganámskeiðum Myndlista- og handíðaskóla íslands sýna verk sín nú um' helgina í skólanum, Skip- holti 1, kl. 14 til 22. 160 nemendur voru á námskeiðun- um í vetur. Kennari er Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir. Göran Tunström, sem Leikfélag Reykjavíkur hefur sýnt alls 40 sinnum í Iðnó. Síðustu sýningarn- ar á barna- og Qölskylduleikritinu Ferðin á Heimsenda eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur verða einnig um helgina. Aðalhlutverk í leikritinu Sjang og Eng leika Sigurður Sigutjónsson, Þröstur Leo Gunnarsson, Sigrún Edda Bjömsdóttir og Guðrún Gísla- dóttir, en í síðarnefnda leikritinu fara þau Kjartan Bjargmundsson, Margr- ét Árnadóttir, Edda Björgvinsdóttir, Ása Hlín Svavarsdóttir og Stefán Sturla Siguijónsson með aðalhlut- verkin. laugardogum eftir kl. 16:15 er 91-84590 og -84464. Ummælum á BHMR-ftmdi mótmælt Metsölublcid a hverjum ciegi Morgunblaðinu hefúr borist eftirfarandi yfirlýsing stjórnar Starfs- mannafélagsins Sóknar, vegna fundar kennara og annarra BHMR- félaga með flármálaráðherra í Sóknarsal 2. maí sl. „Daginn eftir baráttudag verka- lýðsins 1. maí sl. héldu kennarar og fleiri í Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, fund í Sóknarsaln- um með fármálaráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni. Hluta fundarins var útvarpað og sjónvarpað sem kunnugt er. I hita leiksins átti sér stað orrahríð þar sem kjör og kjarasamningur Sóknarfólks var til umræðu. í þeim hluta umræðnanna sem útvarp og sjónvarp sendi út komu fram um- mæli sem ollu mikilli reiði hjá okkur í forystusveit félagsins og viðbrögð félaga okkar voru á sömu lund. Ummæli, sem hægt er að túlka sem beina árás á Starfsmaniiafélagið Sókn og starfsvettvang félaga okkar. Þótti okkur sem kálfurinn launaði illa ofeldið því þetta sama fólk hefur einmitt haft aðstöðu og samastað hjá Starfsmannafélaginu Sókn, sem með fyrirhyggju og af myndarskap hefur komið sér upp aðstöðu sem fá önnur stéttarfélög geta boðið félög- um sínum uppá. Setningar eins og þær að kjör Sóknarkvenna geti ekki verið sam- bærileg við kjör kennara með 7 ára háskólanám lýsir hroka sem við fáum ekki skilið. Við bendum á að á sama tíma og neminn situr í háskólanum og nýtur þeirra forréttinda að stunda nám, stundum við Sóknarfólk störf í þágu þjóðfélagsins, störf sem lúta að barnagæslu, umönnun og öðrum þjónustustörfum á sjúkrahúsum og stofnunum. Störf, sem þjóðfélagið getur ekki verið án. Af launum okkar höfum við eins og aðrir borgað skatta og skyldur til þess meðal annars að þjóðfélagið geti menntað fólk og skapað betra og upplýstara þjóðfélag. Við mótmælum framkomu fundar- manna í garð Sóknarfólks en bendum á að það er óháð kjarabaráttu BHMR. F.h. Stjórnar Starfsmannafélags- ins Sóknar, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.