Morgunblaðið - 06.05.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAI 1989
21
nn ingff
afarvogh
tf^VJElaiold 41,P'ZnoOO
Spænsk flotadeild stað-
sett á Norður-Atlantshafi
Spænska flugmóðurskipið „Principe de Asturias".
í ráði er að staðsetja spænska flotadeild á Norður-Atlantshafi til
að auka viðbúnað herafla Atlantshafsbandalagsins á þessum slóðum,
að því er segir í grein í nýjasta hefti herfræðitímaritsins Jane’s
Defence Weekly. Gert er ráð fyrir því að flotadeildin sem nefhist
„Alfa“ taki þátt i flotaæfingum á vegum Atlantshafsbandalagsins í
septembermánuði.
Flotadeildin „Alfa“ samanstend-
ur af nýjasta flugmóðurskipi Spán-
verja, „Principe de Asturias" og
nokkrum fylgdarskipum þ.á m.
nokkrum nýlegum freigátum af
„Santa María“-gerð, sem búnar eru
öflugum tæjabúnaði til kafbátaleit-
ar og gagnkafbátahernaðar, frei-
gátum af „Baleares“-gerð og kor-
vettum af gerðinni „Descubierta“
Um borð í flugmóðurskipinu er
m.a. þyrlur af gerðinni Sikorsk
SH-3D og þotur af Harrier-gerð.
Að sögn Fernando Nardiz Via
flotaforingja, er „Alfa“-flotadeild
inni einkum ætlað að halda upf
eftirliti með kafbátaferðum Sovét
manna. „Principe de Asturias“ mui
ásamt fylgdarskipum sínum haldi
allt norður til GIUK-hliðsins en svc
nefnist hafsvæðið milli Grænlands
íslands og Bretlands. „Æfíngarnai
í september verða sérlega mikil-
vægar fyrir okkur þar sem okkur
mun gefast tækifæri til að kynnast
aðstæðum á þessum slóðum sem
mun aftur koma sér vel í framtíð-
inni,“ segir Fernando Nardiz Vial.
Að sögn flotaforingjans miðast
viðbúnaður flota Spánvetja einkum
við átök á Miðjarðarhafi eða Atl-
antshafi annars vegar og hins veg-
ar við átök milli herja Varsjár-
bandaiagsins og Atlantshafsbanda-
lagsins. Flotavarnir kæmu, að sögn
Nardiz Vial, að takmörkuðu gagni
á Miðjarðarhafi þar eð auðveldlega
yrði unnt að beita herafla á landi
gegn herskipadeildum. „Atlants-
hafið yrði því mikilvægasta haf-
svæðið og það er af þessum sökum
sem við hyggjumst taka þátt í æf-
ingunum í september,“ segir flota-
foringinn en spænsku skipin munu
sigla framhjá Ermarsundi og norð-
vestur með írlandi og síðan inn á
Noregshaf.
Það borgar sig að
vera nemandi hjá
Tölvufræðslunni
9k
íbúdin gSSS®* +£
■ eiðin er tnf'M
0. J
Ibúdin er sýnd meö húsbúnaöi frá
Epal hf,, og málverkum eftir feöginin
Atla Má og Björgu Atla.
Vegna hagstæðra samninga við
Hewlett Packard á íslandi getur Tölvufræðslan
boðið öllum nemendum sínum HP tölvur og
búnað á sér- staklega hagstæðu verði. Þeir
sem hafa einhvern tímann sótt námskeið hjá
Tölvufræðslunni geta keypt HP tölvur á þessu
frábæra tilboðsverði.
Sjón er sögu ríkari!
sjáið HP tölvurnar og hús-
gögnin í nýja húsnæðinu
okkar f Borgartúni 24.
Við erum með opið
ídag frá kl. 10-16.
Ath.: Ennfremureru bækur Tölvufræðsl-
unnar til sölu á frábæru kynningarverði.
vetáometin,
OLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28 og Borgartúni 24
Símar 687590 og 626655.