Morgunblaðið - 06.05.1989, Page 25

Morgunblaðið - 06.05.1989, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989 Langholtskirkja: Fjáröflun Fjáröflunardagur Minning- arsjóðs írú Ingibjargar Þórðar- dóttur er á morgun, sunnudag- inn 7. maí. Eftir messu í Langholtskirkju selur Kvenfélag Langholtssóknar kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar til fjáröflunar fyrir sjóðinn. Vel- unnarar kirlq'unnar eru hvattir til að mæta. Fréttatilkynning Myndlistamennirnir er standa að ART-HUN, sýningarsalnum Stangarhyl 7. Nýr sýningar- salur og vinnu- stofiir ART-HÚN er nýr sýningarsalur að Stangarhyl 7. Á sama stað eru vinnustofur listamannanna Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elínborgar Guðmundsdóttur, Margrétar Salóme Gunnarsdóttur og Sigrúnar Gunnarsdóttur sem hafa til sýnis og sölu olíumálverk, pastelmyndir, grafík og ýmsa leir- muni. Opið er alla daga kl. 13—18. Bíl stolið Bifreiðinni R-67489 var sto- lið aðfaranótt fimmtudags, frá Seiðakvísl 26 í Reykjavík. Bifreiðin er rauð að lit, af gerð- inni Honda Accord, fjögurra dyra af árgerð 1980. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Vorsýning Stóðhestastöð- var ríkisins ÁRLEG vorsýning Stóðhesta- stöðvar ríkisins verður haldin í Gunnarsholti í dag, og hefst sýningin kl. 14. Einnig verður nýr sýningarvöllur tekinn í notkun með fánareið nokkurra félaga úr hestamannafélaginu Geysi. Á sýningunni verða sýndir þeir folar á Stóðhestastöðinni sem tamdir hafa verið og þjálfaðir í vetur, en það eru 20 fjögurra og fimm vetra stóðhestar. Farand- gripir verða veittir efsta hesti í þessum aldurshópum frá Stóð- hestastöðinni, en gripirnir eru gjöf frá Herði Valdimarssyni, Akur- hól. Að lokinni verðlaunaafhend- ingu verður heiðurssýning Kirkju- bæjarhrossa í tilefni af 70 ára afmæli Sigurðar Haraldssonar á Kirkjubæ, og að lokum verður kynning á nokkrum stóðhestum víðs vegar að. Kvenfélagið Unnur verður með kaffisölu í húsakynnum Land- græðslunnar eftir kynningu á eins til þriggja vetra stóðhestum stöðv- arinnár. Bókauppboð Klausturhóla KLAU STURHÓLAR halda sitt 149. listmunauppboð í dag, laugardaginn 6. maí, klukkan 14 á Laugavegi 8, 3. hæð. Meðal bóka og tímarita sem boðin verða upp er: Fiske Collec- tion I-III, Halldór Hermannsson, 1960. Heimdallur 1-12 tbl. 1884. Helgakver 1976 ób. Bækumar verða sýndar í dag frá klukkan 10 og 12 f.h. Krabbameins félagið: Val um vinninga HIÐ árlega vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins er nú haf- ið og eru miðar að vepju sendir til fólks á aldrinum 23ja til 70 ára. Hveijum viðtakanda eru ætlaðir tveir miðar á 400 kr. hvor. Dregið verður 17. júní. Vinningar eru eitt hundrað tals- ins, þar af fjórar Toyota Corolla 4WD bifreiðir, að vcrðmæti um 1.160 þús. kr. hver. Að öðru leyti er tekin upp sú nýjung að hver vinningur felur í sér þijá möguleika sem vinningshafi velur á milli. Þannig eru átta vinningar á 270 þús. kr. og hægt að velja á milli Thailandsferðar fyrir tvo með Ferðaskrifstofunni Úrvali, Macint- osh-tölvu með prentara frá Radíó- búðinni og vöruúttektar hjá BYKO, sextán vinningar á 125 þús. kr. þar sem velja má sólarlandaferð fyrir tvo, JVC-myndbandsupptöku- vél frá Faco eða vörur frá bygg- ingavöruversluninni og loks sjötíu og tveir vinningar á 50 þús. kr. sem hægt er að ferðast fyrir eða kaupa hljómflutningstæki eða bygginga- vönir. í marsmánuði voru liðin Ijörutíu ár síðan fyrsta krabbameinsfélagið var stofnað hér á landi. Allan þenn- an tíma hafa krabbameinssamtökin getað reitt sig á mjög almennan stuðning landsmanna í baráttunni gegn krabbameini. Fyrirlestur í boði heim- spekideildar BELGÍSK-franski rithöfimdur- inn Hubert Nyssen flytur opin- beran fyrirlestur í boði heim- spekideildar Háskólans mánu- daginn 8. maí 1989 kl. 17.15 í stofii 101 í Odda. Fyrirlesturinn fjallar um útg- áfustarfsemi í Frakklandi og verð- ur fluttur á frönsku. Helstu upp- lýsingum um útgáfustarfsemi Nyssens verður dreift í fjölriti, og umræður að fyrirlestrinum lokn- um fara fram á ensku. Hubert Nyssen er fæddur í Brussel 1925 en hefur starfað jöfnum höndum í Frakklandi og Belgíu. Hann er skáld og rithöf- undur og hefur starfað sem blaða- maður, leikhússtjóri og nú síðast sem prófessor við Háskólann í Liége auk þess sem hann stofnaði og stýrir útgáfufyrirtækinu Actes Sud í Frakklandi. Actes Sud hefur meðal annars gefið út Tímann og vatnið eftir Stein Steinarr í franskri þýðingu, svo og Kristni- hald undir Jökli eftir Halldór Lax- ness. Siglufjörður: Fyrstir á bíl í Héðinsfjörð FJÓRIR Siglfirðingar héldu á bíl yfir Hólsskarð í Héðinsfjörð siðastliðinn mánudag og mun það vera í fyrsta sinn, sem far- ið er á bíl þessa leið. Þeir treystu sér hins vegar ekki til baka og skildu bílinn eftir í Héðinsfirði og er ætlunin að hann verði seinna fluttur þaðan sjóleið- is. ' Matthias Fuglaskoð^ unarferð FÍ Sunnudaginn 7. maí verður farin árleg fúglaskoðunarferð Ferðafélags íslands um Miðnes, Hafiiarberg og viðar, en slíkar ferðir hafa verið famar allt frá árinu 1967. Það var árið 1970 sem byrjað var að skrá alla þá fugla sem sást til í ferðunum og nú er þessi fugla- skrá Ferðafélagsins merkileg heim- ild um komu farfugla á þessum sama tíma ár hvert síðustu 18 ár. Allir þátttakendur fá þessa skrá í upphafí ferðar og geta því borið saman hvaða farfuglar eru mættir í ár. Það verður staldrað við á leið- inni um Suðumes og hugað að fuglum, en aðgengilegasta fugla- bjarg fyrir íbúa höfuðborgarsvæð- isins er Hafnarberg. Þar má sjá allar bjargfuglategundir landins, að haftyrðlinum undanskildum, en hann er aðeins að finna í Grímsey. Boðið upp á sjóferðir Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands býður upp á sjóferðir um fjóra firði um helgina með far- þegabátnum Hafrúnu. Hugað verður að lífríkinu í og á sjónum, sérstaklega botndýralífinu. Farið verður í allar ferðimar frá Grófarbryggju neðan við Hafnar- húsið. Böm þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. í dag, laugardag, verður farið í tveggja tíma sjóferð um Kollafjörð. Lagt verður af stað kl. 10.00. Klukkan 13.30 verður siglt inn á Skerjafjörð og Hafnar- fjörð. Sjóferðin tekur um tvær og hálfa klukkustund. Klukkan 16.00 verður farin um það bil klukku- stundarsigling út fyrir Viðey og Engey. Á morgun, sunnudag, kl. 10.00 verður farin samskonar ferð og á laugardag. Kl. 13.30 verður farið sjóleiðis upp í Hvalfjörð inn undir Þyrilsnes. Komið verður í land í Hvítanesi ef aðstæður leyfa. Ferðin tekur um Qórar klukkustundir. Frumsýning Frú Emilíu LEIKHÚSIÐ Frú Emilía hefúr flutt sig um set í Skeifúna 3c. Leikhúsið mun frumsýna nýtt verk í þessu húsnæði á morgun. Um er að ræða leikgerð sögunn- ar Hamskiptin eftir Franz Kafka. Frú Emilía hefur verið til húsa á nokkrum stöðum frá þvl það var stofnað. Leikhúsið mun starfa í Skeifunni 3c fram á haustið og er ætlunin að setja upp þar tvö verk. Það sem fmmsýnt verður á sunnu- dag ber heitið „Gregor eða Sjáið þið það sem er?“ Aðstandendur sýningarinnar eru Ellert A. Ingimundarson, Árni Pét- ur Guðjónsson, Einar Jón Briem og Erla B. Skúladóttir. Leikstjóri er Guðjón Pedersen. Leikmynd og búninga gerir Guðjón Ketilsson og lýsingu annst Ágúst Pétursson. Samstarfsráðherrar funda í Viðey: Samningur um al- mannaskráningu Hægt að dvelja í hálft ár á öðrum Norðurlöndum án skráningarskyldu FUNDUR samstarfsráðherra Norðurlanda verður haldinn i Við- ey 8. maí næstkomandi. Á fúndin- um munu ráðherramir meðal annnars undirrita nýjan samning um almannaskráningu á Norðurl- öndum. Samningurinn felur í sér samræmingu á þjóðskrám Norð- urlandanna, og einnig á umskrán- ing og meðferð flutningstilkynn- inga að verða slgótvirkari en áður. I fréttatilkynningu frá samstarfs- ráðherra Norðurlanda á íslandi segir að meginatriði samningsins sé það að skráningarskylda vakni nú fyrst, ef dvalið er í sex mánuði eða lengur á einhveiju hinna Norðurlandanna. Þetta sé sérstaklega mikilvægt fyrir Islendinga, vegna þess að dönsk stjómvöld krefjist nú skráningar allra útlendinga, sem dvelji lengur en þijá mánuði í landinu. Hafi slíkt fyrirkomulag meðal annars haft í for með sér að margir íslendingar, sem dvalið hafa tímabundið í Danmörku, hafi neyðzt til að skrá sig sem inn- flytjendur. Það hafi svo haft þær afleiðingar að þeir falli út af íbúa- skrá hér á landi I samræmi við ákvæði samningsins frá 1968 um að enginn megi vera á skrá samtímis í fleiri en einu Norðurlandanna. Ráðherrarnir munu á fundi sínum einnig ræða niðurstöður síðasta Norðurlandaráðsþing og fjalla um undirbúning næsta þings, sem verður í Reykjavík á næsta ári. Þá verður rætt um það, hvernig gera megi norrænt samstarf hagkvæmara og skilvirkara, og fjallað um starfsáætl- un fyrir árin 1989-1992, sem einkum lýtur að samskiptum Norðurlanda við Evrópubandalagið. Jón Sigurðsson iðnaðar- og við- skiptaráðherra mun stýra fundinum, en hann er samstarfsráðherra Norð- urlanda og formaður norrænu ráð- herranefndarinnar. Auk hans sitja fundinn Thor Pedersen, innanríkis- ráðherra Danmerkur, Matti Loue- koski, dómsmálaráðherra Finnlands, Bjame Merk Eidem, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, og Mats Hellström, landbúnaðarráðherra Svíþjóðar, en þeir eru samstarfsráðherrar hver fy sínu landi. Fundinn sitja einnig emb- ættismenn og starfsmenn norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmanna- höfn. Myndir frá kvenna- ráðstefiau Nú um þelgina opnar Ljósmynda- safn Reykjavíkur Borgartúni 1 sýn- ingu á ljósmyndum sem voru sýndar á kvennaráðstefnunni í Osló sumarið 1988. Sýningin verður opin virka daga frá klukkan 8.30 til 18.00, en um helgar frá klukkan 13.00 til 18.00. Sýningunni lýkur 21.maí. GENGISSKRÁNING Nr. 83 5. maf 1989 Kr. Kr. ToH- Ein. Kl. 09.16 Kaup Sala 9«nfll Dollari 53,29000 53,43000 53,03000 Sterlp. 89,45000 89.68500 89,78000 Kan. dollari 45,02900 45.14800 44.60600 Dönskkr. 7,22820 7.24720 7.26440 Norsk kr. 7.76140 7,78180 7,78940 Sænsk kr. 8,29030 8,31210 8,32500 Fi. mark 12,60110 12.63420 12,66840 Fr. franki 8,33240 8,35430 8.36240 Belg. franki 1,34370 1,34720 1.35110 Sv. franki 31,53810 31,62100 31.94110 Holl. gyflini 24.94790 25,01350 25,06320 V-þ. mark 28,11990 28,19380 28.27810 ít. líra 0,03850 0,03860 0,03861 Austurr. sch. 3,99670 4,00720 4,01670 Port. escudo 0.34050 0,34140 0.34180 Sp. peseti 0,45330 0,45450 0.45570 Jap. yen 0,39709 0.39814 0.40021 Irskt pund 75.10400 75.30200 75,49100 SDR (Sérst.) 68.65620 68,83650 68.78630 ECU, evr.m. 58.55240 58,70620 58.82090 Tollgengi fyrir maf er sölugengi 28. apríl. Sjálfvirkur simsvan gengisskráningar er 62 32 70. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 5. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 54,50 30,00 41,71 4,942 206,119 Ýsa 83,00 35,00 56,08 4,870 273,160 Karfi 31,00 15,00 27,80 31,555 877,127 Steinbitur 15,00 15,00 15,00 0,281 4.223 Koli 25,00 20,00 20,18 1,364 27,534 Langa 29,50 15,00 25,88 3,028 78.351 Lúða 310,00 70,00 118,48 1,029 121.976 Grálúða 35,50 34,50 34,87 78,906 2.751,808 Síld 49,00 49,00 49,00 0,027 1,348 Keila 8,00 8,00 8,00 0,031 243 Ufsi 20,00 15,00 19,87 5,142 102,138 Samtals 33,92 132,385 4,490,206 Selt var úr Otri HF, Stakkavík AR og bátum. Á mánudag verða seld um 30 tonn af karfa úr Arnari og bátafiskur, mest þorskur. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 46,00 30,00 37,85 4,856 183,805 Ýsa 52,00 30,00 42,13 2,742 115.530 Karfi 23,50 23,00 23,18 28,392 658,138 Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,117 1.755 Ufsi 25,00 15,00 21,53 5,985 128.883 Steinbitur 5,00 5,00 5,00 0,523 2.615 Langa 27,00 16,00 25,95 0,953 24.697 Lúða 240,00 165,00 179,32 0,622 111.540 Rauðmagi 77,00 75,00 75,90 0,102 7,742 Skata 54,00 54,00 54,00 0,020 1.080 Skarkóli 68,00 25,00 35,49 0,164 5.820 Skötuselur 280,00 280,00 280,00 0,018 5,040 Grálúöa 36,50 30,00 33,07 201,324 6.657,765 Hrogn 50,00 50,00 50,00 0,083 4,150 Keila 6,00 6,00 6,00 0,107 642 Blandað 44,00 42,00 43,69 0,144 6,292 Samtals 30,93 247,693 7,974,528 Selt var út Jóni Vídalín ÁR, Þrym BA, Keili RE og bátum. 8. mai verður seldur afli úr neta-og handfærabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur • 48,50 30,00 43,87 19,153 840,335 Grálúða 35,50 14,770 524,354 Ýsa 63,00 25,00 53,67 25,794 1,384,357 Skarkoli 25,00 1,024 25,600 Ufsi 15,00 0,529 7.935 Karfi 27,50 19,00 25,85 1,826 47,222 Lúða 195,00 70,00 140,55 0,240 33,817 Skötuselur 200,00 0,016 3,200 Samtals 44,76 64,378 2,881,327 Selt var úr Ólafi Jónssyni GK og Hvammsvík GK. ( dag hefst uppboðið kl. 14.30 og verður selt úr Þuríði Halldórsdóttur GK auk dagróðra og snurvoöarbáta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.