Morgunblaðið - 06.05.1989, Side 31

Morgunblaðið - 06.05.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1989 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag er' það umfjöllun um ástamál Tvíbura (21. maí — 20. júní) og Krabba (21. júní - 22. júlí). Daöur Hinn dæmigerði Tvíburi er daðurgjam. í samkvæmum gengur hann á milli manna talar mikið og brosir í allar áttir. Hann hefur áhuga á fólki en er samt sem áður ekki lauslátur því áhugi hans beinist fyrst og fremst að því að ræða við fólk. Að vísu er sagt að Don Juan hinn frægi elskhugi hafi verði Tvíburi, en það segir þó ekki margt. Casanova var til dæmis Hrút- ur. Umræöa Það sem skiptir Tvíbura aðal- máli er að ná hugmyndalegu sambandi við fólk. Hann vill fyrst og fremst tala og segja sögur. Hann er þegar allt kemur til alls ekki líkamlega sinnaður. Tvíburinn getur því talað mikið um ástina og það sama gerist þegar í rúmið er komið. Hann vill ræða málin og því komast ástvinir hans iðulega seint í draumalandið þegar ástarævintýri með hon- um eru annars vegar. Skemmtilegar sögur Það sem heillar Tvíbura eru skemmtilegar sögur úr ólíkum áttum. Ef við segjum honum frá leit að demöntum í Amaz- on-frumskóginum. Listagall- eríi í New york, nýjum og spennandi skemmtistað í Hafnarfírði og bætir við nokkrum nýju sögum úr stjórnmála-, íþrótta- eða lista- lífínu, þá eigum við Tvíbur- ann. „Aha, þetta er „sexý“ gæi, hann veit margt. Frelsi A ástalífínu er Tvíburinn hress og léttur. Hann vill tala um ástina, segja brandara og prófa sig áfram með nýjar aðferðir. Sagt er að við þurf- um að gefa honum langt reipi, eða varast að ætla okkur að eiga hann eða hefta frelsi hans. Kertaljós Krabbinn er tryggur í ást og vináttu. Á þeim sviðum sem öðrum leitar hann öryggis og varanleika. Það tekur nokk- urn tíma að komast nálægt honum. Þegar hann verður ástfanginn er ástæðan yfir- leitt sú að hann fínnur já- kvæðan tilfínningastraum liggja á milli sín og væntan- legs maka. Það sem átt er við er að Krabbinn elskar fyrst og fremst vegna tiifínninga, en ekki vegna þess að hann hrífíst af gáfum, ættemi, pen- ingum eða vöðvum. Krabbinn er tilfínningamerki og er sem slíkur veikur fyrir rómantík og kertaljósum. Kelerí Hinn dæmigerði Krabbi er kelinn og töluvert gefínn fyrir kossa og faðmlög. Sem elsk- hugi er hann næmur, nær- gætinn og verndandi. Því er vissara að skapa rólegt og Ijúft andrúmsloft þegar koma á Krabbanum til, setja mjúka tónlist á fóninn og þá helst gömul lög sem vekja upp sælar minningar. Tunglið hef- ur sterk áhrif á Krabbann og því er pottþétt að bjóða honum niður í fjöru á fullu tungli og flytja honum ástarljóð. Þetta er kannski einu of mikið af því góða en ætti samt að varpa Ijósi á ástaiíf Krabbans. Karlmenn í Krabbamerkinu eru hijúfari en konurnar og setja oft upp skel til að vemda sig. Þeir sem lenda í ástaræv- intýri með Krabbanum geta þurft að gæta sín. Krabbinn er ekki merki sem stofnar til skyndikynna. Það er því hæg- ara að komast í en úr þegar hann er annars vegar. GRETTIR BRENDA STARR LJÓSKA FERDINAND THERE AREN'í ANV LAKE5 AROUN(7 HERE, 5IR.. Komdu, Magga, við skulum fara að veiða! Það eru engin vötn hér um slóðir, herra ... Segðu hattinum mínum það ... hann verður fyrir sárum vonbrigð- um ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Það er nokkuð tvíbent að spila út trompi frá ÁKx, því sagnhafí gæti grætt á því mikilvægt tempó. En í þessu tilfelli var útspil vestur vel hugsað. Suður gefur; allir á hættu. Vestur ♦ K10963 VÁK7 ♦ G8 ♦ 532 Norður ♦ 872 ¥65 ♦ ÁKD109 ♦ G97 Austur ♦ G54 ¥43 ♦ 5432 ♦ D1086 Suður ♦ ÁD ¥ DG10982 ♦ 76 ♦ ÁK4 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 hjarta 1 spaði 2 tíglar Pass 4 hjörtu pass Pass Pass Útspil: hjartakóngur. Kosturinn við að spila út frá ÁK er auðvitað sá að útspilarinn fær tækifæri til að endurmeta vörnina eftir að hafa séð blind- an. Hættan, á hinn bóginn, er að missa tempó. En eftir sagnir býst vestur við að það sé nokkuð langt í það að sækja tvo slagi á svörtu litina, því varla lumar austur á mörgum háspilum. Með sömu rökum fínnur vest- ur líka besta framhaldið — spilar tígli. Nú er orðið of seint að ráðast á lauf eða spaða, og besta vonin er sú að sagnhafi eigi aðeins tvo tígla. Vestur spilar svo aftur tígli þegar hann kemst inn á trompásinn og þar með er sá litur úr sögunni. Sagnhafi gefur því óhjákvæmilega tvo slagi til viðbótar. Þessa sömu vöm mátti svo sem vinna með laufi út, en það er sennilega sísta útspilið samt. Það kom vel til greina að spila út spaða í þeirri von að félagi ætti DX og liturinn skiptist 3-3 á milli handa sagnhafa. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á opna mótinu í New York um páskana kom þessi staða upp í skák kólumbíska stórmeistarans Alonso Zapata, og hinnar tólf ára gömlu Júdit Polgar, sem hafði svart og átti leik. Zapata var að enda við að leika af sér skákinni, síðasti leikur hans, 34. b2-b3? kostaði hann mikilvægt peð: 34. - Bxb3! 35. Df6 - Be6 36. h3 - He2 37. Dd4 - De5 38. Dxe5 — dxe5 og Júdit vann enda- taflið örugglega. Hún stóð sig bezt Polgarsystra í New York, hlaut 5 Vi vinning af 9 mögulegum. Ef henni hefði tekist að sigra bandaríska stórmeistarann Dzind- zindhashvili hefði hún náð áfanga að stórmeistaratitli, en þeirri við- ureign lauk með jafntefli. Systur hennar ollu nokkrum vonbrigðum, þær Szusza, sem er orðin tvítug og Zsofía, 14 ára, hlutu báðar fjóra vinninga. Þær systur vöktu að vonum mikla athygli í stórborg- inni og sást stundum bregða fyrir í sjónvarpi, þar til hinn 14 ára gamli Sovétmaður Gata Kamsky stal frá þeim senunni með því að biðja um pólitískt hæli ásamt föð- ur sínum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.