Morgunblaðið - 20.05.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
HVAÐ SEGJA ÞEIR UM KJARASAMNINGA
Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins:
Innistæðu-
laus ávísun á
framtíðina
„ÞAÐ er tvennt sem sem mér
finnst skera f augu, varðandi þessa
samninga rikisins við BHMR,“
sagði Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins. „í fyrsta lagi
henti Qármálaráðherra út í bu-
skann fyrri stefiiu sinni um launa-
jöfiiun. Hann básúnaði það út um
allt þjóðfélagið, með stórum yfír-
lýsingum, þegar samningurinn
var gerður við BSRB, að með hon-
um hefðu orðið algjör tímamót f
kjarasamningum, þar sem tryggt
hefði verið að þeir lægst launuðu
fengju mestar kjarabætumar."
Þorsteinn sagði forystumenn
BSRB hafa lýst þessu sem meginfor-
sendunni fýrir hógværum lq'ara-
samningum. Nú kæmi á daginn að
fjármálaráðherrann hefði aldrei haft
í huga að standa við þessa stefnu
og yfirlýsingar um hana. „Hann vissi
það þegar hann gaf þessar yfirlýsing-
ar, að hann ætlaði að svíkja þessa
stefnu, þegar kæmi að samningum
við háskólamenn. Niðurstaðan er sú
að þeir háskólamenn sem hæst hafa
launin, fá flestar krónumar í kjara-
bætur,“ sagði Þorsteinn.
Hitt atriðið sem Þorsteinn' sagði
skera í augun, sagði hann lúta að
þeim launahækkunum sem samið
væri um á næsta ári, til þess að
tryggja markaðsviðmiðun háskóla-
manna í opinberri þjónustu. „Þau
ákvæði virðast vera mjög óljós og
sennilega veit hvorugur aðilinn um
hvað er verið að semja, en þó bendir
flest til þess að ríkisstjómin hafí í
þessu máli, eins og ýmsum upp á
síðkastið, verið að koma sér út úr
ógöngum, með því að gefa út inni-
stæðulausa ávísun á framtíðina."
Hjörtur Eiríksson, firam-
kvæmdastjóri VMSS:
Mjög hættu-
legt fordæmi
„ÞAÐ ákvæði kjarasamninganna
að semja um laun að hluta til i
verkfalli er mjög hættulegt for-
dæmi. Það eykur likur á þvi að
krafa um slíkt verði ahnenn, jafii-
vel um meiri greiðslur en nú var
samið um. Loks er líklegt að samn-
ingsatriði eins og þetta leiði til
frekari verkfalla en ella og þau
verði erfiðari og illleysanlegri en
áður,“ sagði Hjörtur Eiriksson,
framkvæmdastjórí Vinnumálas-
amabands Samvinnufélaganna, í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég harma það mjög að þessi leið
skyldi farin. Fólk í verkfalli á ekki
að vera á launum og því mjög óeðli-
legt að semja með þessum hætti.
Slíkt má í raun ekki undir nokkrum
kringumstæðum eiga sér stað, því
kaup í verkfalli er auðvitað andstætt
eðli verkfalla sem vopns í kjarabar-
áttu.
Á vissan hátt er það ánægjulegt
að kjarasamningar við flesta hópa
launþega skuli hafa náðst. Ánægjan
er hins vegar blendin vegna þess að
samningamir em allt of dýrir fyrir
þjóðfélagið og því auka þeir á verð-
bólguna. Um bætt kjör launþega
hefði þurft að semja um með öðrum
hætti en launahækkunum," sagði
Hjörtur Eiríksson.
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
/ DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 20. MAÍ
YFIRLIT f GÆR:Búist er við stormi á Austur-, Austfjarða-, suðaust-
urmiðum og Suðausturdjúpi. Á sunnartverðu Grœnlandshafi er
hægfara 977 mb lægð en vaxandi 975 mb lægð um 1.000 km
suðsuðvestur i hafi hreyfist Noröur. Veður er að hlýna í bili en
kólnar heldur á morgun, fyrst vestanlands.
SPÁ: Allhvöss sunnan og suðaustanátt með rigningu sunnan og
austanlands en heldur hægari suðaustan og minni úrkoma annar-
staðar á landinu. Hiti 3-9 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðlæg átt. Skúrir sunn-
anlands og vestaná sunnudag og 3ja-6 stiga hiti en lítillega bjart
veður og 6-9 stiga hiti norðanlands. Rigning víða um land á mánu-
dag, einkum sunnanlands og vestan og hlýnandi veöur.
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
EE Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, lieil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyrl 9 skýjað
Reykjavlk 8 alskýjafi
Bergen 12 léttskýjað
Helsinkl 13 alskýjað
Kaupmannah. 19 hálfskýjað
Narssarssuaq 4 léttskýjað
Nuuk +5 snjókoma
Osló 18 lóttskýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 24 mlstur
Barcelona 20 mistur
Berlin 26 láttskýjað
Chicago 19 rfgning
Feneyjar 20 skýjað
Frankfurt 26 lóttskýjað
Glasgow 12 alskýjað
Hamborg 23 lóttskýjað
Las Palmss 22 lóttskýjað
London 22 skýjað
Los Angoles 13 lóttskýjað
Lúxemborg 24 léttskýjað
Madrid 26 skýjað
Malaga 25 skýjað
Mallorca 23 lóttskýjað
Montreal 18 alskýjað
New York 16 mlstur
Orlando 21 mistur
Parls 29 lóttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Vfn 21 skýjaö
Washington 17 þokumóða
Wlnnipeg vantar
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra:
Staðreynd að
15%hækkun
BHMR á einu
ári er of mikið
„ÞESSIR samningar hafa að sjálf-
sögðu afar mikla þýðingu. Hér
hefði orðið óþolandi ástand ef
verkfallið hefði haldið áfram, fram
eftir sumrí, eins og mér fannst
stefiia í,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra i sam-
tali við Morgunblaðið um nýgerða
kjarasamninga ríkisins og BHMR.
Forsætisráðherra sagði að kostn-
aðarlega séð, bæri að líta til þess
að lítill munur yrði á kjarabótum
BHMR og BSRB þá átta mánuði sem
eftir væru af samningstíma BSRB.
„Hins vegar geta menn náttúrlega
deilt um þær hækkanir sem svo eru
framundan hjá BHMR síðar á samn-
ingstímabilinu. Mér sýnist sem
BHMR fái um 15% hækkun á eins
árs grundvelli. Það er staðreynd að
það er of mikil hækkun," sagði
Steingrímur, en bætti svo við: „Það
er auðvitað afar mikils virði að fá
með þessum samningum jafnvel allt
að fimm ára frið í skólum."
Steingrímur sagðist mundu standa
við þær yfirlýsingar sem hann hefði
áður gefið, eins og í ríkisstjóminni
1985 að kjör háskólamenntaðra
manna í þjónustu ríkisins ættu að
vera sambærileg við það sem gerðist
hjá háskólamenntuðum mönnum ut-
an ríkisgeirans. „Raunar skil ég vel
þá tortryggni sem er hjá þeim, vegna
þess hve erfíðlega hefur gengið að
fá þetta fram.“
Forsætisráðherra var spurður
hvers vegna hann hefði ekki sem
forsætisráðherra á árunum 1985 til
1987, séð til þess að staðið yrði við
yfírlýsingu hans: „Framkvæmdin í
svona máli, er náttúrlega í höndum
flármálaráðherra, sem fer með þessi
mál. Ég gaf þessa yfirlýsingu á
sínum tíma að ósk BHMR og sam-
kvæmt samþykki þáverandi fjár-
málaráðherra, Alberts Guðmunds-
sonar," sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra.
• •
Ogmundur Jónasson
formaður BSRB:
Gengisfell-
ingin er
brigður á for-
sendur kjara-
samninga
„ÞETTA eru brígður á forsendur
kjarasamninganna," sagði Ög-
mundur Jónasson formaður BSRB
aðspurður um hvort hann teldi
gengisfellinguna samrýmast
ákvæðum kjarasamninganna.
„Við munum fylgja eftir þeim
ákvæðum í samningnum sem gera
ráð fyrir aðgerðum til acj bæta okkar
félagsmönnum það kaupmáttarhrap
sem kann að leiða af verðhækkunum
sem fylgja í kjölfar gengisbreyt-
inga,“ sagði Ögmundur.
Hann var spurður hvort hann
gæti tekið undir það, sem meðal
annarra Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son alþingismaður hefur haldið fram,
að samnings- og verkfallsréttur hafi
ekki nýst opinberum starfsmönnum
og þeir hafi dregist aftur úr í laun-
um, sfðan þessi réttindi fengust. „Ég
er algjörlega ósammála þessu sjónar-
miði og held að þar komi annað til:
Viðleitni til þess að halda kauptaxta
niðri, ekki aðeins hjá ríkinu, heldur
á hinum almenna vinnumarkaði einn-
ig og ég held að verkfallsvopnið heyri
til mannréttinda, hvort sem menn
starfa á almennum vinnumarkaði eða
hjá ríkinu."
Hann var einnig inntur álits á
svokölluðum „stríðsskaðabótum",
sem félagar BHMR eru sagðir hafa
fengið. „Ég hef hvergi séð neitt um
þessar svokölluðu stríðsskaðabætur
í kjarasamningnum, að minnsta kosti
ekki í því eintaki sem ég hef fengið
í hendur. Hitt efast ég ekkert um,
að eigi þetta við rök að styðjast, þá
muni fólk finna eihveijar leiðir til
að koma þessum peningum í lóg.“
Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ:
Virðist benda
til aukins
launamunar
„MIG skortir nægar forsendur til
að meta nýgerðan kjarasamning
ríkisins og háskólamenntaðra
starfsmanna þess. Mér er ekki ljós
þýðing þess ákvæðis, sem kveður
á um sérstakar nefiidir til að meta
og samræma laun háskólamennt-
aðra manna i vinnu hjá einkaaðil-
um og hinu opinbera svo og úr-
skurði kjaradóms, náist samkomu-
lag ekki,“ sagði Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, í samtali við
Morgunblaðið.
Ásmundur sagði, að svo virtist sem
auka ætti launagreiðslur til lang-
skólagenginna ríkisstarfsmanna og
til þeirra, sem bæru ábyrgð á stjóm-
un. Það benti til aukins launamunar
innan bandalagsins. Því virtist launa-
stefnan, eins og hana mætti lesa úr
samningsplagginu, stinga í stúf við
þá stefnu, sem mest áherzla hefði
verið lögð á að undanfömu. Mest
hækkun virtist eiga koma á hæstu
launin. Þetta ætti hins vegar allt
eftir að koma í ljós og líkega yrði
að bíða niðurstöðu lqaradóms á
næsta ári til að sjá hver raunveruleg
þýðing þessara samninga væri.
Aðspurður um þýðingu svokall-
aðra „stríðsskaðabóta" sagði Ás-
mundur, að ljóst væri að i frjálsum
samningum væri hægt að semja um
hvað sem væri. Hann sæi því ekki
ástæðu til neinna sérstakra yfírlýs-
inga vegna þess þáttar kjarasamn-
inganna.
Þórarinn V. Þórarinsson,
frainkvæmdastjóri VSÍ:
Greiðsla
launa í verk-
falli siðleysi
„AÐ minu mati er greiðsla hluta
launa í verkfalli siðleysi af hálfu
beggja samningsaðila. Þetta lýsir
fyrírlitningu launþega á verkfalls-
réttinum og jafhmiklu siðleysi af
hálfu samninganefindar ríksins,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, f samtali
við Morgunblaðið.
„Ég legg ekki mat á samningin
að öðru leyti. Áhrifin eru ekki komin
fram ennþá, en ljóst er að það kem-
ur til með að þurfa kjarkmenn í þann
gerðadóm sem vinna á samanburð
og úrskurða um samræmingu á laun-
um háskólagenginna ríkisstarfs-
manna og starfsbræðra þeirra í
einkageiranum. Það er rétt sem
borgarstjórinn í Reylqavík segir, að
forsendur gerðardóms til að vinna
eftir stangast á.
Þá er það athygli vert við lyktir
deilunnar og einsdæmi og þó víðar
væri leitað, að verkfallsmönnum sé
með kjarasamningi tryggt sjálfdæmi
um það hvemig og með hve mikilli
yfirvinnu þeir kjósa að vinna í fram-
haldi verkfallsins á sumarleyfistíma
sínum til að bæta sér upp launatap-
ið. Það er skelfilegt að þessi réttur
eigi að bitna á nemendum, ekki bara
í framhaldsskólum, heldur einnig
grunnskólum. Einn þáttur saming-
anna kveður svo á að bömum verði
ekki hleypt upp á milli bekkja án
þess að ljúka prófum með formlegum
hætti eða fá mat kennara. í öllu falli
er ljóst að hagsmunir ungmenna í
skólum landsins, sem nú hafa ýmist
ráðið sig til vinnu eða skipulagt tíma
sinn á annan hátt, hafi ekki skipað
fyrsta sætið við lyktir þessarar kjara-
deilu,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son.