Morgunblaðið - 20.05.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
7
Sighvatur Bjarnason VE skreytir
forsiðu alþjóðalega sjávarútvegs-
blaðsins Fishing News Intern-
ational.
Fishing 89:
Norðurlöndin
mest áberandi
NORÐURLÖNDIN munu skipa
stóran sess á alþjóðlegu sjávarút-
vegssýningunni Word Fishing 89
í Bella Center í Kaupmannahöfii
í fyrrihluta júnímánaðar. Af fiill-
trúum 23 þjóða verða Danir,
Norðmenn og ísiendingar stærst-
ir. Fyrirtæki frá þessu þjóðum
sýna ýmist í ákveðnum hópum
eða hvert fyrir sig og í einstaka
tilfellum er um alþjóðlega sam-
vinnu að ræða.
Alþjóðlega sjávarútvegsblaðið-
Fishing News Intemational gerir
sýningunni góð skil í maíútgáfu
sinni. í því eru aukblöð með dönsku
og norsku sýnendunum og sérstak-
lega er fjallað um framlag íslend-
inga á 16 síðum inni í blaðinu.
Þessarar miklu þátttöku Norður-
landanna er getið á forsíðu blaðs-
ins, en hana skreytir nótaskipið
Sighvatur Bjamason frá Vest-
mannaeyjum. Sýningin í Kaup-
mannahöfn stendur yfir dagana 6.
til 10. júní.
Hæstiréttur:
Haftiar firá-
vísunar-
kröfu Halls
HÆSTIRÉTTUR hefur hafiiað
kröfii lögmanns Halls Magnús-
sonar, blaðamanns, um að vísað
verði frá Sakadómi Reykjavíkur
refsimáli sem ákæruvaldið höfð-
aði gegn Halli vegna ummæla í
grein sem hann skrifaði í dag-
blaðið Tímann um Þóri Steph-
ensen, staðarhaldara í Viðey og
þáverandi dómkirkjuprest.
Hæstiréttur hefur þar með stað-
fest úrskurð Sverris Einarssonar
sakadómara, sem einnig hafði
hafnað kröfu lögmannsins. Mál
þetta höfðar ríkissaksóknari sam-
kvæmt ákvæðum hegningarlaga
um aðdróttanir að opinberum
starfsmönnum.
Ný stjóm Menn-
ingarsjóðs út-
varpsstöðva
Menntamálaráðherra hefur
nýverið skipað nýja stjórn Menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva.
I stjóminni eiga sæti þeir Páll
Skúlason prófessor, skipaður án
tilnefningar, og er hann formaður
stjómarinnar, Brynjólfur Bjarnason
framkvæmdastjóri, sem tilnefndur
er sameiginlega af öðmm útvarps-
stöðvum en Ríkisútvarpinu, og
Guðni Guðmundsson rektor, sem
tilnefndur er af útvarpsráði Ríkisút-
varpsins. Skipunartími stjórnarinn-
ar er tvö ár.
Panasonic SONY
JAPIS AÐ BRAUTARHOLTI
Vid kynnum meðal annars:
Sumarsýning JAPIS
hefst laugardaginn 20.
maí kl. 10:00. Kynntar
verða ævintýralegar
tækninýjungar frá Sony
og Panasonic: Vídeó-
myndavélar, mynd-
bandstæki, sjónvörp,
geislaspilarar, fullkom-
inn móttökubúnaður
fyrir gervihnatta-
sendingar o.Jl. Einnig
sýnum við búnað frá
Sony fyrir myndver og
sjónvarpsstöðvar. Sýn-
ingin verður bæði laug-
ardag og sunnudag
kl. 10:00-16:00; höfð-
ingleg sýningartilboð.
Sýning sem gæti borgað
sig að fara á.
Sony 8mm vídeómyndavél
Frá Sony, ný 8mm
vídeómyndavél fyrir
fjölskylduna, CCD-F-335.
Ljósnæmi er 7 lux og verðið er
ótrúlega gott.
Sony sjónvörp
Sony hefur verið skrefi á
undan öðrum sjónvarpsfram-
leiðendum um árabil. Við
nefnum trinitron mynd-
lampann sem Sony hefur
einkaleyfi á og flötu hornréttu
skjáina. Á sýningunni gefur að
líta flaggskip SONY
sjónvarpa, 29 tommu
stafræna sjónvarpstækið, auk
annarra sjónvarpa frá Sony.
Panasonic
myndbandstæki
'89 línan ( Panasonic VFIS
myndbandstækjum. Tækin
sem við sýnum eru meðal
annarra NV-F70 HiFi tækið,
sem hlotið hefur afburða
dóma í fagtímaritum
um allan heim.
Panasonic videómyndavél
Panasonic er í fararbroddi í
þróun vídeómyndavéla, á
sýningunni hjá okkur er til
dæmis SUPER VHS mynd-
bandstökuvélin NV-MS1 og
NV-MS50, sem var fyrsta
SUPER VHS-C vélin f
heiminum með HiFi steríó
hljóðupptöku.
Atvinnubúnað
SONY er stærsti aðilinn f
heiminum í framleiðslu
tæknibúnaðar fyrir
sjónvarpsstöðvar.
Sony geislaspilara
Nýr og enn fullkomnari
geislaspilari frá SONY, tærasti
hljómur sem völ er á að
geislaspilari geti gefið frá sér
og þá er mikið sagt
- en svona er það.
Móttðkubúnað fyrir
gervihnattasendingar
Þessi móttökubúnaður er
tæknilega mjög fullkominn.
Við getum nefnt umpólara fyrir
lárétta og lóðrétta móttöku,
framúrskarandi hljóð- og
myndgæði, 20 rása minni og
að sjálfsögðu þráðlausa
fjarstýringu. Verðið bendir
eindregið til að
móttökubúnaður fyrir
gervihnattasendingar verður
brátt almenningseign.
JAPISS
BRAUTARHOLTI 1