Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
11
Um menningar-
magn og tónlistarlíf
eftirBirgi ísleif
Gunnarsson
Þegar ríkissjónvarpið tók þá
ákvörðun að hefja útsendingar á
fimmtudögum sendi breska sjón-
yarpið BBC sveit manna hingað til
íslands til að gera sjónvarpsþátt
um íslenskt menningarlíf. Einn
sjónvarpslaus dagur í viku hafði
vakið athygli í Bretlandi og sjálf-
sagt víðar og nú átti að gera sjón-
varpsþátt um hvaða áhrif það hefði
á íslenska menningu og tungu að
hefja sjónvarpssendingar á fimmtu-
dögum.
Eg var þá í menntamálaráðu-
neytinu og þangað lagði hópurinn
frá BBC leið sína til að hafa viðtal
við ráðherrann um málið. Þau komu
nánast beint af flugvellinum upp í
ráðuneyti, vildu fá undirbúningsvið-
tal fyrst, en síðan upptöku tveimur
dögum síðar. í þessu fyrsta viðtali
við þetta fólk fann ég að þau voru
fyrirfram búin að gera sér ákveðnar
hugmyndir um ísland og íslenska
menningu. Hér stæði menningarlíf
á brauðfótum, tungan væri á fall-
andi fæti og einn sjónvarpsdagur í
viðbót gæti riðið þessu öllu að fullu.
Ég maldaði í móinn og reyndi
að sýna fram á að íslensk menning
stæði traustum fótum og þó að við
þyrftum að gá að okkur, ekki síst
varðandi íslenska tungu, þá myndi
sjónvarp á fimmtudögum engin
áhrif hafa. Hvatti ég þau til að
nota tímann vel og kynna sér menn-
ingarlíf á íslandi og menningar-
neyslu.
Tveim dögum síðar komu þau
aftur og nú til að taka upp viðtalið.
Ég fann strax að nú var komið
annað hljóð í strokkinn. Þau voru
undrandi yfir kraftmiklu menning-
arlífi, t.d. fjölda leiksýninga, tón-
leika og málverkasýninga og fjöl-
breyttri bókaútgáfu. Viðtalið sner-
ist því upp í skýringu á því, hvers
vegna hér þrifist svo blómlegt
menningarlíf hjá ekki stærri þjóð.
Magn og gæði
Nú segja magntölurnar ekki allt-
af til um gæðin. Tölur um fjölda
Birgir ísleifur Gunnarsson
„Bygging tónlistarhúss
er nauðsynleg tónlist-
arlífi framtíðarinnar.
Þar á að verða miðstöð
tónlistarlífs, sem geti
skapað tónleikagestum
og listamönnum eðli-
legt umhverfi.“
myndlistarsýninga eða tónleika
segja ekki hversu góð myndlist eða
góð tónlist er borin á borð og held-
ur ekki hversu margir sækja þessa
listviðburði. Magntölumar segja
hins vegar að það er ótrúlega mik-
ill fjöldi fólks sem fæst við listsköp-
un af einhveiju tagi og það er ein-
mitt úr slíkum jarðvegi sem afreks-
verkin eru líkleg til að spretta.
Það er þess vegna fróðlegt að
huga dálítið betur að þessum magn-
tölum. Tökum t.d. tónlistina. Að
vísu liggja ekki fyrir neinar form-
legar kannanir á fjölda tónleika,
aðsókn eða fjárhagsafkomu. Tæm-
andi upplýsingar eru því ekki fyrir
hendi. Hins vegar er unnt að gera
athuganir á einstökum mánuðum,
t.d. með því að skoða auglýsingar
og tilkynningar í dagblöðum.
í sambandi við undirbúning að
byggingu tónlistarhúss hefur að
vísu verið gerð athugun sem sýndi
að veturinn 1983—94 voru haldnir
yfir 200 tónleikar á höfuðborgar-
svæðinu og 80 óperusýningar. Taln-
ingar í einstökum mánuðum sýna
t.d. að í apríl 1987 voru haldnir hér
36 tónleikar af ýmsu tagi, í nóvem-
ber 1987 34 tónleikar og í desem-
ber 1987 27 tónleikar. Ekki virtist
hafa orðið neinn samdráttur í þess-
ari starfsemi, þannig að það má
fullyrða að hér á höfuðborgarsvæð-
inu séu yfir vetrarmánuðina haldnir
um 30 tónleikar á mánuði. Þessar
tölur bera vott um kraftmikið tón-
listarlíf og ótrúlegur fjöldi fólks
leggur á sig mikla vinnu og erfiði
til að koma list sinni á framfæri.
Tónlistarhús
Aðstaðan er hins vegar ekki upp
á marga físka. Tónleikar eru haldn-
ir í kvikmyndahúsum, málverkasöl-
um, matsölum, kirkjum, söfnum og
í skólum. Á flestum þessum stöðum
vantar mikið upp á hljómburð og
aðbúnað fyrir tónlistarfólk og
áheyrendur. Við eigum ekkert tón-
listarhús. Það hlýtur að verða næsta
stórverkefni okkar íslendinga á
sviði menningarmála að byggja tón-
listarhús.
Bygging tónlistarhúss er nauð-
synleg tónlistarlífi framtíðarinnar.
Þar á að verða miðstöð tónlist-
arlífs, sem geti skapað tónleika-
gestum og listamönnum eðlilegt
umhverfi. Tölurnar hér að framan
sýna að umfang tónlistarlífs hér er
orðið slíkt að biýn þörf er nú á slíku
húsi. Ríkisvaldið verður að koma
myndarlega inn í þá mynd, en undir-
búningur er kominn af stað fyrir
frumkvæði áhugasamra einstakl-
inga.
Höfundur er einn afalþingismönn-
um SjálfstæðisQokksins í
Reykjavík.
Operusýn-
ing nemenda
Söngskólans
NEMENDAÓPERA Söngskólans
í Reykjavík sýnir á morgun,
sunnudaginn 21. maí, valda kafla
úr óperunum Brúðkaupi Fígars-
ós eftir Mozart og Kátu konunum
frá Windsor eftir Nicolai, í ís-
lensku óperunni.
Helstu hlutverk í sýningunni
syngja Aðalsteinn Einarsson, Anna
Sigríður Helgadóttir, Harpa Harð-
ardóttir, Heimir Wium, Inga J.
Backman, Ingibjörg Marteinsdóttir,
Kristinn Kristinsson, Loftur Erl-
ingsson, Magnús Steinn Loftsson,
Ragnar Davíðsson, Ragnheiður
Hall, Sigurður S. Steingrímsson,
Siguijón Jóhannesson og Þorleifur
M. Magnússon, sem öll eru nemend-
Söngvarar og stjórnendur.
ur í óperudeild skólans.
Leiktjöld, búningar og annar
sviðsbúnaður er fenginn að láni hjá
íslensku óperunni. Leikstjóri er Már
Magnússon og tónlistarstjóri og
undirleikari Catherine Williams.
ORLOFSHÚS Á SPÁNI
Viltu tryggja þér sólríka framtíð í hlýju og notalegu umhverfi
við ströndina COSTA BLANCA, þar sem náttúrufegurðin er
hvað mest á Spáni. Komið og kannið möguleikana á að eign-
ast ykkar eigið einbýlishús sem staðsett er í afmörkuðu lúxus-
hverfi LAS MIMOSAS.
VERÐ FRÁ ÍSL. KR. 1.900.000,-
AFBORGUNARKJÖR.
Á og við LAS MIMOSAS er öll hugsanleg þjónusta sem opin
er alla daga: Stórmarkaður, veitingastaðir, barir, næturklúbbar,
diskótek, sundlaugar, tennis- og squashvellir, 18 holu golfvöllur,
siglingaklúbbur, köfunarklúbbur o.m.fl. #
Þið eruð velkomin á kynningarfund okkar á Laugavegi 18, laug-
ardaginn 20. maí og sunnudaginn 21. maí frá kl. 11.00-16.00.
Kynnisferð til Spánar 31. maí-7.júní.
Örfá sæti laus.
ORLOFSHÚS SF.,
Laugavegi 18, 101 Reykjavík,
símar 91-17045 og 15945.
Afmœlistilboð
VIÐ ERUM 3JA ÁRA
í tilefni af 3ja ára afmæli X & Z bjóðum við
25% afmælisafslátt næstu daga.
Verslunin hefur á boðstólum barnafatnað
í stærðum 0 - 14 ára og byggir eingöngu á
eigin merkjum sem ma. eru: Pony, Königsmuhle,
Overdress, John Slim, Balotta, Steilmann,
Bopy, Caddy, Sonni o.fl.
Barnaskór — Barnaföt
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
X & z
BARNAFATAVERSLUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6B, SÍMI 621682
Biadid sem þú vaknar vió!
DAIVICALL
radiomidun
Grandagaröi 9 101 Reykjavik • Sími (91) 622639 - 622640