Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989 13 Athugasemd frá skrifetofu Sjálfetæðisflokksins: Um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli í TILEFNI af blaðaskrifum sem orðið hafa undanfarna daga um fyrirkomulag verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli og stefhu Sjálfstæðisflokksins í þeim mál- um telur skrifstofa Sjálfetæðis- flokksins rétt að koma eftirfar- andi upplýsingum á framfæri: Umræður um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli hafa orðið á mörgum landsfundum Sjálfstæðis- flokksins. Landsfundir Sjálfstæðis- flokksins marka eins og kunnugt er stefnu flokksins í þjóðmálum, en þar koma saman 1.200 sjálfstæðis- menn hvaðanæva að af landinu, úr Engin ósk frá Sinfóníunni um rakatæki Morgunblaðinu hefur borist eft- irfarandi athugasemd frá Há- skólabíói: „í tilefni af því að erlendur tenór- söngvari gat ekki lokið söng sínum í Tannhauser á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Háskólabíói nýlega, var sú skýring gefin af for- ráðamanni hljómsveitarinnar að eng- inn vafi væri á því að þurrt loft í bíóinu ætti sína sök á því hvemig fór. Þessum ummælum er síðan fylgt eftir með nánari útlistun á heilsufari hljómsveitarmanna og annarra lista- manna sem starfað hafa í húsinu. Þau samskipti hafa verið með bíó- inu og hljómsveitinni að stjóm hljóm- sveitarinnar kemur á framfæri við stjóm Háskólabíós beiðni um að fá að gera breytingar innanhúss sem koma hljómsveitinni til góða ogtrufla ekki aðra starfsemi bíósins. Oftar en ekki hefur bíóið tekið þátt í kostnaði af þeim breytingum. Staðreyndin er sú að rakavandamál í bíóinu hafa ekki verið ofar á baugi en svo að stjóm bíósins hefur aldrei borist nokkur einasta beiðni frá stjóm hljómsveitarinnar um uppsetn- ingu rakatælqa. Hins vegar hafa óskir um aðrar breytingar borist. Málið er því alfar- ið á ábyrgð stjórnar hljómsveitarinn- ar. Verður að ætla að með ummælun- um hafí átt að nota Háskólabíó sem blóraböggul." Þórir Einarsson, form. stjórnar Háskólabiós. Byg-ging-arnefnd Reykjavíkur: Aminning vegna stækkunar án samþykkis BYGGINGARNEFND Reykjavík- ur hefur sent húsasmíðameistara, múrarameistara, arkitekt og verkfræðingi, Seðlabankahússins við Kalkofhsveg 1, áminningu vegna breytinga og stækkunar á byggingunni, sem gerðar hafa verið án samþykkis nefiidarinnar. Við lokaúttekt starfsmanna bygg- ingarfulltrúa Reykjavíkurborgar á byggingu Seðlabanka íslands við Kalkofnsveg 1, kom í Ijós að bygg- ingin hafði verið stækkuð um 611 rúmetra án tilskilinna leyfa og var því lokaúttekt frestað. Þá var gerð athugasemd við frágang á bruna- vömum og var veittur frestur til að bæta úr því til 30. júní 1989. Skal þá tilkynna verklok til byggingarfull- trúa. ^^pglýsinga- síminn er 2 24 80 öllum stéttum og störfum í þjóð- félaginu. Á síðustu þremur lands- fundum, 1983, 1985 og 1987 hefur á öllum fundunum verið ályktað sérstaklega um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Þær ályktanir hafa, eins og aðrar ályktanir fund- arins, orðið til í umræðuhópum á fundinum og verið fjallað um þær á almennum fundum landsfundar- ins. Til fróðleiks fyrir þá sem vilja kynna sér stefnu Sjálfstæðisflokks- ins í þessu tiltekna máli fara hér á eftir ályktanir þessara þriggja funda um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. 1) í ályktun um verslunar- og við- skiptamál á landsfundi 1983 hljóðar 12. liður ályktunarinnar þannig: „Verktakastarfeemi á Keflavíkurflugvelli verði gef- in fijáls." 2) Á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins 1985 var samþykkt sérstök verkefnaskrá þar sem lands- fundurinn beindi því til þing- flokksins að vinna sérstaklega að framgangi tiltekinna stefnu- mála. í 7. lið þessarar verkefna- skrár segir svo: „Vamir landsins verði efldar m.a. með byggingu ratsjárstöðva á VestQörðum og Norð-Austurlandi og öðmm nauðsynlegum ráðstöfunum í samvinnu við NATO og Banda- ríkin. Verktakafyrirtæki sitji við sama borð með vamarliðs- framkvæmdir." 3) Á landsfundi 1987 er í ályktun um utanríkismál svofelld máls- grein: „Haldið verði áfram að þróa breytingar á fyrirkomu- lagi verktakamála á Keflavík- urflugvelli með það fyrir aug- um að fleiri aðilar eigi kost á verkefiium þar. Hugmyndum um að krefjast greiðslu fyrir aðstöðu Atlantshafebanda- lagsins hér á landi er afdrátt- arlaust hafnað.“ Skrifstofa . Sjálfstæðisflokksins vonast til að ofangreindar upplýs- ingar séu fullnægjandi fyrir þá sem draga í efa að Sjálfstæðisflokkurinn hafi markað sér stefnu í þessum málum með þeim hætti sem skipu- lagsreglur hans gera ráð fyrir og 60 ára hefðir hans segja til um. (Fréttatílkynning frá skrifstofii Sjálfstœðis- flokksins) < OL O “5 < < o u < co < QL A U ) < SA COMA • MAJORKA • SA COMA • MAJORKA • SA COMA • MAJORKA O u < cn < OL O o U < cn < oc O < O u < cn < oc O O u < cn I FARANGRIHIiM: Hvort sem við köllum verðlœkkunina á Majorkuferðum veislu í farangrinum, bónus fyrir alla eða bara hvað sem er, þá á hún sér einfalda skýringu. Það sjá allir. Við erum á fullri ferð t samkeppninni og því höfum við samið um verðlœkkun við hótel og ferðamálayrirvöld í Sa Coma. Þannig gerum við betur en keppinautarnir og þið njótið góðs af. Flóknara er það nú ekki. Að vísu duga engin útsöluorð um staðinn okkar á Majorku, Sa Coma á austur- ströndinni, þar er einfaldlega ein besta baðströnd eyjunnar; hrein, breið, ómenguð og öll aðstaða í hœsta gœðaflokki. En látum tölurnar tala sínu máli: 19. júní 2 vikur Verð frá: 32.750 kr. 3. júlí 2 vikur Verð frá: 33.950 kr. 17. júlí 3 vikur Verð frá: 37.450 kr. Staðgreiðsluverð á mann, miðað við tvo fullorðna og tvö börn, 2-11 ára, í íbúð. Barnafararstjórinn okkar, Dagný Björk Pjetursdóttir danskennari, hefur ofan af fyrir Úrvalsbörnunum á Majorku og hinir rómuðu fararstjórar, Kristinn R. Ólafsson og Rebekka Kristjánsdóttir, sinna þeim fuUorðnu. Við bjóðum ykkur aðeins fyrsta flokks gististaði, þjónustu, strönd og skemmtilegt frí fyrir alla fjölskylduna, á gjafverði. Það er jú okkar fag! FiRÐASKRIFSTOFAN ÚRVM - fólk sem kann sitt fag! cn > n O 5 > t_ O TO 7s > cn > n O 5 > O 73 7s > cn > n O £ > MAJORKA • SA COMA • MAJORKA • SA COMA • MAJORKA • SA COMA • >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.