Morgunblaðið - 20.05.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAI 1989
Skólalokin verði
með faglegnm hætti
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá for-
manni Skólameistarafélags ís-
lands, Ingvari Ásmundssyni.
Hollywood
opið SJO
kvöld í viku
FRA og með n.k. sunnudagskvöldi
verður veitingahúsið Hollywood opið
sjö kvöld í viku, eins og tíðkaðist
fyrir nokkrum árum síðan. Áhugi
fólks fyrir því að fara út í miðri viku
hefur aukist eftir að sala bjórs var
leyfð, segir í frétt frá veitingahúsinu.
Aðgangseyrir verður enginn.
Arneshreppur:
Vorhátíð
Árnesi, Trékyllisvík.
ÁRLEG vorhátfð Finnboga-
staðaskóla var nýlega haldin í
samkomuhúsi sveitarinnar.
Sú nýlunda var í skólastarfínu í
vetur, að bömin fóru í náms- og
kynnisferð til Reykjavíkur.
Var öllu þessu gerð skilmerkileg
skil á vorskemmtuninni.
EJ
GENGISSKRÁNING
Nr. 92 19. maí 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 55,71000 55,87000 53,03000
Slerlp. 90,12500 90,38400 89,78000
Kan. dollari 46,85500 46,98900 44,60600
t Dönsk^r. 7,26340 7,28420 7,26440
Norsk kr. 7,84760 7,87010 7,78940
Sænsk kr. 8,37870 8,40280 8,32500
Fi. mark 12,71630 12,75280 12,66840
Fr. franki 8,35390 8,37790 8,36240
Belg. franki 1,35090 1,35480 1,35110
Sv. franki 31,73730 31,82840 31,94110
Holl. gyllini 25,09180 25,16380 25,06320
V-þ. mark 28,27850 28,35970 28,27810
ít. líra 0,03885 .0,03896 0,03861
Austurr. sch. 4,02050 4,03200 4,01670
Port. escudo 0,34340 0,34430 0,34180
Sp. peseti 0,45230 0,45360 0.45570
Jap. yen 0,40115 0,40230 0,40021
írskt pund 75,62900 75,84600 75,49100
SDR (Sérst.) 70,05140 70,25260 68,78630
ECU, evr.m. 58,91610 59,08530 58,82090
Tollgengi tyrir maí er sölugengi 28. apríl.
Sjáltvirkur simsvari gengisskráningar er 62 32 70.
„Vegna frásagnar af ummælum
formanns HÍK Winciar Jóhannsdótt-
ur, á fundi HÍK, 19. þ.m. sem höfð
eru eftir henni í fjölmiðlum, vill for-
maður Skólameistarafélags íslands
taka fram eftirfarandi:
Eins og formaður HÍK veit manna
best hefur formaður Skólameistara-
félagsins beitt sér verulega fyrir
lausn umræddrar kjaradeilu.
Undirritaður hefur á fundum með
ráðherra og skólameisturum lagt
áherslu á það að skólalok, að loknu
verkfalli, yrðu með faglegum hætti
og að um það yrði haft fullt samráð
við kennara og samtök þeirra.
Annað það sem varðar skólameist-
ara og fram kemur í fréttum af
ummælum formanns HÍK telur und-
irritaður ekki svara vert.
F.h. stjórnar Skólameistarafélags
íslands _
Ingvar Ásmundsson."
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Guð-
rúnu Zoega, ritara fræðsluráðs:
„í Morgunblaðinu í gær er sagt
frá tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæð-1
isflokksins í borgarstjóm 18. maí,
sem samþykkt var með 10 atkvæð-
um gegn þremur. í tillögunni er
lýst yfir eindregnum stuðningi við
ákvörðun fræðsluráðs um að mæla
með Valgerði Selmu Guðnadóttur í
starf skólastjóra Ölduselsskóla. Enn
fremur segir að allir umsækjendur
séu hæfír til starfans, en ljóst sé
að Valgerður Selma hafi meiri
menntun og lengri starfsreynslu en
aðrir umsækjendur. Vegna þessa
óskar undirrituð, ritari fræðsluráðs,
eftir að taka fram: Af hinum þrem-
ur umsækjendum hefur Auður
Stella Þórðardóttir ótvírætt mesta
menntun. Hún hefur hins vegar
styttri starfsaldur en hinir tveir
umsækjendumir og enga reynslu
af stjórnun skóla. í borgarstjórn
snemst umræðumar eingöngu um
tvo umsækjendur, þau Valgerði
Selmu og Reyni Daníel, en af þeim
tveimur hefur Valgerður Selma
bæði meiri menntun og lengri
starfsreynslu sem yfírkennari, auk
þess sem hún hefíir gegnt starfi
skólastjóra við einn stærsta skóla
borgarinnar í eitt ár.“
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 19. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði ,
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 56,50 45,00 54,24 60,604 3.287.219
Þorskur(smár) 34,00 34,00 34,00 1,284 43.639
Ýsa 65,00 20,00 43,36 5,581 242.009
Ýsa(óst) 53,00 35,00 52,68 1,239 65.245
Karfi 29,00 26,00 26,41 1,183 31.247
Ufsi 28,50 10,00 23,90 1,615 38.609
Steinbítur 22,00 15,00 15,13 2,148 32.503
Steinbítur(óst) 15,00 15,00 15,00 0,297 4.455
Langa 13,00 13,00 13,00 0,246 3.194
Lúða 250,00 200,00 236,94 0,017 4.028
Koli 25,00 25,00 25,00 0,063 1.575
Samtals 50,54 74,277 3.753.721
Selt var úr Núpi ÞH og bátum. Á mánudag verður meðal ann-
ars selt óákveðið magn af blönduðum afla úr Stakkavík ÁR.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 45,00 30,00 41,92 10,327 432.891
Þorsk(siginn) 82,00 76,00 80,13 0,122 9.776
Ýsa 68,00 15,00 57,07 2,433 138.858
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,021 315
Ufsi 15,00 12,00 13,84 0,784 10.848
Steinbítur 12,00 12,00 12,00 0,523 6.276
Langa 12,00 12,00 12,00 0,095 1.140
Lúða(smá) 170,00 170,00 0,021 3.570
Skötuselur 90,00 90,00 90,00 0,004 360
Rauðmagi 57,00 55,00 56,00 0,104 5.824
Blandað 6,00 6,00 6,00 0,009 54
Samtals 41,15 15,363 632.160
Selt var úr handfæra- og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 55,00 30,00 46,11 9,882 455.685
Ýsa 65,00 25,00 53,60 11,104 595.192
Karfi 26,50 15,00 17,73 3,807 67.510
Ufsi 28,50 10,00 27,29 10,073 274.877
Steinbítur 20,00 15,00 16,99 2,006 34.090
Hlýri 7,00 7,00 7,00 2,890 20.230
Langa 35,00 20,00 26,53 0,620 16.450
Lúða 305,00 225,00 260,57 0,079 20.585
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,182 6.370
Keila 5,00 5,00 5,00 0,435 2.175
Skata 78,00 10,00 11,75 0,311 3.654
Skötuselur 285,00 220,00 254,21 0,019 4.830
Háfur 6,00 6,00 6,00 0,181 1.085
Samtals 36,13 41,588 1.502.733
Flækjur
ástarlífsins
í Laugarás-
bíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýninga kvikmynd sem fjallar um
þijár vinkonur í smábænum
Mystic og vandræði þeirra við að
reyna að ráða fram úr flækjum
ástarlífsins.
Með aðalhlutverk fara Annabeth
Gish, Julia Roberts og Lili Taylor.
Leikstjóri er Donald Petrie.
Hundaræktarfé-
lag íslands 20 ára
Hundaræktarfélag íslands
verður 20 ára á þessu ári og í
tilefiii afinælisársins verða haldn-
ar 2 hundasýningar, sú fyrri nú
á sunnudaginn í Reiðhöllinni í
Víðidal og sú seinni helgina 21.
og 22. október.
Dómarar á sýningunni nk. sunnu-
dag verða þær; Diane Anderson frá
Bandaríkjunum og Ebba Aalegaard
frá Danmörku.
Þær eru báðar íslenskum hundaá-
hugamönnum að góðu kunnar því
þær hafa báðar dæmt hér áður. Á
sunnudaginn verða sýndir 140 hund-
ar í tveimur dómhringjum.
Sýningin hefst klukkan 9 og dag-
skráin verður á þessa leið; Frá klukk-
an 9-11 í hring A verður íslenski
fjárhundurinn sýndur. Klukkan
11-12 verður Pug, langhundar,
Möltugrefíll, Yorkshire Terrier.
Klukkan 1-2 púðlar. Klukkan 2-3
írski seti. Klukkan 15.30.-16. verða
úrslit og verðlaunaafhending. Fjórir
bestu hundár sýningarinnar verða
valdir, einnig besti hvolpur og besti
öldungur.
í dómhring B verður enskur Coc-
ker Spaniel sýndur frá klukkan
9-9.40. Klukkan 9.40-10.15 enskur
Springer Spaniel. Klukkan 10.15-12
Golden Retriver. Klukkan 1-3 La-
brador Retriver. Klukkan 15-15.30.
verður afkvæmasýning. Klukkan
16.30-17 verða hundaleikir og
klukkan 17-17.30. verður sýnd
hundafimi (Agility).
Besta hund sýningar mun Diane
Anderson dæma en besta hvolp og
besta öldung sýningar mun Edda
Aalegaard dæma.
\
Enn stekkur
FEF-fló
Flóamarkaður Félags einstæðra
foreldra verður í dag í Skeljanesi
6 og hefst kl. 2 e.h. Þetta er næst
síðasti laugardagsmarkwaður
FEF að sinni og hefur verið mik-
il og góð aðsókn undanfarna laug-
ardaga, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá félaginu. Bætt hefiir
verið við ýmsum góðum munum
og fatabirgðir hafa verið end-
urnýjaðar að mestu.
Morgunblaðið/Bj ami
Margrét Hallgrímsdóttir við fornleifasýninguna í Viðeyjarstofu.
Munir úr upp-
greftri
sýndir í Viðeyjar-
stofii
MUNIR sem fundist hafa við forn-
leifagröft í Viðey eru nú á sýningu
í kjallara Viðeyjarstofu. Margrét
Hallgrímsdóttir fornleifafræðing-
ur hefur sett upp sýninguna og
eru elstu munirnir frá þrettándu
öld, gætu jafiivel verið allt frá
tíundu öld, að sögn Margrétar.
Alls hafa fundist um sjö þúsund
munir við uppgröftinn og eru á
sýningunni dæmigerðir munir
fyrir þá sem fundist hafa.
Meðal sýningargripa eru lyfjaglös,
beináhöld, skór, bæði ofnir og úr
skinni, matarílát og skálar af fjar-
lægum uppruna. Til dæmis er bolli
með austurlensku tákni í botni,
líklega frá sautjándu öld. Merkustu
munimir eru, að sögn Margrétar,
talnabönd, hringur frá fjórtándu eða
fímmtándu öld og Maríutákn, sem
fundust í gröf manns, sem líklegt
er að hafí verið ábóti í Viðeyjark-
laustri. Þar að auki em myndir af
vaxtöflum þeim sem fundist hafa,
en á þeim er varðveitt letur frá
fimmtándu öld á íslensku, latínu og
hollensku, kirkjulegur texti.
Uppgröfturinn er nú að hefjast
aftur eftir hlé í vetur. Grafíð er í
rústum klausturs, en Margrét segir
að svo virðist sem undir þeim séu
leifar af enn eldra bæjarstæði.
„Þetta er svona bæjarhóll, það er
að segja, húsin hafa alltaf verið
byggð á sama stað. Þama em leifar
af skála, síðan klaustur þar ofan á
og síðast yngri hús frá tímum
Skúla."
Leiksýning í Sel-
fosskirkju
NÝIR einþáttungar eftir dr. Jakob
Jónsson verða sýndir i Selfoss-
kirkju sunnudaginn 21. maí.
Einþáttungamir heita Þögnin,
Kossinn og Sjáið manninn og dregur
leiksýningin nafn sitt af síðasta
þættinum.
Leikstjóri sýningarinnar er Jakob
S. Jónsson, aðstoðarleikstjóri er Ólöf
Sverrisdóttir, tónlistina samdi Hörð-
ur Áskelsson, Snorri Sveinn Frið-
riksson hannaði leikmyndina og lýs-
ingu annaðist Ámi J. Baldvinsson.
Leikendur em þau Erlingur Gísla-
son, Þómnn Magnea Magnúsdóttir,
Anna Kristín Arngrímsdóttir og
Hákon Waage.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá kynningu íþróttasambands
fatlaðra á Lækjartorgi.
íþróttasamband
fatlaðra 10 ára
ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra
átti 10 ára afinæli á miðvikudag.
Af því tilefiii gekkst sambandið
fyrir kynningu á Lækjartorgi til
þess að vekja athygli vegfarenda
á þeim möguleikum sem fatlaðir
hafa á íþróttaiðkana, sjálfum sér
til heilsubótar.
Vegfarendum var kjmnt hvemig
er að ferðast um í hjólastól, og sýnd-
ir möguleikar þessara farartækja og
ýmsar þær hindranir sem á vegi
fólks í hjólastólum verða.
Með þessu vill íþróttasamband
fatlaðra hvetja alla sem þekkja fatl-
að fólk, sem ekki iðkar íþróttir, til
að leggja að því að snúa sér til sam-
bandsins og kynna sér þá möguleika
til heilsubótar sem þar standa til
boða.
Tónleikar í Lista-
saftii^
Sigurjóns Ólafs-
sonar
TÓNLEIKAR með verkum Jónas-
ar Tómassonar verða haldnir í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar,
sunnudaginn 21. maí klukkan 17.
Flutt verða verkin Sónata XVIII
fyrir hom, Sónata XIX fyrir bassa-
klarinett og píanó og Cantata II
fyrir söngrödd, selló, altflautu,
bassaklarinett og horn.
Flytjendur: Hrefna Eggertsdóttir
píanó, Inga Rós Ingólfsdóttir, selló,
John Speight söngur, Kjartan
Óskarsson, bassaklarinett, Þorkell
Jóelsson horn og Jónas Tómsasson
altflauta.
Vortónleikar Sel-
kórsins
Fj ölskyldudagur
Siglfirðingafé-
. lagsins
Fjölskyldudagur Siglfirðinga-
félagins í Reykjavík og nágrenni
verður í Kirkjuhvoli, Garðabæ, á
morgun, sunnudaginn 21. maí,
klukkan 15.
Eldri Siglfirðingar sérstaklega
boðnir. Ýmislegt verður til skemmt-
unar.
SELKÓRINN á Seltjarnarnesi
heldur hina árlegu vortónleika
sína fyrir styrktarfélaga og aðra
söngunnendur, sunnudaginn 21.
maí kl. 20.30 í Neskirkju.
Á efnisskrá eru bæði innlend og
erlend lög. Kórinn hefur æft lög frá
Norðurlöndunum í vetur, þar sem
hann mun halda í söngferðalag til
Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs nú
í byrjun júní. Meðal annars mun
kórinn heimsækja Höganes þar sem
fram fer vinabæjarmót, en Höganes
er einmitt vinabær Seltjamamess.
Sjómandi Selkórsins er Friðrik
Guðni Þórleikfsson.