Morgunblaðið - 20.05.1989, Síða 59
MORGUNBLAÐŒ) ÍÞRÓTTIR IAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
59
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
urinn að byvja
Þrír í banni og strangttekið á grófum leik
Á morgun hefst íslandsmótiö
í knattspyrnu með þremur
leikjum í 1. deild karla. Hinir
lelklrnir í 1. umferö fara fram
á mánudag og þriöjudag, en
18. og síðasta umferð veröur
leikin laugardaginn 16. sept-
ember.
Eins og undanfarin ár spáðu
þjálfarar, fyrirliðar og for-
menn fyrstu deildar liðanna í spil-
in um endanlega röð. Samkvæmt
skoðanakönnuninni verja íslands-
meistarar Fram titilinn, fengu 287
stig af 300 mögulegum. Vals-
menn voru ekki langt undan með
261 stig, en síðan komu KR (228),
ÍA (199), KA (198), Víkingur
(124), FH (114), Fylkir (92), Þór
(82) og ÍBK (65).
Á blaðamannafundi, sem félag
1. deildar liða stóð fyrir kom fram
að dómarar munu taka mjög
strangt á grófum leik, „við ætlum
að stöðva hann,“ sagði Ingi Jóns-
son, sem er í dómaranefnd KSÍ.
Slagurinn hefst klukkan 14 á
morgun. Þá leika KR og ÍA á
KR-velli, FH og KA í Kaplakrika
og Þór og Víkingur á Þórsvelli. Á
mánudag leika ÍBK og Valur í
Keflavík og á þriðjudag verður
viðureign Fram og Fylkis í Laug-
ardalnum.
Þrír leikmenn taka út bann i
fyrsta leik; Erlingur Kristjánsson,
KA, Óli Þór Magnússon, ÍBK, og
Sigurður Björgvinsson, KR.
Morgunblaöiö/Bjami
Ragnar Margelrsson fékk besta marktækifæri fslands og átti möguleika á að jafna, en Dave Beasant varði skot
hans utan teigs í slá.
Sem þrekæfing við
verstu aðstæður
og það seinna gerði útslagið.
Skömmu áður kom besta marktæki-
færi íslands, Ragnar Margeirsson
átti upphafíð og endinn, plataði
mótheija með einfaldri gabbhreyf-
ingu, skaut frá vítateig gegn rok-
inu, en Dave Beasant, markvörður,
náði að veija í slá og út.
Jafnræði var með liðunum án
umtalsverðrar hættu í fyrri hálfleik;
Halldór Áskelsson átti tvö langskot
framhjá, en Gary Mabbutt, fyrir-
liði, fékk hættulegasta færi mót-
heijana á 30. mínútu eftir hom frá
Paul Gascoigne, en Bjami Sigurðs-
son varði skalla hans frá markteig
í hom.
Englendingar vom ákveðnari,
unnu flest návígi, léku á stundum
vel samán, en endahnútinn vantaði
þar til f lokin.
Vöm íslenska liðsins var traust,
en gerði tvö aídrifarík mistök. I
fyrra skiptið náði Sævar Jónsson
ekki að hreinsa í fyrstu snertingu,
knötturinn barst út fyrir teig og
Hurlock skoraði með góðu skoti. I
seinna skiptið sendi Andy Mutch
knöttinn af löngu færi undan vind-
inum í átt að íslenska markinu,
vamarmennimir hikuðu, misskiln-
ingur virtist á milli Guðmundar
Hreiðarssonar og Atla Eðvaldsson-
ar og Steve Bull skoraði af stuttu
færi.
Sigi Held:
„Megum
aldrei
sofnaá
verðinum“
Siegfried Held, landsliðsþjálfari,
var ánægður með að hafa
fengið þennan leik. „Þetta var mik-
ilvægur leikur og við hefðum þurft
fleiri til að slípa af vankantana.
Við megum aldrei sofna á verðinum
og vomm minntir tvisvar á það —
bæði mörkin komu eftir mistök. En
þetta endurspeglar muninn á at-
vinnumennsku og áhugamennsku.
Áhugamenn geta gert mistök án
þess að vera refsað fyrir í inn-
byrðis viðureignum, en atvinnu-
menn nýta sér mistök mótheijanna
í ríkara mæli.
En svoha leikir em til að læra
af og vonandi læmm við af mistök-
unum. Við vitum betur við hveiju
verður að búast í Moskvu og verðum
að nýta næstu daga vel fyrir þau
átök,“ sagði Held. Hann fer í dag
til Austur-Þýskalands til að fylgjast
með leik heimamanna gegn Aust-
urríki, sem em f sama riðli og ís-
land í undankeppni HM.
Sigurður í
viðræðum
við enskt lið
Önnurfélög í myndinni
Sigurður Jónsson kom ekki
til landsins í leikinn gegn
Englendingum. Hann tilkynnti
forráðamönnum KSÍ að hann
kæmist ekki frá Englandi, en f
gær átti Sigurður viðræður við
forráðamenn ensks 1. deildarfé-
lags, sem vill kaupa hann frá
Wednesday. í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi vildi Sig-
urður ekki upplýsa um hvaða
félag væri að ræða. „Málið er á
mjög viðkvæmu stigi — það em
3-4 félög inni í myndinni hjá
mér ennþá," sagði Sigurður.
Sheffíeld Wednesday vill
halda Sigurði, og var honum
boðinn nýr samningur f fyrra-
dag. Hann neitaði honum hins
vegar strax, og sagðist ákveðinn
í að skipta um félag, eins og
áður hefur komið fram.
VART var hundi út sigandi f
Laugardalnum í gœrkvöldi
vegna kulda, úrhellis og roks,
en engu að sfður lótu tæplega
þúsund manns sig hafa það
að mæta á völlinn og fylgjast
með leikmönnunum, sem
höfðu skildum að gegna. Allir
eiga hrós skilið fyrir viljann,
nema 15-20 enskir áhorfendur,
sem höguðu sér vægast sagt
ósiðlega, einkum gagnvart
enska landsliðsmanninum Paul
Parker, sem er svartur á hör-
und, en veðrið gerði það að
verkum að landsleikurinn var
sem þrekæfing við verstu að-
stæður.
Samleikur er oft hluti af erfíðum
æfíngum og þó undarlegt megi
teljast aðstæðna vegna örlaði af og
til á spili hjá báðum liðum. Besti
kafli íslands var
Steinþór fyrri hluti seinni
Guðbjartsson hálfleiks, en heldur
skn'far dofnaði yfír mönn-
um við fyrra markið
Ísland-England
O : 2( 0:0 )
Vináttulandsleikur (knattspymu i Laug-
ardalsvelli fostudaginn 19. maí 1989.
Mörk Englands: Terry Hurlock (71.
mln.) og Andy Mutch (81. mln.).
Áhorfendur: 776.
Dómari: Kim Milton Nielsen, Danmörku.
Lfnuverðir. Ólafur Sveinsson og Gisli
Guðmundsson.
Lið íslands: Bjami Sigurðsson (Guð-
mundur Hreiðarsson 60. mfn.), Atli Eð-
valdsson, Pétur Anþórsson (Viðar Þor-
kelsson 37. min.), Agúst Már Jðnsson,
Guðmundur Torfason, Guðni Bergsson,
Gunnar Gíslason, Halldór Askeisson
(Þorvaldur örlygsson 78. mln.), Ólafur
Þórðarson, Ómar Torfason (Sævar Jóns-
son 60. min.).
Lið Englands: Stuart Naylor, Dave Be-
asant, Gary Mabbutt, Tony Mowbray,
Gary Pallister, Alan Mcleary, Tony Dor-
igo, Paul Parker, Paul Gascoigne, Paul
Allen, David Platt, Terry Hurlock Steve
Bull, Andy Mutch, Paul Stewart, Tony
Ford, Stuart Ripley, David Pearee.
KNATTSPYRNA / VINÁTTULANDSLEIKUR
■ EVERTON og Liverpool eig-
ast við í úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar í dag og hefst leikurinn
klukkan 14.00. Sjónvarpað verður
beint frá leiknum og hefst íþrótta-
dagskráin 20 mínútum fyrr, klukk-
an 13.40.
■ SÍÐAST þegar þessi lið áttust
við í úrslitaleik bikarkeppninnar,
árið 1986, sigraði Liverpooi og það
árið vann það einnig deildakeppn-
ina. Livei’pool virð-
ist einnig nú vera á
góðri leið með að
leika sama leikinn
aftur og yrði það þá
fyrst liða til að sigra tvöfalt oftar
en einu sinni.
Frá
Bob
Hennessy
íEnglandi
■ TOTTENHAM og Arsenal
eru einu liðin fyrir utan Liverpool,
sem hafa sigrað tvöfalt á þessari
öld; Tottenham árið 1961 og Arse-
nal árið 1971.
■ KENNY Dalglish, fram-
kvæmdastjóri Liverpool sagði við
blaðamenn á dögunum að lið gætu'
ekki valið sér mótheija í bikar-
keppni, en hefði Liverpool átt val
um mótheija hefði það valið Ever-
ton. „Liðið hefur lagt mikið af
mörkum til borgarinnar hér í Liver-
pool og hefur hjálpað fólki í þreng-
ingum," sagði Dalglish, sem lagt
hefur áherslu á einingu þessara
tveggja liða frá Liverpool og
áhangenda þeirra, fyrir úrslitaleik-
inn.
■ LEIDIN á Wembley hefur,
verið þymum stráð. Everton lagði
að velli West Bromwich Albion
1:0, Plymouth 4:0, Barnsley 0:1,
Wimbledon 1:0 og Norwich 1K).
Liverpool sigraði hins vegar Carl-
isle 0:3, Miliwall 0:2, Hull 2:3,
Brentford 4:0 og Nottingham
Forest 2:1.
■ EVERTON hefur flórum sinn-
um orðið bikarmeistari; 1906,1933,
1966 og 1984. Liverpool hefur
unnið bikarinn þrisvar; 1965, 1974
og 1986.
■ VEÐBANKI einn stendur
frammi fyrir því að þurfa að borga
út um eina miiljón punda, um 90
milljónir króna, ef Liverpool sigrar
bæði deild og bikarkeppni. Tals-
maður veðbankans, Graham Sharp
sagðist hins vegar vonast til að
nafni sinn Greame Sharp, einn
framheija Everton, næði að skora
nokkur mörk í leiknum í dag og
koma í veg fyrir að fyrirtækið þurfi
að greiða út þessa fjárhæð.
■ BJARTSÝNISMAÐUR einn
veðjaði 5 pundum á að Bruce Grob-
belaar, markvörður Liverpool
gerði fyrsta mark ieiksins. Líkumar
eru hins vegar manninum mjög í
óhag svo ekki sé meira sagt.
■ STEVE Nicol , sem er 27
ára, leikur sinn þriðja bikarúrslita-
leik á Wembley með Liverpool í
dag.
■ JOE Worrow, sem var aðal-
dómari á Reykjavíkurleikunum
vorið 1986, dæmir leikinn í dag.
Worrow er 43 ára og hefur dæmt
í 13 ár í ensku deildinni, og síðustu
átta árin hefur hann verið alþjóðleg-
ur dómari. „Hápunktur ferils míns
verður að dæma bikarúrslitaleikinn
í dag, en að dæma slíkan leik er
draumur allra knattspymudóm-
ara,“ sagði Worrow, sem fær 60
pund, sem er um 5400 krónur, fyr-
ir dómgæsluna í dag.
■ RONNIE Whelan fékk að vita
í búningsherberginu fýrir bikarúr-
slitaleikinn á Wembley fyrir ári að
hann yrði hvorki í byijunarliðinu
né á bekknum gegn Wimbledon,
en þá hafði hann átt við meiðsli að
stríða í þijá mánuði. Hann verður
hins vegar fyrirliði Liverpool í
leiknum í dag.
■ STEVE Staunton, sem er 17
ára, horfði á bikarúrslitaleikinn í
fyrra í sjónvarpi á írlandi. í dag
verður hann líklega í byijunarliði
Liverpool.