Morgunblaðið - 29.06.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 29.06.1989, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989 Fyrirtækjum er freklega mismunað eftirHalldór Blöndal Mikil ábyrgð fylgir því að vera fjármálaráðherra. Það sjáum við glöggt af atburðum síðustu daga. Innheimtumenn ríkissjóðs hafa gengið hart fram og stöðváð rekst- ur fyrirtækja, þar sem ríkissjóður hefur átt eða talið sig eiga kröfu um gjaldfallinn söiuskatt. Auðvitað hefur fjöldi fyrirtækjanna verið mismunandi eftir umdæmum. Sums staðar hefur innheimta söluskatts verið í föstum skorðum og ekkert tiiefni til sérstakra innheimtuað- gerða. Það er nauðsynlegt að inn- heimtumenn ríkissjóðs geri áhlaup einstaka sinnum. Það hristir upp í kerfinu og ýtir við mönnum. Fyrir- tækin innheimta söluskattinn fyrir ríkissjóð og ber að skila honum á réttum gjalddaga. Það er sjálfsagt að innheimtu söluskatts sé fylgt fast eftir, jafnt og þétt allan ársins hring. Reynslan sýnir, að þar sem það er gert, veldur innheimta sölu- skattsins ekki vandræðum, heldur gengur snurðulaust fyrir sig. Það er mikill ósiður sem hefur loðað við okkur íslendinga að vera einlægt að breyta skattalögum, fella niður eða taka upp undanþág- ur á víxl o.s.frv. Þetta veldur rétt- aróvissu, m.a. um það, hvað sé sölu- skattskylt og hvað ekki. í ljósi þessa verður að meta söluskattskröfu ríkissjóðs á hendur Hagvirkis. Það liggur engan veginn ljóst fyrir, hvort hún eigi ekki öll eða að hluta til við rök að styðjast. Þess vegna hefur hún verið til umíjöllunar í ríkisskattanefnd. Það er eðlilegt og í samræmi við venju og almenntr siðgæði að innheimtuaðgerðir bíði þess að ríkisskattanefnd felli úr- skurð. Hagvirki hefur ekki innheimt söiuskattinn, svo að það er engu að skila. Ef söluskattskrafan verður dæmd gild, fellur hún á Hagvirki sjálft en ekki Landsvirkjun eða Vegagerð ríkisins, sem Hagvirki seldi þjónustu. Það virðist hafa far- ið framhjá fjármálaráðherra eða hann látið sem vind um eyrun þjóta. Fjármálaráðherra hefur farið of- fari. Aðför hans að Hagvirki ber keim af sýndarmennsku, skrumi, — ég leyfi mér að segja valdníðslu. Það gerir hlut fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar verri en ella, að fyrirtækin eru ekki látin sitja við sama bortþað yfirlögðu ráði. Það er siðleysi. Ég nefni dæmi um þetta: 1. I áhlaupi flármálaráðherra hefur þess verið gætt, að inn- heimtuaðgerðirnar taki ekki til allra fyrirtækja jafnt. Svo er t.d. um þau fyrirtæki, sem hafa lagt mál sín fyrir ríkisskattanefnd. Það var geð- þóttaákvörðun ráðherra, hvernig með þau var farið. Önnur fyrirtæki hafa lagt umsókn inn í Hlutabréfa- sjóð eða Atvinnutryggingarsjóð út- flutningsgreina, sem eru gælusjóðir ríkisstjórnarinnar. Þau voru undan- skilin í áhlaupinu. 2. Ríkisstjórnin lét sig engu skipta lengi vel, þótt hundruð karla og kvenna misstu atvinnu sína vegna lokunar Hagvirkis af því að það er ekki „gott“ fyrirtæki að hennar dómi. Nú hefur almennings- álitið gripið í taumana1, raddirnar utan úr þjóðfélaginu, sem hafa hvolfst yfir ríkisstjórnina og krafist réttaröryggis fyrir þetta fyrirtæki „Fjármálaráðherra virðist loksins hafa tek- ið áminningri Ríkisend- urskoðunar og er það vel. Eg vona sannar- lega, að áhlaupinu verði fylgt eftir með festu í innheimtunni og að Qármálaráðherra læri af þeim alvarlegu mis- tökum, sem hann hefiir gerst sekur um.“ og þá sem þar vinna og innsiglin hafa verið rofin. Á meðan fólkið hjá Hagvirki vissi ekki hvort það háfði atvinnuna var flármálaráðherra önnum kafinn við að breyta kröfum ríkissjóðs á hend- ur öðrum fyrirtækjum í svokölluð B-hlutdeildarbréf í Hlutaijársjóði, sem eru ónytir pappírar. Eftirgjöf á kröfum ríkissjóðs með þesum eftir Hilmar Biering Ég minnist sólríkra sunnudaga þegar ég ungur drengur sat hjá foreldrum mínum í Fríkirkjunni og ég fylgdist með fiskiflugunum í gluggum kirkjunnar. Ég minnist svalra vinda þegar við vorum því fegnust að komast inn í kirkjuna um efri dyrnar hjá kórnum við Skál- holtsstíg. Ég þekkti hvern andlits- drátt þeirra sem altaristaflan sýndi og lágmyndirnar málaðar á stein- bogann fyrir framan kórinn, en þessar lágmyndir eru nú horfnar undir græna plastmáiningu. Orðin sem til okkar voru töluð hélt ég að hefðu farið fram hjá mér en eftir sat í huga mínum ef til vill ein setning eða samlíking og eitt vissi ég alltaf, ég vissi að þetta var presturinn minn að tala í kirkj- unni minni. Þegar séra Árni Sigurðsson stofnaði Kristilegt félag ungra manna Fríkirkjusafnaðarins gerðist ég stofnfélagi og félagsskírteinið mitt á ég enn. Faðir minn var virk- ur félagi í Bræðrafélagi Fríkirkju- safnaðarins en bæði þessi félög eru fyrir löngu hætt að vera til. Árin liðu en stundir gleði og sorg- ar styrktu böndin við Fríkirkjuna. Ávallt gladdi það augu mín að mynd af Fríkirkjunni skreytti um- hverfi æsku minnar við Tjörnina í Reykjavík og ávallt var í vitundinni vissan um það að kirkjan mín yrði hluti í umgjörð þessa umhverfis. En þrátt fyrir friðsælar myndir af kirkjunni að utan kom upp ólga innan safnaðarins sem fyrir rúmum þijátíu árum klauf söfnuðinn. Margt af áhugasamasta safnaðar- fólkinu sagði sig úr söfnuðinum og stofnaði nýjan söfnuð um prest sem ekki náði kosningu í prestskosning- um. Um þetta mál var helst ekki rætt nema í hálfum hljóðum, svo sorgleg þóttu tíðindin. Sagt er að sagan endurtaki sig og nú hefur sundurþykkja aftur leitt til klofnings. Ástæður þessarar Halldór Blöndal hætti skiptir verulegum fjárhæðum, — tugum milljóna, gæti numið hundrað eða hundruðum milljóna króna, þegar upp er staðið. Fjár- málaráðherra telur sig hafa ótak- markaða heimild til þess arna. 3. Fjármálaráðherra hefur sam- þykkt aukafjárveitingu til fyrirtæk- is sem á í rekstrarerfiðleikum. Á sama tíma svarar forsætisráðherra ekki bréfi frá fyrirtæki í sömu at- vinnugrein en enn önnur fyrirtæki bíða gjaldþrotaskipta. í þessu samhengi er óhjákvæmi- legt að draga fram, að ríkisstjórnin hefur með margvíslegum hætti sundurþykkju eru að séra Gunnari Björnssyni var vikið frá störfum árið 1985. Hann var endruráðinn er sættir tókust í deilum safnaðar- stjórnar og séra Gunnars. Honum var þó sagt upp störfum í annað sinn um mitt ár 1988 enda af safn- aðarstjórn taiið að hann hafi ekki staðið við þá sáttargjörð sem réð endurráðningu hans. Söfnuðurinn var klofinn í tvær fylkingar og á safnaðarfundi í Gamla bíói sl. haust töldust stuðn- ingsmenn séra Gunnars sigurvegar- ar en á aðalfundi Fríkirkjusafnaðar- ins í Háskólabíói 15. apríl sl. töld- ust stuðningsmenn safnaðarstjórn- ar sigurvegarar. En sá sem tapaði á báðum þessum fundum var söfn- uðurinn sjálfur. Sundraður kom söfnuðurinn til fundanna og sundr- aður fór hann af fundunum því grundvöllur kristninnar, kærleikur- inn, komst hvergi að. Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins kaus kjörstjórn sem stóð fyrir prestskosningum 3. og 4. júní sl. og var eini umsækjandinn, séra Cesil Haraldsson, kosinn prestur safnaðarins. Ástæður þess að hann var einn í kjöri voru þær að hann var eini umsækjandinn þegar stjórn safnaðarins auglýsti stöðuna lausa til umsóknar á síðasta ári en kjör- stjórnin lét undir höfuð leggjast að sinna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að auglýsa nú prestsstarfið laust til umsóknar. Daginn eftir aðalfundinn hitti ég í Sundlaug Vesturbæjar fríkirkju- mann sem spurði mig hvort ég væri ekki ánægður með niðurstöðu fundarins. Þegar ég sagði að mér þætti allt þetta mál hið sorglegasta leit hann á mig hvasst og spurði: „Ert þú Gunnarsmaður?" Þessari spumingu get ég ekki svarað öðru- vísi en þannig að ég er hvorki Gunn- arsmaður né Gunnarsandstæðing- ur. Séra Gunnar Björnsson hefur bæði gert hluti sem hafa hneykslað mig og hrifið mig en ég legg það ekki á vogarskálar. Macintosh fyrir byrjendur Skemmtilegt og fræöandi 5 daga námskeið um forritiö Works hefst á mánudag. Tími 16-19. Ritvinnsla, gagnasöfnun og áætlanagerö. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Greiðslukortaþjónusta Grensásvegi 16 • Sfmi 68 80 90 og sanngjarnt sumarverð Sameinum sundr- aðan söfiiuð þrengt svo kosti fyrirtækjanna í landinu, einkum í sjávarútvegi, að þau eru eitt af öðru að verða opin- berum sjóðum að bráð og þar með byggðarlögin þar sem þessi fyrir- tæki eru burðarásinn í atvinnulífinu Með því að beita gælusjóðunum á víxl, Hlutabréfasjóði og Atvinnu- tryggingarsjóði útflutningsgreina, hefur ríkisstjórninni tekist að skipu- leggja iangvinnan hallarekstur í sjávarútveginum. Það er á mæltu máli að þjóðnýta aftan frá. Eigið fé fyrirtækjanna er smátt og smátt að ganga til þurrðar og viðnáms- þróttur landsbyggðarinnar dvínar í samræmi við það. Ríkisendurskoðun hefur vakið athygli á því í skýrslum sínum til Alþingis að innheimtumál ríkissjóðs í heiid hafa ekki verið í nógu góðu horfi. Það á þó ekki við um alla innheimtumenn ríkissjóðs. Bæjar- fógetarnir á Akureyri og Isafirði þurftu t.d. ekki að grípa til neinna sérstakra aðgerða nú vegna þeirrar festu sem er á innheimtunni þar. Fjármálaráðherra virðist loksins háfa tekið áminningu Ríkisendur- skoðunar og er það vel. Ég vona sannarlega, að áhlaupinu verði fylgt eftir með festu í innheimtunni og að íjármálaráðherra læri af þeim alvarlegu mistökum, sem hann hef- ur gerst sekur um. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hilmar Biering „Sá sem tapaði á báðum þessum fundum var söftiuðurinn sjálfur. Sundraður kom söftiuð- urinn tilfundanna og sundraður fór hann af fundunum því grund- völlur kristninnar, kær- leikurinn, komst hvergi að.“ Eins og áður sagði þykir mér allt þetta mál sorglegt en ef til vill hefur séra Gunnar bent á þá einu leið sem fær er út úr þeim ógöngum sem Fríkirkjusöfnuðurinn er í þegar hann lagði til að prestar safnaðarins verði tveir. Stærð safnaðarins og það hve dreift hann býr réttlætir að tveir prestar þjóni söfnuðinum og svo virðist sem fjárhagur Fríkirkjunnar leyfi þessa lausn. Ég veit að vandamál Fríkirkjunn- ar verða ekki leyst í fjölmiðlum en ég þekki enga aðra leið til þess að vekja fólk til umhugsunar svo að leitað verði lausnar á málinu og ekki get ég horft aðgerðarlaus á sundrungu safnaðarins. Ritað mál hefur oft verið notað í sama til- gangi og því vil ég vitna til orðs Páls postula í fyrra bréfi hans til Korintumanna þegar hann hafði frétt að þrætur ættu sér stað innan safnaðarins: „En ég áminni yður, bræður, vegna nafns Drottins vors Jesú Krists, að þér mælið allir hið sama og að ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hug- arfari og í sömu skoðun." Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í safnaðarstjórn Fríkirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.