Morgunblaðið - 29.06.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.06.1989, Blaðsíða 22
22 MÖRGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989 Sovéska þingið ræðir embættaveitingar; Sex mönnum Ryzhkovs forsætisráðherra hafiiað Beint sjónvarp frá fyrstu þingfundunum olli stórfelldri framleiðslustöðvun víða um landið Reuter Handtökur við Prag-höllina Tékkneskir lögreglumenn handtóku sex pólitíska andófsmenn og misþyrmdu einum þeirra fyrir utan Prag-kastalann, embættisbústað forseta Tékkóslóvakíu. Að sögn andófsmanna reyndu félagar úr Óháðu friðarsamtökunum að afhenta Gustav Husak, forseta lands- ins, bænarskjal þar sem þess var farið á leit að fangelsaður maður sem neitaði að gegn herþjónustu yrði leystur úr haldi. Á myndinni sést Frantisek Tomasek kardínáli og leiðtogi katólsku kirkjunnar í Tékkóslóvakiu á svölum embættisbústaðar síns. í baksýn er Prag- höllin. Tomasek hefúr á undanfornum árum opinberlega gagnrýnt tékknesk sfjórnvöld fyrir mannréttindabrot og er hann einn helsti forgöngumaður aukins trúfrelsis í Austur-Evrópuríkjum. Tomasek verður níræður næstkomandi laugardag og af því tilefni munu kardínálar og biskupar hvaðanæva úr Evrópu heiðra hann í St Vit- us-dómkirkjunni í Prag. Moskvu. Reuter. ÞINGNEFNDIR Æðsta ráðs Sovétríkjanna, efri deildar þings landsins, hafa hafnað sex mönnum sem Nikolaj Ryzhkov forsætisráðherra hafði tilneftit í valdamikil embætti. Ráðherrann sagði á blaðamannafundi á þriðjudag að hann myndi tilnefna nýja menn í stöðurnar. Anatolíj Lúkjanov, varaforseti Sovétríkjanna, hefúr skýrt frá því að svo margir hafi fylgst með beinum útsendingum sjónvarps frá fyrstu fúndum fúll- trúaþingsins, neðri deildarinnar, og nýja Æðsta ráðsins fyrir skömmu að iðnaðarframleiðsla hafi minnkað um 20% í landinu. Framvegis verð- ur ekki sjónvarpað beint heldur skýrt frá helstu þingmálum í lok kvöld- fréttatíma. Ryzhkov hafði áður sagt í viðtali við flokksmálgagnið Prövdu að hann myndi beijast fyrir því að mennirnir fengju embættin en dró í land á þing- fundi Æðsta ráðsins á þriðjudag. Félagar í þingnefndunum hafa ýmist sakað mennina sex um vanhæfni eða mistök í fyrri störfum. Deilt er um stöður bankastjóra sovéska seðlabankans, æðstu yfir- menn menningarmála, olíu- og gas- iðnaðar, vatnsbúskapar og íþrótta- mála, auk fleiri embætta. Valeríj Zakharov, sem hafði gegnt stöðu JÚIyUVj/ , mi Fyrir heimilið og vinnustaðinn KX-T2135 BE — Takkasími með sjálfvirku vali — 28 minni — Inn- byggður hátalari og hljóðnemi — Handfrjáls notkun — Skjár sem sýnir klukku, valið númer, tímalengd símtals — Elti—hringing (ef símanúmer er á tali hringir síminn sjálfkrafa í næsta valið númer) — Hægt að geyma við- mælanda — Endurvalstakki fyrir síðasta númer — Styrkstillir fyrir hljóð — Púlsval, tónval — Veggfesting KX-T 2342 E — Takkasími með sjálfvirku vali og innbyggðum hátalara og hljóðnema — Handfrjáls notkun — 20 minni — 6 minni fyrir beint útval — Endurvalstakki fyrir síðasta númer — Hægt að geyma viðmælanda — Tónval, púlsval — Veggfesting KX-T 2386 BE — Takkasími með símsvara — Sjálfvirkt val — Innbyggður hljóðnemi og hátalari — 12 minni — 3 minni fyrir beint útval — Hvert móttekið skilaboð í allt að 150 sek. — Ljós í lakkaborði — Tónval, púlsval — Veggfesting. HEKLAHF Laugavegi 170-174 Sími 695500 menningarmálaráðherra í þijú ár missti embættið. Tveir menn sem tilnefndir höfðu verið í æðstu stöður landbúnaðarmála, drógu sig í hlé áður en þingnefndir höfðu lokið við að ræða tilnefningar þeirra. Annar- þeirra er Vladímír Kalashníkov að- stoðarforsætisráðherra. Enn er eftir að skipa í stöðu yfirmanns umhverf- ismála en fjórir, sem tilnefndir höfðu verið, hliðruðu sér við að takast á við starfið sem talið er verða afar erfitt viðfangs. Áhyggjur vegna um- hverfisspjalla fara vaxandi í landinu og einstakir þingmenn hafa sagt að gífurlegt áfall geti verið á næsta leiti vegna mengunar, m.a. frá kjarnorku- „Ég held að það hafi verið skyn- samlegt að draga tilnefningamar sex til baka,“ sagði Leoníd Abalkín, einn af aðstoðarforsætisráðherrum lands- ins og helsti yfirmaður efnahags- legra umbóta. „[Ryzhkov] hefði get- að valið heppilegri menn í embættin." Sendiherra Sovétríkjanna í Kabúl: Vilja stöðva vopnasend- ingar til Afganistans Kabúl, Islamabad. Reuter. JULI Vorontsov, sendiherra Sovétríkjanna í Kabúl, sagði á þriðjudag að Sovétmenn væru tilbúnir til samninga við Bandaríkjamenn er skuld- bindu risaveldin til að hætta vopnasendingum til deiluaðila í Afganistan. Vorontsov, sem jafnframt er fyrsti sendingar til Afganistans gæti það aðstoðarutanríkisráðherra Sovétríkj- anna, sagði að Sovétmenn myndu leggja til að risaveldin geri samninga af þessu tagi er fulltrúar þeirra hitt- ast til viðræðna um málefni Afgan- istans í Moskvu 31. júlí og 1. ágúst nk. „Samningar af þessu tagi eru mjög góð leið til að binda enda á bardaga í Afganistan. Þeir myndu stöðvast nær samstundis," sagði Vorontsov. Hann sagði stríðsaðila eiga auðvelt með að verða sér út um vopn. Vorontsov sagði að skæruliðar fengju vopn frá Pakistan og Banda- rílq'unum og hefði enginn hörgull verið á þeim hingað til. Hann sagði að næðu risaveldin samkomulagi um að stöðva vopna- komið í hlut Sameinuðu þjóðanna að hafa eftirlit með því. Talsmenn afganskra skæruliða sögðu í gær að þeir hefðu komist að samkomulagi við sovéska sendi- nefnd á mánudag um að leyfa starfs- mönnum Rauða krossins að vitja stríðsfanga sem eru í haldi í Afgan- istan. Þeir segja að um 40.000 skæruliðar séu í haldi Sovétmanna og afganska stjómarhersins. Þeir sögðu jafnframt að sovéska sendinefndin hefði fallist á kröfur skæruiiða um að fangaskipti yrðu höfð. í yfirlýsingu frá sovéska sendi- ráðinu í Kabúl segir að hafnar verði viðræður við Kabúlstjómina um fangaskipti. Un^verjaland: Ferðafrelsi aukið Búdapest. Reuter. UNGVERSKA sljórnin hefur í undirbúningi lög sem munu af- nema nær alveg hömlur á ferða- frelsi og verður löggjöfin með svipuðu sniði og í vestrænum lýð- ræðisríkjum. Tekið verður mið af ákvæðum Mannréttindayfirlýsing- ar Sameinuðu þjóðanna og ákvæð- um Helsinki-samþykktarinnar. Lögin eiga að taka gildi 1. janúar næstkomandi. Undanþegnir ferðafrelsi verða fangar og ákærðir í sakamálum, fólk sem skuldar opinber gjöld, herskyldir karlar, böm undir lögaldri og þeir sem hafa aðra á framfæri sínu og loks, í sumum tilvikum, þeir sem búa yfír hemaðar-og ríkisleyndarmálum. Þeir síðastnefndu geta þó skotið málum sínum til dómstóla og ekki má halda þeim lengur í landi en fimm ár. Ungveijum, sem flúið hafa landið, verður nú leyft að setjast að án þess að skilyrðið sé að þeir gerist ung- verskir ríkisborgarar. „Við lítum á réttinn til að flytjast úr landi sem mannréttindi," sagði Peter Timoranszky, talsmaður dóms- málaráðuneytisins í Búdapest. Hann vísaði því á bug að lögin yrðu sett til að þess eins að landið fengi bestu möguleg viðskiptakjör í Bandaríkjun- um er setja ferðafrelsi sem skilyrði fyrir slíkum kjörum. „Það er að vísu mikilvægt fyrir Ungveijaland en við teljum að líklegur missir fjölmargra hæfra og velmenntaðra einstaklinga úr landi muni skaða okkur svo mikið að ágóðinn af betri viðskiptakjörum dugi í mesta lagi til að vinna það tap upp,“ sagði Timoranszky. Grikkland: Kommúnistar reyna stjórn- armyndun Aþenu. Rcutcr. LEIÐTOGAR kommúnista fengu í gær umboð til stjórnarmyndunar en á þriðjudag höfnuðu þeir til- boði Andreas Papandreous, starf- andi forsætisráðherra, um að mynda sljóm með flokki hans. Kommúnistar hafa lýst því yfir að þeir vilji helst mynda þjóðstjórn sem starfi á breiðum grundvelli. Þeir munu nota stjórnarmyndunarumboð sitt til þess að ræða við fulltrúa frá báðum stóru flokkunum, Hellensku sósíalistahreyfingunni og Nýja lýð- ræðisflokknum. Takist Harilaos Florakis, leiðtoga kommúnista ekki að mynda stjórn mun forseti Grikklands, Christos Sartzetakis, reyna að mynda þjóð- stjórn eins og gríska stjórnarskráin býður. Takist honum það ekki heldur verður efnt til nýrra kosninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.