Morgunblaðið - 29.06.1989, Side 24

Morgunblaðið - 29.06.1989, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989 afsláttur veittur af öllum vorum S> 68 5168. Hjólað í vinnu Nokkrir Lundúnabúar fóru á sjóskiðum niður ána Thames eða drógu fram hjólaskauta eða reiðhjól til að komast til vinnu I gær. Starfsmenn bresku járnbrautanna voru þá í sólarhringsverkfalli til að knýja á um launahækkanir en þeir hafa hafiiað tilboði ríkissljórnarinnar um 7% launahækkun. Áhrifa verkfallsins gætti ekki jafii mikið í gær og í síðustu viku þegar strætisvagnabílsljórar og sljórnendur neðanjárnbrautalestanna fóru í verkfall á sama tíma. Sovétríkin: Njósnarinn Glenn Souther var ekki rússneskur að þjóðerni - heldur fæddur í bænum Hammond í Indiana í Bandríkjunum Moskvu. Reuter. VLADÍMÍR Kryútskov, foringi í KGB, sovésku leyniþjónustunni, sagði í gær, að njósnarinn Glenn Souther hefði verið borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum en ýmsir höfðu getið sér til, að hann hefði verið rúss- neskur en verið „komið fyrir“ vestra á unglingsaldri. Sagði Kryútskov einnig, að Souther hefði svipt sig lífi sökum sálrænna vandamála. f Bandaríkjunum hefiir verið frá því skýrt, að hann hafi verið fæddur í bænum Hammond í Indiana. Kryútskov sagði á fundi með er- lendum blaðamönnum, að Souther hefði sjálfur tekið sér nafnið Míkhaíl Orlov en vegna þess, að það var notað í minningargrein um hann á þriðjudag í blaðinu Krasnaja Zvezda, ályktuðu sumir sem svo, að hann væri af rússneskum ættum. Aðstoðarlögreglusljórinn á eyj- unni Grenada í Karíbahafi myrti í gær bandarískan stjómarerind- reka og yfirmann sinn, lögreglu- stjórann. Að því búnu svipti mað- urinn sig lífi, að sögn talsmanns bandariska utanríkisráðuneytis- ins. Embættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafiis síns getið, sagði að Bandaríkjamaðurinn látni hefði verið John Butler sem starf- aði í bandaríska sendiráðinu á Grenada. „Hann var Bandaríkjamaður, líklega fæddur í Indiana," sagði Kry- útskov og bætti því við, að Souther hefði látið eftir sig rússneska eigin- konu og 18 mánaða gamla dóttur. „Hann svipti sig ekki lífi af pólitísk- um ástæðum. Hann var vel gefinn en mjög viðkvæmur og hafði lengi Embættismaðurinn sagði að at- burðurinn hefði gerst miðmorguns á heimili lögreglustjórans. Butler var þar á fundi með lögreglustjóranum þegar aðstoðarlögreglustjórinn greip til byssu sinnar og skaut Butler og lögreglustjórann til bana. Að því búnu beindi hann byssunni að höfði sér og hleypti af. Embættismaðurinn sagði að ekki virtist sem pólitískar ástæður lægju að baki ódæðisverkunum. átt andlega erfíðleika að etja. Engum verður um kennt hvernig fór.“ Souther, sem starfaði fyrir banda- rísku leyniþjónustuna, lét sig hverfa fyrir þremur árum þegar FBI, banda- ríska leyniþjónustan, var tekin að beina sjónum sínum að honum en það var ekki fyrr en í júlí í fyrra, að Sovétmenn upplýstu, að hann væri í Moskvu. Sagði Kryútskov, að Souther hefði gengið KGB á hönd. „nokkrum árum“ fyrr. I viðtali við sovéska sjónvárpið í fyrra sagði Souther, að hann hefði farið til Sovétríkjanna vegna andúðar sinnar á framkomu Bandaríkja- manna við aðrar þjóðir. Sagði Kry- útskov, að móðir Southers og aðrir ættingjar hefðu verið við útförina í Moskvu en síðan haldið aftur heim til Bandaríkjanna. Souther var graf- inn í Kúntsevo-kirkjugarðinum í Moskvu, þeim hluta hans, sem er ætlaður hermönnum, og hvílir skammt frá breska stómjósnaranum Kim Philby, sem lést í Moskvu fyrir ári. James Bawden, aðstoðarskóla- stjóri í Munster-framhaldsskólanum í samnefndum bæ skammt frá Chicago í Indiana, sagði í gær, að Souther hefði fæðst í Hammond þar í ríkinu en gengið í skólann í Munst- er. Sagði Bawden, að Souther hefði í flesta staði virst vera eðlilegur ungl- ingur. Grenada: Sendiráðsmaður myrtur Washington. Reuter. Læknisfræði: Er léttum ungabörnum hættara við hjartveiki? Lundúnum. Daily Telegraph. RANNSÓKN sem gerð var í Bretlandi bendir til þess að þyngd ungabarna við eins árs aldur hafi áhrif á það hvort þau verði hjartveik síðar á ævinni. David Barker er yfirmaður stofnunar sem rannsakar tengsl ýmissa þátta sem ákvarða tíðni og dreifingu sjúkdóma. Hann stjómaði rannsókn á fæðingar- skýrslum 5.600 manna, fæddum um 1920. Niðurstöður hennar benda til þess að þrisvar sinnum meiri líkur séu á því að þau börn sem voru léttust við eins árs ald- ur verði hjartveik síðar á ævinni, heldur en þau sem þyngri voru. Einnig kom í ljós að þeir sem töldust til áhættuhópsins fædd- ust yfirleitt í borgum. „Þetta bendir til þess að við verðum að gæta þess vel að ungböm þyng- ist eðlilega, ef við viljum minnka tíðni hjartasjúkdóma hjá kom- andi kynslóðum. Þótt reykingar, mataræði og hreyfing hafi mikil áhrif þá gæti þroski í barnæsku verið stærsti þátturinn sem hefur áhrif á dauðsföll af völdum hjartasjúkdóma," sagði Barker. Sérfræðingar í hjartasjúk- dómum segja þó, að jafn vel þótt niðurstöður úr rannsókn Barkers yrðu staðfestar, þá þýði það ekki að beint orsakasamband sé á milli þyngdar í bamæsku og hjartasjúkdóma. Þeir þættir sem orsaki litla þyngdaraukn- ingu barna geti t.d. lagt grann- inn að hjartasjúkdómum. Dr. Frank Preston hjá bresku hjarta- verndarsamtökunum telur að lífsstíll og fæðuvenjur foreldr- anna geti einnig haft mikið að segja. Honum fannst kenning Barkers áhugaverð, en meiri upplýsingar um aðstæður þeirra barna sem vora óeðlilega létt væra nauðsynlegar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.