Morgunblaðið - 29.06.1989, Page 52

Morgunblaðið - 29.06.1989, Page 52
VEIÐIHJÓL OG STANGIR SAGA CLASS Fyrir þá sern eru aðeins á undan i-.. - FLUGLEIDIR FIMMTUDAGUR 29. JUNI 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Sölustofinun lagmetis: Aldi kaupir rækju fyrir 230 millj. SÖLUSTOFNUN lagmetis hef- ur gert nýjan samning við Vest- ur-Þýzku verzlanakeðjuna Aldi Nord um sölu á niðursoðinni rækju að verðmæti um 230 milljónir króna. Samningurinn tekur gildi í ágúst næstkomandi og nær yfir 12 mánaða tímabil. Morgunblaðið náði ekki sam- bandi við framkvæmdastjóra SL í gærkvöldi, en fékk fréttina stað- festa eftir öðrum leiðum. Niður- suðuverksmjðjan á ísafirði og K. Jónsson og Co. á Akureyri munu vinna rækjuna upp í þessa samn- inga. Viðskipti við Aldi Nord lögð- ust aldrei alveg af, þrátt fyrir andóf Grænfriðinga. Rækja var áfram seld þangað en undir breyttu nafni, Nordmeer í stað Eismeer. Engin sala hefur hins vegar verið til Aldi Sud eftir mót- mæli Grænfriðunga. Farmenn boða yfirvinnubann SLITNAÐ er upp úr viðræðum Sjómannafélags Reykjavíkur við kaupskipaútgerðirnar um nýja kjarasamninga í kjölfar þess að samningar voru felldir í almennri atkvæðagreiðslu í félaginu. Hef- ur félagið boðað til yfirvinnu- banns frá og með miðvikudegin- um 5. júlí næstkomandi hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Eftir að yfirvinnubannið tekur gildi verður öll vinna háseta í heimahöfn og höfnum erlendis á tímabiiinu frá klukkan 17 til klukk- an 8 að morgni óheimil. Kjaradeil- unni hefur ekki formlega verið vísað til ríkissáttasemjara, en þess er vænst að hún komi nú til kasta hans. ROIÐA RAUÐAVATNI Morgunblaoio/fciinar ralur Ný tilhögun Fljótsdalsvirkjunar gerir hana mun hagstæðari: Jarðgöng í stað skurða lækka kostnaðinn imi þrjá milljarða Hefla þarf undirbúning strax ef virlgunin á að nýtast nýrri stóriðju BREYTT fyrirkomulag á Fljóts- dalsvirkjun, þar sem jarðgöng kæmu í stað aðveituskurða, gerði virkjunina eina þá hagstæðustu sem völ er á miðað við fullnægj- andi markað, að mati verkfræði- deildar Landsvirkjunar. Verktakafyrirtækið Krafttak sf., sem unnið hefur að jarðgöngum við Blönduvirkjun og gegnum Óiafs- fjarðarmúla, lagði áætlun um þessa nýju tilhögun Fljótsdalsvirkjunar fyrir Landsvirkjun í vor. Upphafleg hönnun miðaði við 26 kílómetra Stórfelld uppbygging flugstjórnarkerfísins: Fjárfestíagar fyrir um milljarð á næstu árum UNDIRRITAÐUR hefur verið verksamningur að upphæð 4,3 milljónir dollara milli Flugmála- stjórnar og kanadíska fyrirtæk- isins Canadian Aviation Eiec- tronics Ltd. vegna uppbygginar fyrsta hluta tölvukerfis fyrir flugstjómarmiðstöðina í Reykjavík. Pétur Einarsson flug- málastjóri segir að á næstu ámm sé framundan stórfelld upp- bygging íslenska flugstjórnar- kerfisins og áætlar hann að var- ið verði til þessa 15-20 milljónum dollara eða 873-1.164 milljónum króna. Alþjóðlegt fjármagn stendur straum af þessum kostn- aði. . Pétur Einarsson sagði að verk- samningurinn sé mesta fjárfesting frá upphafi vega í flugstjórninni. Tölvukerfið, sem hlotið hefur heitið „Fluggagnakerfi", er afar um- fangsmikið og vinnur á sjálfvirkan hátt úr upplýsingum um flugvélar á öllu flugstjórnarsvæði Reykjavík- ur. Svæðið er annað eða þriðja stærsta flugstjórnarsvæði heims, um 4,8 milljónir ferkilómetrar að stærð og nær yfir stóran hluta N-Atlantshafsins. „Fluggagnakerfið“ er fyrsti áfanginn í stórfelldri uppbyggingu flugstjórnarkerfísins. A næstu árum mun flugstjórnarmiðstöðin síðan tengjast hinum nýju ratsjár- stöðvum hérlendis auk stöðva í Færeyjum og á Grænlandi. Auk þess er hafinn undirbúningur að notkun gerfihnattaupplýsinga um flugumferð á svæðinu og er það verk unnið í nánu samstarfi við bandarísku flugmálastjómina FAA. „Með þessum breytingum getum við minnkað aðskilnað milli flug- véla á ferð um svæðið samhliða því að öryggi er aukið. Þannig getum við sinnt meiri fjölda véla á svæðinu," segir Pétur Einarsson. Verksamningurinn sem gerður hefur verið er einn stærsti samn- ingur um vél- og hugbúnað hér á landi og gert er ráð fyrir hlutdeild íslensks fyrirtækis í hönnun hans. Kostnaður vegna hans greiðist af flugumferð sém fer um flugstjórn- arsvæðið samkvæmt samkomulagi íslendinga við Alþjóðaflugmála- stofnunina. í máli Péturs kemur fram að með tilkomu þessa verkefnis og þess sem fylgir í kjölfarið verða Islendingar með búnað á borð við þá bestu í heiminum og mun þessi tækniþróun tryggja áframhaldandi rekstur íslendinga á alþjóðaflug- þjónustunni fyrir flug yfir N-Atl- antshafið næstu áratugina. langan aðrennslisskurð, en Krafttak gerir ráð fyrir jafn löngum'jarð- göngum. Verkfræðideild Landsvirkjunar hefur unnið að mati á hagkvæmni jarðgangaleiðarinnar og notið við það ráðgjafar Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen hf. og Electrowatt í Ziirich. Ér það samdóma álit þess- ara aðila að jarðgangavirkjun í Fljótsdal sé íjárhagslega hagkvæm. Siík virkjun væri bæði mun ódýrari og fljótbyggðari, svo munar 1-2 árum, og hefjist undirbúningur nú þegar væri hægt að ljúka virkjun- inni árið 1993. Ráðgjafarnir telja að slík virkjun muni kosta um 14.789 milljónir á verðlagi í desember 1988, miðað við 240 megawatta virkjun. Væri skurð- leiðin farin, gæti aflið orðið 252 MW en þá myndi virkjunin kosta um 17.940 milljónir króna. Til samanburðar má nefna, að Blönduvirkjun er 150 MW og kostar um 11.000 milljónir króna. Sparnaðurinn kemur meðal ann- ars fram í því að hægt er að vinna við gerð jarðganganna allt árið en aðeins væri hægt að vinna við skurð- ina á sumrin. Að auki yrðu ísvanda- mál ekki til staðar. Ekki hefur verið teKÍn endanieg ákvörðun hvort af byggingu Fljóts- dalsvirkjunar verður. En Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjun- ar sagði við Morgunblaðið að verið væri að kanna hvort ráðlagt sé að leggja í kostnað við ýmis konar und- irbúning fyrir virkjunina, svo sem endanlega hönnun virkjunarinnar og gerð útboðsgagna, til að vera við- búnir ef ákvörðun verður tekin um stóriðju. „I haust má vænta þess að línur fari að skýrast varðandi Atlantal- verkefnið, og ákvörðun liggi fyrir um hvort byggt verði nýtt 185 þús- und tonna álver, sem taki til starfa 1992-93, eða hvort álverið í Straumsvík verður stækkað um 120 þúsund tonn. 1 báðum tilfellum er gert ráð fyr- ir að Búrfellsvirkjun verði stækkuð, en viðbótarorku þurfi til. Verði bygg- ing nýs álvers fyrir valinu kemur Fljótsdalsvirkjun betur inn í myndina en ef aðeins verður ákveðið að stækka ísal,“ sagði Halldór. Hann bætti við að ljúka þyrfti Fljótsdalsvirkjun árið 1993, svo hún gæti nýst þessum valkostum. „Það er mögulegt, ef miðað er við jarð- gangaleiðina, en til þess að svo megi verða þarf að hefja undirbún- ing nú þegar. Annars er viðbúið að Fljótsdalsvirkjun verði úr sögunni sem orkugjafi í Atlantalverkefninu," sagði Halldór Jónatansson. Farsóttir: 830 með kvef í maímánuði í MAÍMÁNUÐI leituðu 830 manns læknis í Reykjavíkurumdæmi vegna kvefs og annarra veirusýk- inga í efri loftvegum, samkvæmt skýrslum Læknavaktarinnar sf. og fjiigurra lækna. Af öðrum far- sóttartilfellum má nefna 63 sem fengu lungnabólgu og 78 sem. fengu iðrakvef, en 14 voru með inflúensu. Tveir fengu einkirningasótt, sjö hálsbólgu af völdum sýkla (skarlats- sótt), fjórir hlaupabólu og tveir maurakláða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.