Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
Odin Air kaupir
tvær skrúfiiþotur
Tryggir sér forkaupsrétt að þeirri þriðju
ODIN Air, flugfélag Helga Jónssonar, hefur fest kaup á tveimur
skrúfuþotum af gerðinni Jet- stream og tryggt sér forkaupsrétt að
þeirri þriðju. Jetstream-vélarnar taka allt að 18 farþega og koma í
stað tveggja Mitsubishi-skrúfuþotna sem félagið hefiur hingað til
notað í áætlunar- og leiguflugi sínu. Að sögn Helga Jónssonar hafa
Mitsubishi-vélarnar reynst ákaflega vel, en þar sem þær taka aðeins
9 farþega anna þær ekki lengur flutningum félagsins. Þykir nú hag-
kvæmari kostur að skipta yfir í stærri vélar en að bæta við fleiri
smærri vélum.
Jetstream-skrúfuþotumar eru
framleiddar í Bretlandi af British
Aerospace-verksmiðjunum, en Odin
Air kaupir þessar vélar lítið notaðar
af bandarísku flugfélagi. Helgi seg-
ir að Jetstrem-vélamar þyki mjög
hagkvæmar og ömggar og hafi þær
Fangaprestur
fær aftur að
hitta fangana
FANGAPRESTI þjóðkirkjunnar
er nú á ný heimilt að hitta gæzlu-
fanga í Síðumúlafangelsinu, sem
þar sitja vegna rannsóknar um-
fangsmikils fikniefnamáls. í gær
sendi ríkissaksóknari lögreglu-
stjóra bréf, þar sem hann segist
ekki sjá ástæðu til rannsóknar í
máli prestsins.
Grunur hafði vaknað hjá ránn-
sóknaraðilum um að presturinn
bæri boð á milli fanganna, sem
tengdust málinu. Sakadómur í
ávana- og fíkniefnamálum úrskurð-
aði að prestinum væri óheimilt að
hitta fangana, en sá úrskurður var
skilyrtur með þeim hætti, að sæi
ríkissaksóknari ekki ástæðu til að
rannsaka málið, félli bannið niður.
Fangapresturinn kærði úrskurð
sakadómsins á sínum tíma til
Hæstaréttar, en hefur nú fallið frá
kæmnni þar sem bannið er úr gildi
fallið.
nú um 40% markaðshlutdeild í
heiminum í sínum stærðarflokki.
Odin Air tekur formlega við vél-
unum í næstu viku en áætlað er
að þær verði teknar í notkun í sept-
ember nk. eftir breytingar og þjálf-
un flugmanna sem mun fara fram
í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Flugrekstur Helga Jónssonar á 25
ára afmæli um þessar mundir, en
hann hóf flugkennslu í maí 1964.
Auk umfangsmikillar flugkennslu
hefur Helgi haldið uppi áætlunar-
flugi milli Reylqavíkur og Kulusuk
á austurströnd Grænlands undan-
farin fimm ár. Flugrekstrarleyfið
hefur nýlega verið endumýjað til
fimm ára.
Að sögn Helga lentu flugvélar
félagsins á Grænlandi að meðaltali
á 36 klukkustunda fresti á síðast-
liðnu ári, en auk þess hefur félagið
stundað umfangsmikið leiguflug
innanlands og milli landa. Segir
hann að mikil aukning hafi orðið í
flutningum frá síðasta ári og bókan-
ir ferðaskrifstofa fyrir árið 1990
séu nú það miklar að hagkvæmt
hafi verið talið að auka sætafram-
boð verulega.
Morgunblaðið/Sverrir
Á myndinni sést Ómar Kristinsson forstjóri leika fyrsta leikinn
fyrir Margeir Pétursson í fyrstu skák hans við Jón L. Ámason
um Islandsmeistaratitilinn á sunnudagskvöld.
Einvígið um skákmeistaratitilinn:
Jón L. vann fyrstu skák-
ina - jafhtefli í annarri
JÓN L. Árnason vann á sunnudag fyrstu skákina í einvígi þeirra
Margeirs Péturssonar um Islandsmeistaratitilinn í skák 1988. í
gærkvöldi sömdu stórmeistaramir síðan um jafntefli eftir 22 leiki.
Einvígið hófst á sunnudaginn í
húsnæði Útsýnar hf. í Mjóddinni,
og stýrði Jón L. svörtu mönnun-
um. Upp kom nimzo-indversk
vörn. í 18. leik lék Margeir af sér
peði og fékk um leið verri stöðu.
Hann lét þá af hendi drottningu
sína fyrir hrók og biskup, í von
um að fá gagnfæri, en það kom
fyrir lítið og hann lagði niður
vopnin í 31. leik.
Önnur skákin var tefld í gær-
kvöldi, og fór hún rólega af stað
með drekaafbrigði Sikileyjarvarn-
ar. Síðan urðu mikil uppskipti og
sömdu stórmeistaramir um jafn-
tefli eftir 22 leiki.
Alls verða skákirnar fjórar,
nema skákmennirnir verði jafnir
að stigum. 3. og 4. skákin verða
tefldar á miðvikudag og fimmtu-
dag.
Árbæjarhverfi og
Aðventkirkjan:
Pömpiltar
ollu mikl-
um skaða
LÖGREGLAN stóð þijá stráka að
verki upp úr hádegi á sunnudag
þar sem þeir gengu berserksgang
í Árbæjarhverfi og höfðu valdið
tölúverðum skemmdum. Pörupilt-
arnir eru ekki úr hverfinu, en
höfðu setið að drykkju í nálægu
húsi og voru mikið ölvaðir. Þeir
eru sextán og sautján ára gamlir.
Strákarnir byijuðu á því að bijóta
niður snúrustaur við Hábæ. Þá sneru
þeir sér að bifreiðum í hverfinu, brutu
rúðu í einni og komust inn í tvær
aðrar og stálu peningaveski og
hljómtækjum. Næst skeyttu þeir
skapi sínu á Árbæjarskóla, þar sem
þeir brutu fímm rúður, og eina rúðu
brutu þeir í kirkjunni.
Skemmdarvargarnir voru færðir á
lögreglustöðina. Að því búnu var einn
þeirra vistaður á Unglingaheimili
ríkisins vegna þess að enginn var
heima hjá honum til að sækja hann.
Foreldrar annars sóttu soninn, en
þeim þriðja var komið til frænku
sinnar.
Fleiri skemmdarvargar voru á
ferðinni um helgina, og voru rúðu-
brot á 13 stöðum tilkynnt lögregl-
unni. Stórtækastir voru tveir menn
komnir af barnsaldri, 23 og 22 ára,
sem brutu 23 rúður í Aðventkirkj-
unni en voru gripnir er þeir hlupu á
brott. Þeir höfðu verið að drekka
íslenzkt brennivín á vínveitingastað
og bar annar fyrir sig minnisleysi
um gerðir sínar eftir það. Hinn ját-
aði verknaðinn. Tugþúsunda tjón
varð af þessari iðju þeirra.
Skákmótið í Belfort:
Karl og Gov-
edari efstir
SKÁKMAÐURINN Karl
Þorsteins deildi efsta sæti
alþjóðlega skákmótsins í
Belfort með Júgóslavan-
um Govedari. Fengu þeir
?/2 vinning af 9 möguleg-
um.
Karl teflir nú á sterku al-
þjóðlegu móti í Frakklandi,
og bar þar sigurorð af and-
stæðingi sínum í fyrstu um-
ferð.
Fhigfreyjur Flugleiða boða
til tveggja daga verkfalls
FLUGFREYJUR hjá Flugleiðum
hafa boðað tveggja daga verkfall
á þriðjudag og miðvikudag í næstu
viku takist ekki samningar fyrir
þann tíma. Verkfallið myndi hafa
alvarleg áhrif að sögn Einars Sig-
urðssonar blaðafúlltrúa Flugleiða.
Sigurlín Scheving sem situr í
stjórn Flugfreyjufélagsins kveðst
vona í lengstu lög að til verkfalls
þurfi ekki að koma. Sáttaiúndur
hefúr verið boðaður hjá ríkissátta-
semjara næstkomandi fimmtudag.
Samningaviðræður Flugleiða og
flugfreyja hafa staðið frá apríllokum,
en þeim var vísað til sáttasemjara í
júní. Sigurlín segir að Flugleiðamenn
hafí slitið síðasta samningafundi á
laugardaginn var og daginn eftir
hafí trúnaðarráð og stjórn Fiug-
freyjufélagsins ákveðið að boða til
verkfallsins.
„Mér virðist okkur hafa verið boð-
in um 18% launahækkun, hluti henn-
ar á næsta ári, sem er svipað og flug-
virkjar hafa fengið," segir Sigurlín.
„Við viljum taka þessu, en gerum
auk þess kröfur um tilfærslur milli
launaflokka og 4% álagsgreiðslur
vegna aukinnar vinnu um borð, aðal-
lega vegna meiri þjónustu en verið
hefur á Saga-class.“
Sigurlín segir að samningaviðræð-
ur strandi nú á þessum álagsgreiðsl-
um, en Einar Sigurðsson blaðafull-
trúi Flugleiða segir að Flugleiðamenn
telji fleiri atriði bera í milli. Þá segir
hann að þegar hafí verið gengið
lengra í samkomulagsátt en talið
hafi verið unnt í upphafí. Flugleiða-
menn telji sig hafa boðið flugfreyjum
meiri hækkun en sem nemur 18%.
Einar segir að reynt verði að semja
í vikunni. Ef til verkfalls komi valdi
það mjög verulegri röskun í flugi.
Nú sé háannatími og verkfall yrði
slæmt fyrir félagið fjárhagslega,
geti jafnvel haft áhrif á erlenda
markaði. í gærdag hafí verið leitað
leiða til að mæta verkfalli flugfreyja,
en ekki sé. fullljóst til hvaða aðgerða
verði gripið ef til komi.
Una Sigurðardóttir, yfírflugfreyja
hjá Arnarflugi, segir að samningar
Flugfreyjufélagsins við Arnarflug
markist að einhveiju leyti af Flug-
leiðasamningunum. Flugfreyjur Arn-
arflugs bíði því átekta, en yfirleitt
hafí gengið vel að semja við félagið.
Úthlutun húsnæðismálastjórnar til félagslegra íbúða:
Sé ekki ástæðu til gagnrýni
- segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að ef litið sé á
úthlutanir húsnæðismálastofnunar til félagslegra íbúða á síðustu
tveimur árum, geti landsbyggðin sæmilega við unað. Jóhanna mun
skoða málið nánar, að ósk Alþýðuflokksins, en segir það ekki á vald-
sviði ráðherra að gagnrýna ákvörðun húsnæðismálasljómar.
Þingflokkur Alþýðuflokksins hélt
fund í gær um þá ákvörðun stjórn-
ar Húsnæðismálastofnunar að af
um 2.500 milljónum, sem úthlutað
var til byggingu félagslegra íbúða,
renni um 77% til íbúðabygginga á
höfuðborgarsvæðinu.
Þessi úthlutun hefur verið gagn-
rýnd af sveitastjórnarmönnum víða
um land. Sighvatur Björgvinsson
þingmaður Alþýðuflokksins hefur
einnig gagnrýnt hana harðlega op-
inberlega.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði við
Morgunblaðið, eftir þingflokks-
fundinn, að úthlutunarvaldið væri
í höndum Húsnæðismálastjómar og
ekki þyrfti að bera ákvarðanir henn-
ar undir félagsmálaráðherra til
staðfestingar.
„í húsnæðismálastjóm eiga sæti
fulltrúar allra stjómmálaflokka og
aðilar vinnumarkaðarins. Þeir stóðu
einhuga að þessari- afgreiðslu og
ég hef ekki séð neina ástæðu til
þess, miðað við það sem ég hef
skoðað, að gagnrýna þessa úthlut-
un, enda er það ekki á valdsviði
ráðherra að gera slíkt,“ sagði Jó-
hanna.
Hún benti á, að úthlutað hafí
verið til byggingar 1.400 félags-
legra íbúða á síðustu tveimur ámm,
sem væri meira en á átta ámm þar
á undan. Á síðasta ári hefði hlutur
Iandsbyggðarinnar verið allgóður,
því þá hefði 60% úthlutunarinnar
farið út á landsbyggðina. Og af 200
kaupleigufbúðum, sem úthlutað
hefði verið á síðasta ári, hefðu 190
-farið-út-á land. -...............
„Ef litið er á þessi tvö ár í heild,
held ég að landsbyggðin geti sæmi-
lega vel við unað. Ég vil einnig
benda á það, að biðlistar eftir fé-
lagslegum íbúðum em hvergi lengri
en á höfuðborgarsvæðinu; það em
12 manns um hveija íbúð sem til
er,“ sagði Jóhanna.
Þegar Sighvatur Björgvinsson
var spurður hvort tekið hefði verið
undir hans sjónarmið á þingflokks-
fundinum, sagði hann aðeins að
málið hefði verið rætt og félags-
málaráðherra væri að skoða málið.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, gaf sömu
svör að þingflokksfundinum lokn-
■ um,-............................
Vanskil á kvóta-
skýrslum:
15 bátar missa
veiðileyfið í
sólarhring
Sjávarútvegsráðuneytið svipti
í gærdag fimmtán báta veiðileyf-
um sínum timabundið vegna van-
skila á kvótaskýrslum. Flestir
bátanna hafa þegar bætt ráð sitt
og var þeim frjálst að halda til
veiða að nýju í morgun, en að
sögn Jóns B. Jónassonar, skrif-
stofústjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu, var fyrirhuguð viku-
svipting milduð í sólahringssvipt-
ingu í gær. Þeir aðilar sem svipt-
ir voru og skiluðu ekki skýrslum
sínum í gær endurheimta ekki
leyfi sín fyrr en þeir ganga fi-á
sinum málum við ráðuneytið.
Jón sagði að það væru kvóta-
skýrslur fyrir maímánuð sem verið
væri að reka á eftir með þessum
aðgerðum. „Maískýrslunum átti að
skila 12. júní, og allt frá þeim tíma
höfum við staðið í stappi við þessa
aðila. Þessi svipting þarf því ekki
að koma neinum á óvart,“ sagði
hann. Sjávarútvegsráðuneytið sendi
fyrir helgi þeim fimmtán aðilum
sem enn höfðu ekki skilað inn
skýrslum skeyti þess hljóðandi, að
frá og með gærdeginum yrðu þeir-
sviptir veiðileyfum sínum í viku-
tíma, og að sögn Jóns streymdu
. íkýrslurjw. inn j.gæn.