Morgunblaðið - 11.07.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
23
Steinsteypa leysir ekki
vandamál aldraðra
eftir Krislján
Baldursson
Það er mikil ástæða til að athuga
aðra möguleika fyrir aldraðra heldur
en byggja hjúkrunarheimili og vista
fólk í sólarhringsvistun.
Fyrst og fremst er það staðreynd
að fólk flest óskar að búa heima hjá
sér eins lengi og kostur er. Þá er
það rétt út frá umhyggju fyrir hvetj-
um einstaklingi að þjóðfélagið leitist
við að mæta þessum óskum. Það er
einnig í anda hinna nýju laga um
málefni aldraðra sem samþykkt voru
á síðasta þingi.
Einnig er það öllum fyrir bestu
að haldið sé uppi sem mestu forvarn-
arstarfi. Það er hægt með þvi að
virkja eldri borgara á allan hugsan-
legan hátt í stað þess að gera þá
háða of mikilli umönnun á hjúkr-
unarheimilum. Það er viss hætta á
að þjónustan við eldri borgara skipt-
ist í tvö horn, annars vegar allt of
lítil heimilisaðstoð og heimahjúkrun
og hins vegar allt of mikil hjúkrun
á stofnunum þar sem séð er fyrir
öllum þörfum einstaklingsins og allt
frumkvæði tekið frá honum. Reynsla
Norðurlandanna á þessu er sú að
hjúkrunarheimili stuðli að hnignun
einstaklinga bæði andlega og líkam-
lega.
Með heimahjúkrun og heimilisað-
stoð er auðvelt að koma til móts við
ákveðnar þarfir hjá öldruðum og
létta þeim þannig lífið með ýmsu
móti. Þá er líka góð hugmynd að
reka þjónustumiðstöðvar, félags-
miðstöðvar fyrir aldraða. Þar sem
lögð er áhersla á að virkja eldra
fólk, aðstoða það við að mynda
áhugamannafélög og klúbba og fá
það til að vinna saman og aðstoða
hvert annað og hugsa hvað um ann-
að. Þjónustumiðstöðvar í tengslum
við íbúðir eru líka góður kostur. Það
er einnig góð reynsla af því að hafa
opinn kaffiveitingastað í þjónustu-
miðstöðvum aldraðra þar sem fólk
hittist og spjallar, kemur og fer.
Það er almenn hreyfing á Norðurl-
öndum í þá átt að hverfa sem mest
frá þessum hefðbundnu hjúkrunar-
heimilum og leysa mál aldraðra með
öðrum hætti. Þjónustuibúðum, sam-
býlum og aukinni heimahjúkrun og
heimilisaðstoð. Jafnvel er hafin sól-
arhringsheimaþjónusta á nokkrum
stöðum. Það hefur verið viðmiðunar-
tala hjá Norðmönnum að um það
bil 7% af þeim sem eru yfir sjötugu
geti þarfnast hjúkrunarrúms. Ef
miðað er við þá aldursdreifingu að
15% íbúa séu yfir sjötugu svaraði
þetta til þess að í 1.000 manna sveit-
arfélagi þyrftu 10,5 hjúkrunarrúm.
Nú eru hugmyndir hjá Norðmönnum
um það að um þ.b. helming af þess-
ari þörf væri hægt að leysa með
öðrum hætti en hjúkrunarrúmi á
stofnun.
Það er athyglisvert að á meðan
nágrannaþjóðir okkar eru að hverfa
frá byggingu hjúkrunarheimila og
vistun fólks í sólarhringsvistun er
þróunin alveg öfug hér á Islandi.
Hér er verið að byggja upp og í
undirbúningi hjúkrunarheimili út um
allt, land.
Það þarf margs að gæta þegar
farið er á stað með slíkar stofnanir.
Ekki minnst það að gera sér fulla
grein fyrir að verið er að hefja rekst-
ur á nýrri stofnun. Þó flestum þyki
byggingarkostnaður hár og mikill
þá verður hann bara smámunir mið-
að við rekstur stofnunar sem kemur
til með að þarfnast rekstrarfjár-
magns um ókomna framtíð. Sóla-
hringsvistun á hjúkrunarheimili er
lang dýrasti kosturinn. Þegar þar
við bætist að það er líka sá versti
miðað við óskir fólksins og vellíðan
er ástæða til að athuga sinn gang.
Hvernig er hægt að veija þessum
peningum öðruvísi til aðstoðar og
velfarnaðar öldruðum? Hvernig er
hægt að koma til móts við óskir og
þarfir fólksins á sem bestan hátt?
Hér er verið að tala um gífurlega
mikla peninga.
Hjúkrunarrúm á stofnun kostar
ca. 5 m.kr. í byggingu og sa. 2 m.kr.
í rekstri á ári. Það er hægt að gera
mikið fyrir tvær milljónir. Til saman-
burðar er hægt að hafa rúmlega
eitt stöðugildi í heimahjúkrun sem
þjónar milli tíu og tuttugu heimilum.
Það væri hægt að greiða aðstend-
endum há laun fyrir að aðstoða og
þjónusta aldraða heima. Það er hægt
að veita mikla heimilisaðstoð og
samt verður það allt mun ódýrara
heldur en vistun á hjúkrunarheimili,
og mun betri kostur. Persónuleg
aðhlynning og þjónusta í öruggu
heimilisumhverfi einstaklingsins.
Það væri líka örugglega hægt að
leysa úr læðingi mikla starfskrafta
með því að greiða aðstandendum
fyrir að annast aldraða í heimahús-
um. Auk þess sem það væri viður-
kenning á því mikla og fórnfúsa
starfi sem fram fer í kyrrþey mjög
víða innan fjögurra veggja heimilis.
Steinsteypa leysir engin vanda-
mál, eða hús yfir stofnanir, það er
þjónustan og starfið sem skiptir öllu
máli. Það er því miklu réttara að
skipuleggja þjónustuna, heimahjúkr-
unina og heimilisaðstoðina heldur
en storma af stað með dýrar bygg-
ingar yfir nýjar stofnanir. Opinber
stofnun og sólarhringsvistun verður
■ að vera síðasti kosturinn sem gripið
er til eftir að aðrar leiðir geta ekki
komið í staðinn. Það má líka minna
á það að frá næstu áramótum tekur
ríkið við og greiðir heilbrigðisþátt
heimaþjónustunnar. Sveitarfélögin
einungis félagslega þáttinn. Á und-
anförnum árum hafa verið byggðar
margar opinberar byggingar. Heil-
sugæslustöðvar hringinn í kring um
landið og stór sjúkrahús.
Kristján Baldursson
Mikið af sjúkrahúsum og heilsu-
gæslustöðvum hafa verið óhóflega
lengi í byggingu. Byggingardæmið
hefur ekki alltaf verið hugsað nægi-
lega vel fyrirfram, hvað varðar ein-
staka liði hönnunar og með tilliti til
endanlegs heildarkostnaðar. Fjár-
magni hefur verið dreift í of marga
staði í einu, sem þýðir litla bygging-
aráfanga og sundurslitinn bygging-
artíma. Þessir þættir verða til þess
að auka á byggingarkostnaðinn. Til
þess að sn úa við þessari þróun verð-
ur að breyta um vinnubrögð. í fyrsta
lagi, það þarf að hugsa framkvæmd-
ina til enda fyrirfram, bæði varðandi
skipulag, hönnun og byggingakostn-
að. Auk þess verður að gera áætlun
um rekstrarkostnað svo allir geri sér
grein fyrir hvað verið er að gera og
hvaða rekstrarfjármagn verið er að
binda í framtíðinni.
Það er líka mikilvægt varðandi
hjúkrunarheimilin að litið sé á heild-
arþörfina. Um þessar mundir er víða
um land verið að undirbúa fram-
kvæmd hjúkrunarheimila. Það er
mikilvægt að skipuleggja aðra þjón-
ustu og aðstoð'og beina kröftunum
að forvarnarstarfi og kanna til hlítar
aðra möguleika áður en ráðist er í
að búa til nýjar stofnanir.
Höfíindurer
deildartæknifræðingvr hjá
framkvæmdadeild
Innkaupastofhunar ríkisins.
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til verksins, þcgar þú málar húsið það scm grunn undir Kópal-Steintcx. Þú
mcð Steinakrýli frá Málningu hf. Stein- getur málað mcð þessari úrvalsmálningu við
akrýl vcitir steininum ágæta vatns- lágt hitastig, jafnvcl í frosti. Hún
þolir vætu cftir um eina
klst., hylur fullkomlega í
tveimur umferðum, veðr-
unarþol er frábært og litaval
gott.
Næst þegar þú sérð fallega málað hús — kynntu þér þá hvaðan málningin er
vörn og mögulcika á að að
„anda“ betur en hcfðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls cr gulltrygg og
því gctur þú einnig notað
JJfmálning't
- það segir sig sjálft -