Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
--—i—• •" i—fn — ------- “
Meðalland:
Þær voru fyrst á Syðri-Steinsmýri
en sáust næst í Landbrotinu. Hafa
þær verið þar framundir þetta og
líklega lagst í Hátúnum. Þetta eru
vaðfuglar sem lifa á grasi og hafa
verið í nýrækt í Hátúnum. Þetta
eru mjög stórir fuglar og eru heim-
kynni þeirra í Eystrasaltslöndum
og Rússlandi allt til Síberíu. Þeir
sem séð hafa þessar trönur telja
þær fullt eins fyrirferðarmiklar og
álft. í vor hefur því verið líflegt í
nýrækt þeirra Landbrytlinga bæði
trönur og álftir. - Vilhjálmur
NEaqnmc
190NS JTL
Viö viljum vekja athygli ykkar sem útivist stunda
á Barbour tatnaöi. Durham jakkinn hefur þessa
kosti: Hann erframleiddur úr laufléttu bómullar-
efni, hann er hlýr og hleypir frá sér raka, hann
er vatnsheldur og einstaklega sterkur, hann er
fallegur og léttur og þegar allra veðra er von er
hann tvímælalaust hentugasti jakkí í lengri
eöa skemmri ferðir.
Eng’inn sauðgróður á afréttum
Hnausum, Mcðallandi.
TVEIR síðustu dagar júnímánað-
ar voru hlýir. Varla er þó hægt
að segja að komin séu nein sum-
arhlýindi og fyrir lok júní snjóaði
í fjöll. Á afréttum er ekki kominn
neinn sauðgróður. Á Syðra-
Bakkakoti og Langholti hefur
verið hirt hey og fleiri munu
vera að huga að slætti. Er þó
aðeins um að ræða nýjar sléttur
sem ekki hafa verið beittar.
í þijú ár hefur lítið rekið af
timbri. Alltaf slæðist þó upp ein og
ein spýta. í vetur varð mjög flóð-
hátt í verstu veðrunum. Flak
belgísks togara, sem strandaði
1957, hefur brotnað mikið í stór-
brimum vetrarins og hvalbakurinn
alveg tæst af. Gufuketillinn gæti
sést lengi þar sem hann liggur ofan
á öðrum togara, sem strandaði upp
úr aldamótum. Þarna rétt hjá er
flak af færeyskri skútu. Hún stran-
daði um 1920 og hét Bóneta.
Þegar minkurinn nam hér land
varð mikil breyting á fuglalífi.
Mörgum tegundum fækkaði stór-
kostlega og sumar færðu sig nær
bæjum til öryggis. í Vík í Mýrdal
verpir krían svo að segja í þorpinu
og á Efri-Steinsmýri í Meðallandi
verpir hún mjög nærri íbúðarhús-
um. Þarna er samt minna kríuvarp
en oft áður. Hún sleppur ekki við
minkinn þarna og svo liggur vegur-
inn gegnum varpið og tekur sinn
toll.
í vor sáust hérna tvær trönur.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Siggi Dagbjartsson kemur sér fyrir í nýja „hægindastólnum“.
„HægindastóU“ vatnaveiðimannsins
Keflavík.
„HÆGINDASTÓLL“ vatnaveiði-
mannsins mætti ef til vill kalla
þennan útbúnað sem nýlega er
kominn á markaðinn. Hann sam-
anstendur af stórri slöngu sem
klædd er ýmsum búnaði og sund-
fitum. Búnaður þess gerir veiði-
manninum kleift að komast mun
lengra frá landi en áður og líka
mun léttara er að veiða í „hæg-
indastólnum“ því þar eni menn
stöðugt í hvíldarstöðu. Ekki sak-
ar heldur að hægt er að liafa
með sér kaflí og meðlæti til að
gæða sér á þegar hann er tregur.
Fimmtán ára Reykvíkingur, Sig-
urbrandur Dagbjartsson reyndi
þennan nýja búnað á Hlíðarvatni
ekki ails fyrir löngu, en Sigurbrand-
ur hefur geysilegan áhuga á veiði-
skap og hefur þegar náð athyglis-
verðum árangri með veiðistöngina.
Um daginn var hann við veiðar í
Vífilstaðavatni og nældi sér í 63
fiska sem hann veiddi alla á flugu.
Sigurbrandur hefur unnið fyrir
Svo er/ bara að byrja að kasta.
sínum veiðiútbúnaði sjálfur, hann
er slunginn við að hnýta flugur og
kenndi þá kúnst hjá Stangveiðifé-
laginu í vetur og auk þess ber hann
út Morgunblaðið í sínu hverfi.
Tveir aðrir veiðimenn voru ásamt
Sigurbrandi við veiðar í Hlíðarvatni
þennan góðviðrisdag í júní, en ekki
fara miklar sögur af feng þeirra,
en Sigurbrandur veiddi 6 fallegar
bleikjur og þijár fékk hann í nýja
„hægindastólnum" sínum og — að
sjálfsögðu — allar á flugu.
BB
Veiðimaðurinn sf.,
Hafnarstræti 5, sími: 16760.
Sumarhátíð í Ólafsvík:
Dansað, sungið
og sitthvað fleira
einnig nú, því að Lista- og menning-
arnefnd Olafsvíkur hefur fengið'
ýmis félagasamtök í bænum til liðs
við sig og kallað til landskunna
skemmtikrafta,“ segir meðal ann-
ars í frétt frá nefndinni.
Sumarhátíðin verður sett
fimmtudaginn 20. júlí og opnuð
myndlistarsýning frá Gallerí Borg
í grunnskólanum. Þá kemur fram
ung söngkona úr bænum, Ólöf de-
Bont Ólafsdóttir.
Sýning á heimilisiðnaði verður
opnuð í gamla Pakkhúsinu á föstu-
deginum og um kvöldið verður
hljómsveitin Ný-dönsk með tónleika
fyrir alla aldurshópa í félagsheimil-
inu á Klifi. >
Hápunktur hátíðarinnar verður
laugardaginn 22. júlí. Þá stendur
Ungmennafélagið Víkingur fyrir
kassabílarállý og Kvenfélag Ól-
afsvíkur heldur árlega grillveislu í
Sjómannagarðinum þar sem leik-
félagsfólk fer á kreik. Sálin hans
Jóns míns leikur fyrir dansi um
kvöldið á stórdansleik á Klifi. Karla-
kórinn Fóstbræður sungur á tón-
leikum í félagsheimilinu á sunnu-
deginum.
Ymislegt annað verður á seyði í
Ólafsvík þessa daga. Myndlistar-
maðurinn Ingi Hans úr Grundar-
firði sýnir, útimarkaður verður
starfræktur og sjóstangaveiðimót
haldið. Skráning keppenda er á
Gistiheimilinu Snæfelli.
Þá er í athugun að halda segl-
skútumót og ef veður leyfir gefst
kostur á útsýnisferð með snjóbíl á
Snæfellsjökul. í fréttatilkynningu
segir að Ólafsvíkingar vænti sem
flestra gesta í bæinn á Sumarhátíð-
ina.
ÁRLEG sumarhátíð verður hald-
in í Ólafsvík dagana 20. til 23.
þessa mánaðar. Tónleikar, mynd-
listarsýningar, útimarkaður, sjó-
stangaveiði- og seglskútumót
auk stórdansleiks er meðal þess
sem á döfínni verður.
„Eftir vel heppnaða afmælishátíð
Ólafsvíkur fyrir tveimur árum var
ákveðið að halda hátíð á hveiju
sumri. Hátíðin í fyrra tókst með
ágætum enda komu að úrvals
skemmtikraftar og heimamenn
lögðu sitt af mörkum. Svo verður
Dr. Svava Bernharðsdóttir.
Doktor
í tónlist
SVAVA Bernharðsdóttir lág-
fíðluleikari lauk í vor doktors-
prófi frá Juilliard-tónlistarhá-
skólanum í New York.
Kröfur Juilliard-skólans til dokt-
orsgráðu fela m.a. í sér ákveðinn
ijölda tónleika, sem Svava hélt í
Lincoln Center í New York, á Lista-
hátíð í Reykjavík og víðar auk rit-
gerðar, en Svava skrifaði um sögu
og þróun fiðlu- og lágfiðluleiks á
íslandi.
Svava Bernharðsdóttir fæddist í
Reykjavík 1960. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Hamrahlíð 1980 en brottfararprófi
í lágfiðluleik og einnig fiðlukenn-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1982. Hún var nemandi
Nubuku Imai við Tónlistarháskól-
ann í Haag í Hollandi 1982-1983,
en frá hausti 1983 hefur hún verið
við nám við Juilliard-skólann í New
York. Þar vann hún keppni skólans
í lágfiðluleik 1986. Meðal kennara
hennar hafa verið dr. William Linc-
er og Karin Tuttle.
Svava er nú við störf og nám í
Sviss, þar sem hún leggur stund á
barokktónlist við Schola Cantorum
í Basel.
Foreldrar hennar eru Rannveig
Sigurbjörnsdóttir félagshjúkrunar-
fræðingur og sr. Bernharður Guð-
mundsson fræðslustjóri þjóðkirkj-
unnar.
Óvenjulegar ljósmyndir
Sigurður Þorgeirsson ljósmyndari sýnir í Frakklandi
Sigurður Þorgeirsson, ljósmyndari hélt í síðasta mánuði sýningu
á ljósmyndum sinum af íslensku landslagi og fólki í bænum Sées í
Frakklandi. Sýningin hlaut lofsamlega umflöllum í staðarblöðum.
Viðbrögð gesta voru einnig góð því lengja varð opnun sýningarinn-
ar um viku vegna aðsóknar.
Sýning Sigurðar var haldin í
Saint-Martin klaustrinu í Sées á
vegum nefndar Sjúkratrygginga
Ile-de-France héraðsins. í einu blað-
inu er sagt frá því að sýningin hafi
verið opnuð að viðstöddum bæjar-
stjóranum í Sées, M. André Dubuis-
son, auk bæjarfulltrúa og fleira
mikilvægs fólks. Vitnað er í Bern-
ard Amiot, formann nefndar
Sjúkratrygginganna sem sagði m.a.
um myndir Sigurðar við opnunina:
„Sígildar myndir yðar töfra okkur
af því hversu óvenjulegar þær eru
og eftirtektarverð lýsing, dýpt
myndanna og skilningur yðar á
myndbyggingu, minnir okkur á
hæfíleika yðar...“
Landslagsmyndir Sigurðar frá
íslandi virðast hafa heillað sýning-
argesti, er hafa skráð í gestabókina
hástemmd lýsingarorð um sýning-
una og löngun til að koma til Is-
lands eftir að hafa horft á ljósmynd-
irnar.
Sigurður áformar að halda aðra
sýningu í október, að þessu sini í
París. Einnig stendur til að hann
sýni þrisvar í París á næsta ári.
Scuö !e í-aut patronage tíe Mútíams Vrcdis .-innbcgadötiif
Présiderrte de ia Répu6iiQoe d'lsíande
Sigurd THORSON
Photographies
Auglýsingaveggspjald ljós-
myndasýningarinnar. Efet á
veggspjaldinu má sjá að frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, var verndari hennar.