Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 35
MÓRÓÚNBLAÐÍÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÖLÍ Í989
35
Grænfriðungar á villigötum
eftir Svend Haugaard
Fyrir fáeinum árum var ég stadd-
ur í nyrztu byggð jarðarkringlunnar
— Siorapaluk — norðan við Thule
og átti tal við grænlenzka veiðimenn
um vandamál þeirra. Höfðu þeir
miklar áhyggjur af áróðri og aðgerð-
um grænfriðunga gegn selkópaveiði
og töldu það koma sér hið versta
fyrir selveiðar Grænlendinga, enda
þótt vissa væri fyrir því, að kópa-
veiði hefði aldrei verið stunduð þar
um slóðir. Að grænfriðungar skyldu
ekki undanbragðalaust undanskilja
Grænland að þessu leyti, snart illa
sjálfa líftaug veiðimannasamfélags-
ins.
Seint og um síðir, svona eins og
á báðum áttum, játuðu grænfriðung-
ar mistök sín og báðust afsökunar —
en með henni fylgdu ekki þær ótöldu
milljónir króna, sem hinar sein-
heppnu aðgerðir þeirra höfðu kostað
veiðimennina.
Þá hafa verið uppi aðgerðir gegn
aldagamalli grindveiðihefð Færey-
inga, sem hefir verið lýst í blóðugum
litum. Og þótt veiðiaðferðirnar séu
mun mannúðlegri en áður, eru þær
ekki fagrar á að líta í nærmynd, eins
og líka gefur að sjá í litsjónvarpi,
þegar verið er að lýsa drápi, hverrar
tegundar sem það er. En grindveiðin
hefir meiri þýðingu fyrir Færeyinga
en hún hefir fyrir okkur. Samt láta
menn sér sæma að sverta þessa
smáþjóð, sem komizt hefir af, þrátt
fyrir erfiða lífsbaráttu og kröpp kjör.
Og nú er röðin komin að íslending-
um, vegna þess, að þeir hafa ekki
með öllu lagt niður hvalveiðar sínar,
en fyrir þessa 250 þús. manna þjóð
eru þær einnig mikilvægar. Reyna
grænfriðungar nú að fá neytendur á
gjörvallri heimsbyggðinni til þess að
sniðganga íslenzkar afurðir. Hafa
þeir í þessu sýnt mikla óbilgirni og
gengið hart fram, einkum í Banda-
ríkjunum, án þess að vita nokkuð
um raunverulegt ásigkomulag þess-
ara hluta.
Bersýnilegt er, að forusta græn-
friðunga hefir ekki áttað sig á því,
að með því að halda stórþjóðunum
utan við náttúruumráðasvæði þess-
ara smáþjóða, yrðu hvorki dýrastofn-
ar þar né umhverfi í neinni hættu.
Hinar einstrengislegu aðgerðir
þeirra hafa orðið til þess, að íslenzk-
ur blaðamaður, Magnús Guðmunds-
son, hefir svarað þeim á viðeigandi
hátt með því að gera kvikmynd um
þær aðferðir, sem þeir beita í áróðri
sínum. Honum og Stöð 2 (TV 2) eig-
um við það að þakka að nokkru
meira jafnvægis gætir nú í mynd
þessara hluta en áður. En nú sjáum
við í dagblöðum, að grænfriðungar
hyggjast höfða mál gegn Magnúsi
Guðmundssyni. Gegnir það ekki
furðu, að forustumenn samtaka þess-
ara, sem með eindæma og fáránleg-
um aðgerðum sínum hafa skaðað
lífsafkomu þriggja smáþjóða og for-
dæmt þær af svo mikilli hörku, skuli
sjálfir vera svo aumir og hörundsár-
VELA-TENGI
Allar geröir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í —‘ flans.
Tengið aldrei stál — í — stál,
hafiö eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
tækja.
Állar stæröir fastar og frá-
tengjanlegar
SfiiaollmQgjcuiir
oJ<^)ini©©©ifö <§•*
Vesturgötu,16, sími 13280
ir, að þeir glúpna, þegar þeim, að
gefnu tilefni, er svarað fullum hálsi?
Illa er farið fyrir annars góðum
málstað, sem þeir vilja gagnast, eftir
því sem þeir sjálfir segja, þegar öfga-
og ofstækismennirnir skaða hann
með heimskulegu framferði sínú.
Þegar sjálf forustan er ekki fær um
að varða veginn og veita hina réttu
leiðsögn — ættu liðsmennirnir, þótt
ekki væri það nema málstaðarins
vegna — að taka hana hressilega til
bæna.
(Þ.I. þýddi úr „Berlingske Tid-
ende.)
Höfundur erfyrrum þingmaður
fyrir Radikale Venstre íþjóðþingi
Dana.
„Seint og um síðir,
svona eins og á báðum
áttum, játuðu grænfrið-
ungar mistök sín og
báðust afsökunar — en
með henni fylgdu ekki
þær ótöldu milljónir
króna, sem hinar sein-
heppnu aðgerðir þeirra
höfðu kostað veiði-
mennina.“
Svend Haugaard
8 mismunandi gerdir,
6 m á lengd.
Hringið ettir nánari upplýsingum
eða Iftið inn í verslun okkar.
w SENDUM (PÓSTKRÖFU
co Þ. ÞORGRÍMSSQN & CO
Ármúla 29 • Reykjavík • sími 38640
SUMARTILBOÐ
ÁPÍANÓUM
Sumartilboð: Young Chang píanó
og flyglar frá Kóreu meo betri
greiðslukjörum en nokkru sinni
aður. Young Chang hljóðfærin eru
úrvals gripir, hljómgóð, vönduð og á
sanngjörnu verði með 10 ara
ábyrgð. Gerið góð kaup núna í júlí
og kaupið píano eða flygil á sumar-
tilboðinu. Greiðslukjör til allt að 24
mánaða eða staðgreiðsluafsláttur.
Young Chang Píanó: staðgr.verð hæð
Svart-hvítt?DÓlcraö 124.700 kr. 109 cm
Svart-hvítt/pólerað 128.700 kr. 108 cm
Hnota/nólerað 134.800 kr. 108 cm
Svart-hvítt/DÓlerað 133.650 kr. 118 cm
Hnota/DÓlerað 141.000 kr. 118 cm
Svart/Dólerað 142.700 kr. 121 cm
Young Chang flygill: staðgr.verð lengd:
Svartur/oóleraður 299.000 kr. 157 cm
Hnota/DÓleraður 343.000 kr. 175 cm
Svartur/póleraður 364.000 kr. 185 cm
Ath: Greiðslukjör til allt að 24ra mánaða.
Stafræna Technics píanóið
Nýtt rafmagnsplanó með stafrænum (digital)
hljóðmyndunum sem byggjast á tónum úr
náttúrulegu hljóðfæri. Ný innbyggð hljómtækni sem
gefur betri víddir f endurhljómi og tónsvörun líkt og
t.d. stór hljómleikasalur eða Iftil koníaksstofa. Stærð:
137x80x40 cm. Þyngd: 50 kg.
Hljómval: píanó, (lítil og stór), rafmagnspíanó,
harpsichord, harpa, gítar, clavinett o.m.fl.
Einnig: tónval, taktmælir, innbyggð hljóðritunartæki,
tenging við tölvur eða önnur hljómborð (midi), 90W
magnari, hátalarar.
Verð (stgr.): 150.300 kr.
Gítarar:
Veldu þér góðan gítar á sumarlilboðinu. Japanskir og
spánskir gæðagítarar á ótrúlega hagstæðu verði
fyrir nemendur og þá sem lengra eru komnir.
Verð frá: 6.600 kr.
Technics hljóðgerfill
mics á óvart og nú með stafrænum,
Stafrænn
Enn kemur Technics í
hljóðmyndunum, gerðum eftir náttúrulegum
hljóðfærum. Sambyggt er í tækinu undirleikur (bassi,
trommur, alls konar hljómgrunnur) meö um
80 taktafbrigðum. Ótrúlegir möguleikar á samsetningu
nýrra hljóða eða tónmynda (sound creation). Innbyggð
eru um 30 ólík hljóðfæri, magnari og hátalarar,
midi tenging, pitch bend og geymsluforritun.
Verð (stgr.): frá 78.300 kr.
HJÓÐFÆRAVERSLUN
PÁLMARS ÁRNA HF
HLJÓÐFÆRASALA - STILLINGAR - VIÐGERÐIR
ÁRMÚLI 38,108 REYKJAVfK, S(MI 91-32845
Technics sx PR300
Nýtt tæki frá Technics, hljóðfæri sem byggt er á
stafrænum (digital) hljóðum, nákvæmlega hljóðrituð
eftir venjulegum hljóðfærum. Hver tónn er nákvæm
eftirKklng náttúrulegra hljóða. Píanóhljómurinn er
bylting á rafhljóðfæri og aðrir hljómmöguleikar eru
t.d. orgel (jazz/pípu) málmblástur, tréblástur, gítarar,
harpsichord, strengir, bassi (raf/kontra) davi,
vibetone, vocal ensamble, synth.o.m.fl. Þetta
hljóðfæri er með hljómsveitarundirleik í nokkrum
taktmöguleikum, samtengdum trommum og
bassaundirleik. Innbyggður magnari og hátalarar.
Verð (stgr.): 207.000 kr.