Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
AWIMMil A/ ir~'l 'y'C'IK tr^A P
mfm. m tw IRPIW/nUU’l / O// \Iks7/-\K
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast til starfa hjá Sjúkraþjálf-
un Reykjavíkur. Góð aðstaða. Sjálfstæður
rekstur.
Upplýsingar í síma 621916.
Atvinna í sveit
Ábyrg og dugleg hjón eða par óskast til að
sjá um rekstur bús á Suðurlandi. Um er að
ræða blandað bú trieð nautgripum og sauð-
fé. íbúð fylgir.
Þeir sem hafa áhuga sendi upplýsingar um
aldur og fyrri störf á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Sveit - 12523“.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöðurvið
framhaldsskóla
Framlengdur umsóknarfrestur.
Að Fjölbrautaskóla Vesturlands vantar
kennara í náttúrufræðigreinum, efnafræði
og rafeindavirkjun.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er laus
kennarastaða í íslensku.
Við Menntaskólann við Sund er laus til
umsóknar stundakennarastaða í íslensku.
Upplýsingar í síma 71354.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 14.
júlí nk.
Menntamálaráðuneytið.
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslu-
stöðvar Suðurnesja er laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% starf og verksvið við-
komandi er að stjórna fjármálum og rekstri
þessara tveggja stofnana á Suðurnesjum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
heilbrigðismálum eða rekstri heilbrigðis-
stofnana bæði hvað varðar stjórnun, bók-
haldsþekkingu o.fl. Skilyrði er að umsækj-
andi sé eða verði búsettur á Suðurnesjum.
Umsóknir þurfa að hafa borist undirrituðum
fyrir 23. júlí nk.
Allar nánari upplýsingar veitir formaður
stjórnar í síma 92-11216 eða undirritaður í
síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Garðabær
Blaðbera vantar á Flatir.
Upplýsingar í síma 656146.
Skólastjóra og
kennara vantar
Smiðir óskast
Óskum eftir smiðum. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 985-23541 og eftir
kl. 19.00 í síma 612182.
Offsetprentun
Nemi í offsetprentun, sem lokið hefur Iðn-
skólanum í Reykjavík, óskar eftir að komast
á starfsþjálfunarsamning.
Nánari upplýsingar í síma 82143 eða á kvöld-
in í síma 12022.
Staða skólastjóra og kennara við Grunnskól-
ann í Borgarfirði eystra er laus til umsóknar.
Upplýsingar veittar hjá formanni skólanefnd-
ar, Sólbjörtu Hilmarsdóttur í síma 97-29987
eða Sólrúnu Valdimarsdóttur í síma
97-29986.
Skólanefnd.
Kennsla í Grindavík
Kennara vantar við grunnskólann næstkom-
andi haust. Meðal kennslugreina: Tölvunar-
fræði, stuðnings- og sérkennsla og kennsla
í 7. bekk. Sveigjanlegir starfshættir. Aðstoð
veitt við útvegun húsnæðis. Veruleg staðar-
uppbót, húsnæðis- og flutningsstyrkur.
Upplýsingar veittar í eftirtöldum símum:
92-68555 grunnskólinn,
92-68504 skólastjóri og
92-68363 yfirkennari.
LANDSPÍTALINN
Sérfræðingur
í bæklunarskurðlækningum óskast á bækl-
unarskurðdeildir Landspítalans.
Um 75% starf er að ræða. Ráðningartími
er eftir samkomulagi. Skilyrði er að umsækj-
andi sé viðurkenndur sérfræðingur í bæklun-
arskurðlækningum á íslandi.
Upplýsingar gefur yfirlæknir bæklunarskurð-
deilda í síma 601000.
Umsóknir á umsóknareyðublaði lækna ásamt
prófskírteini, upplýsingum um starfsferil og
meðmælum sendist yfirlækni fyrir 14. ágúst nk.
Reykjavík, 11.júlí 1989.
RÍKISSPÍTALAR
„Au pair“ í Ameríku
Löglega aðferðin (The Legal
Programme) til að komast til USA
Við leitum að viðmælanda (Interviewer) í hluta-
starf til aðstoðar við að velja umsækjendur.
Þetta er óformlegt starf, sem vinna má
heima, og ætti að vera hentugt fyrir fólk sem
hefur reynslu í að taka viðtöl, og hefur áhuga
á menningarlegum samskiptum. Aðgangur
að síma er nauðsynlegur.
Ef þú hefur áhuga þá gjörðu svo vel að hafa
samband við Dorothy Stuart, framkvæmda-
stjóra, 37 Queens Gate, London SW7 SHR.
Sími: London 581 2730.
Sölumaður/
sölustjóri
Rótgróin heildverslun á matvælasviðinu
óskar eftir ungum og hressum sölumanni,
karli eða konu, til starfa sem fyrst.
Um er að ræða krefjandi starf í líflegu um-
hverfi, sem býður upp á skjótan frama í
starfi, ef vel er að verki staðið.
Æskilegt er að viðkomandi sé vanur sölu-
störfum og hafi metnað til að standa sig vel
í harðri samkeppni.
í boði eru góð laun hjá góðu fyrirtæki fyrir
góðan mann.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyr-
ir 20. júlí, merktar: „Sala - 7352“.
RÍKISSPÍTALAR
Landspítalinn
- geðdeild
Starfsmaður óskast á ræstingadeild til að
sjá um þrif inni á deild.
Upplýsingar gefur Stefanía Önundardóttir,
ræstingastjóri, eða ritari hjúkrunarforstjóra
í síma 601535.
Reykjavík, 11.júlí 1989.
Vélagslíf
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 oq 19533.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
12.-16. júlí (5 dagar): Landa-
mannalaugar - Þórsmörk.
Brottför kl. 08.00 miðvikudag,
komið á laugardag til Þórsmerk-
ur. Nokkur sæti laus. Farar-
stjóri: Páll Ólafsson.
12.-16. júlí (5 dagar): Snæfells-
nes - Dalir - Húnavatnssýsla -
Kjalvegur.
Leiðin iiggur um Ólafsvík, norð-
anvert Snæfellsnes, Dali, um
Laxárdalsheiði í Hrútafjörð, um
Vatnsnes að Húnavöllum. Til
Reykjavikur verður ekið um Kjöl.
Gist í svefnpokaplássi. Farar-
stjóri: Baldur Sveinsson.
14.-19. júli (6 dagar): Land-
mannalaugar - Þórsmörk.
Brottför kl. 20.00 föstudag. Far-
arstjóri: Vigfús Pálsson.
14.-21. júlí (8 dagar): Lónsör-
æfi.
Farþegar geta valið um áætlun-
arbíl frá Reykjavík á fimmtudegi
eða flug á föstudegi til Horna-
fjarðar. Frá Hornafirði eru far-
þegar fluttir með jeppum inn á
lllakamb. Gist i tjöldum.
19.-23. júlf (5 dagar): Land-
mannalaugar - Þórsmörk.
21.-30. júli (10 dagar): Nýidalur
- Vonarskarð - Jökulheímar -
Veiðivötn. Gönguferð með við-
leguútbúnað. Gengið á átta dög-
um norðan Tungnaár til Veiði-
vatna. Fararstjóri: Jóhannes I.
Jónsson.
21.-26. júlí (6 dagar): Land-
mannalaugar - Þórsmörk. Far-
arstjóri: Magnús Guðlaugsson.
26.-30. júli (5 dagar): Land-
mannalaugar - Alftavatn.
Brottför kl. 08.00 miðvikudag.
Gist eina nótt í Landmannalaug-
um. Gengið á tveimur- dögum
að Álftavatni og gist þar í tvær
nætur. Fararstjóri: Hilmar Þór
Sigurðsson.
Takmarkaður fjöldi í „Lauga-
vegsferðirnar". Pantið timan-
lega. Leitið upplýsinga um til-
högun ferðanna á skrifstofu FÍ,
Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Ferðir FÍ miðvikudaginn
12. júlí
Kl. 08.00. Þórsmörk. Dagsferð
og sumarleyfisferð.
Nú er rétti tíminn til þess að
njóta verunnar í Þórsmörk.
Kannið afsláttartilboð Fl fyrir
sumarleyfisgesti.
Kl. 20.00. Tröllafoss og ná-
grennl.
Ekið að Stardal og gengið niður
með Leirvogsá að Tröllafossi.
Verð kr. 600.-
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferðir Ferðafélags-
ins14.-16.júlí
1) Snæfellsnes - Elliðahamrar
- Berserkjahraun
Gengið þvert yfir Snæfellsnesið
skammt vestan við veginn um
Kerlingarskarð. Þarna er fjall-
garðurinn mun lægri en víðast
annars staðar. Lagt verður af
stað i gönguna frá Syðra-Lága-
felli. Gist í svefnpokaplássi.
Fararstjóri: Jóhanna Magnús-
dóttir.
2) Landmannalaugar. Gist í
sæluhúsi FÍ í Laugum. Göngu-
ferðir um nágrennið með farar-
stjóra. Fararstjóri: Magnús Guð-
laugsson.
3) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir
með fararstjóra.
4) Hveravellir. Gist í saeluhúsi
FÍ á Hveravöllum. Eftir erfiðan
vetur er sumarið loksins komið
á Hveravöllum.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu FÍ, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
M Útivist
Miðvikudagur 12. júlí
Kl. 20.00. Kvöldsigling að Lund-
ey. Brottför frá Viðeyjarbryggju í
Sundahöfn. Þótt ótrúlegt sé er
þarna stór lundabyggð sem fáir
hafa kynnst. Verð 500 kr, frítt fyr-
ir börn 12 ára og yngri.
Munið miðvikudagsferðirnar í
Þórsmörk. Brottför kl. 8 að
morgni. Dagsferð og fyrir sum-
ardvalargesti. Munið tilboðs-
verð. Pantið tímanlega. í Lund-
eyjarferðina þarf ekki að panta.
Hekluganga á laugardag kl. 8.
Útivist, ferðafélag.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Tónleikar í kvöld kl. 20.30.
Bandariski kórinn Celebrant
Singers verður i Fíladelfíu i kvöld
og flytur létta, trúarlega tónlist.
Allir hjartanlega velkomnir.