Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 40

Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 40
MUftGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989 4Ö > í ÞINGHLÉI STEFÁN FRIÐBJARNARSON Kaupir Alþingi Hótel Borg? Flytur Alþingi úr miðborginni? Ell- iðavatn, Alftanes eða Þingvellir? Hótel Borg, séð frá Austurvelli. „Borgarráð Reykjavíkur lýs- ir áhyggjum sínum yfir hug- myndum um að Ieggja niður hótelrekstur í miðbæ Reykjavíkur með hugsanlegri yfirtöku Alþingis á Hótel Borg. Oskar Reykjavíkurborg eftir viðræðum við Alþingi um hvort ekki megi fínna leiðir til að leysa húsnæðisvanda Alþingis með öðrum hætti en þeim að taka úr rekstri elzta hótel borg- arinnar sem jafhframt er mikil- vægur þáttur í lífi og starfi í hjarta borgarinnar". Þannig hljóðar samþykkt borgarráðs Reykjavíkur, studd jafiit af minnihluta sem meiri- hluta. I Um miðjan aprílmánuð kom til umræðu í sameinuðu þingi tillaga til þingsályktunar, þess efnis, að Alþingi heimili forsetum þingsins „að ganga til samninga um kaup á Hótel Borg og láta gera nauð- synlegar lagfæringar á húseign- inni ef af kaupum verður“. I greinargerð segir að nýbygg- ingarmál Alþingis séu í biðstöðu. Starfsemi þingsins fari fram í sjö húsum, utan Alþingishússins, sem sé afar óheppilegt. Þar segir orð- rétt: „Könnunin [sem forsetar þings- ins létu framkvæma] leiddi í ljós að náist viðunandi samningar um kaup á húseigninni [Hótel Borg] sé ráðin bót á brýnasta húsnæðis- vanda Alþingis næstu árin en það auðveldar til mikilla muna þá end- urskipulagningu á starfsemi Al- þingis, sem nú er að unnið“. Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, mælti fyrir til- lögunni. Hún sagði m.a.: „Húsið þarfnast ekki gagn- gerðra breytinga. Við getum nýtt það mjög vel og 42 þingmenn geta fengið þar skrifstofur án þess að til meiri háttar rasks komi, auk ýmissar annarrar starfsemi, sem vel má koma fyrir í húsinu“. I II Tillagan mætti harðri andstöðu, sem ekki var bundin við einstaka þingflokka, stjórn eða stjórnar- andstöðu. Minnihluti þingmanna, sem þátt tók í umræðu, studdi hana. Andstaðan var byggð á ýmsum og ólíkum forsendurn. Hér verða tínd til fáein efnisatriði hennar: * 1) Samhljóða samþykkt og tilmæli borgarráðs Reykjavíkur. * 2) Andmæli Miðbæjarsam- takanna. * 3) Hótel Borg er eina starf- andi hótelið í hjarta Reykjavíkur og hluti af miðborgarmyndinni sem Alþingi á að láta í friði. * 4) Kaup og tilheyrandi breyt- ingar á Hótel Borg er dýr bráða- birgðalausn, reyndar fljótræði, sem seinkar varanlegri lausn á húsnæðisvanda þess. * 5) Önnur hús í nágrenni Alþingis koma allt eins eða betur til greina, svo sem húsnæði það við Austurstræti, sem nú hýsir borgarskrifstofur er senn flytja í borgarráðhúsið, og hús Pósts og síma við Austurvöll. „Mér finnst hálfpartinn að hér sé á ferðinni eitthvert óðagot og þessi lausn á húsnæðisvanda Al- þingis, sé kannski ekki nægilega vel og rækilega undirbúin", sagði Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rvk). „Ég krefst þess sem þingmaður Reykvíkinga, og það vil ég að hæstvirtur forseti sameinaðs þings viti, að það verði teknar upp þær viðræður í þessum málum við borgaryfirvöld, sem þau óska eft- ir“, sagði Birgir Isl. Gunnarsson (S/Rvk). III Stöku þingmaður setti fram hugmyndir um flutning á starf- semi Alþingis úr miðborg Reykjavíkur, sem ekki hlutu mikl- ar undirtektir. Stefán Valgeirsson (SJF/Ne) sagði m.a.: „Hvar á Alþingi að standa í framtíðinni?... Það eru ýmsir stað- ir sem koma til greina, eins og t.d. á Alftanesi eða upp við Elliða- vatn og fleiri staði mætti nefna...“. Ingi Björn Albertsson (FH/Vl) sagði: „Ég fer ekki dult með það að ég er sammála þeim mönnum sem tala fyrir því að Alþingi eigi að hafa höfuðsetur á Þingvöllum, þó það væru ekki nemu sögulegu tengslin sem gerðu það að verk- um“. Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S/Vf) vitnaði hinsvegar til þings- ályktunar frá 1981 um samkeppni um gerð og skipulag nýbyggingar fyrir starfssemi þingsins þar sem það nú er [nýbbygging tengd gamla þinghúsinu neðanjarðar]. Hann taldi að Alþingi ætti að leysa húsnæðisvanda sinn til frambúðar, samkvæmt stefnu- mörkun frá þeim tíma. IV Fjárveitinganefnd klofnaði í afstöðu til málsins. Meirihluti nefndarinnar (Sighvatur Björg- vinsson, Margrét Frímannsdóttir, Oli Þ. Guðbjartsson, Jón Sæmund- ur Sigutjónsson og Olafur Þ. Þórðarson) lagði til að heimildar- tillagan yrði samþykkt „með við- bótum“. Meirihlutinn flutti breyt- ingartillögu þar sem heimildin til að ganga til samninga um kaup á húsnæði er ekki einskorðuð við Borgina, heldur jafnframt aðra kosti í næsta nágrenni Alþingis. Þar segir og að „við ákvörðun um kaup og umfang endurbóta á hús- næði skuli haft samráð við fjár- veitinganefnd". Minnihluti fjárveitinganefndar (Pálmi Jónsson, Alexander Stef- ánsson, Málmfríður Sigurðardótt- ir og Égill Jónsson) lagði til að þingsályktun um málið hljóðaði svo: „Alþingi ályktar að fela forset- um Alþingis að kanna hvaða mögúleikar eru til aukinnar hag- kvæmni í húsnæðismálum Al- þingis og skila um það skýrslu til formanna allra þingflokka á næsta haustþingi. í skýrslunni komi fram: 1) Möguleikar á leigu eða kaupum á húsnæði í grennd við Alþingishúsið. 2) Aætlun um kostnað í hveiju tilviki fyrir sig. 3) Aætlun um nýtingu húsnæðis sem tekið kynni að vera á leigu eða keypt. 4) Hvað af núverandi húsnæði Alþingis megi láta af hendi. 5) Aætlun um kostnað við breytingar á Alþingishúsinu í þeim tilgangi að bæta starfsað- stöðu þingmanna og starfsfólks". Málið kom ekki til síðari um- ræðu og hlaut ekki afgreiðslu; dagaði uppi í lokaönn þingsins, þótt flutt væri af forsetum Al- þingis. Svo virtist sem samkomu- lag væri um þær málalyktir - að sinni a.m.k. t Móðir okkar, STEINUNN ÓLAFSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður til heimilis á Grettisgötu 29, er látin. Svava Magnúsdóttir, Knútur R. Magnússon. t Ástkær eiginmaður minn, INGIMAGN EIRÍKSSON bifreiðastjóri, Meistaravöllum 7, lést í Borgarspítalanum 7. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Þuri'ður Jónsdóttir. t Eiginmaður minn, ÓLAFUR M. ÓLAFSSON, Grundarlandi 8, lést í Giessen, Þýskalandi, föstudaginn 7. júlí. Anna Hansen. t Útför sonar okkar, bróður og föður, SIGHVATAR ANDRÉSSONAR, Skriðustekk 19, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 11. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Andrés Sighvatsson, Júlianna Viggósdóttir, systkini og börn hins látna. Sigh vatur Andrés- son - Minningarorð Fæddur 26. mars 1949 það var alltaf svo stutt í glens og Dáinn 1. júlí 1989 í dag, þriðjudaginn 11. júlí, kveðjum við kæran vin, Sighvat Andrésson, Didda, eins og hann var alltaf kallaður. Þegar ungt fólk deyr í blóma lífsins er erfitt að sætta sig við það. Getur verið að hann Diddi okkar sé dáinn? Hann sem tilheyrði lífinu eins og ég og þú. Diddi var næstelstur af stórum systkinahóp. Sonur hjónanna Júlí- önnu Viggósdóttur, húsmóður, og Andrésar Sighvatssonar, vörubíl- stjóra. Systkini Didda voru Stína elst, þá kom Diddi og síðan Magga, Dísa, Addi, Lára, Viggó og Finnur. Þetta var einstaklega samstilltur hópur þar sem góðmennska og glaðværð hefur alltaf ráðið ríkjum. Enda er missir þeirra mikill og svo stórt skarð hefur verið rofið í hóp- inn. Við systurnar kynntumst fjöl- skyldunni sem litlar stúlkur að leik við Möggu og DísUj en seinna sem mágkonur Didda. A þessum árum höfðu Sigrún, elsta systir okkar, og Diddi komið sér upp heimili og eignast tvo yndislega drengi, Ingva sem er tvítugur, og stundar nám við menntaskóla, og Sighvat sem er nítján ára og er lifandi eftirmynd föður síns heitins. Sama kátína ríkti á þeirra heimili og einkenndi fjöl- skyldu hans, þegar við kynntumst honum. Margs er að minnast þegar við látum hugann reika um liðin ár, og minnumst við hvað hann átti auðvelt með að koma öllurri í gott skap sem í kringum hann voru, gaman, þar sem Diddi var. En því miður skildu leiðir þegar Sigrún og hann slitu samvistum, en alltaf hittum við hann af og til í gegnum árin, bæði heima í for- eldrahúsum hans sem við sóttum alltaf í að heimsækja, þó að syst- urnar væru fluttar fyrir löngu og vorum við alltaf velkomnar bæði með maka og börn, og svo hjá Sig- rúnu systur því þó þau hefðu slitið samvistum breyttist samband þeirra í mikinn vinskap og væntum- Þykju. Didda var margt til Iistanna lagt svo sem að mála myndir og yrkja ljóð, og enginn var sá hlutur sem hann gat ekki gert við. Aðstandendum öllum vottum við innilega samúð okkar og biðjum Guð um styrk þeim til handa á sorg- arstundu. Með þessum línum viljum við kveðja og huggum okkkur við að þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Þó að fomu björgin bresti, bili himinn og þomi upp mar, allar sortni sólimar, aldrei deyr, þótt allt upp þrotni' endurminning þess, sem var. (Grímur Thomsen.) Linda, Gunna og Jórunn. Elsku sonur okkar og bróðir, minningin mun alltaf lifa um góðan dreng, sem var einlægur vinur okk- ar allra. Ef einhver var dapur var hann kominn með sína einlægni og kímni eins og honum einum var lagið. Við söknum hans sárt því að stórt skarð er höggvið í systkinahóp. Hann vissi að heima hjá pabba og mömmu beið ávallt hlýja og ást og þangað lá leið hans ætíð. Hann var einstaklega listrænn og verklaginn og hafði öðlast nýja trú á lífið. Það er svo margt sem okkur langar að segja en minningin um Didda bróður lifir. Minning sem mun aldrei gleymast. Hafi hann þökk fyrir allt. Og því er oss erfitt að dæma þann dóm, að dauðinn sé hiyggðarefni, þó ljósin slokkni og blikni blóm, er ei bjartara land fyrir stafni? Þér foreldrar grátið, en grátið lágt, við gröfina dóttur og sonar, því allt sem á líf og andardrátt til ódáinsheimanna vonar. (E.B.) Pabbi, mamma og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.