Morgunblaðið - 11.07.1989, Page 43

Morgunblaðið - 11.07.1989, Page 43
43 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989 Bráðskemmtilegur hnetu- keimurersérkenniþessa hrísgrjónaréttar. Blanda af villi- og brúnum hrísgrjónum með ekta sveppabitum og ferskri kryddblöndu. Bragð- gott meðlæti með öllum mat. • suðutími 15 mín. Heildsölubirgðir: KARL K. KARLSSOWCO. Skúlatúm 4, Reykjavík, sími 62 32 32 . Þegar þú vilt láta ferskleikann njóta sín ... Þegar kartöflu- og/eða grænmetissalat, kaldar sósur eða ídýfur eru á matseðli dagsins er MS sýrði rjóminn, 10%, betri en enginn. Sannaðu til - fátt gefur meiri ferskleika. Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa 10% (Mayonnaise) 1 tsk (5 g) 5.7 37 1 msk (15 g) 17 112 100 g 116 753 • Hreinsiefni • Pappir • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl. Minning’arorð: Elín H. Þorkelsson Fædd 2. mars 1919 Dáin l.júlí 1989 Systir mín, Elín Helga, oftast köll- uð Stella, lést í Landspítalanum 1. júlí sl. eftir stutta legu, en veikindi hennar komu öllum á óvart. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag.'þriðjudag, kl. 13.30. Elín Helga fæddist í Reykjavík 2. mars 1919, dóttir hjónanna Páls J. Olafson tannlæknis (dáinn 1933) og konu hans, Jóhönnu K. Ólafson (dáin 1954). Stella var þríburi en bræðurn- ir dóu stuttu eftir fæðingu í spönsku veikinni. Önnur systkini eru Lára, gift Jóhanni Jakobssyni efnaverk- fræðingi, og undirritaður, giftur Ing- veldi Viggósdóttur. Stella var snyrtifræðingur eftir nám í Kaupmannahöfn og rak sína eigin snyrtistofu í Reykjavík í nokkur ár. 6. maí 1939 giftist hún Gísla Þor- kelssyni efnaverkfræðingi. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau í Reykjavík, m.a. í Birkihlíð við Reykjaveg, en fluttu til Kópavogs 1953 og bjuggu þar síðan. Gísli Þor- kelsson lést 14. desember 1971. Stella og Gísli eignuðust þijár dætur: Jóhönnu, giftist Trausta Finnbogasyni, en þau eru nú skilin; Rannveigu, gift Stefáni Árnasyni, og Ingibjörgu, gift Kristjáni Guð- mannssyni. Barnabörn og barna- barnabörn þeirra eru 14. Fjölskylda mín sendir systrunum, Jóhönnu, Rannveigu og Ingibjörgu og fjölskyldum þeirra, okkar inni- legustu samúðarkveðjur og óskum þeim allrar blessunar um ókomin ár. Blessuð sé minning Elínar Helgu Þorkelssonar. Gísli Ólafson Það er sorglegt að hún lang- amma, Elín Helga Þorkelsson, er dáin. Okkur þótti svo vænt um hana. Við kölluðum hana alltaf Löngu. Henni þótti það svo gaman. Það var svo gaman að fara í heimsókn til Löngu. Hún átti liti og litabækur og við vorum alltaf að lita hjá henni og leika okkur með dótið sem hún átti. Alltaf þegar við áttum afmæli þá kom hún Langa til okkar. Hún var svo hress og var alltaf að grínast. Við sáum Löngu síðast þegar hún passaði okkur fyrir stuttu. Það var nammidagur og hún leyfði okkur að vaka eins lengi og við vildum og gaf okkur fullt af nammi. Hún spilaði við okkur og kenndi okkur lönguvitleysu og las sögur fyrir okkur alveg þangað til við vorum sofnuð. Það var alltaf gaman þegar Langa var að passa okkur. Við söknum hennar Löngu. En núna er hún Langa samt glöð af því að hún er komin upp til Guðs og til langafa sem er búinn að bíða eftir henni. Jóhann Helgi, Júlía , Sandra Rún og Lena Björg. Nú er hún látin, hún tengdamóð- ir mín, Elín Helga Þorkelsson eða Stella eins og hún var alla jafnan kölluð. Það var 2. mars árið '1919 að hjónunum Jóhönnu (dóttur Lár- usar H. Bjarnasonar hæstaréttar- dómara) og Páli Ólafssyni (syni Jóns Ólafssonar ritstjóra) fæddust þríburar. Þetta var frostaveturinn mikla og hér geisaði einhver skæð- asta pest sem komið hefur í Evr- ópu, spánska veikin. Margburafæð- ing þótti merkur viðburður í Reykjavík á þessum tíma og því varð gestkvæmt á heimili þeirra hjóna að skoða þessi litlu börn. En eins og Stella sagði sjálf þá var hún minnst og því höfð innst í herbergi og síst í smithættu. Bræður Stellu létust en hún lifði. Stella ólst upp í miðbænum í Reykjavík og fylgdist grannt með því sem þar fór fram, enda hafsjór af fróðleik um bæjarbraginn á þess- um tíma. Þar sem góð frásagnar- gáfa fór saman með þessum fróð- leik var gaman að hlusta á Stellu segja frá mönnum og málefnum í Reykjavík fyrri tíma. Stella giftist manni sínum, Gísla Þorkelssyni, árið 1939. Þau höfðu kynnst um borð í Gullfossi á leið til Kaupmannahafnar en þangað lá leið beggja til náms. Gísli í efna- verkfræði en Stella í snyrtifræði. Eftir að þau hófu búskap bjuggu þau fyrst í Norðurmýrinni, síðar í Birkihlíð en það er þar sem nú eru bílastæði við Laugardalsvöllinn. Á þessum árum þegar Laugarnes- hverfið var að byggjast upp þótti þetta nokkuð útúr, jafnvel fyrir utan bæinn. Um 1953 fluttust þau hjón í Kópavog, en Gísli var efna- verkfræðingur hjá Málningu hf. Bjuggu þau fyrst í Melgerði en fluttu síðan í Hlégerði þar sem þau bjuggu þar til að Gísli lést eftir erfiðan sjúkdóm 1971. Þá seldi Stella húsið og keypti sér íbúð í fjölbýlishúsinu að Lundarbrekku 2 í Kópavogi en þar bjó hún það sem eftir var. Stella og Gísli eignuðust þijár dætur sem lifa foreldra sína, Jó- hönnu, Rannveigu og Ingibjörgu. Barnabörnin eru níu og barna- barnabörnin eru orðin fimm. Öll þessi börn minnast ömmu og langömmu með söknuði, því að þrátt fyrir að Stella segði oft að hún þyldi ekki börn, þá sóttu börn alltaf til hennar og ófáar stundirnar sat hún og spilaði við dætur mínar eða spjallaði við þær. Stella fylgdist alla tíð vel með þjóðmálum og var hún ófeimin að tjá skoðanir sínar á þeim og þrátt fyrir að hún væri sjálfstæðiskona var hún ekki alltaf sátt við það sem hennar - menn gerðu, einkum hin síðari ár. Stella var snyrtifræðingur og starfaði við það allt þar til maður hennar veiktist af sjúkdómi þeim er varð honum að aldurtila. Stella var virkur félagi í félagi snyrtifræð- inga og átti þar aðild að stjórn um nokkurra ára skeið. Þegar Stella er kvödd í dag þá sakna ég góðs vinar; en minnist hinsvegar margra ánægjustunda sem ég hef átt bæði á heimili henn- ar og mínu. Stefán Óli Árnason íl K.E.W Hobby Háþrýstidælan MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ VEIÐIHJÓL OG STANGIR Fást í nœstu sportvöruverslun. Ðíllinn þveginn og bónaöur á tíu mínútum. Fyrir alvöru bíleigendur sem vilja fara vel meö lakkiö á bílnum sínum en rispa þaö ekki meö drullugum þvottakúst. Sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylgir. Einnig getur þú þrifið: Húsiö, rúöurn- ar, stéttina, veröndina og sandblásiö málningu, sprungur og m. fl. meö þessu undratæki sem kostar nú aðeins kr. 21.000.- staðgreitt. Afetsölubladá hverjwn degi! REKSTRARVORUR Draghálsi 14-16 • 110 Rvik . Símar: 31956 - 685554

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.