Morgunblaðið - 11.07.1989, Page 46

Morgunblaðið - 11.07.1989, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989 Minning: Benedikt Bogason alþingismaður Fæddur 17. september 1933 Dáinn 30. júní 1989 Það var dag einn fyrir nokkru að ég var að ergja mig yfir hvers- dagslegu vandamáli. Utan við bank- ann mætti ég skólabróður mínum. Ég spurði hann frétta af veikindum Benna, vinar okkar og bekkjarbróð- ur og samstarfsmanns míns. Við- mælandi minn sagði mér hver sjúk- dómurinn var. Þessi frétt var mikið áfall því ég vissi, að gegn þessum vágesti dugðu engin ráð. Baráttan gegn honum stóð venjulega ekki lengi. Samt kom fréttin um andlát Benna eins og reiðarslag því alltaf vonar maður innst inni að betur fari. Nokkrum dögum áður hafði ég feng- ið kveðju frá honum og skilaboð um að hann mundi hringja í mig. En hringingin kom ekki. Þessi stutta leið frá bankanum, þar sem ég frétti um sjúkdóm Benna, að vinnustaðnum mínum, var í þetta sinn sem þymum stráð. Þyngst voru skrefin fram hjá dyrunum hans því skrifstofurnar okkar eru hlið við hlið, saman úti í horni. Hugsunin um að hafa Benna ekki lengur í þessu her- bergi var lítt bærileg. Ringlaður lét ég fallast ofan í stólinn minn. Eftir langa stund seildist ég í símann og hringdi í konuna mína. Henni var fréttin líka mikið áfall því henni fannst líka mjög vænt um Benna. Nína mín, sagði ég, hvílíkt hjóm eru nú þessar hversdagsáhyggjur okkar. Hvaða máli skiptir bilaður bíll eða gjaldfallin skuld þegar hann Benni liggur fyrir dauðanum. Benedikt Bogason andaðist að morgni hins 30. júní síðastliðinn eft- ir skamma sjúkdómslegu. Hann hafði fundið til lasleika á meðan hann sat á Alþingi, þar sem hann tók sæti í aprílbyijun, en hugurinn var svo mikill að ekki kom til greina að leita til læknis fyrr en eftir þing- slit. Þegar hann yfirgaf okkur í Byggðastofnun til að gangast undir læknisrannsókn datt engum í hug að þetta væri skinaðarstundin enda var Benni þá hress að vanda. En kallið mikla getur komið hvenær sem er. Benedikt fæddist 17. september 1933 í Laugardælum í Hraungerðis- hreppi en ólst að mestu upp í Laug- ardalnum í Reykjavík. Foreldrar hans voru Bogi Eggertsson, verk- stjóri í Reykjavík og kona hans Hólmfríður Guðmundsdóttur, bæði Ámesingar. Benni var af einum af þessum fámennu kreppuárgöngum sem við vorum vanir að segja að einkenndust af gæðum frekar en Qölda. Haustið 1947 hóf hann nám í 1. bekk Menntaskólans í Reykjavík, í síðasta sinn sem sá bekkur starf- aði, dúx á inntökuprófi. Benni var mjög áberandi maður í öllu félagslífí innan skólans, gegndi þar trúnaðar- störfum og var afar vinsæll meðal nemenda sem kennara. Stúdents- prófí var svo lokið í júní 1953. Um haustið hófu menn háskólanám. Blómastofa Fnðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öil kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Benni fór í verkfræðina, fyrst hér heima en svo, eiginlega fyrir tilvilj- un, fór hann til Finnlands. Verk- fræðinámið í Finnlandi var langt og strangt og gerðar voru miklar kröfur til stúdenta. Þær stóðst Benedikt að sjálfsögðu allar með prýði. En þessu æviskeiði tilheyrði einnig það að finna sér lífsförunaut og stofna fjölskyldu. Þar var lán Benedikts mikið þegar hann gekk að eiga Unni Svandísi Magnúsdóttur, sem síðan hefur staðið með honum í blíðu sem stríðu. Um svipað leyti hófst svo lífsstarfíð. Starfsferill Benedikts var fjölbreyttur og vel til þess fallinn að safna saman fjölþættri reynsu. Hann stundaði verkfræðistörf og kennslu á Selfossi hjá Flóaáveitunni og fleirum og í Reykjavík hjá borgar- verkfræðingi og síðan á eigin verk- fræðistofu, hér syðra og víða um land. Síðustu níu árin starfaði hann í Framkvæmdastofnun ríkisíns og Byggðastofnun. Það sýnir vel fjöl- hæfni hans að í þessum tveimur stofnunum starfaði hann mikið á sviði fyrirtækjarekstrar, m.a. sem formaður nefndar sem gerði viða- mikla úttekt á heilum atvinnuvegi. Á þessu sviði tók Benedikt oft að sér afar erfið verkefni sem ekki að- eins kröfðust faglegrar kunnáttu og almennrar skynsemi heldur einnig flókinna og jafnvel erfíðra mann- legra samskipta. Þar var hann einn- ig rétti maðurinn. Ekki skulu pólitísku störfín ónefnd, í bæjarmál- um á Selfossi og landsmálapólitík á Suðurlandi og í landsmálum í víðtækasta skilningi á meðan Gunn- ar Thoroddsen var forsætisráðherra. Þá sat hann m.a. í Efnahagsmála- nefnd ríkisstjórnarinnar. Stjómmál- in voru honum mikið áhugamál og sagðar em þjóðsögur af afskiptum hans þegar Gunnar Thoroddsen myndað ríkisstjóm sína. Benedikt gerðist svo einn af stofnendum Borgaraflokksins. Hann var einn aðal hugsuður flokksins og lagði mikið af mörkum við stefnumótun og í flokksstarfi. Hann varð vara- þingmaður Borgarafokksins og í aprílbyijun sl. tók hann svo sæti á Alþingi. Þá var markmiði náð og tækifæri fengið sem skyldi nýtt. En áður en tími vannst til þess barst kallið mikla. Leiðir okkar Benedikts Bogasonar la£u fyrst saman haustið 1950. Þá settist ég í íjórða bekk Y í Mennta- skólanum í Reykjavík. Ég hafði, ásamt öðmm félaga mínum lesið þriðja bekk utan skóla heima í Reyk- holti. Sá fór í máladeild og ég kom því einn í Y bekkinn. í fyrsta sinn var ég farinn að heiman til langdval- ar, undan vemdarvæng foreldra og hinnar miklu fjölskyldu sem nem- endur og heimamenn hins mika skólastaðar að Reykholti mynduðu. Aðkoman í MR var einnig að því leytinu sérstök að sá árgangur sem ég nú gekk inn í var síðasti hópurinn sem sat í Menntaskólanum í Reylq'avík allt frá því í fýrsta bekk. Þessi hópur, sem í þijú ár hafði ver- ið í neðsta bekk skólans, var samt „úrvals klíkan" í árgangnum, heima- ríkur hópur sem tók ekki hvem sem var sem fullgildan MR-ing, síst af öllu ringlaðan sveitadreng sem varla vissi í hvom fótinn hann átti að stíga. Benni Boga var einn af þeim sem mest bar á í Y bekknum enda mikill naihsmaður og mikill og skemmtilegur félagi allra vina sinna. Ég bar mikla viðingu fyrir þessum sjálfsömgga unga manni og það kom mér á óvart þegar hann fór að veita mér athygli. Ástæða þess að Benni tók eftir mer var til að byija með dálítið sérstök. Ég var nefnilega orð- inn ákveðinn framsóknarmaður og þess vegna keypti ég áskrift að Tímanum. Ég tók blaðið með mér í skólann og bar það á áberandi hátt í vinstri jakkavasanum. Benni, sem var sjálfstæðismaður, fann að þesssu við mig. Hann sagði mér að fátt væri um framsóknarmenn í MR og þeim fáu sem þar væru þætti ráð- legra að lata sem minnst á því bera. Ef ég endilega vildi koma með Tímann í skólann skyldi ég geyma hann í skólatöskunni og lesa hann svo lítið bæri á inni í skólastofu eða þá helst inni á klósetti bak við læsta hurð. Ég svaraði því til, að ég mundi hvergi breyta háttum mínum. Mér sem framsóknarmanni væri skylt að beijast gegn ósóma íhalds og komm- únisma í MR sem annarsstaðar og menn skyldu þó sjá að einn Fram- sóknarmaður væri óhræddur við að auglýsa nærveru sína í þessum skóla. Ég held að Benni hafí borið virðingu fyrir þvermóðskunni í mér. Að sjálfsögðu stríddi hann mér með Tímanum og með framsókanrsveita- mennskunni, en það var góðlátleg stríðni sem aldrei særði. Ég var upp með mér af þeirri athygli sem þessi „úrvalsklíku-maður“ sýndi mér. Þetta voru líka fyrstu skrefín í að byggja upp þá vináttu sem þróaðist með okkur næstu árin í mennta- skóla, á fyrsta ári í Háskóla og síðan í leik og starfí en þó serstaklega eftir að við tókum upp daglegt sam- neyti sem samstarfsmenn og á viss- an hátt sálufélagar í Framkvæmda- stofnuninni og í Byggðastofnun. Með Benedikt Bogasyni hefur hæfileikamaður og mannkostamað- ur á besta aldri verið kallaður burt frá stórum verkefnum löngu fyrir tímann. Það er erfitt að vera sáttur við og skilja þann sem öllu ræður því Benni var traustur liðsmaður þess góða í heimi hér og hann átti svo margt ógert. Jesús sagði sjálfur dæmisöguna um þjónana þijá sem fengu talentur húsbóndans til varð- veislu, um þá sem ávöxtuðu þær og um þann sem gróf þær í jörð. Bene- dikt Bogason fékk ríkulegar talentur til ávöxtunar úr hendi húsbóndans mikla og hann var að ávaxta þær sem best hann kunni. Einnig fékk hann sinn skerf af mannlegum veik- leikum til að sigrast á. Sigurinn vann hann með glæsibrag og kom þroskaður maður út úr þeim hildar- leik. En húsbóndinn gaf honum einn- ig hlýtt hjarta, drengskaparlund og hugsjónir. Því nýtti hann talentumar og ávaxtaði þær í uppbyggilegu starfí alþjóð til heilla en ekki til eig- in hagnaðar og víða sjást hans spor. Öllum verkefnum var vel borgið í hans höndum hvort sem það var undirbúningur mannvirkja eða stjómun þeim tengd, ákveðin af- mörkuð verkefni í Framkvæmda- stofnun eða Byggðastofnun, nefnda- störf af ýmsu tagi, seta í stjómum fyrirtækja og svo framvegis. Allt vom þetta mikilvæg verkefni en þau nægðu honum ekki því talentumar vom fleiri og hugurinn og orkan mikil. Sá sem finnur til getu sinnar og vill þjóðinni vel hlýtur að hafa áhuga á stjórnmálum. Slíkur maður má heldur ekki setja ljós sitt undir mæliker, honum ber að láta það skína öðmm til leiðsagnar. Þess vegna varð Benedikt Bogason stjómmálamaður. Sem slíkur átti hann sína eigin þjóðfélagssýn sem varð_ hugsjón hans. Hann gat ekki séð Island fyrir sér sem land fráls- hyggju, land ópersónulegra lögmála og grimmdar þar sem fjarrnagnið eitt réði. Landið hans Benna var land félagslega ábyrgrar einstakl- ingshyggju, þjóðfélag mannúðar, þar sem hinn sterki tróð ekki á þeim smáu heldur bar á þeim ábyrgð eins og á sjálfum sér og þar sem réttsýn stjórnvöld hefðu taumhald á heimsk- um og skammsýnum markaðsöflun- um og gættu hagsmuna almennings. Þetta var kristileg þjóðfélagssýn, þjóðfélag þeirra sem ávöxtuðu talen- tumar en sem deildu ávöxtunum með þeim sem minna máttu sín, þjóðfélag þar sem miskunnsami Samveijinn átti líka heima. Ég vissi, og það gerðu fleiri, að Benna var eins trúandi fyrir íslenska þjóðfélag- inu eins og fyrir öðru sem hann hafði tekið ábyrgð á. Því glöddumst við innilega þegar hann loks fékk stóra tækifærið sitt, þegar hann tók sæti á Alþingi. Ég vissi að nú mundi örninn fínna fyrir styrk vængja sinna og þegar undirbúningi lyki yrði flug- takið mikið. En þá komst þú, guð minn, og sagðir: „Hingað og ekki lengra, nú tek ég þig til mín, minn trúi sonur, þér ætla ég önnur verk- efni.“ Við, hérna niðri, sitjum eftir, ráðvillt. Við skiljum ekki, drottinn, að þig hafí munað um að gefa hon- um nokkur ár í viðbót svo hann hefði getað komið meiru af ætlunar- verki sínu í framkvæmd. Það hefði verið starf unnið þér til dýrðar, talentumar þínar hefðu ávaxtast til fullnustu. íslenska þjóðin hefur orðið fyrir miklu tjóni við fráfall Benedikts Bogasonar. Borgaraflokkkurinn hef- ur tapað mesta hæfileikamanni sínum. Við öll, sem trúum á kreddu- laus og fordómalaus stjómmál heil- brigðrar skynsemi höfum tapáð sterkum liðsmanni. Byggðastofnun hefur tapað afbragðs starfsmanni og starfsmennirnir þar góðum fé- laga. En þetta ér kannske léttvægt miðað við það áfall sem fjölskylda Benedikts, Unnur, börnin tvö, Magn- ús og Hómfríður og tengdabörnin að ógleymdu eina bamabaminu, hefur orðið fyrir. Við höfum flest einhveija reynslu af því að missa ástvini yfir móðuna miklu. En þegar þetta gerist svona óvænt einmitt þegar allt lék í lyndi, þegar allir horfðu björtum augum fram á við, virðist lífíð fyrst á eftir svo innan- tómt og hið daglega strit svo til- gangslaust. Hjá þeim hjónum átti svo mikið enn að vera eftir af góðu árunum, ámm fulls þroska og frels- is áður en ellin tekur við. Ávextir ævistarfsins voru enn að verulegu leyti ósnertir. En sá sem öllu ræður hefur þennan rétt, að breyta öllum áætlunum þega honum hentar. Benedikt var líka einn þeirra manna sem tekið gat við þessu kalli hvenær sem var. Án þess að beija bumbur og prédika á gatnamótum trúði hann a'guð og á sinn hátt lifði hann í guði og fyrir guð. Hann vissi að guð er kærleikur og fyrirgefning en ekki reiði og fordæming og að lífíð heldur áfram jafnskjótt og okkur virðist því ljúka. Þetta er hin íslenska þjóðar- trú, sem enn hefur staðist þrátt fyr- ir innflutning ofstækis og kreddu- kenninga af ýmsu tagi. Manni með þessa afstöðu em vistaskiptin auð- veld. Hann getur tekið á móti ljósinu mikla sem bíður hans og honum er veþtekið. Ég bið almáttugan guð að styrlqa vin okkar sem hann kallaði til sín og leiða hann inn í ijósið, inn á nýj- ar þroskabrautir. Ég votta Unni og bömunum innilegustu samúð okkar hjóna og við biðjum guð að styrkja ykkur í að byggja líf ykkar upp að nýju. Honum Benna þökkum við fyrir svo margt sem hann gerði fyr- ir okkur með því að vera eins og hann var. Blessuð sé minning hans. Við sjáumst aftur. Bjarni Einarsson Þegar ég tek mér penna í hönd að minnast vinar míns og samheija, Benedikts Bogasonar, finn ég best hvað ég sakna hans mikið. Ég minn- ist þess ekki að hafa saknað nokk- urs manns jafn innilega eftir ekki lengri kynni. Við tókum þátt í að stofna flokk fyrir rúmum tveimur árum og unn- um strax mikið saman. Hann var frábær skipuleggjandi og átti auð- velt með að vinna með ólíkasta fólki. Það var gott að tala við hann, leita ráða hjá honum og finna vináttu hans. Benedikt var gæfumaður í sínu lífi. Hann átti eins og hann sagði sjálfur heimsins bestu konu, góð böm og tengdabörn og indæla afa- stelpu. Samband hans við aðra ætt- ingja var með ágætum. Unnur mín, ég vildi að ég gæti sagt eitthvað þér til huggunar en öll orð verða svo fátækleg þegar sorgin leggst að. I framtíðinni verð- ur það huggun þín hvað þú reyndist honum Benedikt þínum vel og alltaf best þegar mest á reyndi. Við Guðsteinn biðjum góðan Guð að blessa þig og alla vandamenn ykkur hjóna og geyma okkur látna vin í eilífum frið. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir Við Benedikt Bogason áttum sam- leið í stjórnmálum allan síðasta ára- tug og lengur. Því réðu svipaðar skoðanir okkar á manngildi og frelsi en við höfnuðúm nýfijálshyggju og flokksræði. Árum saman sátum vð vikulega fundi á skrifstofu Bene- dikts í góðum hópi fijálslyndra manna í Sjálfstæðisflokknum og stoltir fylgdum við Gunnari heitnum Thoroddsen forsætisráðherra. Stofn- un Borgaraflokksins var eðlilegt framhald af því starfi. En nú er Benni á brott kallaður í miðri dagsins önn frá ástríkri fjöl- skyldu og elskaðri eiginkonu. Éin- mitt þegar hann átti þess kost að vinna hugðarefnum sínum fylgi á vettvangi stjómmálum í landinu. Eftir stöndum við félagarnir í Borg- araflokknum og kveðjum okkar dugmikla vin hinstu kveðju og kunn- um engin önnur ráð en elska enn meira þá sem áfram lifa. Alfaðir blessi ástvini Benedikts á skilnaðar- stundu og styrki þá í djúpum sökn- uði uns leiðir liggja saman á ný. Asgeir Hannes í dag verður til moldar borinn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, tengda- faðir minn, Benedikt Bogason, verk- fræðingur og alþingismaður. Hann andaðist að morgni 30. júní sl. í Landspítalanum í Reykjavík eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Bana- mein hans var krabbamein. Benedikt fæddist að Laugardæl- um í Árnessýslu þann 17. september 1933 og var því 55 ára að aldri er hann lést. Hann var sonur hjónanna Boga Eggertssonar og konu hans Hólmfríðar Guðmundsdóttur. Auk Benedikts eignuðust þau hjón 6 börn. Benedikt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953 og sama ár fór hann í verk- fræðideild Háskóla íslands. Árið 1954 lagði hann land undir fót og skráði sig í Tekniska Högskolan í Finnlandi og lauk þaðan prófí í bygg- ingaverkfræði fyrstur íslendinga árið 1961. Á námsárum sínum í Finnlandi fékk Benedikt tvisvar styrk frá fínnska ríkinu fyrir góðan námsár- angur. Þessir styrkir voru honum nauðsynlegir vegna þess að foreldrar hans vóru ekki aflögufærir og þurfti hann því að fíármagna menntun sína sjálfur sem hann og gerði. Árið 1957 gekk Benedikt að eiga Unni Magnúsdóttur og mun það hafa verið eitt af hans stærstu gæfu- sporum, því betri lífsförunaut var varla hægt að hugsa sér. Eignuðust þau hjón tvö böm, Magnús Grétar, fæddur 15. janúar 1958, giftur und- irritaðri svo og Hólmfríði, fædd 3. október 1960, gift Þorgils Ingvars- syni. Benedikt var litríkur persónuleiki. Lífsorkan og starfsgleðin geislaði af honum og það var alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur og fyrir hvem, allt var jafn vel og ná- kvæmlega unnið. Það var ekkert verið að tvínóna við hlutina, því hann var maður framkvæmdanna. Benedikt starfaði mikið að félags- málum og þekkti pólitíkina inn og út. Það var ekki komið að kofanum tómum í þeim efnum. Alltaf var hann kátur og skemmtilegur og hrókur alls fagnaðar. Hann var bráð- greindur og skarpur maður og oft furðaði mig á því hve vel hann var að sér í hinum ýmsu málum. Benedikt var maður sem fylgdi skoðunum sínum fast eftir og oftar en ekki voram við ósammála þegar pólitíkin var raídd innan veggja heimilisins. Það" breytti því þó ekki að' ég virti hann sem stjórnmála- mann og hann mig fyrir að þora að standa uppi í hárinu á sér. Allt var þetta þó í góðu og oft var mikið hlegið að þessu karpi okkar, því bæði vorum við jafn sannfærð um eigin skoðanir. Það sem skipti Benedikt þó mestu máli í lífinu var fjölskyldan hans. Sjaldan eða aldrei hef ég kynnst jafn samhentri fíölskyldu, tengda jafn sterkum böndum. Allar fjöl- skyldur eiga við sína erfiðleika að etja og fóra þau ekki varhluta af

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.