Morgunblaðið - 11.07.1989, Side 49
fulltrúi Byggðastofnunar, þar sem
hann starfaði til dauðadags.
Kynni okkar Benedikts hófust
veturinn 1961-62 hér á Selfossi. Þá
kenndi hann stærðfræði hérna við
Gagnfræðaskólann. Um vorið vorum
við kjörnir í hreppsnefnd Selfoss-
hrepps á lista Sjálfstæðisflokksins
og höfðum því nána samvinnu næstu
árin.
Tvö voru megináhugaefni Bene-
dikts þann tíma, sem hann vann hér
að sveitarstjórnarmálum. Annað var
að vinna að heildarskipulagi fyrir
byggð á Selfossi og þróun hennar.
Hitt var að leggja grunn að því að
Selfoss yrði skólabær og bæri nafn
með rentu. Hvort tveggja varð raun-
in í fyllingu tímans.
Þegar Benedikt hafði hafið rekst-
ur eigin verkfræðistofu voru honum
falin margs konar verk af því tagi
hér um slóðir. Þar var um að ræða
verkefni fyrir Vatnsveitu Selfoss,
burðarþolsteikningar margra
stærstu mannvirkja, sem þá voru
hér í byggingu, svo sem Bóka- og
byggðasafnið, Hótel Selfoss og síðar
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Enn héldust tengslin eftir að hann
hóf störf við Framkvæmda- og
Byggðastofnun, sem mjög fléttuðust
daglegri baráttu sveitarstjómar-
manna um land allt. í öllum þessum
margháttuðu störfum nýttust eðlis-
kostir B'enedikts Bogasonar með ein-
dæmum vel. Hann hafði einlægan
áhuga á hvers konar framförum,
hvar sem hann kom að verki. Var
óbilandi í trú sinni á möguleikum
lands og þjóðar til þess að halda hér
uppi blómlegu atvinnu- og menning-
arlífí er stæðist vel samanburð við
aðrar þjóðir.
Benedikt var í raun gæddur þeim
eldmóði, er tendraði áhuga hjá öllum
sem voru við hann samvistum, um
skemmri eða lengri leið. Hann var
og þeirrar gerðar að hann naut þess
að greiða götu manna og leysa vanda
þeirra, væri það á hans færi. Enda
býst ég við að fáir hafi gengið bón-
leiðir til búðar af hans fundi.
Þó að Benedikt væri jafnlyndur
að eðlisfari og oft glettinn og spaug-
samur í daglegu samneyti, þá var
hann fastur fýrir og ákveðinn í
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir,
bandsagir,
spónsagir,
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
49
málafylgju, ef um það var að tefla
sem honum þótti miklu skipta.
En það sem mér er ríkast í minni
og ég stend í mestri þakkarskuld
fyrir, nú við leiðarlok, er drenglyndi
hans og vinfesti, sem aldrei brást.
Það er mikið harmsefni þegar jafn-
hæfileikaríkur maður er hrifinn fyr-
irvaralítið á brott í miðri dagsönn.
Mestur harmur er þó kveðinn að
ijölskyldu Benedikts og öðrum þeim
sem næst honum stóðu.
Benedikt var mikill hamingjumað-
ur í einkalífi. Ungur gekk hann að
eiga eftirlifandi konu sína, Unni
Magnúsdóttur, sem reyndist honum
traustur lífsförunautur og einlægur
félagi frá fyrstu tíð til hinstu stund-
ar. Þeim varð tveggja barna auðið,
en þau eru: Magnús, lögg. endur-
skoðandi, kvæntur Birgittu Thor-
steinsson og eiga þau eina dóttur,
og Hólmfríður, flugfreyja, gift Þorg-
ils Ingvarssyni, símvirkjameistara.
Benedikt lá meginhluta hinnar
stuttu en erfiðu sjúkdómslegu á
heimiii sínu og naut hjúkrunar og
aðhlynningar fjölskyldu sinnar svo
sem frekast var kostur, nánast þar
til yfir lauk.
Við Svava sendum Unni, börnum
þeirra hjóna, tengdabörnum og son-
ardótturinni, sem og öllum öðrum
aðstandendum Benedikts, okkar
dýpstu samúðarkveðjur og biðjum
þeim blessunar' Guðs í sorg þeirra
og þungbærri þraut.
Megi minningin um góðan dreng
verða þeim huggun harmi gegn.
Óli Þ. Guðbjartsson
Það voru þungbærar fréttir sem
mér voru færðar að morgni 30. júní
sl. þess efnis að góður vinur minn
og velgjörðarmaður Benedikt Boga-
son væri látinn. Fyrir aðeins örfáum
vikum síðan var hann í fullu fjöri
og engan óraði fyrir að stutt væri í
endalokin. Benedikt var í blóma
lífsins þegar hann lést og manni
finnst að hann hafi átt margt eftir
ógert þegar almættið kallaði hann
til sín og manni fannst hann eiga
nóg eftir. Samt finnst mér þegar ég
lít yfir feril hans og farinn veg að
hann hafi komist yfir meira en flest-
ir aðrir.
Með Benedikt er genginn einhver
stórkostlegasti maður sem ég hef
kynnst á lífsleiðinni. Benedikt var
sterkur og heilsteyptur persónuleiki
sem lét (sér ekki allt fyrir bijósti
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Sumardagar í garðinum.
10% afsláttur af garðhúsgögnuin
og garðverkfærum þessa viku!
HUSA
5MKXJAN
SKÚTUVOG116 SlMI 6877 00
Efni, áhöld og góðar hugmyndir.
Fagurt umhverfi bætir mannlífið!
Kodak
d a pu; nnj jp
ORKA SEM ENDIST 0G ENDIST