Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 52
MOKGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
!$2
ffclk í
fréttum
■ Leikkonan Jodie
Foster er að sögn kunn-
ugra mikill aðdáandi
Davids Bowies. Hún datt
heldur betur í lukkupott-
inn á dögxinum þegar
David bauð henni í sam-
kvæmi í tilefni af útgáfii
nýjustu plötu sinnar,
„Thin Machine". Ekki er
hægt að sjá annað en vel
fari á með þeim Jodie og
David í samkvæminu.
■ Míkhaíl Baríshnikov hefur ákveðið að
taka sér hlé frá Bandaríska listdansflokkn-
um á næsta ári. Hann ætlar að taka því
rólega og lesa kvikmyndahandrit. Myndin
er tekin í Kólumbusar-kaffihúsinu í New
York. Mikhaíl er einn eigenda kaffihússins.
■ Malcolm-Jamal Warner, sem
leikur Theo í þáttunum um fyrir-
myndarfoðurinn Cliff Huxtable, er
eflaust vanari að vera framan við
kvikmyndatökuvélar en aftan við
þær. Þangað virðist hann þó stefha
í framtíðinni því í sumar stundar
hann nám í kvikmyndasfjórn við
New York-háskóla. Myndin er tek-
in þar sem Malcolm-Jamal vinnur
að stuttri kvikmynd sem sett var
fyrir í skólanum.
SVIPMYNDIR
Af
stjörnum
Tveir íslenskir drengir, báðir búsettir í Bethesda, léku á hljóðfæri,
Jón Hallur Stefánsson, 11 ára, lék á fiðlu og Krisfján Snorrason, 9
ára, lék á píanó.
WASHINGTON DC
IIALDIÐ UPP
Á ÞJÓÐHÁTÍÐ
Islendingafélagið í Washington
DC, höfuðborg Bandaríkjanna,
minntist þjóðhátíðarinnar 16. júní
síðastliðinn.
Nokkru áður hafði gengið yfi
eitt mesta óveður í manna minnun
og veðurspáin fyrir daginn var ekk
upp á marga fiska. Nú voru gói
DISNEY WORLD
Heilsað
uppá
MikkaMús
að getur verið erfitt að vera
barnastjarna og þurfa að vinna
þegar sólin skín og aðrir krakkar
eru úti að leika sér. Af og til gef-
ast þó stundir milli stríða og þá er
gott að slappa af í faðmi fjölskyld-
unnar.
Keshia Knight-Pulliam, betur
þekkt sem Rudy í þáttunum um
fyrirmyndarföðurinn Cliff
Huxtabie, átti frí frá sjónvarpsupp-
Keshiu þótti mikið til um að hitta
Mikka Mús.
tökum fyrir skömmu og fór með
foreldrum sínum og systkinum í
skemmtigarðinn Disney World á
Florida.
Keshia hefur leikið í þáttaröð
Bills Cosbys í fjögur ár. Hún verður
bráðum átta ára.
MÚNCHEN
200 ára afinæli Enska
garðsins minnst
Miinchen. Frá Bergljótu Friðriksdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
MUUNCHENARBÚAR eru
hátíðarskapi þessa dagana.
Stolt borgarinnnar, Enski garður-
inn, sem er stærsti garður innan
borgarmarka í heiminum, er um
þesar mundir 200 ára gamall og
svo virðist sém allir hafa lagst á
eitt um að gera afmælið sem eftir-
minnilegast.
1 Þýskalandi gengur Múunchen
undir nafninu Borgin með hjartað.
Ef staðsetja á hjartað á Maríut-
orgi, ráðhústorgi borgarinnar, má
segja að Enski garðurinn sé lunga
hennar.
Hugmyndina að garðinum átti
bandarískur liðsforingi, Benjamin
Thomas að nafni, sem kom til
Múnchenar eftir dvöl á Englandi
og var skipaður hermálaráðherra í
Bæjaralandi 1788. Þáverandi kjör-
fursti, Karl Theodór, sem var lítt
vinsæll meðal Múnchenarbúa, tók
ráðum liðsforingjans um að gera
vel við íbúana og gerði þeim
skemmtigarð í miðborginni.
Við hönnun garðsins var farið
eftir enskum fyrirmyndum en
skemmtigarðar þar í landi þóttu
víðlendari og náttúrulegri en annars
staðar. Þar er skýringin á nafni
garðsins komin. Árið 1789 var
Enski garðurinn loks opnaður og
þá með mikilli viðhöfn. Fyrst um
sinn var hann aðeins ætlaður aðals-
fólki en fjórum árum síðar var hann
opnaður almenningi.
Garðurinn, sem er 373 hektarar
að flatarmáli og ákaflega gróður-
sæll, er norður af miðborginni og
gegnir veigamiklu hlutverki í dag-
legu lífi borgarbúa. Sérstaklega á
brennheitum sumardögum þegar
ys og þys borgarinnar ætlar alla
að æra og kæfa er kærkomið að
bregða sér út í Enska garð til að
ná andanum. Og ekki er hætta á
að manni leiðist því mannlífið þar
er með ólíkindum fjölskrúðugt.
Á sólríkum sumardegi eru að
jafnaði um 300 þúsund manns sam-
an komin í garðinum við ýmiss
konar iðju. Þar þinga hundar jafnt
sem menn, hjólhestar eru á hverju
strái og þarfasta þjóninum bregður
fyrir á brokki inni á milli trjánna.
Mesta athygli vekja þó vafalítið
sólbaðsdýrkendur en garðurinn er
þekktur fyrir ftjálslyndi í þeim efn-
um. Á ákveðnu svæði í garðinum
flatmagar að jafnaði fjöldinn allur
af fólki sem lítt er gefið fyrir bað-
fatnað og kýs miklu fremur að sóla
sig eins og Guð skapaði það.
Margir láta sér þó ekki nægja
að liggja kyrrir fyrir í Adams- og
Evuklæðum heldur nota tækifærið
„frjálsir og óháðir" til að iðka ýms-
ar íþróttir svo sem blak eða hnit.
Einn furðufugl æfir meira að segja
spjótkast og bogfimi í garðinum og
hefur gert það um árabil. Strípa-
lingarnir í Enska garðinum þykja
sjálfsagður hluti af mannlífi hans
Frá Miinchen. Frúarkirkjan gnæfir yfir og setur svip á borgina. Kirkj-
an var reist á 15. öld. Turnar hennar eru eins konar tákn borgarinnar.
og því láta fæstir það á sig fá þó
þeir mæti nöktum spjótkastara á
hlaupum á göngu sinni um garðinn.
Ef þorsti sækir að garðgestum
er hægur vandi að bæta úr því þar
sem stærðar bjórgarður er við
Kínverska turninn svokallaða. Er
það líklega fjölsóttasti staðurgarðs-
ins enda Þjóðvetjar frægir bjór-
drykkjumenn. Þar situr fólk af öll-
um manngerðum og þjóðfélags-
gerðum með eins lítra bjórkrús í
annarri hendi og brauðkringlu í
hinni. Bæversk lúðrasveit, staðsett
uppi í turninum, sér svo um að
skapa rétta stemmningu.
í tilefni 200 ára afmælisins eru
fyrirhuguð tveggja vikna hátíða-
höld í Enska garðinum en þau hóf-
ust sl. sunnudag að viðstöddu fjöl-
menni, meðal annars forseta lands-
ins, Richard von Weizsácker. Ef
veðrið heldur áfram að leika við
Múnchenarbúa má reikna með að
þeir verði ófáir sem eiga eftir að
leggja leið sina í Enska garðinn
næstu daga og fagna stórafmælinu,
enda á perla borgarinnar í hlut.