Morgunblaðið - 16.07.1989, Side 36

Morgunblaðið - 16.07.1989, Side 36
36 G MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989 Þú hefðir ekki átt að spyija um skurðaðgerðina... HÖGNI HREKKVÍSI Á FÖRNUM VEGI Páll Tómasson og Soffia Ámadóttir Stóriðja eða ekki stóriðja? Hættulegl að hjóla í umferðinni Til Velvakanda. að hefur verið íjallað um hjól- reiðar í Velvakanda að und- anförnu og hjólreiðamenn m.a. verið gagnrýndir fyrir að fara ekki eftir umferðarreglum. Þetta kann að vera satt. En ég vil benda á að svo lítið tillit er tekið til hjól- reiðamanna í umferðinni hér að það er beinlínis stórhættulegt að fara út í umferðina á reiðhjóli. Ég hef sjálfur reynt að hjóla í um- ferðinni hérna en hætti því alveg þegar ég sá hversu hættulegt það var. Síðan hef ég nær eingöngu hjólað á gangstéttum og gangstíg- um og ráðlegg öðrum hjólreiða- mönnum að gera slíkt hið sama. Hjólreiðamaður Tínum upp draslið Kæri Velvakandi. Eg hef verið á ferð um landið að undanförnu með fjölskyldu minni og vakti það athygli okkar hversu mikið af drasli er víða með vegurn. Mest eru þetta plastpokar og brúsar af ýmsu tagi. Mikil óprýði er af þessu og er það furðu- legt að fólk skuli láta það henda sig að kasta þessu út um bílglugga. Við gerðum okkur far um að tína þetta upp þar sem við stoppuðum. Æskilegt væri að öku- menn gerðu það almennt því það virðist eina leiðin til að losna við þennan ófögnuð. Ferðalangur Akureyri UMRÆÐUR um orkufrekan iðnað á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið nokkuð áberandi á undaniörnum vikum, en slíkar umræður hafa að mestu legið niðri írá því fyrir um fímm árum þegar umræður um álver við EyjaQörð voru mikl- ar og á tíðum heitar. Undirskrift- um var safnað á báða bóga, með og á móti og sýndist sitt hveijum um ágæti álvers. Fyrirhugaður er fúndur með iðnaðarráðherra í september næstkomandi þar sem fúndarefnið er orkufrekur iðnað- ur í Eyjafirði. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hefur nú fengið það verkefni að safna upplýsingum um orkufrekan iðnað hér um slóðir fyrir fundinn með iðn- aðarráðherra. Tíu verkalýðsfélög á Eyjafjarðarsvæðinu hafa skrifað undir ályktun þar sem fullum stuðn- ingi er lýst við hugmyndina um að stóriðju af einhveiju tagi verði kom- ið hér upp. Kvennalistakonur hafa hins vegar varað við draumum um stóriðju. Hættuleg umhverfinu Mogunblaðið lagði leið sína í göngugötuna á Akureyri og spjallaði við nokkra aðila um málið. Arnar Matthíasson sagðist heldur neikvæð- ur í garð stóriðju og sagði hana úr takt við tímann. „Ég er á móti stór- iðju vegna þess að ég álít að með nútímatölvutækni þá sé okkur kleift að afia tekna með iðnaði af öðru tagi, sem þar að auki er ekki eins hættulegur umhverfinu," sagði Arn- ar. Efla ber smáiðnað Kristján Logason sagðist lítinn áhuga hafa fyrir stóriðju í Eyjafirði. „Ég er á móti stóriðju, sérstaklega ef hún er í eigu útlendinga. Ég tel mun heppilegra að efla ýmiskonar smáiðnað á svæðinu. Ég held ein- hvern veginn að stóriðjan gefi okkur ekki öll þau atvinnutækifæri sem verið er að tala um,“ sagði Kristján. Hann sagðist frekar vilja sjá blóm- legan iðnað í smærri sniðum. „Ég tel að slíkur iðnaður sé mun hag- kvæmari í rekstri en stóriðja og skapaði fleirum atvinnu, stóriðjur eru orðnar svo vélvæddar að það eru ekki svo ýkja margir sem fá þar atvinnu, auk þess sem alltaf er mengunarhætta fyrir hendi.“ Stóriðja myndi skapa mikla atvinnu Páll Tómasson og Soffía Árna- dóttir sátu í makindum á bekk einum í göngugötunni. Þau voru spurð álíts á stóriðjumálinu. „Ég var á móti þessu þegar rætt var um álverið á sínum tíma, en ég hef skipt um skoð- un síðan þá,“ sagði Páll og Soffía tók í sama streng. Þau sögðust hafa Víkveiji skrifar egar ijármálaráðherra var í vor sakaður um óábyrga samninga við BSRB, samninga sem kostuðu ríkið meira en greiðslugetan leyfði, svaraði hann því til að allt væri í stakasta lagi, samningarnir væru innan marka fjátiaga. Blekið var tæpast þornað af undirskrift hans þegar í ljós kom að annaðhvort var hér talað gegn betri vitund eða stað- an í þjóðfélaginu var fyrir utan og ofan skilnings mannsins. I stað 600 milljóna króna greiðsluafgangs er nú talað um halla upp á 4-5 millj- arða. Það munar um minna. xxx Og það sem verst er, þær krón- ur sem launþegum voru réttar þýða ekki aukinn kaupmátt þeirra, þvert ú móti standa þeir hallari fæti en áður. Staðfestir það enn einu sinni, sem allir ættu raunar að vita, að óraunhæf kauphækkun skilar sér ekki í auknum kaup- mætti og betri kjörum. Betra er að hafa krónurnar færri og verðlagið stöðugra, því það er staðreynd að þegar vöruverð fer af stað, byrjar að hækka, rýkur það upp úr öllu valdi., En tónninn var gefinn, krón- urnar skyldu fleiri, en um verðgildi þeirra ekki hugsað. xxx Fjármálaráðherra talaði fyrr í sumar um Ijóra kosti til þess að „leysa“ vandann, sparnað, aukn- ar skattaálögur, innlendar lántökur og erlendar lántökur. Bætti hann því við að af þessu fernu væru er- lendar lántökur verstar. Ríkis- stjórnin virðist bjartsýn á að inn- lendar lántökur takist, en almenn- ingur er nú orðinn svo vanur því að versta leiðin sé valin að hann yrði ekkert undrandi þótt svo yrði einnig nú. En það kæmi núverandi stjórn að sjálfsögðu ekki í koll. Forsætisráðherra ætti í engum erf- iðleikum með að bjarga málum, hann yrði bara hissa eftirá og héldi vinsældum sínum útá það. xxx Aukinn sparnaður kemur auð- vitað ekki til greina, til dæmis með því að draga úr framkvæmdum hins opinbera. Nei, það gengur ekki. I Þá .myndi þensla minnka. Að vísu telja flestir að það yrði til bóta — en það fellur bara ekki í kramið. Einhver gæti misst spón úr aski sínum. Draga úr reisukostnaði? Nei, það er fáránlegt. íslendingar verða að sýna að þeir séu menn með mönnum. Ráðherrarnir verða að fá að þeysa vítt um lönd og sækja alla þá fundi, mögulega og ómögulega, sem með nokkru móti finnast svo að þeir verði ekki heim- óttarlegir og geti komið fram sem höfðingjar meðal höfðingja. Þar má skiljanlega ekkert til spara. Minni spámennirnir verða svo að fá sinn skammt. xxx Víkveiji var næstum búinn að gleyma skattinum. Auðvitað má leggja aukasatt á þá, sem greitt hafa öll sín opinber gjöld og skattá skilvíslega. Um hina, sem svikið hafa undan skatti, þýðir ekki að tala. Öðru máli gegnir um þá skil- vísu. Þá má mjólka betur. Svo ekki sé talað um þá peninga, sem menn hafa aurað saman á langri ævi. Kannski væri hægt að krækja í þá líka?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.