Morgunblaðið - 27.07.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚIÍ 1989
Haftiaáætlun verði
rædd og samþykkt
eftirSturlu
Böðvarsson
Tilefni þess að ég sting niður penna
og sendi Morgunblaðinu þessar línur
er grein Stefáns Friðbjarnarsonar
þingfréttaritara er hann skrifar „í
þinghléi" í Morgunblaðið 4. júlí sl.
Stefán gerir að umræðuefni tillögu
til þingsályktunar um hafnaáætlun
fyrir árin 1989-1992 sem var lögð
fram á Alþingi á 111. löggjafarþingi
1989, en hlaut ekki afgreiðslu. Stefán
segir hafnaáætlun hvorki rædda né
samþykkta, sem er rétt, en leggur
síðan útaf því, sem aðaiatriði að
Reykjavíkurkjördæmi verði útundan
í áætluninni og þannig sé gengið á
rétt Reykvíkinga. Vitnar hann máli
sínu til stuðnings í dr. Ágúst Einars-
son um að Reykjavík sé mestur sjáv-
arútvegsbær landsins ef marka má
tilvitnaða upptainingu doktorsins.
Samkvæmt hafnalögum skal
Hafnamálastofnun vinna að gerð
áætlana um hafnarframkvæmdir til
nokkurra ára í senn, en þó aldrei
skemur en til fjögurra ára. Áætlun
skal endurskoða á tveggja ára fresti.
Hafnaáætlun hefur aldrei hlotið
afgreiðslu á Alþingi. Öðru máli gegn-
ir um aðrar mikilvægar fram-
kvæmdaáætlanir svo sem vegaáætlun
og flugmálaáætlun, sem Alþingi hef-
ur samþykkt.
Hafnaáætlanir hafa verið ræddar
og notaðar sem viðmiðun við af-
greiðslu fjárlaga en ekki hlotið fulln-
aðarafgreiðslu. Að þessu sinni var
lögð fyrir Alþingi áætlun sem var
mjög vel undirbúin af starfsmönnum
Hafnamálastofnunar og rækilega
rædd í Hafnaráði og kynnt á árs-
fundi Hafnasambands sveitarfélaga.
Forsvarsmenn hafnanna leggja
áherslu á að hafnaáætlun verði rædd
í þinginu og afgreidd, sem ályktun
Alþingis um framkvæmdir við hafnir.
í áætluninni eru mjög stefnumark-
andi þættir, sem ekki er forsvaran-
legt að láta óafgreidda í heild sinni.
Hafnirnar eru einhver mikilvæg-
asti hlekkur í íslensku efnahags- og
atvinnulífi og í raun forsenda fyrir
góðri afkomu í sjávarútvegi allt í
kringum landið.
í frásögrt Stefáns af hafnaáætlun
leggur hann megináherslu á að vekja
athygli á því að Reykjavíkurhöfn njóti
ekki framlaga úr ríkissjóði til fram-
kvæmda. Virðist mörgum á þeim bæ
eins og í flestum lj'ölmiðlum landsins
vaxa það sífellt í augum hve borgin
beri „skarðan" hlut frá borði hjá ríkis-
valdinu. Er stöðugt verið að ala á
óánægju og togstreitu milli höfuð-
borgarinnar og landsbyggðarinnar án
þess að þau mál séu krufin til mergj-
ar t.d. með því að kanna forsendur
fyrir því að ekki er talin ástæða til
þess að styrkja hafnarframkvæmdir
hjá þeim höfnum sem mestar tekjur
hafa af öðru en sjávarútvegi.
Spurt er í grein þingfréttaritarans
hvort allir séu jafnir fyrir lögum á
borði fjárveitingavaldsins. Von er að
spurt sé svo sem málum er háttað
um byggðaþróun í landinu og afkomu
atvinnuveganna. Ekki þarf að efast
um að slíkt mat er ekki auðvelt og
verður aldrei í okkar dreifbýla landi,
ÞJÓÐHÁTÍÐARAJETLUN HERJÓLFS 1989
Miðvikudagur 2. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 07.30
Frá Þorlákshöfn kl. 12.30
Frá Vestmannaeyjum kl. 17.00
Frá Þorlákshöfn kl. 21.00
Fimmtudagur 3. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum ki. 07.30
Frá Þorlákshöfn kl. 12.30
Frá Vestmannaeyjum kl. 17.00
Frá Þorlákshöfn kl. 21.00
Föstudagur 4. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 05.00
Frá Þorlákshöfn kl. 09.00
Frá Vestmannaeyjum kl. 13.00
Frá Þorlákshöfn kl. 18.00
Frá Vestmannaeyjum kl. 22.00
Frá Þorlákshöfn kl. 02.00
aðfaranótt laug.
Laugardagur 5. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 10.00
Frá Þorlákshöfn kl. 14.00
Sunnudagur 6. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 14.00
Frá Þorlákshöfn kl. 18.00
Mánudagur 7. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 07.30
Frá Þorlákshöfn kl. 12.30
Frá Vestmannaeyjum kl. 17.00
Frá Þorlákshöfn kl. 21.00
Frá Vestmannaeyjum kl. 01.00
aðfaranótt þriðjud.
Frá Þorlákshöfn kl. 05.00
aðfaranótt þriðjud.
Þriðjudagur 8. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 09.00
Frá Þorlákshöfn kl. 13.00
Frá Vestmannaeyjum kl. 17.00
Frá Þorlákshöfn kl. 21.00
Miðvikudagur 9. ágúst:
Frá Vestmannaeyjum kl. 07.30
Frá Þorlákshöfn kl. 12.30
Frá Vestmannaeyjum kl. 17.00
Frá Þorlákshöfn kl. 21.00
ATH.: BREYTTA ÁÆTLUN.
Símar: Vestmannaeyjar: 98-11792 - Reykjavík: 91-686464.
Sturla Böðvarsson
sem allt frá landnámi hefur verið
byggt upp skipulagslítið í nálægð við
auðlindir hvers tíma. Helstu „auðlind-
ir“ okkar nú virðast vera í nálægð
við sundin blá og Tjörnina þá einu
og sönnu.
Það má vera að nú sé komið að
því að ríkið styrki hafnarframkvæmd-
ir í Reykjavíkurhöfn í stað þess að
styrkja framkvæmdir við Brimbijót-
inn í Bolungarvík, í Vestmannaeyja-
höfn eða Olafsvíkurhöfn þar sem
gjöfulustu fiskimið hafa verið nærri
og útgerð hefur blómgast þjóðinni
allri til hagsældar. Hagur Reykjavík-
urhafnar hefur einkum byggst á tekj-
um af vöruflutningum að og frá
landinu. Beinar tekjur af sjávarútvegi
eru einungis brot af þeim tekjum sem
Reykjavíkurhöfn hefur.
Taka má undir þá gagnrýni að
Reykjavíkurhöfn skuli ekki vera með
í tillögu til þingsályktunar um fram-
kvæmdir í höfnum landsins og er
eðlilegt að á því verði breyting. Hins
vegar er þess ekki að vænta að
Reykjavíkurhöfn fái ijárveitingar til
framkvæmda að óbreyttum lögum.
Hafnalögin gera ráð fyrir skerðingu
á ríkisframlögum eftir að tekjur hafn-
anna umfram rekstrargjöld fara yfir
ákveðið mark. Nokkrar aðrar hafnir
en Reykjavíkurhöfn verða fyrir skerð-
ingu vegna þessa og má þar nefna
Hafnarfjarðarhöfn, Akraneshöfn,
ísafj arðarhöfn, Akureyrarhöfn og
Siglufjarðarhöfn. Allar þessar hafnir
hafa verulegar tekjur af öðru en sjáv-
arútvegi.
Vegna þess að Stefán tekur
Reykjavíkurhöfn sem dæmi er nauð-
synlegt að gera nokkra grein fýrir
tölulegum staðreyndum er varða
rekstur hafna. Þær skýra vonandi
hvers vegna aðildarhafnir innan
Hafnasambands sveitarfélaga hafa
sameinast um þá framkvæmd sem
lögin gera ráð fyrir og þar á meðal
Reykjavíkurhöfn. Eftir sem áður eru
og verða fjárveitingar til einstakra
verkefna umdeilanlegar á sama hátt
og skerðingarákvæðin um ríkisfram-
lög.
Tekjur hafna af sjávarútvegi eru
mestmegnis af aflagjöldum en þau
eru 0,85% af aflaverðmæti. Sam-
kvæmt yfirliti um rekstur hafnanna
1987 eru aflagjaldatekjur Reykjavík-
urhafnar það ár 2,6% af heildartekj-
um hafnarinnar sem voru
336.480.000. Tekjur allra hafna af
aflagjöldum voru það ár 157.156.000.
Aflagjaldatekjur Reykjavíkurhafnar
voru 8.918.000 eða 5,7% af tekjum
íslenskra hafna. Aflagjaldatekjur
annarra hafna en Reykjavíkurhafnar
voru 32% af heildartekjum þeirra en
auk þess eru síðan lestar- og bryggju-
gjöld o.fl. sem tengist sjávarútvegi
beint en ekki vöruflutningum.
Af þessum töium má ljóst vera að
Reykjavíkurhöfn hefur mestan hluta
tekna af vörugjöldum og hagnaður
hafnarinnar var árið 1987 rúm 151
milljón, sem er meira en allar aðrar
hafnir landsins höfðu í tekjur af afla-
gjöldum.
Af því geta allir sanngjarnir menn
séð að millifærslur úr sameiginlegum
sjóðum til útgerðarhafnanna eru ekki
óeðlilegar og í raun forsenda fyrir
Hraðlestrarnámskeið
Næsta sumarnámskeið í hraðlestri hefst 1. ágúst nk.
Nú er tækifæri fyrir þá sem vilja auka lestrar-
hraða sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturna.
Sérstaklega hentar þessi árstími vel öldunga-
deildanemendum sem vilja taka námið föstum
tökum í vetur.
Ath: Sérstakur sumarafsláttur. Skráning í dag
og næstu daga í símum 641091 og 641099.
Hraðlestrar-
skolinn
Gabriel
HÖGGDEYFAR
Nf ^
STÓRSENDINGI^Bt
yy E R G "
SKEIFUNNI 5A, SÍIV II: 91 - 8 47 88