Morgunblaðið - 05.08.1989, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚS’L 1989
7
Þorlákshöfii:
Dýpkun haftiarinnar lokið
Þorlákshöfn.
Sanddæluskipið Sóley frá
Björgun hf. hefur nýlokið við
dýpkun hafnarinnar í Þorláks-
höfti. Búið er að dæla upp um
40 til 45 þúsund rúmmetrum,
Nýir full-
trúar í verð-
lagsnefndir
búvara
aðallega úr innsiglingunni og
innan hafharinnar þannig að nú
geta öll skip siglt um höfhina án
þess að eiga það á hættu að taka
niðri.
Kostnaður við þessa framkvæmd
er orðinn um ellefu milljónir að
sögn Einars Sigurðssonar, for-
manns hafnarnefndar, en verkinu
væri alls ekki lokið því eftir væri
að dýpka innsta hluta hafnarinnar
en það yrði að bíða næsta árs vegna
fjárskorts.
Hann sagði að sú dýpkun tengd-
ist óneitanlega væntanlegu ferju-
skipulagi sem verið er að hanna hjá
Vita- og hafnarmálastofnun en
henni þarf að vera lokið áður en
nýr Herjólfur verður tekinn í notk-
un. Hugmyndin er að þetta ferju-
lægi verði við svokallaðan miðbakka
og þar verði einnig aðstaða fyrir
gámaflutningaskip.
Útflutningur á vikri hefur aukist
jafnt og þétt undanfarin ár. Á
síðasta ári voru fluttir út um 70
þúsund rúmmetrar og vonast er
eftir meiri útflutningi á þessu ári.
í því sambandi eru uppi hugmyndir
um að koma fyrir færiböndum á
suðurgarði hafna.rinnar til að flýta
fyrir lestum skipanna, sem hefur
verið nokkuð tímafrek við núver-
andi aðstæður. - J.H.S.
Morgunblaðid/Jón H. Sigurmundsson
Sanddæluskipið Sóley við dýpkun hafharinnar í Þorlákshöíh.
Félagsmálaráðherra hefur
tilnefiit Vilhelm Ingimundarson,
fulltrúa hjá Verðlagsstofhun, í
sexmannaneftid. Vilhelm tekur
þar sæti Margrétar S. Einars-
dóttur, sjúkraliða, en nefndinni
er ætlað að ákveða verð land-
búnaðarvara til bænda.
Lögum samkvæmt hefur ASÍ
rétt til að tilnefna tvo fulltrúa í
sexmannanefndina og BSRB einn
fulltrúa. Launþegasamtökin hafa
hinsvegar ekki nýtt sér þennan rétt
sinn í mörg undanfarin ár þannig
að félagsmálaráðherra ber í staðinn
að tilnefna þrjá fulltrúa neytenda í
nefndina, að sögn Guðmundar Sig-
þórssonar skrifstofustjóra í land-
búnaðarráðuneytinu.
Aðrir fulltrúar neytenda í sex-
mannanefndinni eru þau Baldur
Oskarsson viðskiptafræðinemi og
Helga Möller kennari. Fulltrúar
bændasamtakanna eru Haukur
Halldórsson formaður Stéttarsam-
bandsins, Þórólfur Sveinsson og
Þórarinn Þoi’valdsson.
Einnig varð sú breyting á fimm-
mannanefndinni að Birgir Árnason,
aðstoðarmaður viðskiptaráðherra,
kemur í stað Klemensar Tryggva-
sonar, fyrrverandi Hagstofustjóra.
Fimmmannanefnd er ætlað að
ákveða vinnslu- og heildsölukostn-
að. Það er viðskiptaráðherra sem
tilnefnir tvo fulltrúa í fimmmanna-
nefndina þar sem Iaunþegasamtök-
in nýttu sér ekki heldur rétt sinn
til tilnefningar í hana. Auk Birgis
situr í nefndinni Brynjólfur Sigurðs-
son, prófessor í viðskiptafræði við
Háskóla íslands, einnig tilnefndur
af viðskiptaráðherra. Georg Ólafs-
son verðlagsstjóri er oddamaður í
nefndinni og tveir fulltrúar koma
frá afurðarstöðvunum, fulltrúar
þeirra búgreina, sem fjallað er um
hveiju sinni.
Hörð andstaða
ef ekki semst
á næstunni
- segir Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir
AÐALHEIÐUR Bjarnfreðsdóttir
þingmaður Borgaraflokksins
segir í samtali við Tímann í gær
að gangi flokkurinn ekki inn í
ríkisstjórnina á næstu dögum
taki hann upp eindregna stjórn-
arandstöðu. Hún segir að stjórn-
inni hafi verið gefið líf lengi en
slíkt sé ekki hægt. að gera enda-
laust.
Aðalheiður segist hafa á tilfinn-
ingunni að fyrst og fremst strandi
á Alþýðuflokknum að samkomulag
hafi ekki tekist um þátttöku Borg-
araflokksins í ríkisstjórn. Hún telur
þá afstöðu óheppilega gagnvart
hinum ríkisstjórnarflokkunum en
engu sé líkara en einhvetjum í
stjórninni sé ekki annt um að stjórn-
in geti komið nauðsynlegum málum
í gegn. Aðalheiður segir að Borg-
araflokkurinn hafi gert kröfu um
þijú ráðuneyti, ekki endilega þijá
ráðherra, auk lækkunar á tilkostn-
aði heimilanna með niðurfellingu
mátarskatts.
ÞÚ STJÓRNAR
húsnæðíslána
16. ágúst leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísítölu.
1. september leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu.
Þegar kemur a^
afborgunum lána er það
í þínum höndum
að borga á réttum
t
-ar með sparar þú óþarfa
útgjöld vegna dráttar-
vaxta, svo ekkí sé minnst
1.
ágúst
Gjalddagar húsnæðislána eru: 1. febrúar— 1. maí — 1. ágúst— 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.
Greíðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greíðslur
má ínna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum.
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Lj SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKj.AVÍK • SÍMI 696900
SAMEINAÐA/SIA