Morgunblaðið - 05.08.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
21
Frídagur afgreiðslu-
fólks ersanngjöm krafa
Egilsstöðurn.
I APÓTEKI Egilsstaða hitti fréttaritari Morgxinbiaðsins Sigrúnu
Jónsdóttur afgreiðslustúlku þar. Sigrún hefur stundað afgreiðslu-
störf í um tuttugu ára skeið í flestum tegundum verslana.
Fréttaritari byijaði á að spyrja
Sigrúnu hvað það væri við
verslunar- og afgreiðslustörf sem
væri svo heillandi að hún hefði
starfað við þetta í tvo áratugi. Sigr-
ún sagði að í eðli sínu væru af-
greiðslustörf mjög skemmtileg. Þau
væru krefjandi og gerðu miklar
kröfur til afgreiðslufólksins um
vöruþekkingu, einkum í sérverslun-
um. En um ieið veita þau mikil
tækifæri til samskipta við annað
fólk. Störf í apóteki væru einkum
frábrugðin störfum í öðrum sér-
verslunum í því að starfið í apótek-
inu krefðist mikillar vöruþekkingar
á mörgum ólíkum vörutegundum. í
apótekum væri fyrir utan lyf versl-
að með vörur fyrir líkamann, ýmist
til áburðar eða inntöku. Viðskipta-
vinurinn yrði því að geta treyst því
að afgreiðslufólkið hefði þekkingu
á þeim vörum sem það væri að
selja. Til dæmis þegar verið væri
að kaupa vörur fyrir ungbörn.
Sigrún sagði það sitt álit að versl-
unarfólk hefði dregist aftur úr í
launum og nú væru launakjörin
orðin fyrir neðan allar hellur. Af-
greiðslufólk væri ábyggilega orðið
lægst launaða stéttin í landinu.
Þetta væri ekki til að hvetja fólk
til að festast í þessu starfi. En það
væri í raun mikilvægt til að fólk
gæti öðlast þá kunnáttu og vöru-
þekkingu sem viðskiptavinurinn
ætti rétt á. Afgreiðsiufólk með góða
þekkingu á þeim vörum sem það
er að selja getur í raun oft sparað
viðskiptavininum verulegar upp-
hæðir með þekkingu sinni. Við-
skiptavinurinn þarf að geta leitað
upplýsinga og ráða hjá afgreiðslu-
fólkinu og treyst þeim ráðum. Ef
eingöngu eru nýliðar í þessum störf-
um öðlast þeir -aldrei þá þekkingu
sem gott afgréiðslufólk þarf að
hafa. Starfsreynslu á þvi skilyrðis-
laust að meta meir til launa en nú
er gert. Einnig þurfa launakjörin
Sigrún Jónsdóttir
að vera pað aðlaðandi að í verslun
fáist hæft starfsfólk sem vill starfa
þar til frambúðar. Um breytingu á
afgreiðslustarfinu í gegnum árin
sagði Sigrún, að nú væru allar
verslanír orðnar mun tæknivæddari
en verið hefði fyrir tuttugu árum.
Þetta væri vissulega af hinu góða
og létti afgreiðslufólkinu störfin en
gerði um leið miklar kröfur til þeirra
um að kunna á þessi tæki og nota
þau rétt. Nú væru komnar flóknar
rafeindavogir í allar verslanir og
sífellt væri verið að gera strangari
kröfur um skráningu og flokkun
vörusölunnar á búðarkössunum um
leið og varan væri seld. Nútímabúð-
arkassi er orðinn fullkomin tölva
þar sem mikilvæg skráning vörusöl-
unnar fer fram.
Sigrún sagði að frídagar verslun-
armanna mættu gjaman vera fleiri.
Þetta væri hálf öfugsnúið eins og
þetta væri núna. Nú eiga allar stétt-
ir frí á frídegi verslunarmanna
nema helst afgreiðslufólk sem væri
önnum kafið við að þjónusta aðrar
stéttir sem væru í fríi á þessum
degj sem upphaflega hefði eingöngu
verið frídagur verslunarmanna.
Verslunarmannahelgin væri fýrir
löngu orðin mesta ferðahelgi ársins
og það fólk sem væri á ferðalagi
þyrfti á þjónustu afgreiðslufólks út
um allt land að halda. Eftir þessa
helgi væri afgreiðslufólkið örþreytt
og því væri ekki ósanngjamt að það
fengi sérstakan frídag sem væri
þeirra frídagur. Sérstaklega ef tek-
ið er tillit til þess að afgreiðslutími
verslana væri alltaf að lengjast.
Nú væri algengt að verslanir væm
opnar í einhvem tíma á laugardög-
um. Þetta kæmi að sjálfsögðu niður
á frítíma afgreiðslufólks. Því væri
sérstakur frídagur afgreiðslufólks
ekki ósanngjörn krafa.
Bjorn
ÍSAFJÖRÐUR:
Kollumar kvörtuðu og
lögreglan kom og lokaði
ísafirði.
Jón Norðquist og þrír félagar
hans á ísafirði mættu líklega
teljast til nýjungasmíða í ísfirðsku
viðskiptalífi. Þeir félagar stofnuðu
félag til leigu á vatnaþotum á Poll-
inum í vor. En eins og oft vill verða
eiga nýjungar ekki alltaf upp á
pallborðið hjá fólki og nokkrum
dögum eftir að leigan tók til starfa
kom lögreglan og bannaði starf-
semina og vísaði til reglugerðar
ísafjarðarhafnar sem bannar sigl-
ingar á hafnarsvæðinu á meiri
hraða en 4 mílum. Jafnframt var
vísað til að æðakollur hefðu hræðst
gusuganginn í æskumönnunum á
vatnaþotunum og skipamálarar
höfðu fengið óvænta gusu.
Jón sagðist strax hafa haft sam-
band við hafnarstjórann og eftir að
þetta flókna mál hafði flækst um
hálfsmánaðarskeið í bæjarkerfinu
fékkst sérstök undanþága til at-
vinnurekstursins með nokkrum
sérákvæðum.
„Það sem kannski hélt mér best
við efnið var sá mikli fjöldi ísfirð-
inga sem kom og hvatti mig til að
gefast ekki upp. Þótt það sé alltaf
einhver hópur manna sem setur sig
upp á móti öllum breytingum þá
er til fullt af fólki sem vill að við
fylgjumst með og bjóðum upp á
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
sambærilega þjónustu við aðra
ferðamannastaði hérlendis og er-
lendis.
Ég held að þessar vatnaþotur
hafi fyrst sést í einhverri James
Bond-myndinni. Nú fer þetta eins
og eldur í sinu um heiminn. Við
erum með þurrbúninga af öllum
stærðum sem eru einnig til leigu.
Þá er ég einnig með sjóskíða-
kennslu og nú er verið að ræða um
mót í haust til að Ieyfa mönnum
að spreyta sig.
Við teljum þetta góða tilraun til
að lífga upp á mannlífið hérna sem
okkur finnst ekkert of ijölbreytt.
Pollurinn -er hreint draumaland sjó-
íþróttamanna, sagði þessi nútíma-
legi „business“-maður að lokum.
- Úlfar
VULKAN
ÁS - TENGI
Allar gerðir.
Tengið aldrei stál - í - stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring ‘
millitækja.
.L'L
ifóaoitaipir & ©@ Ihrffo
Vesturgðtu 16 - Simar 14600-13280
TVÍ
HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI
haustönn 1989
Markmið náqisins er að útskrifa kerfisfræðinga sem geta unnið við öll stig hugbúnaðar-
gerðar, skipulagt og séð um tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálf-
un starfsfólks.
Hægt er að hefja nám í janúar og september. Stúdentar af hagfræðibraut ljúka námi
á þremur önnum en aðrir stúdentar geta þurft að sækja tíma í fornámi, sem er ein önn
til viðbótar. Áhersla er lögð á að fá til náms fólk, sem í dag starfar við tölvuvinnslu og
í tölvudeildum fyrirtækja, auk nýstúdenta. Sérstaklega skal bent á að þeir sem hafa
þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi þurfa að sækja nú þegar um innritun á vorönn.
Nemendur sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi, jafnframt námi, þurfa að ræða
við kennslustjóra um möguleika á því.
Eftirtaldar námsgreinar verda kenndar:
Fornám Önnur önn
Bókfærsla
Rekstrarhagfræði
Tölvufræði
Stærðfræði
Vélritun
Gluggakerfi
Gagnaskipan
AS/400
Gagnasafnsfræði
Forritun í Cobol
Málþing
Verkefni
Fyrsta önn
Forritun í Pascal
Kerfisgreining og hönnun
Stýrikerfi
Vélamál
Forritahönnun
Verkefni
Þriðja önn
Fyrirlestrar um valin efni
Forritunarmál
Hugbúnaðargerð
Málþing
Lokaverkefni
Innritun á haustönn stendur yfir til 14. ágúst, en umsóknarfrestur lyrir
vorönn er til 18. september nk. llmsóknareyðublöd fást á skrifstofu Versl-
unarskólans, Ofanleiti 1. Kcnnslustjórinn verður til viðtals á skrifstofu
skólans fyrir hádegi á meðan innritun stendur ylir og í sima 688400.
Tölvuháskóli V.i.