Morgunblaðið - 05.08.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Vandi sauðQárræktarinnar ræddur á fundinum á Hvanneyri,
Fundur landbúnaðarráðuneytis og bænda:
Rætt um að bæta tengsl
framleiðslu o g markaðar
FUNDI samninganefiida land-
búnaðarráðuneytísins og Stétta-
sambands bænda um búvöru-
samninga lauk á Hvanneyri í
Borgarfírði á fimmtudaginn.
Beindist athygli fúndarmanna
einkum að vanda sauðfjárrækt-
arinnar, en einnig var fjallað um
hvemig hægt væri að tengja
framleiðslu landbúnaðarafúrða
þörfúm markaðarins betur en nú.
Landbúnaðarráðherra segir, að
góður andi hafi verið á fúndinum;
menn ætli ekki að stinga höfðinu
í sandinn heldur takast á við þau
vandamál sem landbúnaðurinn
eigi við að efja.
Steingrímur J. Sigfússon, land-
búnaðarráðherra, segir að á fundin-
um hafi verið farið rækilega yfir
reynsluna af núgildandi búvöru-
samningi og einkum hafi athygiin
beinst að vanda sauðfjárræktarinn-
ar. í frtimhaldi af því hafi verið
rætt um mögulegar aðgerðir til
úrbóta, bæði varðandi þann tíma,
sem eftir væri af gildistíma búvöru-
samningsins og einnig markmið til
lengri tíma. Staðan í sauðfjárrækt-
inni væri mönnum áhyggjuefni og
mikið í húfi að vel tækist til við
lausn vandamálanna, sem þar væru
fyrir hendi.
Ráðherra segir að auk þessa
hefði verið r'ætt almennt um breyt-
ingar á neyslu búvara og hvernig
betur væri hægt að tengja fram-
leiðsluna þörfum markaðarins.
Hann segist búast við því að menn
hittist fljótlega aftur þegar farið
hafi verið yfir þær hugmyndir og
sjónarmið, sem komið hafi fram á
fundinum.
Fiskmarkaðurinn í Bretlandi:
Fullviss um að verð
haldist hátt í haust
- segir Baldvin Gíslason í Hull
BALDVIN Gíslason, forstjóri fisksölufyrírtækisins Gislason & Marr í
Hull, segist þess fullviss, að mjög gott verð muni fást fyrir fisk á Bret-
landsmarkaði í haust. Utlit sé fyrir að nokkuð dragi úr framboði, en
eftirspum verði áfram mikil. Baldvin Gíslason sagði í samtali við Morg-
unblaðið að nokkrar breytingar hefðu orðið á fiskmarkaðnum breska
að undanfornu. veiddust í Rauðahafi og Miðjarðar-
ísfiskur væri farinn að seljast bet- hafinu.
ur og einnig saltfiskur á sumum
svæðum í landinu. Enn fremur væru
nýjar tegundir famar að seljast, til
dæmis karfi og grálúða. Slíkt hefði
ekki þekkst áður. Mætti meðal ann-
ars rekja þá breytingu til þess, að
fólk af ýmsu þjóðemi hefði sest að
í Bretlandi á síðustu ámm. í þeim
hópi væm miklar fískætur, sem
sæktust eftir tegundum, sem ekki
hefði verið markaður fyrir áður. Fólk
frá ísrael keypti til dæmis karfa stað-
inn fyrir svipaðar tegundir, sem
Baldvin segir að eftirspum eftir
físki sé alltaf mikil í Bretlandi. Ferski
fiskurinn seljist nú vel og enginn
vafí sé á því að gott verð muni fást
fyrir allar tegundir hans í haust.
Hins vegar sé spuming hvað íslend-
ingar geti sett mikið á markað, því
ýmsir eigi lítinn kvóta eftir. Nefnir
Baldvin, að minna hafi borist af
smáfíski af Vestíjarðamiðum en und-
anfarin ár, en smáfískur, einkum
smáýsa, henti mjög vel í „físh and
chips“, sem Bretar séu sólgnir í.
Vestur-íslendingar í Kanada:
íslendingadagiirinn
haldinn hátíðlegur
í hundraðasta sinn
Forseti íslands viðstaddur hátíðahöldin
Winnipeg-. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgiinblaðsins.
Islendingadagurinn verður
haldinn hátíðlegur hundraðasta
sinni um helgina en hátíðar-
höldin ná hámarki á mánudag.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, mun taka þátt í hátí-
ðinni áður en tíu daga heimsókn
hennar til Kanada lýkur á þríðju-
dag
Islendingadagurinn var fyrst
haldinn í Winnipeg föstudaginn 1.
ágúst árið 1890 í blíðskaparveðri.
En aðdragandi þessarar hátíðar
hafði ekki verið jafn blíður og veð-
rið þennan ágústdag. Þegar þarna
var komið sögu íslandsbyggðar í
Kanada var byggðin í Manitoba
aðeins 15 ára en Islendingar höfðu
þegar skipst í jivo hópa. Annar
hópurinn vildi einangra sig og
halda íslenskum sérkennum en hin-
um hafði gengið betur að komast
áfram í nýja landinu og óttaðist
því ekki aðlögun. Hvorir tveggju
vom þó sammála um að varðveita
arfleið sína en ágreiningur stóð um
hvaða dag skyldi velja til að halda
islendingahátíð. Annar hópurinn
ákvað að halda upp á Islendinga-
dag 1. ágúst. Hinn samþykkti það
seint og síðar með semingi þó.
Dagurinn hófst með skrúðgöngu
eftir götum Winnipeg sem voru ein
forarvilpa eftir rigningar daginn
áður. Eftir gönguna var glímt og
fengu sigurvegarar hveitipoka að
launum. Nokkrum atriðum varð þó
að aflýsa vegna þess að síðdegis
opnaði himininn flóðgáttir sínar og
hellti yfír viðstadda.
Ágreingur um það hvenær halda
skyldi íslendingadaginn entist fram
á 20. öld. Smám saman var það
hins vegar hefð að halda daginn
hátíðlegan í upphafí ágústmánað-
ar. Raunar var dagurinn um tíma
haldinn hátíðlegur á tveimur stöð-
um vegna þessa ágreinings. Árið
1924 voru menn teknir að hafa
áhyggjur af því að íslendingadag-
urinn myndi glata sérkennum
sínum þar sem Vestur-íslendingar
voru farnir að glutra niður
íslenskukunnnáttu sinni. Var þá
ákveðið að blása lífi í Fjallkonuna.
Hún hefur síðan orðið að tákni
fyrir íslendingadaginn. Þess má
geta að það er ekki æskufegurð
sem ræður þegar Fjallkonan er
valin hér í Manitoba heldur framlag
viðkomandi til málefna íslendinga
hér.
Árið 1932 var íslendingadagur-
inn fluttur til Gimli þar sem hann
hefur verið haldinn síðan. Dagurinn
er nú haldinn hátíðlegur hundrað-
asta sinni og nær dagskrá hans
reyndar yfír alla helgina þótt mest
verði um að vera á mánudag. Vest-
ur-íslendingar eru stoltir af því að
geta tekið á móti forseta Islands
við þetta tækifælri. Kór Fóst-
bræðra kom hingað á þriðjudag og
mun koma fram. Einnig halda
Guðný Guðmundsdóttir, konsert-
meistari og fíðluleikari og Gunar
Kvaran sellóleikari tónleika Vald-
ine Anderson, sópransöngkona af
íslensku bergi brotin, ætlar einnig
að syngja fyrir gesti. Glíma verður
sýnd í Gimli og fyrstu íslensku
hestamir í Kanada verða einnig
sýndir.
Á sunnudag mun forsetinn af-
hjúpa bjöllu sem löguð er eins og
Fjallkonan og hvílir á tveimur
bognum sívalningum sem líkjast
fílstönnum og eru í laginu eins og
stefni víkingaskips. Inn í bjöllu
þessa hefur verið greypt ívitnun í
skáldið Stephan G. Stephansson
sem heimfæra má á Vestur-íslend-
inga, afkomendur þeirra sem héldu
frá Islandi fyrir rúmri öld: „Þó þú
langförull legðir sérhvert land und-
ir fót bera hugur og hjarta samt
þíns heimalands mót“.
Reykvíking-ar greiða 55% eignarskattsins
EIGNARSKATTUR, sem lagð-
ur hefúr verið á einstaklinga á
landinu, nemur í heildina 1.670
milljónum króna og er sú upp-
hæð um 117% hærri, en sú upp-
hæð, sem lögð var á í fyrra.
Einstaklingar í Reykjavík
greiða um 55% af heildarálagn-
ingu eignarskatts að þessu
sinni, eða 927,5 milljónir kr.
Eigpiarskattur leggst á skuld-
lausar eignir yfir 2,5 milljónum
kr. Átján einstakiingar í
Reykjavík fá yfir hálfa aðra
milljón kr. álagðan eignarskatt,
en alls fá um 51 þúsund ein-
staklingar á landinu öllu álagð-
an eignarskatt að þessu sinni.
Hæstu eignarskattana bera
Þorvaldur Guðmundsson og
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
bæði til heimilis í Háuhlíð 12,
Reylyavík. Hvort um sig fær
álagðan eignarskatt að upphæð
rúmar 3,9 milljónir. Til samans
greiða þau því tæpar átta millj-
ónir.
Af lögaðilum greiðir Lands-
banki íslands hæstan eignarskatt
í Reykjavík, rúma 51 milljón kr.
Samband íslenskra samvinnufé-
laga greiðir hæstu aðstöðugjöldin
í Reykjavík, rúmar 77,5 milljónir
kr., og Búnaðarbanki Islands er
sá lögaðili sem greiðir hæstan
tekjuskattinn, eða rúma 121 millj-
ón kr.
Einstaklingar: Greiðendur hæsta eignarskatts
og sérstaks eignarskatts í Reykjavík 1989,
þ.e. kr. 1.500.000 og þar yfir:
1. Þorvaldur Guðmundsson Háuhlíð 12 3.941.313
2. Ingibjörg Guðmundsdóttir Háuhiíð 12 3.941.313
3. Sigurður Valdimarsson Lynghaga 3 3.466.501
4. Skúli Magnússon Ánalandi 6 2.566.250
5. Sigríður Valdimarsdóttir Freyjugötu 46 2.393.057
6. Sigríður Valfells Blönduhlíð 15 2.375.351
7. Elin Guðjónsdóttir Laugarásvegi 16 2.133.259
8. Gunnar B. Jensson Suðurlandsbr. Selásdal 2.118.112
9. Emil Hjartarson Laugarásvegi 16 1.950.758
10. Ámi J. Fannberg Garðastræti 2 1.903.018
11. Sigriður J. Fannberg Garðastræti 2 1.740.029
12. Ingunn Ásgeirsdóttir Grenimel 21 1.710.143
13. Sigríður Frímannsdóttir Vogalandi 1 1.704.034
14. Bjöm Traustason Vogalandi 1 1.704.034
15. Sigurbjöm Eiríksson Hraunbæ 60 1.698.125
16. Ivar Daníeisson Álftamýri 1 1.697.881
17. Vilhelmína Loftsson Laugarnesvegi 71 1.635.940
18. Jóna Valdemarsdóttir Lundahólum 5 1.609.115
19. Gunnar Snorrason Lundahólum 5 1.609.115
20. Valdimar Jóhannsson Grenimel 21 1.563.500
21. Þorbjörg O. Morthens Stigahlíð 93 1.538.452
Lögaðilar: Greiðendur hæsta
eignarskatts og sérstaks eignar-
skatts í Reykjavík 1989:
1. Landsbanki Islands 51.432.631
2. Eimskipafél. íslands hf. 36.608.024
3. Flugleiðir hf. 35.433.252
4. Búnaðarbanki íslands 23.597.787
5. Olíufélagið hf. 21.049.872
6. Skeljungur hf. 17.315.661
7.0 Johnson og Kaaber hf. 9.062.500
8. Samb. ísl. samvinnuf. 8.769.381
9. IBM World Trade Corp. hf. 8.575.409
10. Húsasmiðjan hf. 7.589.385
11. Sameinaðir verkt. hf. 6.885.899
12. Iðnaðarbanki ísl. hf. 6.492.924
13. Bifr. og landb.vélar hf. 6.067.176
14. Heklahf. 5.521.512
15. Vífílfell hf. 4.892.427
16. Hagkaup hf. 4.735.915
17. Þýsk-ísl. hf. 4.606.271
18. Héðinn hf. 2.753.765
Lögaðilar: Greiðendur hæsta
tekjuskatts í Reykjavík 1989:
1. Búnaðarbanki íslands 121.369.282
2. Iðnaðarbanki ísl. hf. 93.340.890
3. IBM World Trade Corp- hf. 91.595.155
4. Landsbankí íslands 78.512.344
5. Eimskipafélag ísl. hf. 75.902.826
6. Hekla hf. 41.854.912
7. Olíufélagið hf. 40.399.965
8. OJohnsonogKaaberhf. 31.250.000
9. Skeljungur hf. 28.819.199
10. Lánastofnun Sparisj. hf.
1L Kreditkort hf.
12. Sparisj. Rvk. og nágr.
13. Sparisjóður vélstjóra
14. Oddi, prentsmiðja hf.
15. Húsasmiðjan hf.
16. Mjólkursamsalan
17. Ingvar Helgason hf.
18. Smith ogNorland hf.
27.873.359
26.697.190
24.406.286
22.408.703
21.200.305
14.930.284
13.196.282
12.849.469
12.484.525
Lögaðilar: Greiðendur hæstu að-
stöðugjalda í Reykjavík 1989:
1. Samb. ísl. samvinnuf.
2. Hagkaup hf.
3. Flugleiðir hf.
4. Eimskipafélag ísl. hf.
5. Hekla hf.
6. Samvinnutr. G.T.
7. Sjóvátryggingafél ísl. hf.
8. Húsasmiðjan hf.
9. Sláturfél. Suðurlands
10. P. Samúelsson og co. hf.
11. Tryggingamiðstöðin hf.
12. Kaupfél. Rvk og nágr.
13. Mikligarður sf.
14. Kjötmiðstöðin hf.
15. Glitnirhf.
16. IBM World Trade Corp. hf.
17. ísiensk endurtrygging
18. IngvarHelgason hf.
19. Brimborg hf.
20. Vlfílfell hf.
21. Bflaborghf.
22. Sölumiðst. hraðfrystih.
77.503.760
49.871.440
32.106.970
31.340.330
30.540.900
22.409.690
19.029.700
18.781.450
18.295.310
15.666.100
13.864.100
13.514.120
13.079.040
13.000.000
12.868.840
11.781.460
11.574.900
11.498.590
11.297.450
10.242.630
10.125.350
10.094.560