Morgunblaðið - 05.08.1989, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
ÁriÖ h já Tvíbura
í aag er það umfjöllun um
árið framundan hjá Tvíbura
(21. maí — 20. júní). Ekki
er um atburðaspá að ræða
heldur er verið að huga að
þeirri orku sem verður sterk
á árinu. Hver maður hefur
síðan ftjálsan vilja til að
bregðast við eftir eigin geð-
þótta. Einungis er fjallað um
afstöður á Sólina, eða það
sem varðar grunneðli og
lífsorku.
Rólegra framundan
Það sem strax vekur athygli
er að Júpíter er nú að ijúka
ferð sinni í gegnum Tvíbura-
merkið og ætti að hægja um
á næstunni, þensla, eirðar-
leysi og hreyfingarþörf að
minnka, en sjálfsagi og yfir-
vegun að aukast, en jafn-
framt má segja að iífið verði
á einhvern hátt dauflegra,
eða a.m.k. rólegra.
Aukin bjartsýni
Það sem ætti að sitja eftir
ferð Júpíters yfir Sól á liðnum
mánuðum ætti að vera aukin
bjartsýni og sjálfstraust. Það
er nú léttara yfir Tvíburum
en áður. Að sjálfsögðu er
slíkt þó einstaklingsbundið
og fer eftir afstöðum á aðrar
plánetur hvers og eins, en
ætti að eiga almennt við.
150gráður
Aðrar plánetur hafa einnig
sitt að segja á komandi ári
þó engin þeirra sé í hefð-
bundinni afstöðu. Satúrnus,
Úranus, Neptúnus og Plútó
mynda allar 150 gráðu af-
stöðu á Sól Tvíburans frá
Sporðdreka og Steingeit.
Mikilvœg afstaða
Ég hef haft tilhneigingu til
að horfa framhjá þessari af-
stöðu undanfarið, en atburðir
síðustu mánaða í eigin lífi og
þeirra sem ég hef rætt við
um þessa afstöðu bendir til
þess að hún sé mikilvæg á
sinn hátt.
Aðsjá. . .
„Að sjá er annað en að fá“
er setning sem kemur upp í
huga minn þegar 150 gráðu
afstaðan er annars vegar.
Þetta táknar að margvísleg
áhrif kom inn í líf Tvíburans
sem vekja til umhugsunar,
án þess að líklegt sé að allt
of margt gerist. Það má þó
segja að breytingar séu
mögulegar, en þá verða
Tvíburar að hafa nokkuð
mikið fyrir þeimbreytingum.
Frelsi
Þeir Tvíburar sem eru fæddir
frá 22. — 31. maí fá Úranus
í 150 gráðu afstöðu á Sól.
Það táknar að þessir Tvíbur-
ar láta sig dreyma um frelsi
o g breyt.ingar, en þurfa
væntanlega að bíða eitthvað
með að gera þær breytingar.
Sjálfstæði þeirra ætti að auk-
ast eitthvað á árinu.
Agi
Satúrnus kemur tii með að
mynda 150 gráðu afstöðu á
Sól þeirra sem eru fæddir frá
28. maí til 15. júní. Þessir
Tvíburar þurfa að takast á
við sjálfsaga og horfast í
augu við vankanta sína og
hömlur, eða skipuleggja og
hreinsa til. Þetta getur reynst
þeim nokkuð erfitt, en er
mögulegt með vinnu.
Biðstaða
Ég held að þegar á heildina
er litið að segja megi að bið-
staða eða millibilsástand
komi til með að ríkja á næsta
ári hjá Tvíhura. Það má bú-
ast við að margar hugmyndir
kvikni sem koma til með að
bíða betri tíma. Tvíburinn
sáir í jörðina og bíður síns
vitjunartíma.
GARPUR
X HALL ARGAeÞMUM E& HLLTÁ
nÐJS-U/M E-NDAUUAl.'
’ Ó ■■ TEELA Hörups-
jyiAÐufS- OH./&L. GOTT
Jlfn. AO sxMy/accteJ
é
£<3 /ETLADI EHkJ AD GE&H
yacu/e B/lt i//o, eu&kjó st-
MÆLAM M/H EJZ /iOftr/n OS £ks
HÉLTHÐþJDTUkJNN V/SR/AÐkpMA
iffi
PAÐ £76 LÉTTHD SEGTA
Þal> - é<3 Aatssn
e/t r Ar n/u
LÍrU/H /yi/MU/uJ
GRETTIR
BRENDA STARR
HUHÐ E&AÐ/ HTANDA ?
þóEBThny&GuuruLL y ivanöa
--- - ---'~T £Æ Ast
YMEJ ALLS Etc/c/g )
A/IIICHA// ÞCJ/ngTTU£ÆA
/VHKHA/L , ljó/JATEAVAkj
HANS.
EQ f>AE> ÞATC.H. £S
VNÖ/ E/OC) HAFA
Ar \Ó/
Pattzjj \ /yyy'Nv, ——— .. ,
FÞ/ENDA ) AH>eOJUH, U/ANPA ■ EG
>4 E/e ir/ss u/y> /?£> púcSET—
A URNABpm/ HUA0A
--•', ÁrAAL srn BR erþö
ÆTLAB Þéte ÞáA,
LJOSKA
<JJ0 euSUM 7'A.
BnOPKAUPSArMfi
'PAQ
FERDINAND
5. PIB cope nhagen J
SMAFOLK
Ég las nýlega í blaðinu að það er
mikið um að lögfræðingar séu
barðir.
Er þér illa við það?
Ekki lengur.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Útspilsdobl á slemmum eru
ekki hættulaus verkfæri, eins
og Ungverjinn í sæti vesturs
varð áþreifanlega var við í eftir-
farandi spili úr leik Ungveija og
Hollendinga á EM:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 9
V32
♦ ÁG9
+ ÁK108764
Vestur Austur
♦ D108632 ♦ Á54
VD864
♦ D10762 ♦ K843
♦ D9 ♦ G3
Suður
♦ KG7
VÁKG10975
♦ 5
+ 52
BRIDS
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 hjarta
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 lauf
Dobl Pass Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: s{íaðaþristur. .
Sagnir eru að mestu leyti eðh-
legar, nema hvað fjórir tíglar
og fjórir spaðar sýna fyrirstöð-
ur. Fjögur grönd er ásaspurning
og svarið 5 lauf skýrði frá 0-3,
þar sem trompkóngurinn er tal-
inn með.
Vestur vildi ólmur fá út hjarta
og kom þeirri beiðni á framfæri
með doblinu. Suður vissi að
vömin átti ás (eða laufkóng),
og því væri slemman töpuð ef
vestur fengi stungu. Hann ákvað
því að freista gæfunnar í eigin
lit.
Austur tók fyrsta slaginn á
spaðaás og spilaði m'eiri spaða
í örvæntingarfullri viðleitni til
að stytta blindan í trompi. En
það var ekki hægt. Sagnhafi
drap á kóng, spilaði laufi upp á
ás og svínaði strax fyrir hjarta-
drottninguna. Hann endurtók
þann leik, og þegar laufíð fékk
þægilega 2-2 var slemman í
húsi.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi örstutta skák var tefld á
opna mótinu í Belfort í byijun
júlí: Hvítt: Pytel, Póllandi, svart:
Bauer, Sviss, Caro Kann-vamar-
leysi, 1. e4 - c6, 2. d4 - d5, 3.
Rc3 - dxe4, 4. Rxe4 - Rd7, 5.
Rg5 - Rdf6, 6. Bc4 - Rd5, 7.
Rlf3 - h6?? (í þessari stöðu er
nauðsynlegt að leika 7. - g6).
8. Rxf7! - Kxf7, 9. Re5+ - Ke6,
10. Dg4+ - Kd6, 11. Rf7+ -
Kc7, 12. Dg3+ og svartur gafst
upp. Karl Þorsteins sigraði á þessu
móti ásamt júgóslavneska alþjóða-
.meistaranum Govedarica. Þeir
hlutu 714 v. af 9 mögulegum, en
næstir komu Van Wely, Hollandi,
og Krum Georgiev, Búlgaríu, með
7 v. Skákiíf er blómlegt í Frakk-
landi um þessar mundir og á
hverju ári er haldinn fjöldi al-
þjóðlegra móta. Nýlega eignuðust
Frakkar nýjan stórmeistara, það
er Bachar Kouatly, sem er reynd-
ar fæddur og uppalinn í Líbanon.
Fyrir áttu þeir aðeins einn slíkan,
sjálfan Boris Spassky, fyrrum
heimsmeistara.