Morgunblaðið - 05.08.1989, Qupperneq 39
FRÍDAGUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. AGUST 1989
39
Fjölskyldurekstur um hótel og heildverslun í Eyjum:
HótelÞórshamar byggt
upp ttrsögufmgu húsi
„Líflegt starf, skemmtilegt og kraftmikið,“ segir Heiðmundur
Sigurmundsson um fyrirtæki fjölskyldunnar í Vestmannaeyjum.
Sunnuhvoll með ódýrari gistingu.
Grein og myndir: Árni Johnsen.
Hótel Þórshamar í Vestmanna-
eyjum og Heildverslun H. Sigur-
mundssonar eru dæmigerð fyrir-
tæki um fjölskyldurekstur í versl-
un og þjónustu. Dugmikil og áræð-
in fjölskylda skiptir verkum eftir
því sem hagkvæmni og ástæður
kalla og byggt er á sveigjanleika
þannig að borð sé fyrir báru á
hinum ýmsu álagspunktum. Heild-
verslun Heiðmundar Sigurmunds-
sonar í Vestmannaeyjum hefur
starfað síðan 1966 og Hótel Þórs-
hamar var opnað í hjarta mið-
bæjar Vestmannaeyja 1987. Hótel
Þórshamar í samnefndu húsi er
talið eitt af bestu hótelum lands-
ins, góður andi í húsinu, aðbúnað-
ur allur hnitmiðaður og þjónusta
persónuleg og hlýleg með vinarþel
í fararbroddi. 18 herbergi eru í
Hótel Þórshamri og nýlega keypti
fyrirtækið húsið Sunnuhvol við
hlið hótelsins og þar er boðið upp
á 25 uppábúin rúm og svefnpoka-
pláss fyrir um 50 manns. I her-
bergjum Hótels Þórshamars eru
sjónvörp, kæliskápar, böð og ann-
að sem ferðamenn vilja hafa á
góðum hótelum. Þá er hótelið
prýtt listaverkum, flestum eftir
listmálara úr Vestmannaeyjum.
Hótelið hefúr sérstakan veitinga-
sal fyrir morgunverð, en á jarð-
hæð hótelsins er veitingastaður-
inn Muninn sem er rómaður mat-
staður.
Hjónin Guðrún Jóhannsdóttir og
Heiðmundur Sigurmundsson
eru frumkvöðlar fyrirtækjanna, en
með þeim vinna börn þeirra og
tengdafólk. Við ræddum við Heið-
mund um reksturinn. Hluti af starf-
semi þeirra er í húsum sem Arsæll
Sveinsson átti á sínum tíma og hans
fólk, en í gamla Þórshamri var marg-
háttuð menningar- og atvinnustarf-
semi frá 1920. „Heildverslun H. Sig-
urmundssonar var með starfsemi á
Vestmannabraut 28 í Þórshamri til
23. janúar 1973 þegar eldgosið skall
á, en í því féll húsið saman,“ sagði
Heiðmundur. „Heildverslun H. Sig-
urmundssonar hf. var stofnuð upp
úr umboðsverslun minni 1. janúar
1966 og allt frá stofnun hefur fyrir-
tækið verið að vinda upp á sig hægt
og bítandi. Á fyrstu árum fyrirtækis-
ins rak það einnig innheimtuskrif-
stofu og umboð Samvinnutrygginga
í Vestmannaeyjum. Strax á fyrstu
árunum fór starfið í ákveðinn farveg
með matvöru, hreinlætisvörur og
vinnufatnað sem höfuðpósta. Vegna
samkeppni um skipulag miðbæjar
Vestmannaeyja eftir gos fengum við
ekki leyfi til þess að endurbyggja
Þórshamar nema í gömlu myndinni,
svo við settum það í biðstöðu, en
Fjölskyldan skapar
sveigj anleikann
Fyrirtæki okkar er fjölskyldufyrir-
tæki og starfar öll fjölskyldan við
fyrirtækið auk annars aðkeypts
vinnuafis. Við heildsöluna starfa 5
manns og sami fjöldi við hótelrekst-
urinn. Heildsalan skiptir við flest
fyrirtæki í Eyjum, en við erum með
vörur frá um 30 innlendum framleið-
endum auk innflutnings í matvöru
og hreinlætisvörum. Eftir því sem
þörf krefur gengur fjölskyldan í störf
á milli fyrirtækjanna og tekur á sig
stærsta hlutann af nætur- og helgi-
dagavinnu og til dæmis skiptumst
við á að taka næturvaktir. Auk okk-
ar reksturs í húsinu er veitingastað-
urinn Muninn, sem við leigjum að-
stöðuna, blómaverslunin Eyjablóm
sem er í hótelinu og í húsinu við
Strandveg 77 er veiðarfæraverslunin
Sandfell
Þú spyrð hvað sé skemmtilegast
við starfið. Einfaldlega það að þetta..
er skemmtilegt starf, líflegt og
kraftmikið, maður umgengst fjöl-
marga og alltaf ný og ný andlit. Við
erum í senn í góðum tengslum við
verslunina og ferðaþjónustuna, en
hún gefur mikla möguleika með hag-
kvæmni og góðri stýringu eigenda.
Það er mikill ferðamannastraumur
til Vestmannaeyja og það er gott að
finna að þetta starf skiptir máli. Það
hefur svo sem ekkert komið okkur á
óvart í þessum rekstri, við vorum
búin að vera með puttana í þessum
atvinnurekstri áður og vorum búin
að reka okkur á hvað væri óhag-
stætt og hvað hagstætt. Næstu árin
siglum við inn á lygnan sjó í gegn
um fjárfestingarkostnaðinn og kepp-
umst við að halda því sem nú er í
gangi með góðum og eftirsóknar-
verðum blæ.“
- á.j.
Það heimilislega og hagkvæma fer saman í Þórshamri.
Hótel Þórshamar.
fyrirtækið hóf aftur starfsemi í Eyj-
um í október 1973 við þröngan húsa-
kost þar til við keyptum Strandveg
77 og 79 af Vélsmiðjunni Magna.
Eftir að niðurstaða hafði fengist í
samkeppninni um miðbæ Vest-
mannaeyja fékkst leyfi til þess að
byggja eftir óskum húseigenda sem
vildu endurreisa hús aftur í mið-
bænum. Upphaflega húsið var reist
1919 og hafði þjónað fjölda fyrir-
tækja og ýmiskonar menningarstarf-
semi. Þar var Nýja bíó, leikhús, dans-
hús, kaffihús, prentsmiðja, trésmíða-
verkstæði, verksmiðjan Eyjapiss sem
framleiddi gosdrykki og um tíma var
í húsinu skreiðargeymsla fyrir pakk-
aða skreið frá Ársæli bónda Sveins-
syni. Við byggðum húsið sem sagt
upp 7 árum eftir gos og fyrsta hæð-
in var tekin í gagnið fyrst, en í 3
ár var þar verslunarhúsnæði. Eftir
það var síðan hafist handa um breyt-
ingar á húsinu með hótelrekstur í
huga og hótelið var opnað 11. júlí
Gamli Þórshamar eftir hrunið í gosinu 1973, var áður hús marg-
þátta menningar- og atvinnulífs.
Jóhann Heiðmundsson hótel-
stjóri.
Heiðmundur Sigurmundsson.
1987 og nefnt Hótel Þórshamar eftir
þeirri nafngift sem húsið hafði frá
byijun. 18 herbergi eru í húsinu,
setu- og veitingastofa og það sem
ferðamenn óska eftir að hafa á her-
bergjum. Fyrir skömmu keyptum við
Sunnuhvol við hliðina á Þórshamri,
einbýlishús sem hefur verið breytt í
gistihús með 25 uppábúnum rúmum
og svefnpokaplássi fyrir um 50
manns, en þarna býðst aðstaða fyrir
þá sem leita eftir ódýrustu gisting-
unni. Við opnuðum Sunnuhvol um
miðjan maí. Sú þjónusta hefur mælst
mjög vei fyrir og er sýnilegt að hún
á eftir að stóraukast. Reksturinn á
Hótel Þórshamri hefur gengið all vel
og nýtingin eykst stöðugt. Við höfum
lítið auglýst og sem betur fer hefur
hótelið auglýst sig sjálft því það er
jú besta- auglýsingin.
í heildsölunni, Heiðmundur Sigurmundsson, Guðrún Jóhannesdóttir,
Hlynur Tryggvason og Sigrún Ileiðmundsdóttir.
í anddyri Hótels Þórshamars.
Úr gistiherbergi í Þórshamri.