Morgunblaðið - 05.08.1989, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
MEGRUN
McCartney
vill grenna sig
Paul McCartney er nýbúinn
að senda frá sér plötu sem
fengið hefur góðar viðtökur.
Hann er kominn á fimmtugs-
aldur og eins og flestir hefur
hann fitnað nokkuð með árun-
um. Það er hann ekki ánægður
með og heyrst hefur að hann
sé nú á heilsuhæli í Kalifomíu
þar sem honum er sagt að
hreyfa sig mikið en fær lítið
að borða.
Tvífarar
látinna snillinga
Uti í hinum stóra heimi hefur
það löngum þótt vís leið til
frægðar og frama að líkjast ein-
hveijum sem almenningur allur
dýrkar og dáir. Sérlega eftirsóknar-
vert þykir að vera nauðalíkur ein-
hveiju poppgoðinu eða frægri kvik-
myndastjömu.
Nýverið var haldin í Bandaríkjun-
um mikil hátíð til að heiðra minn-
ingu rithöfundarins Ernest Hem-
ingway og var þá efnt til slíkrar
tvífarakeppni. Menn gripu andann
á lofti er Richard nokkur Royston
sem býr í Atlanta sýndi sig á svið-
inu og þótti mönnum sýnt að þar
færi sjálfur Hemingway.' Royston
bar sigurorð af öllum keppinautum
sínum en myndin var tekin á skrif-
JAMES BOND
Ólík pör
stofu Hemingway í Key West í
Florida-ríki. Ekki fýlgir sögunni
hvort kettan á skrifborðinu, sem
tæpast telst forógnanleg, tilheyrði
rithöfundinum og má það raunar
heita harla ósennilegt.
Þegar nýjasta James Bond myndin
Leyfið afturkallað var frumsýnd í
Hollywood voru margir leikarar úr eldri
myndum um njósnarann 007 viðstaddir.
Maðurinn með stáltennumar, Richard
Kiel, kom með eiginkonu sinni Diane,
sem er fremur lágvaxin en dvergurinn
Herve Villechaize sem er einum metra
lægri en Kiel kom með vinkonu sinni
Terri. Það er líka oft sagt að andstæð-
umar laðist hvor að annarri.
BÍLAR
Glæsikerra Cosbys
Bill Cosby er auðugur maður og einn af þeim hlutum sem hann met-
ur hvað mest er þessi rauði bíll af gerðinni Mercedes 300SL Road-
ster. Bill keypti bílinn nýjan árið 1965 á 9.250 Bandaríkjadali en hann er
nú metinn á um 300.000 dali sem samsvarar átján milljónum ísl. króna.
Hin myndin var hins vegar tekin
í Lundúnum á dögunum en þar
hyggjast menn færa upp söngleik
um líf og feril rokkstjömunnar
Buddy Holly. Söngleikurinn verður
frumsýndur í októbermánuði í
ónefndu leikhúsi í West End. For-
ráðamenn sýningarinnar lýstu eftir
mönnum í aðalhlutverkið og var
þess vitanlega krafist að viðkom-
andi væri bæði leikari góður og
líktist söguhetjunni Buddy Holly.
Rúmlega 200 manns frá Banda-
ríkjunum og Bretlandi gáfu sig
fram og vom átta valdir úr þeirra
hópi. Einn þeirra mun síðan hreppa
hlutverkið og væntanlega öðlast
frægð og frama.
ÍSLENDINGAFÉLAG
*
Islenskur barna-
skóli í London
I slendingafélagið í London rekur
bamaskóla sem á 10 ára afmæli
um þessar mundir. Þangað koma
íslensk böm annan hvem laugar-
dag, tvo tíma í senn en skólinn
hefur það markmið að kenna og
viðhalda íslenskunni. Þeim for-
eldrum sem verða í London í vet-
ur er bent á að hafa samband við
íslenska sendiráðið og skrá börn
sín í skólann.
Að sögn Björgóifs Thorsteins-
son formanns íslendingafélagsins
hefur starfsemi þess verið með
miklum blóma í vetur. Félags-
menn em um 250 talsins og fá
þeir reglulega sent fréttabréf. í
vetur hittust íslendingamir 1.
desember, á þorrablóti í febrúar
og svo auðvitað 17. júní. Þá komu
um 200 íslendingar saman í Reg-
ents Park þar sem meðfylgjandi
mynd var tekin. Fyrst var hlýtt á
messu séra Jóns A. Baldvinssonar
þar sem karlakórinn Hreimur
söng og síðan var haldið út í fán-
um skrýddan garðinn þar sem
boðið var upp á pylsur að íslensk-
um hætti.
íslendingar í London héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan í Regents Park.