Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 198,9 Þing SUS: Ríkisfl ölmiðlarnir verði lagðir niður Á 30. þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem haldið var á Sauðárkróki um helgina var samþykkt ályktun að steftia að því að hætta starfsemi ríkisfjölmiðlanna. Þá er menntamálaráðherra gagn- rýndur fyrir að hafa synjað Miðskólanum um starfsleyfi en senda sjálfur börn sín í einkaskóla. I ályktun um menningarmál, sem samþykkt var á þinginu, er lögð áhersla á að það er ekki hlutverk ríkisins að reka fjölmiðla og segir síðan: „í samræmi við það á að hætta starfsemi ríkisfjölmiðlanna og leigja út afnot af dreifikerfí því sem hið opinbera hefur byggt upp. Síðan verði stofnað hlutafélag um rekstur dreifikerfisins og eignar- hlutir seldir á hlutabréfamarkaði." Ungir sjálfstæðismenn ályktuðu einnig um Miðskólamálið. Segir þar m.a.: „Svavar Gestsson hefur beitt valdníðslu til þess að ná fram því pólitíska markmiði sínu að ríkið gini yfir menntakerfínu öllu. Hann hefur drepið niður nýjan valkost í skólakerfinu og komið í veg fyrir að fijáls vilji nemenda og foreldra þeirra fái að ráða vali skóla. SUS telur að skapa beri skilyrði fyrir einkaskóla á öllum skólastig- um. SUS ítrekar þá stefnu síná að ríkið greiði ákveðið framlag á hvern nemenda óháð eignar- og rekstrar- formi skólans. Svigrúm fyrir einka- skóla stuðlar að ijölbreytni innan skólakerfisins og virkar sem heil- brigður hvati á kennarastéttina í heild. Með framgöngu sinni hefur Svavar Gestsson skipað sér á bekk með hræsnurum því sjálfur sendir hann börn sín í einkaskóla." Sjá ennfremur frásögn af þingi SUS og ályktun á miðopnu. ^ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson A garðyrkjuhátíð MIKIÐ var um dýrðir á 50 ára afmæli Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Hveragerði á laugardaginn. Þessi ungi maður hafði talsvert önnur áhugamál en iullorðna fólkið, en undi glaður við sitt. Bilun í hreyfli þýskrar Boeing 737-300-þotu: Hefiu* ekki áhrif á rekst- ur flugvéla Flugleiða HVERFILBLAÐ brotnaði í hreyfli Boeing 737-300-þotu 1 siðustu viku og urðu flugmenn hennar að stöðva hreyfilinn vegna titrings og lenda á næsta flugvelli. Flugleiðir voru látnar vita af atvikinu en það hefur ekki áhrif á rekstur fyrirtækisins þar sem flugvélar þess eru af ann- arri gerð en sú sem bilunin varð Þotan, sem hreyfilbilunin varð í, var í eigu þýsks leiguflugfélags, Germania, og á leið frá Þýskalandi til Ítalíu sl. miðvikudag þegar atvikið átti sér stað. Flugmennirnir urðu varir við titring í hreyfli, drápu á honum og lentu á næsta flugvelli. Þar var skipt um hreyfil og rannsókn hefur leitt í ljós að aðskotahlutur hefði að öllum líkindum vaídið bilun- inni, þar sem greinilegar högg- skemmdir hefðu fundist á hverflin- Af þessu tilefni sneri Morgun- blaðið sér til Flugleiða og sagði Guð- mundur Pálsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs, að atvikið hefði engin áhrif á rekstur félagsins þar sem bilunin hefði orðið í annars konar þotum en það ræki. Bilunin hefði orðið í Boeing 737-300 með CFM56- 3B2-hreyflum en nýju þotur Flug- leiða væru af gerðinni Boeing 737-400 og knúnar CFM56-3C hreyflum. Pétur Karlsson við bíl sinn. Önnur hliðin og rúðurn- Sverrir Andrésson við bíl sinn sem hann var á i ar eru eins og sandpappír viðkomu. óveðrinu. „Steinar á stærð við hænu- egg splundruðust á bílunum“ Ferðafólk í hrakningum í ofsaveðri og vikurbyl við Heklu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Krislján Árnason bóndi í Stóra- Klofa, íengst til vinstri, ásamt skosku ferðamönnunum eftir að þeir höfðu þegið góðgjörðir í Stóra-Klofa. Selfossi. „ÞETTA var eins og gosmökkur að sjá héðan,“ sagði Kristján Árnason bóndi á Stóra-Klofa um vikur- og öskumökkinn sem þyrl- aðist upp í miklu roki sem skall á innan við Heklu um níuleytið á sunnudagsmorgun og stóð fram yfir hádegi. Bílar ferðafólks, sem lenti í mekkinum, skemmdust og gangandi ferðamenn á þessu svæði lentu í miklum erfiðleikum. „Þetta var gjörsamlega bijálað veður. Það spændist upp töluvert stórt gijót og buldi á bílnum eins og skothríð,“ sagði Sverrir Andrés- son frá Selfossi sem ásamt nokkrum öðrum lenti í versta veðrinu. Ferðafólkið hafðist við í tjöldum um nóttina við Loðmundarvatn og þegar hvessti um morguninn fauk þar allt sem fokið gat og tjaldvagn- ar lögðust saman. Um níuleytið hélt fólkið af stað í sex bílum og ók inn í mikinn öskumökk. Bylurinn byijaði í Hekluhrauninu þar sem sandur úr síðasta gosi fauk upp og skyggni var ekki nema tveir metr- ar. Veðrið fór stöðugt versnandi og var verst á aðalveginum við afleggj- arann í Dómadal. Askan smaug inn í bílana og vikurinn sem buldi á þeim eyðilagði lakk og rúður. Á leiðinni ók fólkið fram á franskan ferðamann sem var greini- lega villtur. Hann var drifinn inn í einn bílinn, þurrkuð framan úr hon- um mesta askan og hann róaður niður. Stuttu seinna kom fólkið að hópnum sem ferðamaðurinn franski tilheyrði. Fólkið stóð í hnapp til að skýla sér fyrir veðrinu. Það var svo skömmu seinna tekið upp í hóp- ferðabíl á þess vegum. Við afleggjarann inn á Dóma- dalsveg sást fyrir tilviljun til þriggja ferðamanna sem héngu á stórum steini rétt við afleggjarann. Boðum var komið til jeppabifreiðar í ná- grenninu sem tók þá upp. Sverrir Andrésson og Pétur Karlsson frá Selfossi voru báðir ásamt konum sínum í hópnum sem lenti í óveðrinu. Þeir voru báðir á þessum slóðum þegar Hekla gaus 1980 og óku þá í gegnum gosmökk- inn. „Þetta var miklu verra,“ sagði Sverrir. „Nuna sást ekki nema svona tvo metra fram á veginn og askan smaug inn og það varð allt atað í ösku í bílnum. Ég hef ekki lent í því verra, þetta var gjörsam- lega bijálað og alverst á leiðinni niður að Gaitalæk á aðalveginum." Sverrir sagði að þau hefðu verið um hádegisbil við Galtalæk og hefðu stöðvað alla bíla á leiðinni inneftir og varað fólk við. Þar á meðal var áætlunarbifreið sem kom boðum til ríkisútvarpsins um að vara fólk við veðrinu. Vindhraðinn mældist 9 vindstig við Búrfell en Sverrir segist vera handviss um að hann hafi verið meiri en það því bílar sem fóru um hjá Búrfelli skemmdust ekki og svo hefði ekki verið stætt úti sem best hafi sést á fólkinu sem hékk á stein- inum við Dómadalsveginn. „Ég hef aldrei lent í öðru eins. Steinkastið niðri á vegi var of- boðslegt," ságði Pétur Karlsson. „Manni leið bara ekkert vel í bílnum meðan á þessu stóð og mér datt ekki annað í hug en rúðurnar kæmu inn. Þetta voru steinar á stærð við hænuegg og þeir splundruðust- á bílunum. Sjálfur bruddi maður ösku og allt varð svart í bílnum," sagði Pétur. Hann sagði þetta vera miklu verra en þegar þeir lentu í gosmekk- inum 1980. Þá hefði þetta verið mest aska og auk þess nánast logn. Kristján Árnason bóndi á Stóra- Klofa fór eftir hádegið til aðstoðar við fjóra skoska ferðamenn. Þeir lentu í því að tvivegis sprakk á bíl þeirra þegar þeir voru í miðjum mekkinum. Svo mikið var veðrið að halda þurfti við bílinn til að hann héngi á tjakknum. — Sig. Jóns. Englands- drottning til Islands ÁKVEÐIÐ hefur verið að Elísabet II Englandsdrottning komi í opinbera heimsókn til Islands seint í júnímánuði á næsta ári. Filippus drottningarmaður, hertogi af Edinborg, verður einnig í förinni. Heimsóknin stendur yfir í þijá daga og mun drottningin skoða landið og ræða við islenska ráðamenn. Þetta er í fyrsta skipti sem þjóðhöfðingi Breta sækir ísland heim. um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.