Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 38
MORÖUN'BLAÐID ÞRIÐ3UDAGUR 22. ÁGÚST: 1989 m + Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS SVEINSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, lést 18. ágúst sl. Svava Alexandersdóttir, Tryggvi Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, ELÍSABET SVEINSDÓTTIR sjúkraliði, Goðatúni 30, Garðabæ, andaðist á heimili sínu 20. ágúst. Hallgrímur Guðmundsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG HERDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR (frá Látrum, Aðalvík), Drekavogi 20, Reykjavík, andaðist að morgni 20. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn. + Sonur okkar og faðir, ÁSGEIR S. BJÖRNSSON lektor, frá Ytra-Hóli, Austur-Húnavatnssýslu, andaðist að kveldi 20. ágúst í Sjúkrahúsi Blönduóss. Björg Björnsdóttir, Björn Jónsson, Jón Bjarki Ásgeirsson. + Sambýlismaður minn, HJÖRVARÞÓRJÓHANNESSON, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, lést 17. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Fríða Elíasdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma, BÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR, frá Bíldudal, lést i sjúkradeild Hrafnistu 9. agúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kærar þakkir fyrir einstaka umönn- un henni veitta í veikindum hennar, til lækna og hjúkrunarfólks á kvennadeild Landspítalans og á hjúkrunardeild Hrafnistu. Páll Hannesson, Sigriður Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðij tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN STEFÁNSSON frá Blómsturvöllum, Skarðshlíð 23 E, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju miðvikudaginn 23. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg, Akureyri. Jónína Víglundsdóttir, Stefán Þorsteinsson, Anna Björnsdóttir, Vfglundur Þorsteinsson Haukur Þorsteinsson, Sigurður Þorsteinsson, Páll Þorsteinsson, Ásta Þorsteinsdóttir, Kristjana Skarphéðinsdóttir, Aðalheiður Gísladóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Sigurbjörg Einarsdóttir, Jóhannes Óli Garðarsson, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Grétar Óli Sveinbjörnsson, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðbjörg Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Steinþóra H. Jóns- dóttir — Minning Fædd 3. desember 1926 Dáin 15. ágúst 1989 í dag verður ti! moldar borin frá Fossvogskapellunni Steinþóra Hild- ur Jónsdóttir. Hún veiktist skyndilega fyrir rúmu ári síðan og það dró hana til dauða. Okkur langar að skrifa nokkrar línur um hana. Hun var alltaf svo góð við okkur stelpurnar, húsið hennar stóð alltaf opið fyrir okkur, já, allan þennan hóp sem í kringum hana var. Alltaf var hún reiðubúin til að hjálpa og leiðbeina ef eitthvað vandamál kom upp. Alla tíð hélst sambandið við hana eftir að hópur- inn tvístraðist með árunum. Hennar lífsmáti var að halda félagsskapinn og fylgjast með hvemig okkur vegnaði á okkar lífsbraut. Steinþóra átti þijár dætur og einn son sem sakna hennar sárt og biðjum við Guð að styrkja þau í þeirra sorg. Blessuð sé minning Steinþóru. Bára Kemp Ólöf Ólafsdóttir í dag verður til moldar borin Steinþóra Hildur Jónsdóttir, ein sú ágætasta manneskja sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Mig langar með nokkmm, fátæk- legum orðum að minnast hennar og færa henni þakkir fyrir góðu árin í Glaðheimum 26. Það var seint á árinu 1962, að ég sem ungur menntaskólanemi frá Akureyri bankaði uppá hjá Steinþóru, sem þá átti heima í tvíbýlishúsi við Glað- heima í Reykjavík. Hún hafði af alþekktri gestrisni sinni og greið- vikni failist á að skjóta skjólshúsi yfir mig, nokkrar nætur, að beiðni móður minnar, en Steinþóra og móðir mín, Steinunn Guðmunds- dóttir, sem búsett er á Akureyri, voru æskuvinkonur frá Þórshöfn á Langanesi. Steinþóra er fædd á Hóli á Langanesi, dóttir sæmdarhjónanna, Ingibjargar Gísladóttur og Jóns Ámasonar, sem bjuggu um árabil á þeim bæ. Ekki ætla ég að segja frekar frá ætt og uppruna Stein- þóm, það gera þeir væntanlega sem betur þekkja tii. Þetta voru aðeins fyrstu kynni mín af Steinþóra, því nokkru síðar var ég um árabil heimagangur hjá henni og fjölskyldu hennar. Það var alltaf notalegt að heimsækja Stein- þóm. Oft var spjallað og spiluð vist langt fram á kvöld og mátti ég hafa mig allan við að ná í síðasta strætisvagn niður í bæ, en á þessum ámm stundaði ég nám við Háskóla íslands og bjó á Gamla Garði. Steinþóra var skrafhreifin og fór ekkert dult með skoðanir sínar á mönnum og málefnum. Var oft mikið hlegið í eldhúskróknum hjá henni og þegar henni blöskraði eitt- hvað, yfirleitt var það út af ein- hveiju, sem ráðamenn þjóðarinnar vom að framkvæma, tók hún, bak- föll af vandlætingu eða sló á lærið. Steinþóra hafði afskaplega létta lund og hefur það áreiðanlega hjálp- að henni á þeirri siglingu, sem allir þurfa ða leggja í, um lífsins ólgu- sjó. Stóð hún af sér öll veður og boðaföll á þann hátt sem henni einni var lagið. í lífi hvers einstaklings verða þáttaskil. Unglingsárin taka við af bernsku, síðan koma fullorðinsárin með öllum sínum vandamálum og í framhaldi af þeim ellin. Eins er farið með vini og kunningja sem maður er samferða á lífsleiðinni. Við eignumst bernskuvini, skólafé- laga, vini í maka og börnum, svo og vinnufélaga. Alltof oft slitnar upp úr vinskapnum, því miður. Leiðir okkar Steinþóm skildi nærri jafn skyndilega og þær lágu saman, en í huga mér er og verður ætíð skýr mynd af vænni og góðri konu sem reyndist mér vel, þegar ég þurfti mest á fóstm að halda. ■Moðir mín hefur beðið mig að færa Steinþóm þakkir fyrir gömlu, góðu árin á Þórshöfn og fyrir greið- viknina við hennar fólk. Ég vil í lokin votta öllum aðstand- + Eiginmaður minn og faðir, BJARNI VALUR SVEINBJÖRNSSON fyrrum brunavörður, lést á heimili sínu sunnudaginn 6. ágúst. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Bergljót Sigurðardóttir, Ragnar Valsson, Ólafur Valsson, Sigurður V. Bjarnason. + Útför föður okkar, tengdaföður og afa, RAGNARS Á. MAGNÚSSONAR, löggilts endurskoðanda, Rofabæ 43, fer fram frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Aðalsteinn Hallgrímsson, Marta Ragnarsdótttir, Þorsteinn Eggertsson, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Pétur Gunnarsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Keld Gall Jörgensen og barnabörn. + Maðurinn minn og faðir okkar, SVEINN TRYGGVASON fyrrv. framkv.stj. Framleiðsluráðs landbúnaðarins, Brekkugerði 18, Reykjavfk, verður jarðsunginn föstudaginn 25. ágúst kl. 13.30 frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. Gerður Þórarinsdóttir, Auður Sveinsdóttir, Þórarinn Egill Sveinsson. endum Steinþóru, sérstaklega dætmm hennar, Sigríði, Erlu og Guðrúnu, svo og syni hennar, Óðni, mína dýpstu samúð við fráfall Steinþóru Hildar Jónsdóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, t hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Halldór S. Kristjánsson Þann 15. ágúst lést á Grensás- deild Borgarspítalans Steinþóra Hildur Jónsdóttir, Rauðalæk 24, Reykjavík. Fyrir einu og hálfu ári veiktist hún skyndilega af alvarleg- um sjúkdómi sem leiddi hana til dauða. Hún tók því eins og við mátti búast af henni, lét engan bilbug á sér finna, enda hafði hennar glað- værð og trú meiri völd en allar áhyggjur. Hún fæddist á Hóli á Langanesi. Foreldrar hennar voru Jón Arnason og Ingibjörg Gísladótt- ir. Fluttist hún ung til Reykjavíkur og eignaðist fjögur börn. Þau eru Sigríður, Erla, Guðrún og Óðinn. Þegar ég hóf búskap með konu minni kynntist ég Steinþóm. 0g minnist ég þess þegar vinkonurnar hittust og töluðu um gömlu dagana svokölluðu, þá var alltaf minnst á Steinþóru því það hafði svo margt drifið á dagana. Með árunum kynnt- ist ég henni sjálfur af eigin raun. Þakklæti er mér efst í huga þegar við hjónin fermdum börnin okkar, þá stóð ekki á hjálp hennar. Bakaði hún risatertur á mörgum hæðum svo glæsilegar að þær vora mynd- aðar með fermingarbörnunum áður en veislan hófst. Á síðastliðnum ámm hittumst við nokkram sinnum á kvöldin yfir kaffibolla með góðum félögum. Ræddum við hvernig best væri að vítamínbæta fæðið okkar. Margt spaugilegt kom fram á þess- um fundum og innilega' hlegið. Er mér ljúft að geta þess hvað Stein- þóra var bömum sínum góð móðir enda hafa þau öll staðið við hlið hennar í baráttunni við sjúkdóm sinn svo eftir var tekið. Blessuð sé minning hennar og bið ég Guð um að styrkja börn hennar og aðra aðstandendur í sorg þeirra. Ólafúr Benediktsson Blömastofa Friöfinns Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.