Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 48
JMným mDNIUHÚFH§ mmmm n SKIPADEILD SAMBANDSINS \ SÍMI 91-698300' ÞRIÐJUDAGUR 22. AGUST 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Jón Isberg; Ekki hægt að innheimta söluskattinn JÓN ísberg sýslumaður Húna- vatnssýslu segir að hann telji ekki hægt að innheimta söluskatt af skemmtanahaldi í Húnaveri um verslunarmannahelgina og hefúr hann sent fjármálaráðu- neytinu greinargerð um að öllum settum skilyrðum varðandi und- anþágu á greiðslu söluskatts hafí verið fúllnægt. Að sögn Snorra Olsen deildarsljóra í fjármála- ráðuneytinu hefur greinargerðin verið send skattsljóra Norður- lands vestra, sem úrskurða muni um hvort greiða beri söluskatt TW'egna skemmtanahaldsins. „Miðað við þá undanþágu sem ráðuneytið veitti þá taldi ég ekki hægt að innheimta söluskatt af þessari skemmtun. Mér bárust gögn frá þeim sem héldu skemmtunina þar sem fram kom að öllum settum skilyrðum var fullnægt, og ég hef sent ráðuneytinu sönnun fyrir því. Ég hef því vísað málinu til ráðu- neytisins, þannig að þar geti menn sjálfir túlkað sínar eigin undanþág- ^jr,“ sagði Jón ísberg. Snorri Olsen sagði að það væri ekki hlutverk ráðuneytisins að úr- skurða um skattskyldu hjá einstök- um aðilum. Ráðuneytið hefði sett ákveðnar reglur, og það væri síðan viðkomandi skattstjóra að úrskurða hvort sett skilyrði varðandi undan- þágur samkvæmt þeim hefðu verið uppfyllt. í sandbyl og grjótregni HÓPUR fólks lenti í erfið- leikum í nágrenni Heklu á sunnudaginn er þar skall skyndilega á mikið rok. Vikur og sandur buldi á fólki og bifreiðum og voru hnullungarnir allt að lófastór- ’ ir. Talsvert tjón varð á lakki og rúðum bifreiða og nokkrir fótgangandi ferðamenn á þessum slóðum skárust í and- liti. Sjá ennfremur bls. 3: „Steinar á stærð við hænu- egg splundruðust á bílun- um.“ Hópferðabifreiðin alelda á Fljótsheiðinni um miðjan dag í gær. Morgunblaðið/Halla M. Pálsdóttir Alelda hópferðabifreið á Fljótsheiði LÍTIL hópferðabifreið varð alelda á á Fljótsheiði um miðjan dag í gær og brann til kaldra kola áður en við nokkuð varð ráðið. Fimmtán Þjóðverjar voru í bifreiðinni, auk ökumanns, og sakaði þá ekki, Ökumaðurinn var á sjúkrahúsinu á Húsavík í nótt vegna vægrar reykeitrunar. Bifreiðin, sem hafði meðal ann- ars farið með Þjóðveijana inn að Herðubreiðarlindum og Kverk- fjöllum, var á leiðinni frá Mývatni til Akureyrar. Á Fijótsheiðinni varð ökumaðurinn var við að hún hitnaði mikið og þegar hann stöðvaði bifreiðina drap hún á sér. Ökumaður og farþegar fóru út og sáu þá að eldur logaði í undirvagni. Slökkvitæki var í bílnum en það dugði ekki til að slökkva eldinn. Hvasst var og tor- veldaði það mjög slökkvistarfið. Sent var eftir hjálp til Lauga í Reykjadal og var komið þaðan með tvö slökkvitæki og slökkvibíll, sem þar er staðsettur, lagði einn- ig af stað á heiðina. Ekki dugðu slökkvitækin til þess að slökkva eldinn, sem hafði magnast á með- an beðið var og þegar slökkvibíll- inn kom á staðinn var bifreiðin mikið til brunnin. Bifreiðin var með kerru undir farangur í eftirdragi og slapp hún nánast óskemmd, en nægur tími gafst til að bjarga farangrinum. Bifreiðin er hins vegar gjörónýt. Ríkisábyrgð á launum; Tæplega 200 inilljónir kr. greiddar á 18 mánuðum RÍKISSJÓÐUR greiddi út tæpar 200 milljónir króna vegna ríkis- ábyrgðar á launum á 18 mánaða tíma, 80-90 milljónir á árinu 1988 og 110 milljónir á fyrri helmingi þessa árs, að sögn Óskars Hall- grímssonar á Vinnumálaskrifstofú félagsmálaráðuneytisins. Greidd- ar voru launakröfúr starfsfólks gjaldþrota fyrirtækja. Félags- Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna: Námslán hækki ekki um næstu mánaðamót STJÓRN Lánasjóðs íslenskra námsmanna treystir sér ekki til að -leggja til hækkun námslána um 10,3% sem átti að verða þann 1. september næstkomandi, ef ekki koma bein fyrirmæli menntamála- ráðherra um að lánin hækki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er ástæðan fyrirsjáanlegur halli á sjóðnum sem gæti numið allt að 300 milljónum króna á árinu. Ráðherra hefúr verið sent bréf um þessa ákvörðun og fúlltrúum námsmannahreyfinganna, sem aðild eiga að LÍN, hefúr verið kynnt afstaða stjórnarinnar. Námslán eiga að hækka 1. sept- ember úm 5,1% vegna hækkunar ■éramfærsluvísitölu og Svavar Gestsson menntamálaráðherra boð- aði fyrr á árinu auk þess sérstaka 5% hækkun 1. september. Þessar hækkanir eru samanlagt 10,3%. Stjóm LÍN fer fram á að mennta- málaráðherra gefi um það bein fyr- irmæli, ef hækkanirnar eiga að verða. Ákvörðun stjórnarinnar er rök- studd með því, að fyrirsjáanlegt sé, að Lánasjóðurinn þarfnist aukafjár- veitinga sem nemi allt að 300 millj- ónum króna og með því að falla frá hækkununum 1. september megi draga úr þeirri fjárþörf um allt að 100 milljónir. málaráðherra hefúr nú skipað nefnd til þess að endurskoða lögin um ríkisábyrgðina, vegna ýmissa galla sem þykja vera á þeim. Óskar segir að lítið sem ekkert hafi heimst aftur af þrotabúunum í fyrra, enda hafi þau flest verið eigna- laus. Hann segist ekki geta sagt fyr- ir um hvernig ganga muni að endur- heimta launakröfurnar á þessu ári, enda geti verið munur á því á milli ára hvers eðlis gjaldþrot eru og þá um leið hvort þrotabúin geti greitt kröfur. Endurskoðun laganna um ríkis- ábyrgð á launum hefur staðið fyrir dyrum í all nokkurn tíma, segir Óskar. I þeim eru ýmis ákvæði sem hafa reynst erfið í framkvæmd eða þarf að skilgreina betur. Óskar nefndi sem dæmi að flóknar reglur eru um launatímabil sem ábyrgðin tekur til, ennfremur að engin ákvæði eru um hve háar launakröfur eru greiddar. Um það verða setta'r við- miðunarreglur. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra hefur nú skipað nefnd sem á að endurskoða lögin og skila niðurstöðu fyrir 1. nóvember næst- komandi. Nefndina skipa Jón Rúnar Pálsson lögfræðingur, tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Islands, Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, tilnefnd af Alþýðusambandi íslands, Ragnar H. Hall borgarfógeti, til- nefndur af dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu, Skúli Thoroddsen lögfræð- ingur, tilnefndur af fjármálaráðu- neytinu og Þórhildur Líndal deildar- stjóri sem skipuð er formaður nefnd- arinnar. Mjólkurfræð- ingar funda um kjaramál Mjólkurfræðingar hafa boðað til félagsfiinda um kjaramál, en þeir eru með lausa samninga um næstu mánaðamót. Mjólkurfræðingar sunnan- lands funda í kvöld á Selfossi, en mjólkurfræðingar á Norður- landi hafa boðað til fundar á Akureyri á fimmtudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.