Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989 'í Aðför að starfí grunnskóla eftir Sigrúnu Gísladóttur Aðbúnaður grunnskólanemenda, þ.e. yngra stigs og miðstigs, 6-12 ára barna er áhyggjuefni. Þau þurfa að búa við sundurslitnar stundatöfl- ur, mismunandi byijunartíma, mis- langa skóladaga, stuttan daglegan skólatíma og eru ýmist fyrir eða eftir hádegi milli ára. Á þessu verð- ur ekki ráðin bót fyrr en menn horfast í augu við hvað það kostar að reka alvöru skóla. Við þykjumst standa okkur, fylgjast með og kenna allar náms- geinar. En hvernig er þetta í reynd? Nemendum er þeytt úr einu faginu í annað og hvorki kennarar né nem- endur hafa tíma til að gera náms- efninu viðunandi skil og fylgja hlut- unum eftir. Það er sjaldan hægt að gefa nemendum tíma til að hugsa og vinna með viðfangsefnið. Þrautalendingin er alltof oft að allt er leyst með ljósrituðum eyðufyll- ingarblöðum því það er fljótlegast. Getur það verið að sauðkindin sé meira virði í augum ráðamanna en uppvaxandi kynslóð? Landbún- aðarstefnan má greinilega kosta sitt en að reka almennilega grunn- skóla —' það er of dýrt. Alþýðubandalagsmenn með Svavar Gestsson • menntamálaráð- herra í broddi fylkingar hafa talað fjálglega um mikilvægi skólanna og viðurkennt í orði breytt hlutverk grunnskólans í þjóðfélagi nútímans þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis og væntingar foreldra til skólastarfsins eru aðrar og meiri en áður var. En meðan skólatíminn er jafn stuttur og óreglulegur eins og nú er enginn vegur fyrir skólana þrátt fyrir fullan hug og metnaðar- fulla kennara að koma til móts við þessar væntingar foreldra og rétt- mætar þarfir nemenda. í framhaldi af skilningsyfirlýs- ingu menntamálaráðherra sendir hann skólunum og foreldrum boð um að útbúa óskalista til að stuðla að bættu skólastarfi. Það tekur af allan vafa um að ráðherrann sér og viðurkennir að ýmislegt megi betur fara í skólastarfinu og er það kannski meira en hægt er að segja um ýmsa fyrirrennara hans. Ekki stóð á skólafólki og foreldrum að senda ráðuneytinu óskalistana sína, sem innhéldu sígildu óskirnar sem kennarar hafa klifað á síðustu ára- tugina: einsetinn skóli (reglulegur samfelldur skólatími), lengri skóla- dagur fyrir yngstu nemendurna 6-8 ára o.s.frv. í bréfi ráðherra var þess og get- ið að í vor fái sömu aðilar annað bréf um hvernig óskalistarnir hafí komið út og þá muni þeir fá tæki- færi til þess að raða óskunum í forgangsröð. Þetta hlýtur að boða breytta stefnu, nýja og betri tíma, eru það ekki réttmætar ályktanir? Apríl og maí renna upp og það vorar þrátt fyrir snjóskaflana á skólalóðinni. Fræðslustjórar og skólastjórar eru í óða önn að skipu- leggja næsta skólaár og ákveða kennararáðningar. Þá berst bréf frá menntamálaráðherra um niðurfell- ingu allra sundtíma næsta skólaár. Fæstir skilja í fyrstu umrætt bréf en smám saman skýrast málin. Ráðherra boðar niðurskurð næsta skólaár. Það á ekki að hætta allri sundkennslu heldur að taka tíma til þess frá öðrum námsgreinum svo sem frá íslenskutímunum. Hver man ekki eftir vasklegri framgöngu Svavars Getssonar í fjölmiðlum þegar hann tók undir með skólamönnum og lýsti áhyggj- um sínum af stöðu móðurmálsins. Hann skipaði nefnd og boðaði alls- heijar móðurmálsátak í öllum skól- um landsins á næsta skólaári. Á sama tíma og skólarnir eiga að gera átak í móðurmálskennslu þá eru skomar niður um það bil 2 kennslustundir af vikustundafjölda hvers bekkjar. Hvernig ber að skilja þetta? Jú, kennið meiri íslensku og gerið sérstakt átak til vemdar móð- urmálinu en þið fáið til þess mun færri kennslustundir en áður. Skóla- og fræðslustjórar verða að hefjast handa við að endurvinna allar áætlanir og vísa frá kennurum sem reiknað hafði verið með að ráða. Stuttu fyrir skólalok berst óska- listabréf ráðherra nr. 2 og nú á að raða óskunum í forgangsröð. Ætl- ast ráðherra virkilega til þess að við tökum þátt í svona skollaleik? Hefur ráðherra eitthvað sér til málsbóta? Ríkisstjórnin gerði sam- þykkt um 4% niðurskurð ,í öllum ráðuneytum. í byijun árs var að skilja af fréttaflutningi að það væri einungis í heilbrigðisgeiranum sem verið væri að reyna að spara um- rædd fjögur prósent. Réttilega hefur verið talað um mikla þenslu og aukinn kostnað á „Getur það verið að sauðkindin sé meira virði í augum ráða- manna en uppvaxandi kynslóð? Landbúnaðar- stefíian má greinilega kosta sitt en að reka almennilega grunn- skóla — það er of dýrt.“ sviði fræðslumála. En hvar, á hvaða skólastigum, hefur þenslan orðið mest undanfarna áratugi? Er það á grunnskólastiginu? Varla nema að litlu leyti. Þar hefur ekkert breyst þrátt fyrir háværar óskir um breyt- ingar og betri aðbúnað. Aukningin og þenslan hefur orðið allt annars staðar, þ.e. á framhaldsskólastiginu og í ýmsum sérskólum svo sem tón- listarskólum. Var ekki nær að ná fram skynsamlegum sparnaði með því að snúa sér að þeim þáttum þar sem aðalútgjaldaaukningin hefur orðið en sleppa grunnskólastiginu þar sem allt er njörvað niður og þegar er fullsparað? Athyglisverðar eru niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar sem birtar voru í dagblöðum í júní sl. Leitað var álits landsmanna á því hvernig ýmsar opinberar stofn- anir gegndu hlutverki sínu, stofnan- ir svo sem Ríkisútvarpið, Háskólinn, lögreglan, menntaskólar og grunn- Sigrún Gísladóttir skólar. Aðeins um 40% töldu grunn- skólana gegna hlutverki sínu vel Var þetta virkilega nauðsynlegt? Hefurðu ekki oft spurt þig þess- arar spurningar þegar buddan er orðin tom í lok mánaðarins? Og hefurðu kannski líka heitið því að gera betur næst og eyða minna í óþarfa? Það er hægara sagt en gert - en ekki vonlaust. Þú getur notið þess að stjóma þínum eigin fjármálum: I rauninni þarftu bara að setjast niður og fara yfir útgjöldin. Hvað var algjör óþarfi, hvað veitti ánægju og hvað var nauðsynlegt? Og nota svo peningana sem áður fíóru í óþarfa til að verða þinn eiginn herra í fjármálum! F.h. VerBbrhfamarhaSs Xönaðarbanhans hf. HH. Það er gott ráð að leggja hluta launanna fyrir strax við útborgun. Með því að leggja til hliðar mán- aðarlega dálitla upphæð muntu innan tíðar eignast varasjóð. Þú getur gripið til hans þegar inikið liggur við, eða látið hann ávaxtast áfram til eftirlaunaáranna. 10.000 krónur sem lagðar eru fyrir mánaðarlega verða að 5,1 milljón auk verðbóta á 20 árum cf vextir eru 7% yfir verðbólgu. Fyrirhöfnin þarf ekki að vera mikil. Þeir sem leggja fyrir mánaðar- lega hjá VIB geta fengið senda gíróseðla, látið millifæra af banka- reikningi í Iðnaðarbankanum eða skuldfæra af greiðslukortum. Þann- ig verður spamaðurinn fyrirhafnar- lítill. Þeir fá einnig send yfirlit svipuð því sem sýnt er hér á niynd- inni á tveggja mánaða fresti og geta þannig fylgst nákvæmlega með því hvernig spariféð vex. Til að fá peninga greidda út nægir eitt símtal - við sjáum um afganginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.