Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989
félk í
fréttum
HAMINGJA
Stenmark
trúlofar sig
Skíðakappinn sænski, Ingemar
Stenmark, trúlofaði sig á dög-
unum. Unnusta hans heitir Anna-
Karin en hún er frá Borás í Svíþjóð.
Ingemar segist nú hafa höndlað
hamingjuna og er ánægður með
lífið og tilveruna. Hann hefur búið
í Mónakó í mörg ár og hyggst gera
það áfram því þar fær hann að
vera í friði fyrir forvitnum blaða-
mönnum.
Ingemar skrapp í heimsókn til
Ekki er annað að sjá en að Ingemar sé ánægður með stúlkuna sína.
foreldra sinna í Svíþjóð nú í ágúst
og kynnti þau fyrir unnustu sinni.
Þegar heim kemur ætlar hann að
taka við starfi í viðskiptalífinu en
því fylgja mikil ferðalög. Hann seg-
ist þó bara hlakka tii því hann ætli
að taka Önnu-Karin með sér hvert
sem hann fari.
LISA BONET
Aftur
með
Cosby
Leikkonan Lása Bonet
mun í haust aftur fá
hlutverk í þáttunum um
fyrirmyndarföðurinn Bill
Cosby en hún varð að
hætta í fyrra vegna þess
að hún var bamshafandi.
Þessi mynd var tekin á
götu í New York af henni
með dóttur sinni Zoe sem
aðeins er átta mánaða
gömul.
Fjórir glæsilegir
veggtennissdir.
Innritun hafin í símum
Ó87701 og 687801.
ATHUGIÐ!
Þeir, sem ganga fró fyrir
1. september, fá
5% afslátt.
ÍÞRÓTT Á UPPLEIÐ
^ 687701
Engjateigur 1 • 105 Reykjavik 687801
VEIÐIKEPPNI
Veiddu 174 marhnúta
- og- enginn þeirra dó
Marhnútaveiðikeppni var
haldin í annað sinn í
blíðskaparveðri í byijun ágúst við
Suðureyrarhöfn. Keppnin er fyrir
11 ára böm og yngri og er tak-
markið að veiða sem flesta mar-
hnúta á einum klukkutíma. Hug-
myndina að keppninni átti Ævar
Einarsson. Hún var haldin í fyrsta
sinn á síðasta árin en tókst það
vel að hún var gerð að árlegum
viðburði.
Fjöldi fólks fyigdist með þegar
marhnútaveiðikeppnin byijaði.
Reglumar vom kynntar fyrir
keppendum 22 og síðan var klukk-
an sett af stað. Spúnamir vom
Iátnir síga í snatri niður í sjóinn
og allir biðu spenntir eftir fyrsta
mansanum. Þegar fáeinar mínút-
ur vom liðnar lágu nokkrir mans-
ar í karinu hjá dómaranum og
þeim fjölgaði óðum. Hann sá um
að vigta og skrá hvem veiddan
marhnút, aðrar fiskitegundir vom
ekki taldar með. Búið var að setja
sjó í karið og gátu því mansarnir
synt um sprelllifandi. Síðasta
stundarfjórðunginn var mesta
veiðin og var mikið um að vera á
þeim tíma. Þegar 60 mínúturnar
vom liðnar hífðu allir inn og farið
var að reikna út fjölda og þyngd
fiskanna og úrslit gerð kunn.
„Þetta er hápunktur sumarsins
hjá börnunum, það er alveg á
hreinu," sagði Ævar Einarsson
sem sá um keppnina. Hugmyndin
kviknaði þegar ég fór niður að
höfn eitt kvöldið í fyrra til að fylgj-
ast með börnunum veiða. Þá sá
ég að mansinn, eins og hann er
kallaður, var mjög óvinsæll á öng-
ulinn. Honum var slengt inn fyrir
og síðan var hann stappaður í
klessu og sparkað útí sjó. Þetta
varð að stoppa svo ég ræddi við
krakkana og sagði þeim að þegar
ég var á þeirra aldri hefðu strák-
amir hrækt uppí mansana og
sleppt þeim lifandi í sjóinn. Það
átti að merkja, að marhnúturinn
átti að borga lífgjöfina með því
að láta annaðhvort þorsk eða kola
bíta á næst. Þessu áttu þau bágt
með að trúa svo ég stakk upp á
því að veiða þá í keppni,“ sagði
Ævar.
Alls veiddust 174 marhnútar á
þessum eina klukkutíma og vó
heildaraflinn samtals 46 kg og
386 grömm. Sigurvegarinn var
Bjarki Rúnar Arnarsson með 5
kg og 580 g, 19 marhnúta, í öðm
Ævar Einarsson.
sæti varð Antonyo Aquilar með 4
kg og 036 g, 16 marhnúta, og í
þriðja sæti varð Hjörtur Steingr-
ímsson með 4 kg og 017 g, 16
marhnúta, og var hann jafnframt
yngsti keppándinn. Þá hlaut An-
tonyo Aquilar aukaverðlaun fyrir
þyngsta marhnútinn sem vó 626
g. Verðlaunaafhending fór fram
á hafnarsvæðinu við mikinn fögn-
uð viðstaddra.
- R. Schmidt.
Hér eru þeir Bjarki Rúnar Arnarsson t.v. sem
varð sigurvegari og Antonyo Aquilar sem varð
í öðru sæti og hlaut að auki veglegan bikar fyr-
ir þyngsta marhnútinn í keppninni.
I