Morgunblaðið - 22.08.1989, Síða 40

Morgunblaðið - 22.08.1989, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989 félk í fréttum HAMINGJA Stenmark trúlofar sig Skíðakappinn sænski, Ingemar Stenmark, trúlofaði sig á dög- unum. Unnusta hans heitir Anna- Karin en hún er frá Borás í Svíþjóð. Ingemar segist nú hafa höndlað hamingjuna og er ánægður með lífið og tilveruna. Hann hefur búið í Mónakó í mörg ár og hyggst gera það áfram því þar fær hann að vera í friði fyrir forvitnum blaða- mönnum. Ingemar skrapp í heimsókn til Ekki er annað að sjá en að Ingemar sé ánægður með stúlkuna sína. foreldra sinna í Svíþjóð nú í ágúst og kynnti þau fyrir unnustu sinni. Þegar heim kemur ætlar hann að taka við starfi í viðskiptalífinu en því fylgja mikil ferðalög. Hann seg- ist þó bara hlakka tii því hann ætli að taka Önnu-Karin með sér hvert sem hann fari. LISA BONET Aftur með Cosby Leikkonan Lása Bonet mun í haust aftur fá hlutverk í þáttunum um fyrirmyndarföðurinn Bill Cosby en hún varð að hætta í fyrra vegna þess að hún var bamshafandi. Þessi mynd var tekin á götu í New York af henni með dóttur sinni Zoe sem aðeins er átta mánaða gömul. Fjórir glæsilegir veggtennissdir. Innritun hafin í símum Ó87701 og 687801. ATHUGIÐ! Þeir, sem ganga fró fyrir 1. september, fá 5% afslátt. ÍÞRÓTT Á UPPLEIÐ ^ 687701 Engjateigur 1 • 105 Reykjavik 687801 VEIÐIKEPPNI Veiddu 174 marhnúta - og- enginn þeirra dó Marhnútaveiðikeppni var haldin í annað sinn í blíðskaparveðri í byijun ágúst við Suðureyrarhöfn. Keppnin er fyrir 11 ára böm og yngri og er tak- markið að veiða sem flesta mar- hnúta á einum klukkutíma. Hug- myndina að keppninni átti Ævar Einarsson. Hún var haldin í fyrsta sinn á síðasta árin en tókst það vel að hún var gerð að árlegum viðburði. Fjöldi fólks fyigdist með þegar marhnútaveiðikeppnin byijaði. Reglumar vom kynntar fyrir keppendum 22 og síðan var klukk- an sett af stað. Spúnamir vom Iátnir síga í snatri niður í sjóinn og allir biðu spenntir eftir fyrsta mansanum. Þegar fáeinar mínút- ur vom liðnar lágu nokkrir mans- ar í karinu hjá dómaranum og þeim fjölgaði óðum. Hann sá um að vigta og skrá hvem veiddan marhnút, aðrar fiskitegundir vom ekki taldar með. Búið var að setja sjó í karið og gátu því mansarnir synt um sprelllifandi. Síðasta stundarfjórðunginn var mesta veiðin og var mikið um að vera á þeim tíma. Þegar 60 mínúturnar vom liðnar hífðu allir inn og farið var að reikna út fjölda og þyngd fiskanna og úrslit gerð kunn. „Þetta er hápunktur sumarsins hjá börnunum, það er alveg á hreinu," sagði Ævar Einarsson sem sá um keppnina. Hugmyndin kviknaði þegar ég fór niður að höfn eitt kvöldið í fyrra til að fylgj- ast með börnunum veiða. Þá sá ég að mansinn, eins og hann er kallaður, var mjög óvinsæll á öng- ulinn. Honum var slengt inn fyrir og síðan var hann stappaður í klessu og sparkað útí sjó. Þetta varð að stoppa svo ég ræddi við krakkana og sagði þeim að þegar ég var á þeirra aldri hefðu strák- amir hrækt uppí mansana og sleppt þeim lifandi í sjóinn. Það átti að merkja, að marhnúturinn átti að borga lífgjöfina með því að láta annaðhvort þorsk eða kola bíta á næst. Þessu áttu þau bágt með að trúa svo ég stakk upp á því að veiða þá í keppni,“ sagði Ævar. Alls veiddust 174 marhnútar á þessum eina klukkutíma og vó heildaraflinn samtals 46 kg og 386 grömm. Sigurvegarinn var Bjarki Rúnar Arnarsson með 5 kg og 580 g, 19 marhnúta, í öðm Ævar Einarsson. sæti varð Antonyo Aquilar með 4 kg og 036 g, 16 marhnúta, og í þriðja sæti varð Hjörtur Steingr- ímsson með 4 kg og 017 g, 16 marhnúta, og var hann jafnframt yngsti keppándinn. Þá hlaut An- tonyo Aquilar aukaverðlaun fyrir þyngsta marhnútinn sem vó 626 g. Verðlaunaafhending fór fram á hafnarsvæðinu við mikinn fögn- uð viðstaddra. - R. Schmidt. Hér eru þeir Bjarki Rúnar Arnarsson t.v. sem varð sigurvegari og Antonyo Aquilar sem varð í öðru sæti og hlaut að auki veglegan bikar fyr- ir þyngsta marhnútinn í keppninni. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.