Morgunblaðið - 22.08.1989, Page 5
5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989
_í---Í----------------——---:---------1 Hr
Rykkrokk í
Breiðholti
ÚTITÓNLEIKARNIR Rykkrokk voru haldnir á
vegum félagsmiðstöðvarinnar Fellahellis í Breið-
holti á laugardag og komu þar fram átján hljóm-
sveitir. Rykkrokk er haldið annað hvert ár, en að
þessu sinni voru tónleikarnir veglegri en ella vegna
15 ára afinælis Fellahellis.
Fram komu hljómsveitirnar Flintstones, Bróðir Dar-
wins, Komplex, Túrbó, Drykkir innbyrðis, Rúnar Þór og
H 0, 16 eyrnahlífabúðir, Dýrið gengur laust, Móðins,
Llglausir, Hálfur undir sæng, Bootlegs, Tarot, Júpíters,
Ham, Risaeðlan, Langi Seli og Skuggarnir og Sykurmol-
arnir.
Tónleikunum var útvarpað beint á Rás 2, en þeir stóðu
frá kl. 15.00 og fram yfir miðnætti. Aðstandendur tónleik-
anna voru hæstánægðir með framkvæmdina og töldu
þeir að undir miðnættið hafi verið á þriðja þúsund manns
á tónleikunum, en aðgangur var ókeypis og öllum heimill.
Á meðfylgjandi mynd má sjá næstsíðustu hljómsveit
kvöldsins, Langa Sela og Skuggana.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Þarna sérðu Júlíus.
Hann knnn nð njóta lífsins.
Júlíus er lánsamur maður og hann
lítur framtíðina björtum augum.
Hann á íbúð og bíl, er í ágætri
vinnu og lætur ýmislegt eftir sér.
Júlíus lætur sig oft dreyma en ólíkt
mörgum öðrum lætur hann
drauma sína rætast. Eitt af því
skemmtilegasta sem hann gerir er
að ferðast til fjarlægra landa enda
gerir hann mikið af því. Júlíus er þó
ekki hátekjumaður en hann er
skynsamur. Hann er í viðskiptum
við Fjárfestingarfélag ís'iands hf.
Pað gerir gæfumuninn. *
*Júlíus byrjaði ungur að leggja til hliðar
af launum sínum til þess að safna í vara-
sjóð ef eitthvað færi úrskeiðis. Hann var
að vísu ekki ánægður með vextina til að
byrja með en hélt að það tæki því ekki að
kynna sér betri leiðir af því að upphæðin
varsvolítil.
Árið 1985 komst Júlíus hins vegar í
samband við sérfræðinga Fjárfestingar-
félagsins og áttaði sig á því að peningarn-
ir hans gætu margfaldast á stuttum tíma.
Þá átti hann 300.000 kr. í sparifé.
Á rúmum fjórum árum er upphæðin
orðin 1.200.000 kr. og árið 1990 hefur
fjárhæðin líklega tvöfaldast að raun-
gildi. Sannarlega álitlegur varasjóður
það - og hann fer vaxandi! Júlíus heldur
áfram að leggja til hliðar af launum sín-
um og ávaxtar féð hjá Fjárfestingarfé-
laginu. Það gerir hann m.a. til þess að
geta farið í langt sumarleyfi á hverju ári.
Þetta er maður sem kann að lifa lífinu!
Þessar tölur eru raunverulegar en
nafnið ekki.
Hafðu samband, athugaðu hvort við
getum aðstoðað þig.
FJÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSIANDS HF.
HAFNARSTRÆTI KRINGUJNNI • AKUREYRI
28566 689700 25000