Morgunblaðið - 22.08.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989
7
Morgunblaðið/Einar Falur
Að lokinni prestavígslu í Dómkirkjunni á sunnudag. Fremri röð frá
vinstri: Solveig Lára Guðmundsdóttir vígsluvottur, Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir, herra Ólafur Skúlason, Gunnar Rúnar Matthíasson
og Arnfríður Guðmundsdóttir vígsluvottur. í efri röð eru frá vinstri
Þorleifur Kjartan Kristmundsson vígsluvottur, Pálmi Matthíasson
vígsluvottur og Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur.
Tveir prestar vígðir
BISKUP íslands, herra Ólafiir
Skúlason, vígði tvo guðfræði-
kandidata í Dómkirkjunni á
sunnudag. Gunnar Rúnar Matt-
híasson verður sjúkrahúsprestur
við Northwestern Memorial
spítalann í Chicago og Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir er ráðin
farprestur þjóðkirkjunnar og
mun þjóna á Norðfírði.
Sr. Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson lýsti vígslu og var vígslu-
vottur ásamt sr. Arnfríði Guð-
mundsdóttur, eiginkonu Gunnars
Rúnars, sr. Pálma Matthíassyni,
bróður hans, og sr. Solveigu Láru
Guðmundsdóttur. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson dómkirkjuprestur
þjónaði fyrir altari og Kjartan Sig-
uijónsson guðfræðinemi lék á orgel.
Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson
og sr. Arnfríður Guðmundsdóttir
eru íjórðu hjónin sem bæði hafa
tekið vígslu. Þau stunda nám í
Chicago og mun sr. Gunnar gegna
starfi sínu við Northwestern spítal-
ann samhliða því.
Sr. Gunnar Rúnar og sr. Jóna
Kristín eru fyrstu prestarnir sem
herra Ólafur Skúlason vígir.
Ottast um ensk
hjón í Mýrdal
NOKKUR leit var gerð að bresk-
um hjónum um fertugt í Mýrdal
á sunnudag og var talið að þau
hefðu farið sér að voða er ekki
hafði til þeirra spurst í þrjá daga.
Óttinn reyndist ástæðulaus og
kom fólkið fram á mánudags-
morgun.
Fólkið hafði tekið á leigu sumar-
bústað við bæinn Sólheima í Mýr-
Slasaðist
í árekstri
MAÐUR var fluttur á slysa-
deild eftir harðan árekstur
tverggja bíla á Vífílstaðavegi
við Garðakaup í gærmorgun.
Bilarnir, Daihatsu og Skoda,
eru mikið skemmdir. Ökumaður
Daihatsu-bílsins var fluttur á
sjúkrahús en var ekki talinn
mjög alvarlega slasaður.
dal á miðvikudag og hugðist dvelj-
ast þar viku. Þaðan fór það á
fimmtudagsmorgun á bílaleigubíl
en skildi föggur sínar eftir í bú-
staðnum. Var það talið benda til
að þau hygðu aðeins á stutta ferð
um nágrennið. Á sunnudagsmorg-
un, þegar hafði ekkert sést til fólks-
ins, hafði fólkið á Sólheimum sam-
band við lögreglu, sem í samráði
við björgunarsvietir slysavarnarfé-
lagsdeildanna í Vík og undir Eyja-
fjöllum svipaðist um eftir fólkinu
og fáförnum jeppaslóðum í ná-
grenninu.
Á sunnudag bárust síðan ýmsar
vísbendingar um ferðir fólksins,
meðal annars hafði spurst til þeirra
á Sprengisandsleið og á Höfn. Þeg-
ar heimilisfólkið á Sólheimum vakn-
aði á mánudagsmorgun stóð bíll
hjónanna á hlaðinu. Þau höfðu þá
komið heim um nóttina. Ekkert
amaði að hjá þeim og voru þau
grunlaus um þann viðbúnað sem
gerður hafði verið vegna þeirra.
Byggingarvísitala
hækkar um 1,4%
HAGSTOFAN hefiir reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan ágúst 1989.
Reyndist hún vera 147,3 stig, sem
er hækkun um 1,4%. Síðastliðna
12 mánuði hefur vísitala bygg-
ingarkostnaðar hækkað um
18,5%. Síðustu þijá mánuði hefiir
hún hækkað um 4,0% og sam-
svarar það 17,1% árshækkun.
Þessi vísitala (júní 1987=100)
gildir fyrir september næstkom-
andi. Samsvarandi vísitala miðuð
við eldri grunn (desember
1982=100) er 471 stig.
Af hækkun vísitölunnar frá júlí
til ágúst má rekja 0,4% til launa-
hækkunar byggingarmanna 1.
ágúst siðastliðinn og 1,0% til verð-
hækkunar á ýmsum öðrum liðum.
Launavísi-
tala hækk-
ar um 0,5%
HAGSTOFAN hefur reiknað
launavísitölu fyrir ágústmánuð
1989 miðað við meðallaun í júlí.
Vísitalan er 106,8 stig, eða 0,5%
hærri en vísitala fyrri mánaðar.
Umreiknað til árshækkunar
samasvarar þessi hækkun því
10,9%. Samsvarandi launavísitala
til greiðslujöfnunar fasteignaveðl-
ána tekur sömu hækkun og er því
2.337 stig í septembermánuði.
Sumarbústaóur eóa
sumarbústaóarland
óskast keypt
Æskileg staðsetning 30-1 50 km fró Reykjavík.
Góð greiðsla ,í boði fyrir rétta eign.
Áhugasamir vinsamlega hringið í síma 20792 eftir kl. 14.00.
pltrijMttM&foifo
Góóan daginnl
DÆMI:
Sunbeam og Kenmore gasgrill, þrjár Gardenaúóabrúsar,
stæröir, kr. 16.600, 19.200, 21.480 1 I, kr. 991, 5l,kr. 1.911
m/kút.
0 afsl
40%
30°/.
afsl.
Gardena sláttuorf, 190 W, kr.
2.747,300 W, kr. 5.117
Bosch limgerðisklippur,
Husqvarna sláttuvél 380W, kr. 9.347
kr. 5.838
Bosch fjölnotasög, 550 W,
kr. 9.072
Gardena Gardena kantskeri,
bílaþvottasett kr. 3.493, 7,2 V m/hleðslutæki
kr. 1.536
Gardena garðverkfæri: Hrífur, skóflur, klippur, úðarar o.fl.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16,108 Reykjavík - Sfmi 91-680 780