Morgunblaðið - 22.08.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. AGUST 1989
15
Um stöðugleika rann-
sóknarneftidar sjóslysa
meðan allar hinar stofnanirnar
komu mun betur út. í könnuninni
var einnig spurt: Ef taka ætti opin-
bert skattfé til að efla eina af eftir-
töldum stofnunum með auknum
fjárveitingum, hveija mundir þú þá
helst velja? Af öllu úrtakinu valdi
rúmlega helmingur grunnskólana
en lítill vilji var til þess að efla aðr-
ar nefndar stofnanir. Niðurstaðan
er að rúmlega 50% spurðra eru
reiðubúnir að láta aukna skatt-
peninga til þess að efla grunnskóla
landsins. Augljóst er að fólkið í
landinu skilur mikilvægi grunnskól-
ans og vill að þar sé vel staðið að
verki.
Öllum má vera ljóst að það er
til lítils að bjóða upp á góða tónlist-
arskóla, framhaldsskóla og háskóla
ef nemendur hafa ekki fengið sóma-
samlega grunnmenntun á skyldu-
námsstigi því á þeirri menntun
byggist framhaldið.
Höfundur er skólastjóri Flataskóla
í Garðabæ.
eftir Arthur Bogason
Mesta bull og þvaður sem ég hef
séð á prenti í seinni tíð er haft eft-
ir Kristjáni Guðmundssyni fram-
kvæmdastjóra Rannsóknarnefndar
sjóslysa og formanni hennar Har-
aldi Biöndal í frétt sem birtist í
Mogunblaðinu þann 27. júlí sl. und-
ir fyrirsögninni: „Rannsóknarnefnd
sjóslysa: Onógur stöðugleiki og van-
þekking veldur fjölda smábáta-
slysa.“ Ekki er annað á þeim félög-
um að skilja en að öryggis- og
menntunarmál á smábátaflotanum
sé í þvílíkum ólestri að helst sé til
ráða að skikka flotann inn til næstu
hafnar, gera á honum ærlegar
breytingar og rusla körlunum á'
skólabekk.
En bíðum nú aðeins við, verður
ekki að álíta að menn, sem gegna
störfum fyrir opinbera nefnd sem
fjallar um jafn alvarleg málefni og
sjóslys við íslandsstrendur, hafi á
reiðum höndum gögn fyrir jafn
þungum ásökunum og þeir félagar
bera á borð í framangreindri frétt.
Bið ég þá hér með að leggja þau
fram á opinberum vettvangi.
Undanfari hamfara þeirra félaga
er vafalaust könnun sú sem Sigl-
ingamálastofnun ríkisins hefur látið
fara fram á þeim bátum sem stunda
rækjuveiðar við Vestfirði og Húnaf-
lóa. Stöðugleikaprófaðir voru 40
bátar og þegar þetta er ritað er
búið að reikna út stöðugleika fyrir
26 þeirra. Af þeim 26 sem útreikn-
ingar liggja fyrir á, þarf að gera
breytingar á 8 bátum sem mer
reiknast til að sé í kringum 30%
þeirra sem prófaðir hafa verið, en
ekki 70-80% eins og hinir málglöðu
forsvarsmenn Rannsóknarnefndar
sjóslysa láta hafa eftir sér. Þetta
er þó ekki mergurinn málsins. Fé-
lagarnir fullyrða að hér sé um smá-
báta að ræða en þar fer heldur
betur að versna í því vegna þess
að aðeins tveir af þessum 40 bátum
sem prófaðir voru eru smábátar og
útreikningar á stöðugleika þessara
2ja báta liggja ekki fyrir — þannig
Arthur Bogason
að ennþá hefur enginn smábátur
fengið útreiknaðan stöðugleika.
Þeir félagar víkja að menntunar-
málum smábátaeigenda. Lands-
samband smábátaeigenda gekkst á
sl. vetri fyrir könnun á menntunar-
málum smábátaeigenda og kom þar
fram mun betri niðurstaða heldur
en nokkurn hafði órað fyrir. Þá
má geta þess að nær öll þau nám-
skeið sem veita réttindi til að stjórna
smábát hafa verið yfirfull á undan-
förnum árum og er mikill áhugi og
hugur í smábátaeigendum um land
alt að afla sér tilskilinna réttinda.
Ekki er það síst stöðugum áróðri
að þakka en Landssamband smá-
bátaeigenda hefur það á stefnuskrá
sinni að enginn smábátaeigandi rói
til fiskjar öðruvísi en með fullgilda
mannatryggingu, á húfti’yggðum
báti með fullgilt haffærisskírteini
og síðast en ekki sist að stjórnand-
inn hafi a.m.k. 30 tonna réttindi.
Málflutningur félaganna er því
út í hött og eina leiðin til þess að
bjarga þessari flónsku sinni er að
leggja skriflegar sannanir á borð á
opinberum vettvangi máli sínu til
stuðnings.
Það er hastarlegt að með tiltölu-
lega stuttu millibili hafa forsvars-
menn Rannsóknarnefndar sjóslysa
gert sig seka um málflutning þar
sem meira er fullyrt en sannað. Á
síðasta ári létu forsvarsmenn nefnd-
arinnar hafa eftir sér eftirfarandi
frétt sem birtist á baksíðu Morgun-
blaðsins 21. ágúst undir fyrirsögn-
inni: „Óeðlilega margir bátar hafa
sokkið í góðu veðri — segir formað-
ur Rannsóknarnefndar sjóslysa.
Óeðlilega margir bátar hafa sokkið
í góðu veðri að undanförnu og við
höfum áhuga á að ná þeim upp til
að rannsaka hvort til dæmis galli
i hönnun hefur valdið því að þeir
sukku,“ sagði Haraldur Blöndal,
formaður Rannsóknarnefndar sjó-
slysa, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Slysavarnafélag íslands hefur
áhuga á að kaupa neðansjávar-
myndavél og við gæ.tum notað hana
til að finna sokkna báta. Það hefur
komið fyrír að menn hafi sökkt
bátum en égman ekki eftirnýlegum
dæmum um það (leturbreyting er
gerð af undirrituðum)," sagði Har-
aldur Blöndal.“
Og nú eru þeir mættir á nýjan
leik og ekki annað á þeim að skilja
en að fyrir liggi mjög ítarleg úttekt
á stöðugleika alls smábátaflotans.
Af framansögðu má sjá að umræð-
an hjá þeim helst á sama planinu.
Menn sem bregðast þannig við æ
ofan í æ eru einfaldlega ekki starfi
sínu vaxnir og ættu að bregðast
við samkvæmt því.
Höfundur er formaður
Landssambands smábátaeigenda.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
| auglýsingamiðill!
Varasjóður: Hvað skiptir
mestu máli?
Avöxtun og öryggi skipta mestu
máli þegar lagt er í varasjóð.
Sjóðsbréf VIB og önnur verðbréf
sem VIB hefur valið til sölu sam-
eina þetta tvennt. Sjóðsbréf 1,2,3
og 4 má kaupa fyrir allt frá 5.000
krónum. Að baki þeim standa
skuldabréf ríkis, sveitarfélaga,
banka og fyrirtækja. Sjóður 4
íjárfestir einnig í hlutabréfum.
Avöxtun Sjóðsbréfa 1 er um 10-
10,5% yfir verðbólgu og ávöxtun
Sjóðsbréfa 3 um 8-8,5%.
TTS i -
í rólegheitunum heima...
Við hjá VIB höfum gefið ut 5
upplýsingabæklinga þar sem helstu
spurningum nýrra viðskiptavina er
svarað. Þú getur komið við í Ámuila
7 eða hringt og fengið bæklingana
senda heim. Þannig geturðu kynnt
þér þjónustu okkar í rólegheit-
unum heima.
Góð þjónusta er
aðalsmerki okkar.
Hjá VIB starfa nú 9 ráðgjafar.
Hver og einn þeirra getur gefið þér
nánari upplýsingar um alla þjón-
ustu VIB og hjálpað þér að skipu-
leggja sparnaðinn. Innan tíðar
géfúrðu svo notið þess að eiga
öruggan og vaxandi varasjóð.
Verið velkomin í VIB.
VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30