Morgunblaðið - 22.08.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1989
Frá afmælishátíðinni á laugardaginn. Morgunbiaðið/Bjami
Sex heiðraðir á 50 ára
afinæli Blindrafélagsins
Steinunn Ögmundsdóttir og Ólafur Pálsson voru gerð að heiðurs-
SEX voru heiðraðir á hálfrar
aldar afmæli Blindrafélagsins
síðastliðinn laugardag. Halldór
S. Ra&iar, framkvæmdastjóri
félagsins, var sæmdur æðstu
orðu norsku Blindrasamtak-
anna fyrir störf í þágu blindra,
heima og erlendis.
Afmælishátíð Blindrafélagsins
fór fram í garðinum við Hamrahlíð
17. Samkoman hófst klukkna 13
með leik Lúðrasveitar Verkalýðs-
ins.. Að því loknu bauð Gísli Helga-
son, formaður afmælisnefndar
Blindrafélagsins, gesti velkomna.
Davíð Oddson, borgarstjóri, flutti
ávarp og Torfi Jónsson las upp
ljóð eftir Skúla Guðjónsson frá
Ljótunarstöðum og Jónas
Tryggvason frá Blönduósi. Ragn-
ar Magnússon hélt hátíðarræðu
og Karlakór Reykjavíkur söng
nokkur lög. Þá var lýst kjöri
þriggja heiðursfélaga Blindrafé-
lagsins, þeirra Pálinu Guðlaugs-
dóttur, fyrrum ljósmóður, en hún
hefur unnið mikið og óeigingjarnt
starf í þágu blindra, og hjónanna
Steinunnar Ögmundsdóttur og
Ólafs Pálssonar fyrrum múrara-
meistara. Hjónin hafa tekið mik-
inn þátt í starfí Blindrafélagsins
og styrkt það á margan hátt,
m.a. eru þau hvatamenn að sögu-
ritun félagsins. Þórhailur Gutt-
ormsson vinnur nú að því verki.
Pálína Guðlaugsdóttir.fyrrum
ljósmóðir, hefiir starfað i þágu
blindra um árabil.
Eftir afhendingu heiðursfélaga-
skjalanna tók fulltrúi íþróttasam-
bands fatlaðra til máls og af-
hjúpað var listaverk sem Þórður
Barðdal gaf Blindrafélaginu.
Verkið, sem er úr marmara, nefn-
ist „Friðardúfa". Um klukkan
hálf þijú var almenningi gefin
kostur á að skoða hús Blindrafé-
lagsins og kynna sér starfsemina
sem þar fer fram.
Umkvöldið var haldið afmælis-
hóf í Átthagasal Hótel Sögu. Jó-
felögum.
hanna Sigurðardóttir var aðal-
ræðumaður kvöldsins og tilkynnti
um gjöf ríkisstjórnarinnar til
Blindrafélagsins. Gjöfinni skal
varið til hljóðbókagerðar. Þá
fluttu fulltrúar frá Blindrafélög-
um á hinum Norðurlöndunum
ávörp og afhentu Blindrafélaginu
gjafir. Þrír voru sæmdir Gull-
lampa Blindrafélagsins. Þeir eru
Oddur Ólafsson fyrrum yfirlæknir
á Reykjalundi, Guðjón Guðmunds-
son sem hefur verið formaður
allra byggingarnefnda Blindrafé-
lagsins og formaður stjórnar
Blindravinnustofunnar um árabil
og Halldór S. Rafnar framkvæmd-
arstjóri Blindrafélagsins og fyrr-
um formaður þess. Auk þess var
Halldór S. Rafnar sæmdur æðsta
gullmerki Norsku Blindrasamtak-
anna fyrir störf að málefnum
blindra hérlendis og á erlendum
vettvangi.
Blindrafélagið var stofnað
19.ágúst 1939.
Heildarreglugerð um mengunar-
varnir í gildi um næstu áramót
NÝ mengunarvarnareglugerð tekur gildi um næstu áramót og mun
þetta vera fyrsta heildarmengunarvarnareglugerðin hérlendis.
Reglugerðin tekur til ytra umhverfis, en áður var aðeins í gildi reglu-
gerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur. Reglugerðin styðst við aðr-
ar norrænar mengunarVarnareglugerðir, sérstaklega er þó tekið
mið af þeirri norsku.
Hér er um viðamikið svið að
ræða, að sögn Guðmundar Bjarna-
sonar, heilbrigðisráðherra, sem
kynnti nýju reglugerðina í gær.
Meginþættir hennar eru varnir
gegn vatnsmengun, loftmengun,
úrgangsmengun og hávaðameng-
un. I reglugerðinni kemur m.a. fram
að ráðherra skipar fimm manna
fastan starfshóp til að gera tillögur
um meðferð og eyðingu hættulegs
efnaúrgangs, þ. á m. um staðsetn-
ingu og rekstur móttökustöðva fyr-
ir slíkan úrgang. Heimilt verður að
leggja skilagjald á vöru, sem verður
fyrirsjáanlega að hættulegum úr-
gangi, til að draga úr hættu á
mengun af völdum þess úrgangs.
Ráðherra segir að þótt reglugerð-
in hafi verið staðfest, þurfi að setja
fleiri reglur og gefa út leiðbeiningar
t.d. um viðmiðunarmörk fyrir leyfi-
lega mengun umhverfisins. Heil-
brigðisnefndir sveitarfélaganna og
heilbrigðisfulltrúar um land allt
munu annars vegar .hafa eftirlit
með framkvæmd reglugerðarinnar
og hins vegar mun Hollustuvernd
ríkisins sjá um svokallað sérhæft
eftirlit.
Mengun frá bifreiðum skal könn-
uð framvegis við skoðun á vegum
Bifreiðaskoðunar Islands hf. og
hafa nú verið gefnar út sérstakar
viðmiðunarreglur um útblástur bif-
reiða. Þær reglur taka gildi frá og
með 1. janúar 1992. Ef bifreiðar
standast ekki þau viðmiðunarmörk,
verður gerð krafa um að þær skuli
búnar sérstökum hreinsibúnaði, að
sögn ráðherra.
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins, segir þetta eðlilega þróun. Hins
vegar mætti ríkisvaldið koma til
móts við bifreiðaeigendur með því
að fella niður gjöld af bifreiðum
búnum sérstökum hreinsibúnaði þar
sem bifreiðar búnar slíkum búnaði
kosti meira en aðrar.
Ráðherra segir að reglugerðin sé
gefin út og kynnt nú, rúmum fjórum
mánuðum áður en hún á að taka
gildi, til að gefa öllum aðilum kost
á aðlögun og umþóttunartíma.
Hann segist ekki búast við veruleg-
um kostnaðarauka samfara nýju
reglugerðinni. Á undanförnum
árum hafi heilbrigðiseftirlit um land
allt verið eflt og yrði verkaskipting
milli ríkis og sveitarfélaga í þessu
efni eftir sem áður sú sama. Þess
má að lokum geta að heilbrigðis-
nefndir og heilbrigðisfulltrúar
starfa á vegum viðkomandi sveitar-
félaga. Hollustuvernd fellur hins
vegar undir ríkissjóð.
Ráðherra segir að hingað til hafi
engar heildarreglur um mengunar-
varnir verið til í landinu. Nú sé hins
vegar komin fram heilsteypt reglu-
gerð, en í ársbyijun 1985 skipaði
þáverandi heilbrigðisráðherra nefnd
til að vinna að þessum málum.
iá
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
'ARMA
PLAST
ARMULA 1 6 OG 29, S. 38640
Heildarupphæð vinninga
19.08. var 3. 892.054.
1 hafði 5 rétta og fær
hann kr. 1.793.241.
Bónusvinninginn fengu 2
og fær hver kr. 155.556.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 3.833
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 289.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu.
Sími685111. .
Uppiýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002