Morgunblaðið - 22.08.1989, Blaðsíða 29
MQRQUNBLAÐIÐ VIÐSKIPnÆlVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR-22. ÁGÚST 1989
JAKVÆÐ FYLGNI — Eins og sjá má af myndinni hér að ofan hefur verið jákvæð fylgni milli
sparnaðar og raunvaxta undanfarna tvo áratugi. Sparnaður er hér skilgreindur sem peningamagn og sparifé
í bankakerfinu, þ.e. innlán innlánsstofnana ásamt seðlum og mynt í umferð. Sparnaður minnkar með lækk-
andi raunvöxtum en með verðtryggingu og hærri raunvöxtum hefur sparnaður sem hlutfall af landsfram-
leiðslu aukist jafnt og þétt frá 1978 og var kominn í 32,5% 1988. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi frá
Verðbréfaviðskiptum Samvinnubankans þar sem fjallað er um hvort tímabært sé að afnema verðtryggingu
fjárskuldbindinga. Greinarhöfundur kemst að þeirri niðurstöðu að skilyrði fyrir afnámi verðtryggingar hljóti
að vera stöðug verðlagsþróun í a.m.k. 2-3 ár þar sem verðbólgan sé ekki meiri en 5-8% eins og gerist í
okkar helstu viðskiptalöndum. Verðstöðvun í 3 til 6 mánuði sé ekki nægjanlegur grundvöllur til að afnema
verðtryggingu því verðbólguskriður hafi alltaf fylgt að henni lokinni.
Skrifstofutækni
Nám sem styrkir stöðu
þína
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 698590
Fjölmiðlar
40 millj. kr. hagn
aður hjá Stöð 2
Fyrstu sex mánuðina
STÖÐ 2 skilaði 40 milljóna króna
rekstrarhagnaði á fyrstu sex
mánuðum ársins, samkvæmt
milliuppgjöri, sem nýlokið heflir
verið við. Jón Ottar Ragnarsson,
einn af eigendum fyrirtækisins,
segir að hagnaðinn megi rekja
til þeirra aðhaldsaðgerða, sem
gerðar voru um síðustu áramót.
Reksturinn var þá allur endur-
skipulagður og ráðinn var nýr
fjármálastjóri, Jón Sigurðsson.
Jón Óttar segir að viðræður
standi nú yfir við ýmsa erlenda að-
ila um hugsanleg kaup á hluta fyrir-
tækisins. „Við höfum verið með
hlutafjárútboð erlendis og ætlum
okkur er að selja 10% af fyrirtækinu
til þess erlends aðila, sem við teljum
að geti hjálpað okkur við að byggja
upp á íslandi sjónvarps- og kvik-
myndaiðnað, og erum sérstaklega
með Evrópumarkað. í huga. Sjón-
varps- og kvikmyndaiðnaður hefur
alltaf verið á stefnuskrá fyrirtækis-
ins. Þessi áform eru hinsvegar hluti
af okkar langtímamarkmiðum og
höfum við verið að leita að aðila,
sem getur auðveldað okkur að kom-
ast inn á sjónvarpsmarkað í Evr-
ópu.“
Jón Óttar segir að Stöð 2 hafi
að undanförnu rætt við bandaríska,
evrópska og japanska aðila. Meðal
annarra mætti nefna , ABC, NBC,
Warner Brothers og nokkrar evr-
ópskar sjónvarpsstöðvar „Það hefur
ýmislegt komið út úr þessum við-
ræðum og teljum við miklar líkur á
að við finnum þennan aðila, sem við
erum að leita að,“ sagði Jón Óttar.
„Þó má búast við að þessi leit taki
nokkra mánuði til viðbótar".
gott samband.
Tamurci 5-16.
5 bæjarlinur og allt að 16 innanhússlínur.
Sterk en ódýr símkerfi frá JAPAN.
Vegna sérlega hagkvæmra
samninga beint við verk-
smiðju, bjóðunt við Tarnura
símkerfi á mjög góðu verði.
Fjölmargir eiginleikar, s.s.
skammvalsminni, einka-
minni.innanhússkallkerfi,
innanhúss símafundir, o.fl.
Verð frá kr. 58.400,-
(móðurstöð+3 símtæki).
Hagkvæmir skilmálar auk þess
sem uppsetning fer fram með
skömmum fyrirvara á föstu
verði.Takmarkað magn.
Hafið því santband við
sölumann strax í síma 91
652501.Góð lausn fyrir stóra
sem smáa vinnustaði.
ransit
TRONUHRAUNI 8 220 HAFNAFIRÐI SIMI 652501 TELEFAX 652507
Federal Express
Flutningsmiðlun með
hraðflutningana
Flutningsmiðlunin hf. hefur
verið og er umboðsaðili Federal
Express á íslandi varðandi hrað-
flutninga frá 1. mars sl. og verður
það áfram samkvæmt samningi
þar um, að sögn Steins Sveinsson-
ar framkvæmdasljóra Flutning-
smiðlunarinnar hf.
„Sem kunnugt er þá er Federal
Express þekktast fyrir hraðflutn-
inga og er eitt stærsta fyrirtæki
þeirrar tegundar í heiminum og sér
fyrirtækið um að safna saman og
afhenda um 1 milljón sendinga á
dag. Hraðsendingar Federal Ex-
press til íslands þar sem-Flutnings-
miðlunin sér um afhendingu og toll-
meðferð hafa farið mjög vel af stað
enda er þjónustunet FedEx mjög
víðfeðmt og öruggt. Fer sendinga-
fjöldinn vaxandi með hverri viku
sem líður og er þeim öllum skilað
til viðtakenda sama dag eða daginn
eftir að þær koma til landsins.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur Federal Express keypt
Flying Tigers og frá og með 7. ágúst
sl. Er eingöngu um að ræða nafn
Federal Express hvort sem um er
að ræða hraðflutningana eða hina
almennu fraktflutninga sem áður
voru undir nafni Flying Tigers.
Samkvæmt ákvörðun Federal Ex-
press mun Flugfax hf. verða þeirra
umboðsaðili hérlendis vegna al-
mennra fraktflutninga, sem áður
voru undir nafni Flying Tigers, en
Flutningsmiðlunin hf. umboðsaðili
þeirra varðandi hina eiginlegu hrað-
flutninga.
Ástæðan fyrir því að ofangreindu
er hér með komið á framfæri er sú
að í fréttum hefur komið fram, að
aðeins sé um einn umboðsaðila Fed-
eral Express hérlendis, sem hér með
leiðréttist," sagði Steinn.
Skrifstofutækni Tölvufræðslunnar
er hagnýtt nám sem opnar þér
nýjar leiðir á vinnumarkaðnum
Eyrún Kristjánsdóttix, Skrifstofutæknir:
Gat rifjað upp ýmislegt í viðskiptagreinum
Námið hjá 'l'ölvufræðslunni veitti mér innsýn í undrahcim
tölvu-tækninnar. Einnig gat ég rifjað upp ýmislegt sem ég hafði
áður lært í viðskiptagreinum. Námið er fræðandi og skemmtilogt
í góðum hópi nemenda á öllum aldri. Ég hyggst taka að mér
verk-efni heima í tölvubókhaldi og flciri tölvugreinum.
Teitur Lárusson .Starfsmannaþjónustu T.L. :_____
í takt við þarfir vinnumarkaðarins
Til okkar leita atvinnurekendur sem þurfa hæfa starfskrafta til
að fást við margháttuð störf. Reynsla okkar hofur sýnt að
Skrifslofu-tæknar Tölvufræðslunnar eru í takt við þarfir
vinnumarkaðarins. Skrifstofutæknin er tvímælalaust góð leið til
að ná betri fótfestu á vinnumarkaðnum.
SKRIFSTOFUTÆKNI er nám sem skiplist í lölvu-
groinar, viðskiptagreinar og tungumál. Við hjóðum upp á morgun-, eftirmiðdags- og
kvöldtíma. Námið tckur 3-4 mánuði. Að námi loknu útskrifast þú sem Skrifstofutæknir.
Innritun er þcgar hafin. | —
I iringdu strax í sírna 087590 fiuBi sdTlTÖLVUFRÆÐSLAN
og við sendum þér hækling L,
um hæl. Borgartúni 28, sími 687590
Hagnýtt nám í góðum fclagsskap