Morgunblaðið - 22.08.1989, Qupperneq 39
MOBGUNBDAÐIÐ ÞRIBKíDAGUH 22.:4GýSTiI989 '
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför móður
okkar,
INGVELDAR ÁSTGEIRSDÓTTUR,
Brúnastöðum.
Ásdís Ágústsdóttir, Guðjón Axelsson,
Þorvaldur Ágústsson, Guðrún Guðfinnsdóttir,
Ketill G. Ágústsson, Þórunn Pétursdóttir,
Gísli Ágústsson,
Geir Ágústsson, Margrét Stefánsdóttir,
Hjálmar Ágústsson, Ingibjörg Einarsdóttir,
Guðni Ágústsson, Margrét Hauksdóttir,
Auður Ágústsdóttir, Jens Jóhannsson,
Valdimar Ágústsson,
Bragi Ágústsson, Guðrfður Einarsdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir, Guðjón Skúli Gíslason,
Tryggvi Ágústsson, Helga Baldursdóttir,
Þorsteinn Ágústsson, Margrét Jónsdóttir,
Hrafnhildur Agústsdóttir, Oddur Bjarnason,
Sverrir Agústsson, Helga Sveinsdóttir,
Jóhann Ágústsson, Olga Sveinbjörnsdóttir
og barnabörn.
39
Salvör Kristiánsdóttir
ísafírði - Minning
Fædd 20. október 1903
Dáin 9. ágiíst 1989
Salvör Kristjánsdóttir fyrrum
húsfreyja á Kirkjubæ í Skutulsfirði
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Isafirði 9. ágúst sl. Við systkinin,
sem vorum sumargestir hjá afa
okkar og ömmu í sumarbústaðnum
Grund í Skutulsfirði, kynntumst
henni sem Söllu á Kirkjubæ, röskri
bóndakonu, sem kom fram við okk-
ur eins og sjálfstæða einstaklinga
og sýndi okkur góðsemi, án þess
þó að vera með ónauðsynleg blíðu-
hót. Við fengum að ganga til verka
með Söllu og Boga og öðru heimilis-
fóiki á Kirkjubæ, og þar kynntumst
við sveitastörfum og sáum tímana
breytast, frá því að mjólkin var flutt
í bæinn á hestakerru og þar til
búskapurinn var orðinn vélvæddur
að mestu leyti.
Heyskapurinn er okkur minnis-
stæður. Við sjáum Söllu fyrir okkur
í flekknum, með skuplu um hárið
og vel þæfða hrífuvettlinga. Hún
tók rösklega til hendinni og skildi
aldrei eftir slæður, eins og oft vildi
gerast hjá okkur borgarbörnunum.
Um miðjan dag færði hún heyskap-
arfólkinu kaffi og með því og það
var fjarri henni að skilja okkur
krakkana út undan, þótt við ættum
stutt heim. Aldrei féll styggðaryrði
í okkar garð, þó að við höfum sjálf-
sagt flækst meira fyrir en hjálpað
til á stundum.
Kýmar á Kirkjubæ voru hand-
mjólkaðar alla tíð. Við bömin vomm
daglega send uppeftir með brúsa
til að sækja mjólkina. Stundum
komum við á mjaltatíma og urðum
þá að bíða þar til Bogi hefði tíma
til að fara með okkur út að læk,
þar sem stórir mjólkurbrúsar biðu
í kæli. Á meðan við biðum fylgd-
umst við með þeim hjónum við
mjaltirnar og undruðumst hand-
brögðin, sem em enn þann dag í
dag sem greypt í hugann. í fjósinu
var lítið Ijós og ekki þætti það stórt
á nútíma mælikvarða, en við fund-
um glöggt mikilvægi þessarar vinnu
og hve annt þau létu sér um skepn-
urnar.
Sami röskleikinn og verklagnin
kom í ljós við rúningu vor og haust.
Þau hjónin kunnu svo sannarlega
að bregða vasahnífunum sínum og
sást hvergi skurður né skráma á
sauðfénu að rúningu lokinni, enda
lögðu þau metnað sinn í það að féð
kæmi sem fallegast undan hnífnum.
Söllu féll sjaldan verk úr hendi.
Þó gaf hún sér stundum tíma til
að skreppa í morgunkaffi til ömmu
á Grund og var þá margt skrafað.
Ef einhver kýrin var nýborin tók
Salla gjarnan með sér ábrysti og
færði ömmu, og þótti okkur það
hið mesta lostæti.
Árið 1974 brugðu Salla og Bogi
búi og fluttust út á ísafjörð og voru
það mikil viðbrigði fyrir okkur sum-
argestina. Bogi lést árið 1978, en
Salla dvaldist síðustu fjögur árin á
sjúkrahúsinu á ísafirði.
Nú þegar við kveðjum Söllu
minnumst við allra stundanna á
Kirkjubæ með þakklæti og hiýju.
Við sendum börnum hennar og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Bryndís, Krislján,
Margrét, Ragnhildur
og Asthildur
t
Ástkær eiginmaður minn og sonur,
INGIMAR WORM KRISTJÁNSSON
frá Miðsitju,
Kleppsvegi 58,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur að morgni 18. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Svala Marelsdóttir,
Guðrún Sveinsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föð-
ur míns og stjúpa okkar,
JÓNS SIGURÐSSONAR
fra Skarðdal,
Kirkjustig 3,
Siglufirði,
sem andaðist i sjúkrahúsi Siglufjarðar 1. ágúst.
Helga Jónsdóttir,
Kristín Snorradóttir,
Jódís Snorradóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum innilega þeim fjólmörgu er hafa sent okkur samúðar og
vinarkveðjur vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður og ömmu,
FANNEYJAR ODDSDÓTTUR,
Hliðargerði 18.
Sérstakar þakkir færum við herra Ólafi Skúlasyni biskup og konu
hans fyrir þeirra vináttu og hlýhug.
Ástrfður Gunnarsdóttir, Valgeir Axelsson,
Steinunn Gunnarsdóttir, Axel Axelsson,
Kristín Gunnarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson,
Guðný Gunnarsdóttir,
Bjarni Gunnarsson,
Heiðar Gunnarsson
og barnabörn.
Marteinn Sverrisson,
Ágústa Magnúsdóttir,
Purolator.
HFUWVf
Úrvals
síur
lyrrnr
SKEIFUNNI 5A SIMI 91 8 47 88
GÓÐAR ÁSTÆÐUR
FYRIR ÞVÍ HVERS VEGNA
ÞÚ ÆTTIR AÐ VELJA VICTOR
Fyrr á þessu ári seldum við fimmþúsundustu VICTOR tölvuna. Þess vegna
segjum við að það séu yfir fimmþúsund góðar og gildar ástæður fyrir vali á
VICTOR.
Hér eru nokkrar þeirra:
* Hagstætt verð.
* Fáguð og góð hönnun
* Rekstraröryggi.
* Mikil afkastageta.
» Níu gerðir í fjölda mismunandi
útgáfa sem henta öllum aðstæðum.
« Tilbúnar til afhendingar af lager.
« Örugg og góð þjónusta.
* Hátt endursöluverð.
Yfir 5000 ánægðir VICTOR eigendur eru öll meðmælin sem þarf.
Sölumenn veita þér fúslega allar nánari upplýsingar í verslun okkar
að Grensásvegi 10 eða síma 686933.
vicrrR
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33 \
augljós