Morgunblaðið - 22.08.1989, Síða 47
MQRGUNBLAÐIÐ PKIÐJDDAGUK 22. ÁGÚST 1989
47*
Morgunblaðið/EBB
ívassaleiti 56—58; snyrtilegasta fjölbýlishús Reykjavíkur.
Betri hliðar
borgarinnar
Umhverfismálaráð Reykjavíkur-
borg veitti viðurkcnningar fyrir fal-
legt umhverfi í borginni á afinælisdag
hennar, 18. ágúst sl.
Fallegasta gata borgarinnar þótti
Stuðlasel og fallegasta ijölbýlishúsið
Hvassaleiti 56—58. Einnig hlutu nokkur
fyrirtæki og stofnanir viðurkenningar;
Mjólkursamsalan, Bitruhálsi 1, Ingvar
Helgason hf., Sævarhöfða 2, J.S. Helga-
son hf., Draghálsi 4, íslenskt franskt
éldhús, Dugguvogi 8—10, Söluturn og
biðskýli, Sogavegi 3, Skipholt 50b og
50c, Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Há-
teigskirkja og Vogur, sjúkrastöð SÁA.
I fyrsta sinn voru yeitt verðlaun fyrir
varðveislu og viðhald gamalla húsa. Þau
verðlaun hlutu Bernhöftstorfan, Frakk-
astígur 9, Garðastræti 11 og Vesturgata
29.
Morgunblaðið/EBB
Skipholt 50b og 50c fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegan irágang
á lóð á mörkum íbúðar- og verslunarhverfis.
Snyrtilegir
garðar í Kópa-
vogi fá við-
urkenningu
VIÐURKENNINGAR fyrir snyrti-
legar lóðir við atvinnu- og íbúðar-
húsnæði í Kópavogi voru afhentar
í Félagsheimili Kópavogs fyrir
nokkru. Það eru Umhverfisráð
Kópavogs, Lionsklúbburinn Mun-
inn, Lionsklúbbur Kópavogs, Rot-
aryklúbbur Kópavogs og Kiwanis-
klúbbur Eldeyjar sem að veiting-
unum standa ásamt bæjarstjóm.
Um þessar mundir eru 25 ár liðin
frá því fyrst voru veitt verðlaun fyr-
ir fagurt umhverfi í Kópavogi og eru
viðurkenningarnar orðnar hátt á
annað hundrað. Hermanni Lundholm
fyrrum garðyrkjufulltrúa og braut-
ryðjanda voru þökkuð vel unnin störf
við afhendingu viðurkenninganna.
Fjórir garðar í Kópavogi fengu
viðurkenningu að þessu sinni. Kiw-
anisklúbbuirnn Eldey veitti Guðrúnu
M. Samúelsdóttur og Garðari Ing-
ólfssyni viðurkenningu fyrir garðinn
að Þinghólsbraut 14.
Alda Indriðadottir og Einar
Bjarnason fengu viðurkenningu fyrir
garðinn sinn að Brekkutúni 20.
Eigendur garðsins að Marbakka-
braut 10, hjónin María Pétursdóttir
og Jón H. Sigurðssoh fengu viður-
kenningu frá Lionskúbbi Munins.
Rotaryklúbbur Kópavogs veitti
þeim Þórdísi B. Lúðvíksdóttur og
Björgvin Ólafssyni viðurkenningu
fyrir garðinn að Birkihvammi 1.
Bílaleiga S.H. við Nýbýlaveg 32
fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt
umhverfi atvinnuhúsnæðis frá Um-
hverfísráði Kópavogs og það veitti
éinnig Sunnuhlíðarsamtökunum og
íbúum Sunnuhlíðar viðurkenningu
fyrir snyrtilegt umhverfi.
Allir þeir aðilar sem hér hafa ver-
ið taldir hlutu áletraðan grip eftir
Iistamennioa Sigrúnu Einarsdóttur
og Sören Larsen í Bergvík á Kjalar-
nesi.
Kvöldganga
um Botnsdal
Náttúruvemdarfélag Suð-
vesturlands og Náttúruverndar-
samtök Vesturlands standa fyr-
ir náttúruskoðunarferð um
HvalQarðarstrandarhrepp og
Kjósahrepp í kvöld.
Farið verður frá Botnsskála
klukkan 20 og gengið um Botns-
dalinn og hugað að jarðsögu,
gróðri og dýralífi.
Komið verður til baka um
klukkan 22.
Öllum er heimil þátttaka í ferð-
inni.
HÚN Á SÉR LEYNDARMÁL
Hún gætir að fæðuvali til að tryggja góða heiisu. Hún veit að
FIRMALOSS inniheldur öll helstu næringarefni ásamt trefjum.
Eitt glas af FIRMALOSS inniheidur aðeins 100 hitaeiningar og
kemur í stað máltíðar. FIRMALOSS er því raunhæf leið til að
grenna sig - og halda sér grannri (grönnum).
Bragðteguridir: Súkkulaði, vanillu og jarðaberja.
Útsölustaðir: Stórmarkaðir og apótek.
SKEIFUNNI 19 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 68 17 17