Morgunblaðið - 17.10.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR J7. OKTÓBER 1989 „
-------------------;----------------------
7
Slasaðist
í árekstri
KONA var flutt í slysadeild eftir
harðan árekstur á mótum Bú-
staðavegar, Grensásvegar og
Eyrarlands síðdegis á sunnudag.
Konan ók Daihatsu-bíl sínum
norður Eyrarland og lenti í árekstri
við leigubíl á leið vest'ur Bústaða-
veg. Enginn meiddist í leigubílnum
en konan kenndi sér meðal annars
meins í hálsi.
Báðir ökumennirnir töldu sig
hafa ekið inn á gatnamótin á grænu
ljósi og óskar slysarannsóknadeild
lögreglunnar eftir að hafa tal af
vitnum sem kynnu að hafa séð
aðdraganda óhappsins.
Hross hljóp í
veg fyrir bíl
AFLÍFA varð hross sem bíll ók
á á þjóðveginum við Húsatóftir
á Skeiðum á sunnudagskvöld.
Bíllinn var á suðurleið þegar
ökumaðurinn sá skyndilega þrjú
hross hlaupa út á veginn. Hann
reyndi að hemla en gat ekki af-
stýrt óhappinu. Aflífa varð einn
hestanna. Bíllinn er talsvert
skemmdur.
Féllnið-
ur af þaki
UNGUR maður slasaðist illa þeg-
ar hann féll ofan af þaki íbúðar-
húss í Norðurmýrinni á laugar-
dag. Hann var fluttur á sjúkra-
hús og gekkst þar undir aðgerð.
Maðurinn var ásamt öðrutn að
leggja þakpappa á þakklæðningu
þegar hann rann niður af þakinu,
féll tæpa sjö metra og hafnaði á
steinsteyptri gangstétt. Hann
missti ijeðvitund og var fluttur
með sjúkrabifreið í slysadeild. Eftir
aðgerð^var líðan hans talin eftir
atvikum.
Um hundrað
þúsundum stolið
úr Víkurskála
BROTIST var inn í söluskála
Kaupfélags Arnesinga, Víkur-
skála, í Vík í Mýrdal aðfaranótt
fóstudagsins og þaðan stolið um
eitt hundrað þúsund krónum.
Þrír menn voru í gær úrskurðað-
ir i gæsluvarðhald, grunaðir um
þjófnaðinn.
Þjófarnir brutu upp peningaskáp
í söluskálanum og höfðu á brott
með sér um eitt hundrað þúsund
krónu og vörur úr skálanum. Þrír
menn voru síðar handteknir, grun-
aðir um þjófnaðinn, og í gær voru
þeir úrskurðaðir í tíu daga gæslu-
varðhald að kröfu Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Þeir hafa ekki játað
þjófnaðinn.
Rannsóknarlögreglan verst frek-
ari fregna af málinu og í gær
fékkst ekki upplýst hvort þýfið
hefði komið í leitirnar.
Ók inn í garð
MAÐUR sem grunaður er um
ölvun við akstur ók inní garð við
Hjdllasel um miðnætti á laugar-
dag og skemmdi grindverk og
gróður.
Hann ók á brott en vitni höfðu
séð skráningarnúmer bílsins og
sótti lögregla manninn heim til
hans skömmu síðar.
Barnungir þjóf-
ar í Haftiarfirði
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði hafði nýlega upp á ljóruni
ungum drengjum, sem fyrr um
daginn stálu peningakassa með
12 þúsund krónum úr byggða-
safhi bæjarins.
Drengirnir fóru inn á byggða-
safnið og gripu þar læstan peninga-
kassa með 12 þúsund krónum á
meðan umsjónarmaður brá sér frá.
Tveimur tímum • síðar sást til
tveggja drengja, 10 og 12 ára, í
vesturbæ Hafnarfjarðar og þótti
lögreglumanni þeir vera flóttalegir
á svip. Við nánari könnun kom í
ljós að drengirnir voru nýbúnir að
spenna upp peningakassann og
taka peningana. Tveir félagar
þeirra á svipuðum aldri höfðu einn-
ig komið við sögu þjófnaðarins.
Þrír meiddust í
árekstri
ÞRIR voru fluttir í sjúkrahús
eftir harðan árekstur á mótum
Skeiðarvogs og Suðurlands-
brautar á fostudagskvöld.
Bíl var ekið norður Skeiðarvog
og beygt vestur Suðurlandsbraut í
veg fyrir bíl sem ekið var suður
Skeiðarvog. Ökumenn beggja
bílanna og farþegi úr öðrum voru
fluttir í sjúkrahús, en ekki taldir
alvarlega slasaðir.
Unnið við að fræsa ofan af hraðahindrunum við Reykjaveg.
Hraðahindranir lækkaðar
STARFSMENN Reykjavíkur-
borgar unnu á sunnudag og í gær
að því að fræsa ofan af hraða-
hindrunum á Reykjavegi. Að
sögn Sigurðar Skarphéðinsson-
ar, aðstoðargatnamálastjóra,
voru hraðahindranir þessar of
krappar og stuttar.
Sigurður sagði að það væri mikið
nákvæmnisverk að gera slíkar
hindranir og hindranirnar á Reykja-
veginum hafi verið um 3 sentimetr-
um hærri en þær áttu að vera.
„Það sést á malbikinu við þær að
bílar hafa tekið niðri þegar þeir
fóru yfir þær, en mér er ekki kunn-
ugt um skemmdir á bílum vegna
þessa,“ sagði hann. „Við ætlum
okkur að kanna næsta vor hvernig
allar hraðahindranir í bænum eru.
Þær verða til dæmis stundum of
lágar þar sem nýtt lag af malbiki
er lagt á götuna."
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi:
Innbrot í byggmgavöruverslun
Blönduósi.
BROTIST vai- inn í Kaupfélag
Húnvetninga (KH) á Blönduósi
aðfaranótt mánudagsins. Stolið
var peningum úr peningaskáp á
skrifstofu byggingavöruverslun-
ar, rúmlega hundrað þúsund
krónum. Hluti þýfisins fannst í
bíl er fór útaf við bæinn Hnausa
í Þingi. Lögreglan veit liverjir
voru að verki en ekki rlefUr til
náðst til sökudólganna.
Farið var inn í byggingavöru-
verslunina í gegnum glugga á
stórri lagerhurð og svo snyrtilega
var staðið að þessu verki að rúðan
var sett aftur í að innbroti loknu.
Litlar skemmdir voru unnar í bygg-
ingavöruversluninni utan þess að
peningaskápurinn var brotinn upp.
Ljóst er að þeir sem að verknaði
þessum stóðu fóru úr bygginga-
vöruverslun yfir í matvöruverslun
og gerðu tilraun til að komast inn
í peningaskápinn þar. Einungis var
stolið peningum, ávísanir og nótur
voru látnar í friði svo og úr og
aðrir verðmætir hlutir. Peninga-
skápurinn sem brotinn var úpp er
gjörónýtur og við verknaðinn hafa
þjófarnir notað verkfæri sem fást
í byggingavöruverslun KH. Eins
og fyrr greinir er ekki ljóst hver
eða hverjir stóðu að innbrotinu en
málið er nú í höndum lögreglunnar
á Blönduósi.
Jón Sig.
Rækjuafli nú fjórð-
ungi minni en í fyiTc
TÖLUVERÐUR samdráttur hef-
ur orðið á rækjuafla frá síðasta
ári. I lok september höfðu aflazt
17.290 tonn, en á sama tíma í
fyrra 23.037. Mismunurinn er
tæp 6.000 tonn sein er um Qórð-
ungssamdráttur. Botnfiskaflinn í
september var alls 39.581 tonn,
en var í sama mánuði í fyrra
42.234 torin. Þorskur í þessum
afla var nú 18.706 tonn, en 18.591
í fyrra.
Heildaraflinn í mánuðinum varð
alls 42.845 tonn, 9.000 tonnum
minni en í fyrra, og munar mestu
um minni karfaafla nú svo og að
enn hefur engin loðna veiðzt. Frá
áramótum er aflinn orðinn
1.151.935 tonn en var eftir sama
tíma í fyrra 1.184.196 tonn.í lok
september var botnfiskaflinn orðinn
520.267 tonn á móti 535.233 tonn-
um í fyrra. Þorskaflinn var orðinn
279.173 tonn á móti 295.237 tonn-
um í fyrra og 321.069 í hitteðfyrra.
Afli af ýsu, grálúðu og ufsa er nú
meiri en í fyrra, en minni af öðrum
helztu nytjategundum.
Blombera
KÆ L I SKAPAR
KS 328
/KS 335
/KS314
188L kælir/133 Lfrystir/ 248L kælir/79 L frystir / 226L kælir/56 L frystir
Mál:Hl85B60D60cm/ Mál:Hl85B60D60 cm / Mál:Hl63B60D60 cm
[ fj==j ir1—
1 m Ín
KS242
194L kælir/52 L frystir j
Mál:Hl42B55D58 crm
220 L kælir
Mál:Hl24B55D58 cm,
202 L kælir/18 Lfrystir
Mál:Hl 24B55D58 cm
KS182
169L kælir/16 L frystir /
Mál:H109B50D58 cm.
ssy
Hér sést hluti aí úrvalinu,
sem við bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BLOMBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
BLOMBERG kæliskápur
er sönn kjarabóti!
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartuni 28. simar 16995
og 622900
KS 140
143L kælir
Mál:H85B50D58 cm
IKS 142
129L kælir/14 Lfrystir
Mál:H85B50D58 cm
MHM****